Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 54
MINNINGAR
54 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku Hjalti minn.
Það er sárt að þurfa að sætta sig
við að þú ert farinn án þess að hafa
fengið að kveðja þig. Það var svo
langt síðan ég sá þig en samt hugsaði
ég svo mikið til þín og mig langaði
alltaf að fá að kynnast þér svo miklu
betur og fá að vita svo margt um þig.
En því miður lágu leiðir okkar í sitt-
hvora áttina en hugur minn var alltaf
hjá þér.
Ég á svo fallegar minningar um
þig frá því að við vorum lítil og svo
skemmtilegar myndir af þér sem ég
mun alltaf geyma til minningar um
þig. Ein af mörgum minningum um
þig er Óli litli og mér finnst svo ynd-
islegt að heyra um það hvað hann er
að verða líkur þér, alveg sami grall-
arinn.
Ég man, þegar ég kom í heimsókn
eða fór eitthvað með ykkur, hvað þér
fannst gaman að stríða Svönu og
Kristínu en þær hlógu nú oftast því
það var ekki hægt annað því að þú
varst samt svo góður við þær.
Mér finnst alltaf svo gaman að
heyra sögur um þig og ég kemst ekki
hjá því að fá tár í augun þegar ég
heyri hvað þú varst góður við mig
þegar við vorum lítil og vorum í
barnaafmælum og öðrum veislum.
Þú hélst utan um litlu systur og pass-
aðir hana og það átti sko ekkert að
koma fyrir hana. Ég vildi að ég gæti
fengið að vera svona góð við þig núna
eins og þú varst við mig þá, og haldið
utan um þig og sagt þér hvað mér
þótti vænt um þig þó að ég hitti þig
svona sjaldan. En ég veit að þér líður
miklu betur núna heldur en þér gerði
hér og ég veit að englarnir munu
halda utan um þig og passa þig fyrir
mig.
Ég sit hér og hugsa til vina þinna
sem fengu að njóta þeirra forréttinda
að kynnast þér og vera með þér í
gleði og sorg því að ég veit að fyrir
innan þennan harða töffara var lítill,
góður strákur sem átti þá ósk heit-
asta að líða vel alveg eins og við öll
óskum okkur.
Elsku Hjalti minn, ég mun aldrei
gleyma þér og ég vona að þú munir
heldur ekki gleyma mér og munir
fylgja mér og passa að ég breyti rétt í
lífinu. Ég þakka Guði fyrir þær
stundir sem ég átti með þér og kveð
þig með tárin í augunum.
Þín systir,
Kolbrún.
Til elsku besta bróður míns. Ég
held að fyrstu minningar mínar um
Hjalta séu þegar við vorum bara litlir
krakkar. Ennþá hálfgerðir óvitar,
reyndar var hann sex árum eldri en
ég og ég man hvað honum þótti gott
að geta passað mig og verndað. Ég
leit alltaf mikið upp til hans og vildi
vera með honum og ég held að innst
inni hafi honum bara þótt ágætt að
dröslast um með litlu systur sína.
Hjalti hefur alltaf haft mikið ímynd-
unarafl sem ég held að allir hafi elsk-
að. Leikirnir sem hann fann upp á,
það getur enginn komist nálægt
þeim. Ég man meira að segja bara
fyrir nokkrum árum, ég hugsa að
hann hafi verið 16 eða 17 ára þegar
fjölskyldan fór í sumarbústað í Ölf-
usborgum. Þetta var um páskana og
eitt kvöldið kom stórhríð og hann
stakk upp á að við færum í björg-
unarleik. Þetta fannst okkur systr-
unum æðislegur leikur. Hann var nú
HJALTI S.
SVAVARSSON
✝ Hjalti S. Svavars-son fæddist í
Reykjavík 4. júní
1979. Hann lést 10.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hans eru Sig-
urjóna Kristinsdóttir
og Svavar D. Hjalta-
son. Systkini Hjalta
eru Kolbrún Ósk,
Svanhildur Tinna,
Kristín og Ólafur
Helgi
Útför Hjalta fer
fram frá Hallgríms-
kirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan
15.00.
oftast björgunarmaður-
inn enda gátum við ekki
borið hann.
