Morgunblaðið - 17.05.2001, Blaðsíða 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
hefur horfið frá að færa félagsþjón-
ustu fatlaðra til sveitarfélaganna,
a.m.k. á þessu stigi
málsins, og hefur dreg-
ið til baka framkomin
frumvörp þar að lút-
andi sem hafa verið til
meðferðar á Alþingi.
Ráðherra skýrir þessa
ákvörðun sína í frétt á
baksíðu Morgunblaðs-
ins hinn 15. maí sl. og
verður ekki komist hjá
því að gera nokkrar at-
hugasemdir við það
sem þar kemur fram.
Skýr afstaða
sveitarfélaganna
Í máli ráðherra kem-
ur fram að komið hafi í
ljós mikil andstaða við
málið í þremur sveitarfélögum,
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði,
svo og í nýlegri ályktun Sambands
ísl. sveitarfélaga, og hefði verið hætt
við að leggja frumvörpin fram með
hliðsjón af því. Hið rétta í málinu er
að á fulltrúaráðsfundi Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sem haldinn
var hinn 29. mars sl. staðfestu sveit-
arfélögin, þar á meðal fulltrúar
Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnar-
fjarðar, samhljóða vilja sinn til að
taka við málefnum fatlaðra að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Þau voru eftirfarandi:
1. Frumvarp til laga um félags-
þjónustu fatlaðra verði afgreitt sem
lög frá Alþingi á haustþingi 2001 og
gildistaka laganna verði 1. jan. 2003.
2. Gildistakan verði háð því skil-
yrði að Alþingi hafi þá lögfest breyt-
ingu á lögum um tekjustofna sveit-
arfélaga eða tilfærslu á tekjum til
þeirra með öðrum hætti með tilliti til
þeirra auknu verkefna sem þau taka
að sér samkvæmt nýjum lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga.
3. Samhliða lögfestingu félags-
þjónustufrumvarpsins á haustþingi
verði undirritaður samningur milli
ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu
málefna fatlaðra frá ríki til sveitar-
félaga þar sem m.a. verði ítarlega
skilgreind ákvæði um árlega endur-
skoðun á tekjum og gjöldum sveit-
arfélaga vegna málefna fatlaðra
næstu þrjú árin frá gildistöku laga
um félagsþjónustu
sveitarfélaga. Þar verði
skilgreint hvernig
sveitarfélögunum verði
tryggðar auknar tekjur
leiði árleg endurskoðun
í ljós að tekjuþörf
þeirra verði meiri en
ætlað var til að standa
undir verkefnum sem
sveitarfélögunum eru
falin með lögum um
félagsþjónustu sveitar-
félaga.
Á fundi sínum í mars
lagði fulltrúaráðið
einnig fram hugmyndir
að ákveðnu vinnuferli
milli ríkis og sveitar-
félaga sem tæki mið af
fyrrgreindum efnisatriðum. Það var
mat sveitarfélaganna að eðlilegra
væri að ákveðinni undirbúnings-
vinnu væri lokið áður en endanlega
yrði gengið frá lagasetningu, frekar
en að lög um málaflokkinn væru sett
í vor og önnur þýðingarmikil atriði
sem varða yfirfærsluna yrðu frá-
gengin síðar. Þessi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á fulltrúaráðsfund-
inum.
Samningar um endurskoðun
Sveitarfélögin hafa lýst því yfir og
um það hefur verið full samstaða
innan þeirra raða að þau séu
reiðubúin að taka við málefnum fatl-
aðra sé ákveðnum skilyrðum full-
nægt. Þau skilyrði eru fyrst og
fremst þau að ákveðin endurskoðun-
arákvæði séu fyrir hendi í samningi
milli ríkis og sveitarfélaga fyrstu
þrjú ár samningsins verði reyndin sú
að framkvæmd verkefnisins reynist
dýrari en áætlanir hafa gert ráð fyr-
ir.
Þegar félagsmálaráðherra heldur
því síðan fram að ekki sé „tiltæki-
legt“ að leggja frumvarp um félags-
þjónustu fram í þriðja sinn nú á
haustþingi hljóta því að liggja þar til
grundvallar aðrar ástæður en vilja-
leysi sveitarfélaganna til að taka yfir
málaflokkinn.
Fjárhagslegar forsendur
séu tryggðar
Það er skylda forráðamanna sveit-
arfélaganna að tryggja það eftir því
sem fært er að öll mikilvæg atriði
sem varða yfirfærsluna séu kunn,
ekki síst þau atriði er varða fjárhags-
leg samskipti ríkis og sveitarfélaga
vegna verkefnisins. Það hefur verið
krafa ríkisvaldsins að sveitarfélögin
stundi ábyrga fjármálastjórn og
fjárhagsáætlanir þeirra séu byggðar
á traustum grunni. Fyrirvari sveit-
arfélaganna tekur ekki síst mið af
fyrrgreindum kröfum ríkisvaldsins.
