Morgunblaðið - 17.05.2001, Blaðsíða 43
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 43
HÉR er á ferðinni óvenjuleg
geislaplata sem aðstandendur nefna
Ýli. Þau Claudio Puntin klarínettu-
leikari og Gerður Gunnarsdóttir
fiðluleikari hafa hér sett saman sér-
kennilega efnisskrá sem saman-
stendur af tveimur íslenskum þjóð-
lögum, tveimur vinsælum íslenskum
sönglagaslögurum og síðan tónsmíð-
um eftir Claudio Puntin sem reyndar
eru fyrirferðarmestar á plötunni.
Ekkert á umslagi plötunnar bendir
til þess hvers konar tónlist megi bú-
ast við og engar upplýsingar um
þetta er heldur að finna í bæklingi.
Þar eru aðeins lágmarksupplýsingar
um nöfn laga og höfunda. En ekkert
um hugmyndafræðina á bak
við þessa samsetningu efnisskrár-
innar. Sem er mjög ólíkt því sem
maður á að venjast frá jafnvirtu fyr-
irtæki og ECM sem þekkt er fyrir
vönduð vinnubrögð. Annað sem
óneitanlega vekur spurningar er:
hverjir er flytjendurnir? hvernig
stendur á samstarfi þessara tveggja
tónlistarmanna af ólíku þjóðerni? Og
hvað fær svissneskan klarínettuleik-
ara til að semja tónlist og gefa út disk
sem er eins konar óður til Íslands?
Ekkert um það heldur. En vefsíða
ECM er gefin upp. Allir eiga víst
tölvur á Íslandi og eru að sjálfsögðu
nettengdir. Þess vegna er texti í
bæklingi greinilega óþarfur! Og viti
menn: allt það sem vantar í textahefti
er á netsíðum ECM! Hvers vegna í
ósköpunum fær kaupandinn ekki
þessar upplýsingar með í kaupunum?
Spyr sá sem ekki veit og skilur ekki
guðspjall tölvutrúarinnar.
Það kemur sem sagt fram á
http://www.ecmrecords.com/ecm/re-
cordings/1749. html (nett og þægi-
legt, ekki satt!) að ætlun tónlistar-
mannanna sé að skapa með diskinum
músíkalska mynd af Íslandi, bæði
eins og landið kemur þeim fyrir sjón-
ir í raunveruleika og ímyndun. Upp-
spretta hugmyndanna sé þjóðmenn-
ingin (komplett með álfum og
huldufólki og hrossum á skeiði), hinn
þjóðlegi tónlistararfur, landið, þjóðin
sjálf. Einnig sé leitað fanga hjá
tveimur fremstu núlifandi tónskáld-
um Íslendinga, þeim Jóni Nordal og
Atla Heimi Sveinssyni. Vefsíðan
greinir einnig ítarlega frá tónlistar-
mönnnunum tveimur og er af frá-
sögnunum greinilegt að hér eru á
ferð listamenn sem mark er takandi
á. Og fæst það staðfest þegar hlustað
er á diskinn.
Tónlistaflutningur á Ýli minnir oft-
ar en ekki á spunatækni, þótt ekki sé
ég viss um að þannig sé tónlistin til
komin. Þótt ýmislegt sem hér er flutt
sé fallegt eins og Enginn lái öðrum
frekt (nr. 4), Skerpla (nr. 5), Sofðu
unga ástin mín (nr. 9) og Huldufólk II
(Tæling) (nr. 2) þá finnst mér efnis-
skráin í heild frekar sviplítil og sum
lögin beinlínis þreytandi, t.d.Huldu-
fólk III – Hringekja (nr.10) og Leys-
ing (nr. 13). Þrátt fyrir hljóðfæraleik
sem í alla staði er hinn ágætasti og
frábæra hljóðritun. Og oft finnst mér
djúpt á „hinum íslenska tóni“. Þeysi-
reiðin í samnefndu lagi (nr. 6), sem
reyndar er eitt besta lagið á plötunni,
á sér alla vega ekki stað í Ódáða-
hrauni. Líklegra umhverfi væri slétt-
ur Ungverjalands, hrossastóð með
Mátrafjöll í baksýn – enda Béla Bart-
ók ekki langt undan í þessari tón-
smíð. Sams konar framandi tilfinn-
ingu fær maður víðar, t.d. hljómar
innkoma klarínettunnar í Ýli (nr. 1)
ákaflega „balkanskt“ og eindregið
„óíslenskt“.
Sem músíkölsk svipmynd af Ís-
landi finnst mér þessi plata ekki
sannfærandi. Útgangspunktur höf-
undar er líkast til rómantísk ímynd
um hið exótíska land miðnætursólar,
elds og ísa eins og það birtist í hugum
sumra velmeinandi, en því miður
óraunsærra, miðevrópskra manna
sem sjá Ísland í hillingum. Ef maður
lítur í kringum sig í íslensku þjóð-
félagi fer það varla fram hjá neinum
að raunveruleikinn er nokkuð ólíkur
þessari ímynd. Og varðandi hug-
myndir útlendinga um að hér sé allt
vaðandi í álfum og huldufólki er ekki
við aðra að sakast en Íslendinga
sjálfa sem ota þessum hlutum óspart
að ferðamönnum.
Og þess vegna getur það gerst að
t.d. svissneskt tónskáld sitji heima
hjá sér og semji lag sem heitir
„Huldufólk“ og á ekki alveg erindi
sem erfiði.
Ísland séð með
mið-evrópskum augum
Valdemar Pálsson
TÓNLIST
G e i s l a p l ö t u r
Claudio Puntin: Ýlir, Huldufólk I –
Draumur, Huldufólk II – Tæling,
Einbúinn, Skerpla, Þeysireið, Vor-
þankar, Huldufólk III – Hringekja,
L’ultimo abbraccio, Leysing, Epi-
logue. Atli Heimir Sveinsson: Kvæð-
ið um fuglana (úts. Claudio Puntin).
Jón Nordal: Hvert örstutt spor (úts.
Claudio Puntin). Íslensk þjóðlög:
Enginn lái öðrum frekt, Sofðu unga
ástin mín. Flytjendur: Claudio Punt-
in (klarínetta, bassaklarínetta),
Gerður Gunnarsdóttir (fiðla, söng-
ur). Heildartími: 52.40. Útgefandi:
ECM Records ECM 1749 158 570-2.
Verð: kr. 1.999. Dreifing: Japis.
ÝLIR
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r
20% afsláttur
af öllum skóm
Mikið úrval
Nýjar vörur
BOOTS
Suðurlandsbraut 54 (Bláu húsin) - Opnunartími virka daga frá 10-18, laugardaga frá kl. 10-16
Póstsendum samdægurs - Sími 533 3109
VORHREINGERNING
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Barcelona
þann 23. maí á frábæru verði. Nú getur þú bókað
síðustu sætin og færð staðfest flug og gistingu, og 2
dögum fyrir brottför hringjum við í þig og stað-
festum við þið hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú þjónustu
fararstjóra okkar í Barcelona á meðan á dvölinni stendur.
Síðustu
sætin
Stökktu til
Barcelona
23. maí
frá 39.930 kr.
Verð kr. 39.930
M.v. 2 í herbergi með
morgunmat, flug, gisting, skattar.
2 stjörnur.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is