Eitt af því sem Hjalti
elskaði mest var náttúr-
an og dýrin. Hann hafði
svo gaman af því að
vera úti að labba eða
hjóla, bara vera í nátt-
úrunni. Hann gat talað
endalaust um dýr, hann
vissi líka svo margt um
þau. Ég held að ein
besta gjöfin sem við
gáfum honum hafi verið
dýralífsmyndirnar sem
hann horfði svo oft á og
hafði svo gaman af. Ég veit að þetta
eru minningar sem ég mun aldrei
gleyma, sama hvað ég verð gömul.
Og ég veit að ég á eftir að hitta Hjalta
minn aftur þótt það verði ekki alveg
strax.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Svanhildur Tinna.
Elsku Hjalti minn, nú ertu kominn
á betri stað. Þú ert orðinn engill hjá
guði, þú varst reyndar alltaf engillinn
okkar. Það er svo margt breytt án
þín, nú geturðu ekki strítt mér leng-
ur, sagt mér allt um dýrin, náttúruna
og horft á sjónvarpið með mér langt
fram eftir nóttu. En ég veit að sálin
þín er alltaf hjá okkur. Ég man við
gátum setið hlið við hlið tímunum
saman án þess að segja orð, við bara
sátum þarna og það var samt svo
yndislegt. Þú varst svo blíður og góð-
ur. Þú varst og verður alltaf besti
bróðir sem hugsast getur.
Því svo elskaði guð heiminn að hann gaf son
sinn eingetinn til að hver sem á hann trúir
glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
Megi ljós þitt lifa að eilífu.
Kristín litla systir.
Mig langar að minnast dótturson-
ar míns með minningum um yndis-
legan, fallegan og ljúfan dreng. Hann
var svo rólegur og þægilegur sem lít-
ið barn, geislandi með fallegu ljósu
lokkana sína. Ég minnist síðasta
faðmlags okkar í apríl.
Ég vona að honum líði betur þar
sem hann er núna og bið guð að
vernda hann og blessa.
Svanhildur (Svana amma).
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
um lífs míns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefur villzt af leið.
Ó, faðir, gjör mig styrkan staf
að styðja hvern, sem þarf,
unz allt það pund, sem guð mér gaf,
ég gef sem bróður arf.
(Matthías Jochumsson.)
Hann elsku Hjalti okkar er dáinn.
Það eru fá orð sem geta lýst líðan
minni, þegar mér barst sú sorgar-
fregn. Þótt því verði ekki lýst hér, þá
vil ég minnast þessa ljúfa drengs og
þess tíma sem hann átti með okkur.
Hjalti var frumburður systur
minnar og svo sannarlega augasteinn
móður sinnar frá fyrsta degi. Hann
var ljúft ungbarn og fljótlega mjög
fjörugur og skemmtilegur. Hann
heillaði mig fljótt með ljósu lokkun-
um sínum og hlýja brosinu. Þegar
hann eltist varð hann meinstríðinn og
þá slapp enginn við galsaganginn í
honum. Systur hans fóru ekki var-
hluta af því, þótt honum þætti ofsa-
lega vænt um þær. Enda var hann
mjög spenntur og glaður þegar þær
fæddust og svo seinna ekki síður þeg-
ar hann eignaðist lítinn bróður.
Hjalti var oftast sjálfum sér nógur
og gat dundað sér tímunum saman.
Einu sinni var hann í pössun hjá mér
og byggði þá heila borg úr spilum,
sem var ótrúlegt þolinmæðisverk fyr-
ir barn á hans aldri, úr öllum spila-
stokkum heimilisins. Hann var líka
mikill ævintýraunnandi og upplifði
ævintýrin með mikilli innlifun. Hann
sökkti sér oft ofan í lestur þannig
bókmennta.
Þegar mamma hans fór að búa
með Óla (stóra) eignaðist Hjalti mik-
inn vin, sem átti eftir að reynast hon-
um mjög vel í gegnum súrt og sætt og
þótti Hjalta mjög vænt um hann. Við
mömmu sína hélt hann alltaf góðu
sambandi, eftir að hann var floginn
úr hreiðrinu, enda mikill mömmu-
drengur.
Elsku Jóna, Óli, Kolla, Svana,
Didda og Óli Helgi, megi guð gefa
ykkur styrk í sorginni.
Guð gefi þér frið, elsku Hjalti
minn.
María (Mæja frænka).
Í gær var hann hræddur, vonlaus, kvíðinn
smár, máttvana, tómur,
lauf hans veik og föl
feyktust til og frá í norðanvindinum.
