Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 39
ekki er
Hins veg-
ðar í gær-
g en stefnt
um miðja
i, Þerney
karfann á
rn og Ottó
heima-
Þórs Stef-
Granda hf.
gaman að
hvernig
naðarfrið-
un og rúmlega það,“ sagði hann.
Fjórir bátar Vísis hf. í Grindavík
eru farnir á sjó en þrír fara vænt-
anlega í dag og í kvöld. „Ef það verð-
ur skörp steinbítsveiði getum við
byrjað vinnslu á Þingeyri á mánu-
dag,“ segir Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis, en Fjölnir og
Sævík fóru á steinbítsmiðin fyrir
vestan. Hann segir að vinnsla á
Djúpavogi og í Grindavík hefjist eitt-
hvað síðar, jafnvel ekki fyrr en í lok
næstu viku eða byrjun vikunnar þar
á eftir, því stefnt sé að því að safna í
sarpinn áður en verður byrjað.
„Þetta fer auðvitað allt eftir afla-
brögðum en ég vona bara að ég upp-
lifi svona verkfall aldrei aftur,“ segir
Pétur.
Fiskvinnslan á
fullt í næstu viku
Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að
það taki nokkra daga fyrir fisk-
vinnsluna að komast í gang, en það
sé þó misjafnt eftir stöðum.
Eðlilega verði hún fyrr í gang þar
sem byggt er á afla dagróðrabáta og
strax eftir helgi verði komin meiri
drift en nú er, en þar sem hús byggi
á afla togara megi búast við að hlut-
irnir gerist ekki fyrr en eftir um
vikutíma. Sjálfsagt verði reynt að
stytta fyrstu túrana til að geta hafið
vinnslu sem fyrst og nú sé aðeins
beðið eftir hráefninu. „Hjólin fara
ekki að snúast af fullum krafti fyrr
en komið er fram í miðja næstu
viku,“ segir Arnar.
ast á
helgi
na enda menn í viðbragðs-
ins var beðið eftir að Stjórn-
og verkbanns útvegsmanna
llt upp úr miðri næstu viku,
dag.
ið/Þorkell
r.
SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands, segir að
niðurstaðan á Alþingi sé vonbrigði.
Það sé alveg ljóst að eftir þessu hafi
útgerðarmenn beðið og þetta hafi
verið gert eftir pöntun frá þeim.
„Þeir hafa getað treyst því allan
tímann að svona myndi þessu ljúka
fyrr eða síðar,“ sagði Sævar.
Hann sagði aðspurður að það
sýndi meðal annars sú staðreynd að
þeir hefðu ekki aflýst verkbanninu
þótt Sjómannasambandið hefði verið
búið að aflýsa verkfallinu. Það sæist
líka á því að eftir gerð vélstjóra-
samningsins hefði ekki verið beðið
með að gefa sjávarútvegsráðherra
merki um að hefjast handa því að
hann hefði átt að nota sem viðmið í
gerðardómnum. Reyndar hefðu
ákvæði þessa efnis verið milduð í 3.
greininni, en samningurinn væri fyr-
ir hendi og þeir segðu sjálfir að það
gætu ekki verið öðruvísi kjör hjá vél-
stjórum en öðrum svo í sjálfu sér
væru þeir enn að gefa gerðardómn-
um vísbendingar.
Sævar sagði jafnframt að sjávar-
útvegsráðherra hefði gengið á bak
orða sinna. Hann væri með það út-
prentað sem sjávarútvegsráðherra
hefði sagt og þeir hefðu notað það
þegar þeir hefðu tekið ákvörðun um
að aflýsa verkfallinu.
„Ráðherra hefur svo sem áður
kallað mig lygara þrátt fyrir að ég
hafi vitni að því sem hann hefur sagt
við mig, svo það virðist vera orðin
lenska hjá honum í liði við LÍÚ að
gera okkur, forustumenn sjómanna,
ótrúverðuga. Þetta svona virðist
vera samspil hjá strengjabrúðunni
og LÍÚ,“ sagði Sævar.
Hann sagðist vel geta upplýst það
að grunnurinn að ákvörðun Sjó-
mannasambandsins um að aflýsa
verkfallinu hefði verið þau orð sjáv-
arútvegsráðherra sem þeir ættu út-
prentuð að ef verkfalli yrði aflýst sæi
hann ekki ástæðu til þess að setja
samninga þeirra aðila í gerðardóm.
