Morgunblaðið - 17.05.2001, Qupperneq 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 47
Bleikt, bleikt, bleikt...... og sumarlegt
Ráðgjafar frá kynna nýja liti,
nýtt krem og AROMA FIT, nýjar
grennandi líkamsvörur.
Stór og glæsileg
snyrtitaska með
mörgum hólfum
fylgir kaupum.
Laugavegi 80,
sími 561 1330,
í dag, föstudag og
laugardag.
Hamraborg 14a,
sími 564 2011,
í dag og föstudag.
w
w
w
.la
n
co
m
e.
co
m
FERÐAMÁLASKÓLINN
Í KÓPAVOGI
Innritun fyrir skólaárið 2001 - 2002 fer nú fram í
Ferðamálaskólanum í Kópavogi, og stendur til
miðvikudagsins 23. maí nk.
Alþjóðlegt IATA-UFTAA nám
•Markmið námsins er að þjálfa einstaklinga til starfa
á söluskrifstofum ferðaskrifstofa og flugfélaga
•Kennsla hefst í september, kennt er frá kl. 17.30-21.15
•Námið er 7 mánuðir frá september til marsloka
Starfstengt Ferðamálanám
Bóklegt 3ja anna starfstengt FERÐAMÁLAnám.
Námið skiptist í 2 námsbrautir, FERÐAFRÆÐInám
og HÓTEL- OG GESTAMÓTTÖKUnám.
•Markmið námsins er að þjálfa einstaklinga til starfa
í ferðaþjónustu á Íslandi, við móttöku erlendra
ferðamanna og til starfa og úrvinnslu v. ferðalaga fyrir
Íslendinga erlendis.
•Nemendur fara í þriggja til sex mánaða starfsnám í
fyrirtæki í ferðaþjónustu.
•Kennsla hefst í september. Kennt er frá kl. 17:30-22:00
Fjarnám
Boðið er upp á fjarnám í Ferðafræðinámi og Hótel- og
gestamóttökunámi í vissum áföngum.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur í allt nám Ferðamálaskólans þurfa að
hafa náð 20 ára aldri, vera með stúdentspróf eða
sambærilega menntun og starfsreynslu og hafa gott vald
á enskri tungu.
Leiðsöguskóli Íslands
Innritun í Leiðsöguskóla Íslands fer fram í ágúst nk.
Sjá nánari auglýsingu í lok júlímánaðar.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á
skrifstofu skólans.
FERÐAMÁLASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Menntaskólanum í Kópavogi v/Digranesveg
Sími: 544 5520 og 544 5510
SÍFELLT fjölgar komum
skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur.
Síðasta áratug fjölgaði slíkum skipa-
komum úr 23 árið 1991 í 48 árið 2000,
eða um rúmlega helming. Hið sama
má segja um farþegafjöldann, hann
jókst úr 12.790 árið 1991 í 25.576 árið
2000 – tvöfaldaðist nær nákvæm-
lega.
Áætlað er að 50 skemmtiferðaskip
komi til Reykjavíkur á þessu sumri.
Gönguferðir um miðborgina
Talið er að um þriðjungur farþega
skemmtiferðaskipanna fari ekki í
skipulagðar kynnisferðir og sumir
fara jafnvel ekki frá borði. Ýmislegt
má gera til að laða þessa ferðamenn í
miðborgina.
Gönguferðir með leiðsögumanni
um miðborgina, ókeypis eða gegn
vægu gjaldi, eru vinsælar víða er-
lendis og væri þjóðráð að reyna þær
hér. Svokallað „Cruise Café“ hefur
einnig reynst vel á viðkomustöðum
skemmtiferðaskipa, en það er eins-
konar þjónustu- og upplýsingamið-
stöð skipafarþega, þar sem hægt er
að fá sér kaffi eða aðra hressingu og
kynna sér það helsta sem á boðstól-
um er – hvort sem um er að ræða
verslun, veitingahús, skoðunarferð-
ir, söfn eða skemmtanir. Væri ekki
þjóðráð fyrir Reykjavíkurhöfn að
taka höndum saman við aðra sem
hafa hagsmuna að gæta og reyna að
koma slíkri miðstöð á laggirnar?
Gjafakort í haust
Lengi hefur verið áhugi á að koma
á fót sameiginlegu gjafakorti fyrir
miðborgina og hefur stjórn Þróun-
arfélags miðborgarinnar haldið mál-
inu vakandi og reynt að þoka því
áfram. Nú hefur verið ákveðið að
hefja sölu gjafakorts miðborgarinn-
ar í haust.
Ef vel tekst til mun gjafakortið
beina sjónum manna í auknum mæli
að miðborginni sem miðstöð verslun-
ar, þjónustu og mannlífs í Reykjavík
og þannig bæta samkeppnisstöðu
hennar gagnvart öðrum verslunar-
kjörnum.
Þarf nýja verslunarmiðstöð?
Margir hafa velt því fyrir sér hvort
þörf væri á enn einni verslunarmið-
stöð í þessu fámenna
þjóðfélagi. Það kemur í
ljós í haust, þegar Smá-
ralind verður opnuð.
Þróunarfélag miðborg-
arinnar lét taka saman
skýrslu um áhrif
Smáralindar á verslun
og viðskipti í miðborg-
inni og voru niðurstöð-
ur hennar kynntar á
aðalfundi félagsins í lok
mars. Ítarlega var sagt
frá fundinum í miðopnu
Morgunblaðsins laug-
ardaginn 31. mars sl.
Á fundi Þróunar-
félagsins í dag ætlar
Ragnheiður Sigurðar-
dóttir viðskiptafræðingur að segja
nánar frá þessari samantekt, Hallur
A. Baldursson, framkvæmdastjóri
Yddu, fjallar um fyrirhugað gjafa-
kort miðborgarinnar og Gunnar
Rafn Birgisson, framkvæmdastjóri
Atlantik, ræðir um skemmtiferða-
skipin og erlenda
ferðamenn í miðbæn-
um. Fundurinn hefst
kl. 18.15 í Kornhlöð-
unni við Lækjarbrekku
og er öllum opinn.
Sálin býr í
miðbænum
„Sálin í Reykjavík
býr í miðbænum“. Þau
sem unnu skýrsluna
um áhrif Smáralindar á
miðborgina lögðu til að
þetta yrði slagorð mið-
borgarinnar. Svo mikið
er víst, að hvergi hefur
tekist að búa til „nýj-
an“ miðbæ, þótt reynt
hafi verið með ærnum tilkostnaði.
Hjarta borgarinnar heldur alltaf
áfram að slá í gamla, góða miðbæn-
um. Og sálin á heima þar líka.
Þar sem hjartað slær
og sálin býr
Einar Örn
StefánssonMiðborgin
Gönguferðir með
leiðsögumanni um
miðborgina eru vinsæl-
ar víða erlendis, segir
Einar Örn Stefánsson,
og væri þjóðráð að
reyna þær hér.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Þróunarfélags miðborgarinnar.