Í dag er hann öruggur, ánægður,
fallegur, hreinn, kröftugur,
lauf hans sterk, græn og þykk
teygja sig mót sólu.
Ég kynntist þér fyrst þegar ég var
að passa þig á barnaheimili. Þá varst
þú á öðru ári, lítill ljóshærður kútur,
fjörugur, vel gefinn og skemmtileg-
ur. Ekki má gleyma fallegu, stóru
augunum þínum og löngu þéttu
augnhárunum sem einkenndu svip
þinn. Augnaráð þitt greypti sig svo
auðveldlega í hjarta mitt, já líkt og
við hefðum horfst í augu svo oft, oft
áður. Þessir eiginleikar þínir ein-
kenndu þig alla þína ævi.
Við urðum strax miklir og góðir
vinir. Þegar þú varst fjögurra ára
kynntust Stebbi, Helena og Ilmur
þér og þegar fyrsta barnabarnið okk-
ar, Stefán yngri, fæddist fékk hann
einnig að vera með þér. Við tókum öll
sama ástfóstrinu við þig. Við vorum
svo heppin að mega vera samferða
þér og í nánum tengslum við þig í
gegnum nokkur tímabil, fyrst þegar
þú varst fjögurra ára og síðan þegar
þú varst fjórtán og sextán ára. Þú
varst augasteinn okkar allra. Nú hef-
ur þú kvatt þennan heim, elsku strák-
urinn minn. En þeir sem guðirnir
elska deyja ungir. Ég vildi óska að líf
þitt hefði verið hamingjuríkara. Ég
vildi líka óska að það hefði verið
lengra. Ég trúi því að allt sem gerist
hafi tilgang. Ég trúi því að dauði þinn
hafi líka tilgang, fyrir þig sjálfan og
okkur sem eftir lifum. Ég minnist
allra okkar samverustunda frá því þú
varst lítill og þar til ég kvaddi þig síð-
ast. Ég minnist samverustunda þinna
og Stebba og stelpnanna. Ég minnist
þess hvað þið Stebbi gátuð átt ynd-
islegar stundir saman, hlegið, gert
grín að allri tilverunni. Sjaldan hef ég
séð hann skemmta sér jafnvel og
þegar þið „tókuð flugið“ saman, það
var eins og strengir ykkar slægju ná-
kvæmlega sama takt. En við áttum
líka ótrúlega heimspekilegar sam-
ræður um lífið og tilveruna og ótrú-
legt hvað þú varst þroskaður og áttir
auðvelt með að ræða hluti sem marg-
ir þér miklu eldri ræða aldrei. Þínar
jákvæðu hliðar voru svo sterkar að
ekkert annað lifir í minningunni.
En allir þessir góðu eiginleikar
þínir dugðu þér ekki, því miður. Lífs-
hlaup þitt var ekki auðvelt, elsku
Hjalti minn. Ég er þakklát fyrir að
hafa kynnst þér, stutt þig á tímabil-
um og lært af þér svo margt. Þú varst
svo sérstakur persónuleiki. Alltaf gat
ég treyst þér á hverju sem gekk í lífi
þínu. Fyrir stuttu sagði ég við þig:
„Þú manst, Hjalti minn, að ef eitt-
hvað kemur fyrir Stebba verður þú
að flytja til mín, því ég get ekki búið
ein.“ „Já, ég man það,“ sagði hann og
ég er viss um að hann hefði staðið við
það.
Þú varst að mörgu leyti of góður
fyrir þennan heim, svo viðkvæmur og
lítill innst inni en lifðir þó í hinum
harða undirheimi sem þú þoldir samt
aldrei. Þú fannst þig einhvern veginn
hvergi, nema svo stutta stund. Oft og
mörgum sinnum reyndir þú að snúa
blaðinu við. Stundum tókst þér það
og ég trúði að „nú mundi þér takast
það“. Þú fékkst vinnu, ræktaðir þinn
innri mann, byrjaðir að byggja upp
betra líf, en svo kom skellurinn og svo
stór að lokum að þú féllst undan hon-
um.