„Það var grunnurinn að ákvörðun
okkar um að halda samningsréttin-
um. Annars hefðum við alveg eins
getað látið þetta yfir okkur ganga
eins og Farmanna- og fiskimanna-
sambandið gerði og ég gagnrýni þá í
sjálfu sér ekki fyrir það. Hvaða til-
gangur átti að vera í aflýsingunni hjá
okkur vitandi það að lög yrðu sett
hvort sem var? Tilgangurinn var að
halda samningsréttinum og ekkert
annað,“ sagði Sævar.
Hann sagði að búið væri að svæla
sjómenn inn í þennan gerðardóm
sem reyndir lögfræðingar segðu að
væri enginn gerðardómur. Þetta
væri stjórnsýslunefnd, stjórnskipuð
nefnd til þess að taka á kjaramálum
sjómanna. „Ég náttúrlega el þá von í
brjósti að þeir menn sem í hana velj-
ast vinni af skynsemi. Þá þarf
kannski ekki að óttast niðurstöðuna
svo mjög,“ sagði Sævar. Hann bætti
því við að hann vonaðist til að þeir
bæru gæfu til þess að binda ekki kjör
sjómanna með þeim hætti sem gert
hefði verið í frumvarpinu í byrjun.
Sævar sagði að þeir myndu gera
allt sem í þeirra valdi stæði til þess
að fá stjórnvöld dæmd frá þessu ger-
ræði sínu. Þeim væri sagt af ágæt-
lega hæfum lögfræðingum að margt
benti til þess að þetta bryti bæði
stjórnarskrána og lögin um stéttar-
félög og vinnudeilur, auk samþykkta
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og
trúlega mannréttindi einnig. „Og við
munum láta reyna á þetta á öllum
þessum vígstöðvum. Það liggur al-
veg fyrir,“ sagði Sævar.
Hann sagði að gallinn við það væri
að þetta tæki mjög langan tíma og
ekki væri hægt að nýta sér það gegn
því gerræði sem stæði til að beita í
næsta mánuði. Kosturinn væri aftur
á móti sá að það kæmi dagur eftir
þennan dag „og það gæti kannski
leitt til þess að LÍÚ geti ekki hér eft-
ir sem hingað til treyst því að
strengjabrúðurnar í sjávarútvegs-
ráðuneytinu verði áfram í strengjun-
um hjá þeim hvað þetta varðar.“
Sævar Gunnarsson
Lagasetn-
ingin pöntuð
af útgerðar-
mönnum
ðmæti.
sveiflur
s og seg-
ambandi
afi að
nn á
vetrarvertíðinni suðvestanlands
og mjög gott verð hafi fengist
fyrir saltfiskinn á þeim tíma.
Hins vegar sé ekki þar með sagt
að sama eða svipað verð fengist
á öðrum tíma.
2-'*','
2)*00+
2'*'1)
2111
2/.(
2-1+
2)/.
2,+(
2'.)
2'10
2'--
2''(
20/
21
2'-*0,'
)*.10
(*(+0
,,*1(+
! # $%
41.000
n í fyrra
anleg lausn á deilunni. Það er
óþolandi að útgerðarmaður fái að
verðleggja þann fisk sem hann
kaupir af sjálfum sér. Verðlags-
málin eru ágreiningur sem við
verðum að losna við og það gerist
ekki nema við tökum upp þá mark-
aðsvæðingu sem er höfð alls stað-
ar annars staðar í þjóðfélaginu,
meira segja í skráningu krónunn-
ar, að markaðurinn ráði. Og hví
skyldi markaðurinn ekki fá að
ráða verðlagningu upp úr sjó? Það
er okkar skoðun að það sé lyk-
ilatriði að markaðslögin fái að
ráða.“
Grétar segist svartsýnn á að
samningar náist við útgerðarmenn
áður en deilan verður sett í gerð-
ardóm 1. júní nk. Hann telur út-
gerðarmenn ekki hafa sýnt neinn
vilja til að semja, nema hvað þeir
hafi náð samningi við vélstjóra
með því að spila á Helga Laxdal.
„Ég er ekki bjartsýnn á að við
náum samningum við útvegs-
menn. Þeir hafa hagað sér afskap-
lega sérkennilega í þessum við-
ræðum. Þeir hafa sett sig á háan
hest og talað niður til sjómanna-
samtakanna og ég á ekki von á því
að það náist neinir samningar.“
FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir það
vonbrigði og sorglega niðurstöðu
að ná ekki samningum við fleiri
félög sjómanna en Vélstjórafélag-
ið. Hann segir þó möguleikann
ennþá vera fyrir hendi að semja
og útgerðarmenn vonist til þess,
þó að yfirlýsingar sjómanna gefi
ekki tilefni til bjartsýni í þeim
viðræðum.