Samstarf ríkis og sveitarfélaga
hefur verið með ágætum við undir-
búning málsins og ekki verður séð að
nokkur ástæða sé til annars en að
ljúka þessu verki á haustþingi á þeim
grunni sem sveitarfélögin hafa lagt
til.
Sveitarfélögin hefðu útaf fyrir sig
ekki lagst gegn því að verkinu yrði
lokið á þessu þingi að uppfylltum
þeim skilyrðum sem fram koma í
samþykkt fulltrúaráðsins hinn 29. 3.
sl. og skýrt er frá í upphafi grein-
arinnar. Félagsmálaráðuneytið lagði
þannig fram ákveðna tillögu fyrir
fjármálaráðuneytið í þeim tilgangi
að brúa það bil sem var milli aðila en
henni var hafnað af hálfu fjármála-
ráðuneytisins.
Sveitarfélögin og
málefni fatlaðra
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Félagsþjónusta
Ekki verður séð að
nokkur ástæða sé til
annars, segir Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, en
að ljúka þessu verki á
haustþingi á þeim
grunni sem sveitar-
félögin hafa lagt til.
Höfundur er formaður Sambands
ísl. sveitarfélaga.
ÞAÐ kom mér á óvart
að tillögur Björns
Bjarnasonar mennta-
málaráðherra um nýja
skipan og starfshætti
Rannsóknarráðs Íslands
skyldu vera gagnrýndar
á Alþingi á dögunum.
Einstaka vísindamenn
hafa einnig látið í ljós
efasemdir um hugmynd-
irnar. Viðbrögðin eru
fljótfærnisleg, enda eru
tillögurnar enn á frum-
stigi. Það er mat mitt að
þær feli í sér margvísleg
tækifæri og líkur eru á
að skipulag rannsókna
og þróunar á Íslandi
verði í fremstu röð í heiminum ef vel
tekst til um framkvæmdina. Það er
því full ástæða til að fagna því tæki-
færi sem hér gefst.
Það er mikill misskilningur að hug-
myndir menntamálaráðherra hafi
komið Rannsóknarráði í opna
skjöldu. Ráðherrann kynnti þær í
ræðu á stefnumótunarfundi ráðsins í
Reykholti í októbermánuði síðast
liðnum. Í vinnu við áherslur Rann-
sóknarráðs sem staðið hefur í vetur
hefur tillögurnar oft borið á góma
þótt ekki hafi verið fjallað um þær
formlega. Einnig lýstu margir ráðs-
menn þegar í vetur áhuga sínum á
sameiningu Vísindasjóðs og Tækni-
sjóðs. Hins vegar vantaði lagastoð
fyrir slíkri breytingu og því hefur
ekki verið grundvöllur fyrir ítarlegri
umfjöllun ráðsins um málið fyrr en
nú.
Í núverandi skipulagi Rannsóknar-
ráðs og helstu sjóða þess, Vísinda-
sjóðs og Tæknisjóðs, eru mörkin
dregin milli grunnrannsókna, annars
vegar, og hagnýtra rannsókna og þró-
unarverkefna, hins vegar. Þessi skil-
greining er hefðbundin en að margra
mati úrelt. Einkum hafa hugtökin
grunnrannsóknir og hagnýtar rann-
sóknir nálgast mjög í hugum þeirra
sem fást við slíkar rannsóknir. Það er
til dæmis tímanna tákn að rannsóknir
á ýmsum sviðum hátækni og líftækni
eru oftar en ekki grunnrannsóknir í
þeim skilningi að þær afla nýrrar
þekkingar á meginundirstöðum fyr-
irbæra, þótt þær séu hagnýtar í þeim
skilningi að þeim er beint að sérstök-
um hagnýtum markmiðum. Og hvar
liggja mörkin í jarðvísindum svo að
annað dæmi sé tekið? Skilin eru í
reynd bæði óþörf og yfirleitt til
óþurftar. Markmið þróunar er hins
vegar ekki þekkingaröflun sem slík
heldur nýting þekkingar og reynslu
til að skapa nýjar afurðir og aðferðir
eða bæta þær sem fyrir eru. Mér sýn-
ast tillögur menntamálaráðherra
gera ráð fyrir að grunnrannsóknir og
hagnýtar rannsóknir heyri áfram
undir menntamálaráðuneyti, en þró-
un undir iðnaðarráðuneyti.