Það er sorglegt að sjá svo fallegan,
skynsaman og hjartahlýjan dreng
fara þá leið sem þú fórst og tollur sá
sem áfengi og eiturlyf taka af æsku
okkar endurspeglast í þér, lífi þínu og
dauða. Á tímamótum sem þessum
stöldrum við fjölskyldan við og segj-
um sem svo: Mikið vorum við heppin
að fá að verða þér samferða spöl og
spöl, mikið þökkum við þér vel fyrir
samveruna, mikið átt þú stórt pláss í
hjarta okkar, mikið hefði verið gam-
an ef við hefðum getað gert meira
fyrir þig, sérstaklega síðustu árin.
Við þökkum ykkur, Sigurjóna og
Svavar, fyrir að eiga þennan strák og
gefa okkur hlutdeild í honum. Ég trúi
því, Hjalti minn, að þú sofir vært eins
og þegar þú varst lítill og ljósu lokk-
arnir þínir léku við koddann þinn og
brár þínar lukust svo fallega. Ég trúi
því líka að þegar þú hefur hvílst nóg
munir þú vakna til betra lífs. Þú
minnir mig á engil, hvert sinn er ég
hugsa um þig sé ég þig sem engil.
Guð veri með þér og fjölskyldu
þinni allri. Kveðja frá Stebba, stelp-
unum, mönnunum þeirra og barna-
börnunum okkar með þökk fyrir allt.
Þín vinkona,
Magnea Reinaldsdóttir
(Maddý).
Þú ert 3ja ára.
Ég er 12 ára.
Við hittumst í fyrsta sinn.
Það eru jól.
Ég leiði þig úti í snjónum
og finn að það þarf að passa
þig betur en önnur börn.
Þú ert brothættur og hefur
þegar reynt sitthvað.
Augun þín og hárið eru falleg
og þú snertir streng í hjarta
mínu.
Ég elska þig eins og lítinn bróður.
Þú ert 5 ára.
Þú býrð hjá okkur heilt sumar.
Þú hangir í kaðli í stofunni okkar
og leikur Loga Geimgengil.
Við lesum saman náttúrulífsbækur.
Þú þekkir nöfn allra dýranna og kennir
mér.
Þú ert 13 ára
og flytur aftur til foreldra minna.
Ég er 22 ára, jafngömul og þú varst
fyrir nokkrum dögum.
Þú ert fyndinn og feiminn
segir mér brandara og
ert ennþá jafn brothættur.
Þú ert fjölskyldan mín í 1 ár.
Þú ert 17 ára.
Þú flytur aftur til okkar.
Ég er orðin móðir í sambúð
og þú átt kærustu.
Þú hefur þroskast
ert ungur maður
með reynslu.
Það er gaman að tala við þig
og auðvelt að þykja vænt um þig
eins og bróður.
Þú ert 22 ára.
Ég tala við þig í huganum.
Þú segir
gráttu ekki
við sjáumst í Nangijala
það er þangað sem
menn fara þegar þeir deyja.
Ég elska þig,
hittumst í Nangijala
(Til Hjalta.)
Þín
Ilmur.
Elsku, elsku Hjalti minn.
Mig langar að segja svo margt við
þig elsku litli geimgengillinn minn. Í
þessari tilveru varst þú litli fóstur-
bróðir minn en ástin og væntumþykj-
an sem myndaðist strax og þú komst
inn á heimilið okkar þegar ég var að
skríða inn á unglingsárin segir mér
að þú hafir verið tengdur fjölskyld-
unni frá ómunatíð. Um leið og þú
steigst fæti þínum inn fyrir dyr heim-
ilisins, pínulítill og algjört krútt, var
eins og þú hefðir alltaf verið þar. Það
voru aldrei neinar efasemdir um það
að þú værir hluti af okkur. Við syst-
urnar, ég og Imma, urðum til dæmis
vitni að því þegar við komum heim
einn daginn að þið pabbi voruð að
spila. Það væri nú ekki í frásögur
færandi ef pabbi minn hefði sést taka
í spil áður. En sannleikurinn er sá að
hann hefur aldrei þolað spil og alltaf
neitað að spila við okkur Immu.