„Ef það tekst ekki er að öðru
leyti ekki annað að gera en vinna
að þessu í gegnum gerðardóm.
Þetta er auðvitað bara sorgleg
niðurstaða, að okkur skyldi ekki
takast að ná saman með fleiri en
vélstjórunum.“
Friðrik segir að þótt útgerðar-
menn séu ósáttir við lagasetn-
inguna hafi tæpast verið hægt að
fara þá leið að sitja við samninga-
borðið til þrautar. „Auðvitað vissu
allir að þetta stæði ekki enda-
laust. Það væri barnalegt ef ein-
hver hefur staðið í þeirri trú. En
það er alveg ljóst að við höfum
teygt okkur mjög langt til að
reyna að ná samningi og við höf-
um náð samningi við eitt félagið.
Og það er það sem stendur upp
úr í þessu, að hjá Vélstjórafélag-
inu höfðu menn sama vilja og við
til að klára þetta og höfðu kjark
til þess að semja.“
Að sögn Friðriks hafa útgerð-
armenn allan tímann lagt höfuð-
áherslu á að ná fram þeirri kröfu
að ávinningurinn af fækkun
manna í áhöfn vegna tæknifram-
fara skiptist jafnt á milli útgerðar
og sjómanna. „Þótt við höfum alls
ekki náð þeirri niðurstöðu sem
við vorum að vonast eftir gagn-
vart vélstjórunum, þá er þetta
þannig mál að ekki verður undan
því vikist að þreyja þorrann og ná
því fram.“
Friðrik segir framtíðarþróun
útgerðar velta á þessu atriði og
Vonbrigði
að ná ekki
samningum
við fleiri
MIÐSTJÓRN ASÍ samþykkti á
fundi sínum í gær ályktun þar
sem lagasetningu á kjaradeilu sjó-
manna og útgerðarmanna er harð-
lega mótmælt og telur miðstjórnin
að lagasetningin sé brot á Stjórn-
arskrá Íslands, mannréttindasátt-
mála Evrópu og samþykktum Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar.
Ályktunin er þannig í heild sinni:
„Vegna yfirvofandi lagasetning-
ar Alþingis á kjaradeilu sjómanna
og útgerðarmanna vill miðstjórn
Alþýðusambands Íslands minna
Alþingi Íslendinga á að réttur
launafólks til að semja um kaup
og kjör er varinn í Stjórnarskrá
Íslands og lögum nr. 80/1983 um
stéttarfélög og vinnudeilur. Al-
þingi Íslendinga og íslensk stjórn-
völd eru einnig bundin af sam-
þykktum Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar (ILO) nr. 87 um
félagafrelsi og verndun þess og
nr. 89 um réttinn til þess að semja
sameiginlega auk þess að vera
bundið af 11. gr. mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Þannig varinn
telst kjarasamningsrétturinn og
rétturinn til þess að beita lögmæt-
um aðgerðum til þess að knýja á
um kröfur í kjaradeilu til helgustu
mannréttinda launafólks og verka-
lýðshreyfingar.
Lagasetning og gerðardómur
um kaup og kjör sjómanna, sér-
staklega þeirra sem ekki hafa
boðað verkfall eða hafa þegar af-
lýst aðgerðum, væri brot gegn
Stjórnarskrá Íslands, samþykkt-
um Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar og mannréttindasáttmála
Evrópu. Íslensk stjórnvöld hafa
áður verið áminnt vegna brota
gegn samþykktum Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar og myndu
hljóta mikinn álitshnekki á al-
þjóðavettvangi endurtæki slíkt sig
nú.