Aðkoma ríkisvaldsins að rannsókn-
um og þróun er þannig vel fyrir komið
með því tvískipta kerfi sem lagt er til.
Við þetta vinnst að sameinaður Vís-
indasjóður og Tæknisjóður mun
styrkja rannsóknir samkvæmt skýr-
um kröfum um vísindalegan fram-
gang, birtingu og skil á vísindalegum
niðurstöðum, hvort sem tilgangur er
hagnýtur eða ekki. Hin óþörfu mörk
milli sjóðanna sem hindrað hafa sam-
anburð umsókna vegna mismunandi
uppruna þeirra munu hverfa. Í stað
þess verða rannsóknir styrktar eftir
gæðum, sem metin verða samkvæmt
faglegum kröfum á viðkomandi sviði.
Hins vegar er einnig gert ráð fyrir því
í tillögum ráðherra að sjóður sem
styrkir þróunarverkefni muni ekki
gera kröfur um rannsóknastarf.
Sjóðnum er ætlað að brúa bilið milli
rannsókna og yfirtöku áhættufjár-
festa. Þótt hugmyndirnar séu enn í
mótun er óhætt að spá því að línur
muni skýrast og markmiðin kristall-
ast í nýju kerfi.
Geta má þess að
skipulag rannsókna í
Finnlandi, sem nú er
komið nokkuð til ára
sinna, dregur enn
mörk milli hagnýtra og
grunnrannsókna líkt
og nú tíðkast í Rann-
sóknarráði og auk þess
starfar sérstakur ný-
sköpunarsjóður á veg-
um finnska þingsins
sem styrkir uppbygg-
ingu fyrirtækja og ný-
sköpun í atvinnulífi. Eg
er þeirrar skoðunar að
tvískiptingin sé eðli-
legri og nútímalegri en
þrísikipting finnska kerfisins. Slík að-
greining styrkjakerfisins hefur allar
forsendur til að verða skilvirkari og
gagnsærri en nú er.
Þótt sjóðirnir og fjármögnun rann-
sókna- og þróunarstarfsins vegi
þungt í huga vísindamanna sem
starfa í þessum geira atvinnulífsins
hefur nýskipan Rannsóknarráðs vak-
ið meiri athygli annarra. Hugmyndin
um ráð undir stjórn forsætisráðherra
þar sem nokkur hópur ráðherra auk
vísindamanna og fulltrúa atvinnulífs
kemur saman tvisvar á ári til stefnu-
mótunar í málefnum rannsókna og
þróunar er nýlunda á Íslandi. Oft hef-
ur verið á það bent að það hafi staðið
málaflokknum fyrir þrifum að heyra
undir mörg ráðuneyti, það hafi byrgt
heildarsýn og hindrað markvissar að-
gerðir. Á stuttum ferli mínum í Rann-
sóknarráði hef eg séð miklu fleiri
dæmi um þetta en eg átti von á.
Spyrja má hvort sókn Íslendinga í
rannsóknum síðustu árin hefði ekki
orðið enn snarpari ef hinn nýi vett-
vangur sem sameinar krafta allra
sem koma að málunum á stjórnvald-
stigi hefði verið fyrir hendi. Víst er að
í þeim löndum sem mesta athygli hafa
vakið fyrir stefnumótun í vísindum og
tækni hafa oddvitar ríkisstjórna kom-
ið að málunum og staðið fyrir mark-
vissum aðgerðum. Eg því er fullur
bjartsýni um þennan þátt tillagnanna.
Eg hef nú í nokkrum orðum kynnt
væntingar mínar um framkvæmd til-
lagna menntamálaráðherra um
skipulag rannsókna og þróunar á Ís-
landi. Ráðherrann hefur boðið Rann-
sóknarráði að tilnefna þrjá fulltrúa til
samstarfs við menntamálaráðuneytið
um þróun hugmynda sinna í frum-
varpsform. Í nefndinni sitja auk und-
irritaðs fulltrúar rannsóknastofnana
og annars atvinnulífs og saman end-
urspegla þeir þau þrjú meginsvið sem
tilnefna fulltrúa í núverandi Rann-
sóknarráð Íslands. Það er trú mín að
skipulag rannsókna á Íslandi muni ef
vel tekst til hafa bestu kosti fyrir-
myndarinnar auk þess að vera í betra
samræmi við nýjustu þróun í rann-
sóknum. Eg veit að Rannsóknarráð
Íslands mun ekki liggja á liði sínu til
að svo megi verða.