Meira að segja barnabörnum hans
hefur hvorki fyrr né síðar tekist að fá
hann til að spila. En þér tókst ein-
hvern veginn að fá hann til að spila
við þig og það eitt segir svo mikið um
það hvað þú áttir auðvelt með að
bræða hjörtu fólks. Þú varst sko ekki
sá eini sem „dásaðir“ þig fyrir framan
spegilinn í Barmahlíðinni, því við öll
fjögur höfum alltaf „dásað“ þig og
gerum enn. Ég mun sennilega aldrei
sætta mig við að þú hafir farið svona
ungur elsku Hjalti minn og ég finn til
reiði út í þau öfl sem drógu þig þang-
að sem þú ert kominn núna. Ég get
aðeins vonað að þú sért á góðum stað
og svo er ég auðvitað viss um að við
hittumst aftur. Mig langar bara að
segja svo margt við þig, þú varst svo
klár og greindur strákur, svo
skemmtilegur og yndislega góður við
allt og alla. Ég man þegar þú gafst
honum Stebba mínum fyrstu
Nintendo-tölvuna sína, hvað hann
var glaður og hvað þú varst innilega
gjafmildur við hann og þolinmóður að
kenna honum að leika á hana. Ég á
bara svo margar góðar minningar um
þig elsku litli feimni fósturbróðir
minn og mér þykir svo leiðinlegt að
þú skulir ekki fá að vaxa meira í
þessu lífi. Mér þykir óendanlega
vænt um þig. Ég bið þig vel að fara
litli geimgengill og hlakka til að sjá
þig aftur.
Kær kveðja,
Helena Stefánsdóttir.
Nú þegar við kveðjum okkar kæra
vin, Hjalta Svavarsson, eigum við
margs að minnast frá liðnum árum.
Góðar stundir um ljúfan, bjartan og
gefandi dreng. Mynd af áhugasömum
sex ára strák sem stendur við hlið
kennara síns í Breiðholtsskóla á leið í
fyrstu kennslustund. Mynd af stolt-
um stóra bróður horfa á nýfædda
systur. Hjalti varð svo bjartur og um-
hyggjusamur á svip þegar hann tal-
aði um systkini sín sem voru honum
svo kær. Minningar úr skemmtileg-
um ferðalögum þar sem hann er
syngjandi kátur í góðum vinahópi á
sólskinsdegi í Galtalækjarskógi.
Hlátur hans og glens á skemmti-
kvöldi í sumarbústað á Úlfljótsvatni.
Ógleymanleg gönguferð á Þingvöll-
um. Við munum hann ánægðan segja
frá vinnu sinni þar sem honum var
fengin ábyrgð í hendur. Einnig að
skrifa hughreystandi bréf til vinar í
erfiðleikum. Þegar okkur fæddist lítil
prinsessa í fjölskyldunni bárust fljótt
hamingjuóskir frá honum. Hjalti á
stórt pláss í hjörtum okkar, sem hann
snerti hvert á sinn hátt, með sinni
hlýju nærveru. Við þökkum honum
samfylgdina og allar góðu stundirn-
ar, og samveruna í sigrum hans og
sorgum í baráttunni við illvígan sjúk-
dóm. Við vottum okkar dýpstu samúð
og megi góður guð styrkja ykkur,
fjölskyldu hans og ástvini, og leiða
ykkur og blessa.
Haukur Gunnar, Gunn-
hildur og Helga Hauks.
Það var hringt í mig á föstudaginn
og mér sagðar þessar sorgarfréttir
að hann Hjalti minn væri látinn.
Þetta var mikið áfall fyrir mig að
frétta þetta, ég gat bara ekki trúað
þessu, eða ég bara vildi ekki trúa því
að ég myndi aldrei fá að sjá þig aftur,
Hjalti minn. En þegar ég sá síðan
myndina af þér í Morgunblaðinu á
sunnudagsmorgun varð mér ljóst að
þú varst virkilega farinn og það fór
kaldur hrollur um mitt sára hjarta og
ég sat bara þarna og grét. Margar
minningar hafa farið í gegnum huga
minn síðan ég frétti þetta. Ég hef
hugsað og hugsað um þig, þú varst
minn besti vinur og meira en það og
ég sakna þín svo mikið, en af hverju
kvaddir þú mig ekki, það fannst mér
sárast. Ég hefði getað hjálpað þér
eins og þú varst vanur að hjálpa mér,
vinir standa alltaf saman og mun ég
aldrei gleyma þér og góðu stundun-
um sem við áttum saman. Við sem
ætluðum að gera svo mikið saman,
t.d. er afmælið mitt framundan, þú
ætlaðir að vera með mér þá, ég var
búin að bíða eftir að þú myndir
hringja því við ætluðum að ákveða
hvað gera skyldi þegar ég yrði einu