Miðstjórn Alþýðusambands Ís-
lands mótmælir harðlega þeim af-
skiptum sem ríkisstjórn og Al-
þingi hafa haft af yfirstandandi
kjaradeilu og lögmætum aðgerð-
um sjómanna og mun ekki láta
slíkt yfir íslenskt launafólk ganga
án þess að grípa til aðgerða.“
Ályktun ASÍ
Afskiptum
stjórnvalda
harðlega
mótmælt
það gangi ekki að útgerðarmenn
þurfi að hafa of marga menn í
áhöfn til þess að ná niður launa-
kostnaði. „Þess vegna er það
grundvallaratriði að ná samning-
um um þetta og það er í rauninni
mjög vel boðið að skipta á milli
okkar ávinningnum af því sem
verður þegar menn geta hagrætt
og fækkað fólki. Hið algenga er
að atvinnurekandinn fái allan
þeirra hlut sem fækkað er um
þegar tæknin leysir störf af
hendi. Þetta er grundvallarmál
varðandi framtíðarrekstur þess-
arar atvinnugreinar og í því felast
bæði hagsmunir útgerðarmanna
og sjómanna, því sjómenn fá þá
meira í sinn hlut. Því miður hefur
Sjómannasambandið ekki viljað
skipta með okkur þessum ávinn-
ingi.“
Að sögn Friðriks er auðvitað
óljóst hvað koma muni út úr gerð-
ardómi og því sé það slæmt mál
að geta ekki lokið deilunni með
samningum. „Auðvitað er mjög
slæmt að geta ekki klárað þetta
með samningum. Þótt við hefðum
hugsanlega fengið minna út úr
því en gerðardómi, þá er mikil-
vægara að ná þessu fram með
samningum heldur en að láta
þriðja aðila ákveða þetta. Og við
höfum sýnt það með samningnum
við vélstjórana að það er hægt.“
Friðrik segist því miður ekki
vera bjartsýnn á að samningar
náist við sjómenn áður en deilan
fer fyrir gerðardóm. „Ef vilji er
hinum megin frá munum við
leggja okkur fram um það. En
þessar yfirlýsingar sem gefnar
hafa verið gefa ekki mikið tilefni
til bjartsýni.“
Friðrik J. Arngrímsson
SKIPVERJAR á þremur frysti-
skipum Samherja hf., Baldvini
Þorsteinssyni EA, Víði EA og Ak-
ureyrinni EA, héldu með rútu frá
Akureyri suður til Reykjavíkur kl.
20 í gærkvöld, eftir að Alþingi
hafði gripið inn í verkfallsdeilu út-
vegsmanna og sjómanna.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, var mættur á
Umferðarmiðstöðina til að fylgja
skipverjum sínum úr hlaði og ekki
var annað að sjá en að vel færi á
með mönnum eftir 6 vikna hlé frá
veiðum. Þorsteinn Már sagðist
frekar dapur með þá stöðu sem
komin er, enda væri þetta búið að
vera mjög langt verkfall og jafn-
framt þriðja verkfall frystitogara-
sjómanna án þess að þeir hafi
fengið neitt út úr því.
Aðspurður hvort hlutirnir
kæmust nú í eðlilegt horf, sagði
Þorsteinn Már: „Ég held að hlut-
irnir fari ekki í eðlilegt horf með
þessari lagasetningu og kannski
fara þeir aldrei í eðlilegt horf hjá
sumum. Það mun taka langan
tíma að komast út úr því tjóni sem
mörg hver fyrirtæki hafa orðið
fyrir.“ Hann treysti sér ekki til að
segja til um hversu mikið tjón
Samherja væri en það væri veru-
legt.
Spurður um sölu á eignum
Samherja sagði Þorsteinn Már að
hann væri til í selja þær eignir
sem hægt væri að selja og fyr-
irtækið þyrfti að selja til að mæta
því tjóni sem það hafi orðið fyrir.
„Ef ég get selt eignir stendur
ekkert á því, þá sel ég þær.“
Morgunblaðið/Kristján
Þorteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kvaddi skipverja
þriggja frystitogara félagsins áður en þeir héldu með rútu frá Akur-
eyri til Reykjavíkur, þar sem skipin hafa legið bundin við bryggju.
Frekar
dapur með
þessa stöðu
og tjónið
Þorsteinn Már Baldvinsson
Grétar Mar Jónsson
Sorglegt að
fá ekki að
semja um
kaup og kjör
GRÉTAR Mar Jónsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Íslands, segir sorglegt að
sjómenn skuli ekki fá að semja um
kaup sitt og kjör, án þess að til
lagasetninga þurfi að koma á deilur
við útgerðarmenn. „Við sjómenn
höfum tuttugu ára reynslu í þessu
eða lengri að fá ekki að semja. Rík-
isvaldið á hverjum tíma hefur ávallt
bakkað útgerðarmennina upp og
ævinlega er það þannig að laga-
setning er útgerðarmönnum í hag.
Ég veit aldrei til þess að það hafi
komið lög sem við höfum grætt á.“
Aðspurður hvort ekki hafi komið
til greina að aflýsa verkfalli, líkt og
Sjómannasambandið gerði, til að
forðast gerðardóm, segir Grétar að
menn hjá FFSÍ hafi haft lúmskan
grun um að niðurstaðan yrði hvort
sem er þannig að allir yrðu dregnir
inn í gerðardóm. Eftir standi síðan
að deilan sé óleyst þar sem lykil-
atriðið sé að leysa ágreininginn um
verðmyndun á fiski.
„Við þurfum í eitt skipti fyrir öll
lög um það að allur fiskur verði
seldur á fiskmörkuðum. Það er var-