Ný skipan
Rannsóknar-
ráðs
Hafliði Pétur
Gíslason
Höfundur er prófessor og formaður
Rannsóknarráðs Íslands.
Rannsóknarráð
Það er mat mitt að til-
lögurnar feli í sér marg-
vísleg tækifæri, segir
Hafliði Pétur Gíslason,
og líkur eru á að skipu-
lag rannsókna og þróun-
ar á Íslandi verði í
fremstu röð í heiminum
ef vel tekst til.
MIKIÐ er lagt upp úr fram-
kvæmdum á landfyllingu sem á að
vera yfir 70.000 fermetrar eða 10
fótboltavellir að stærð. Þarna á að
koma fyrir 1.800 íbú-
um. Auglýsing um
þessar framkvæmdir
eru til sýnis á Garða-
torgi í Garðabæ. Sú
stafræna mynd sem
þar birtist bjagar
raunveruleikann og
villir manni sýn þannig
að maður á að trúa að
fyrirhugað bryggju-
hverfi trufli ekki út-
sýni.
Um daginn gengu
eldri hjón fram hjá
skiltinu ásamt barna-
barni sem hefur verið
um 9-10 ára. Konan
sagði: „Mikið er þetta
fallegt skipulag.“ Þá sagði ungi
drengurinn: „Já, en amma, þessi
landfylling eyðileggur fjöruna.“
Það er málið. Arnarnesvogur er
mjög grunnur, eins og sést á stór-
straumsfjöru og landfylling sem
nemur 10 fótboltavöllum mun ekki
gera annað en að trufla eðlilega
sjávarhringrás um voginn, sérstak-
lega vestan megin, en þar verður
mjög þröngt sund. Þetta leiðir til
truflunar á náttúrulífinu, sem við
státum okkur mikið af. Þarna koma
margar andategundir, einkum aust-
an megin í voginum. Má einnig
nefna margæsina sem hefur þar án-
ingarstað á leið til og frá Græn-
landi.
Við vitum hvað Stálvíkurþyrping-
in er búin að skaða um
alla framtíð fuglalífið
vestan megin í Arnar-
nesvoginum, sam-
kvæmt fuglatalningar-
tölum frá Jóhanni Óla
Hilmarssyni og birt er
í skýrslu Hönnunar frá
apríl 2001. Við viljum
ekki að hróflað sé
meira við náttúrulífinu
við Arnarnesvoginn.
Stálvíkurumhverfið
er hræðilegt útlits.
Það verður að laga.
Lausnin liggur ekki í
því að eyðileggja nátt-
úrulífið í fjörunni.
Sjónmengunin verður
gífurleg þar sem 1.800 manna
byggð kallar á háreist hús sem
eyðileggur útsýni fyrir hundruð
manna. Hávaðamegnun verður ær-
andi þar sem umferðarþunginn
verður yfirþyrmandi fyrir þá sem
fyrir búa í Grundarhverfi.
Rífum niður Stálvíkurbryggjuna.
Reistum lágreist hús meðfram
ströndinni sem ekki trufla útsýni
fyrir neinum. Nýtum það landsvæði
sem er á Arnarneshæðinni milli
Kópavogs og Garðabæjar og hefj-
um skipulagsáætlun og fram-
kvæmdir. Eflum siglingaklúbb
Garðabæjar og kennum ungum
börnum okkar að umgangast hafið
með því að kenna skútusiglingar.
Eflum kennslu barna okkar með
fjöruferðum og kennum börnum að
þekkja fuglana og sjávarlífverur í
stað þess að eyða þeim.
Kæra bæjarstjórn Garðabæjar!
Látið ekki fjársterka aðila stjórna
ykkur. Hafið náttúru- og umhverf-
isgildið í fyrirrúmi þegar þið skipu-
leggið bæinn okkar. Ekki eyði-
leggja fjöruna fyrir komandi
kynslóðum. Stálvíkurleifarnar eru
meira en nóg fyrir núverandi kyn-
slóðir að lifa með. Við kusum ykkur
sem fulltrúa okkar í stjórn Garða-
bæjar vegna þess að við treystum
ykkur. Ekki bregðast trausti okkar
með því að eyðileggja fjöruna og
náttúrulífið fyrir okkur og komandi
kynslóðum.
Náttúruspjöll í Garðabæ
Bogi Jónsson
Náttúruvernd
Látið ekki fjársterka að-
ila stjórna ykkur, segir
Bogi Jónsson. Hafið
náttúru- og umhverfis-
gildið í fyrirrúmi.
Höfundur er bæklunarlæknir
og íbúi í Garðabæ.