Morgunblaðið - 17.05.2001, Síða 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 55
árinu eldri en þá voru mér bara born-
ar þessar fréttir. Þetta sem átti að
verða svo æðisleg helgi eins og þú
varst búinn að plana. En ég vona svo
innilega, elsku Hjalti minn, að þú haf-
ir það gott þar sem þú ert núna og
horfir á mig og leiðir mig í gegnum
þetta líf, því ég verð að vona að þú
gerir það því það er svo sárt að vita að
ég geti ekki hringt í þig og talað um
allt og ekkert. En ég mun samt alltaf
minnast þín sem skemmtilegs, góðs
vinar og þú varst „kóngurinn“ eins og
þú varst vanur að kalla þig. Það var
allt svo auðvelt fyrir þig, þú varst
vanur að bjarga þér svo skemmtilega
frá öllu, þú varst bara svo klár. Af
hverju? verð ég að spyrja, þú sem átt-
ir allt þitt líf framundan, mig langar
ekki að hafa þetta svona, mig langaði
að geta hjálpað þér frá öllu þessu ég
hefði viljað getað knúsað þig að mér,
mér þykir þetta svo vont og ég er svo
einmana án þín. Mér þótti alveg rosa-
lega vænt um þig, þú varst sá besti
vinur sem maður getur óskað sér.
Kveð ég þig nú elsku vinur með mik-
illi sorg í hjarta og við hittumst aftur
eftir nokkur ár. Sigurjóna, Svavar,
Ólafur, Kolbrún ósk, Svanhildur
Tinna, Kristín T., Ólafur Helgi, ég
votta ykkur samúð mína, megi guð
geyma ykkur í þessari sorg.
Í skugga himins sé ég ljós,
það skín svo skært
að það blindar hvern mann,
en ég sneri ljósinu við og þar
sá ég þetta fallega andlit og það varst þú,
ljós lífs míns.
Þín vinkona,
Eva Lind.
Lífið hér á Hótel Jörð er oft skrít-
ið, erfitt, skemmtilegt og einnig sorg-
legt. Þegar við mannfólkið göngum í
gegnum lífið kynnumst við allskonar
fólki og það verður hluti af lífi manns
sem fjölskylda, vinir eða kunningjar.
Flestir, við þar á meðal, eiga marga
kunningja en aðeins örfáa vini. Þessa
vini er hægt að treysta á bæði í gleði
og sorgum. Þeir eru þannig að það er
alveg sama hversu langur tími líður á
milli samverustunda og samtala, þeir
eiga alltaf vísan stað hver í hjarta
annars. Þannig vinur okkar var
Hjalti Svavarsson.
Að syrgja góðan, göfgan vin
og gráta sært og hljótt,
það hefur margur maður reynt
myrka, kalda nótt.
En Drottinn telur tárin þess, er grætur.
(Margrét Jónsdóttir.)
Elsku besti vinur okkar. Við getum
ekki lýst því hversu erfitt það er að
setjast niður og skrifa minningar-
grein um þig. Þú varst svo dýrmæt
perla í lífi okkar og í dag ásökum við
sjálfa okkur fyrir að hafa ekki sagt
þér hversu vænt okkur þótti um þig.
Þegar ég (Elfa) sá þig fyrst vissi ég
að þú værir sérstakur. Þú varst svo
sætur bæði að utan sem innan en
reyndir að leyna því með töffaraskap.
Hugurinn er fullur af minningum um
þig, til dæmis ’95 þegar ég gekk í
gegnum erfiðleika í mínu lífi, þá
sýndirðu mér hversu góður vinur þú
varst með því að uppörva mig, knúsa
eða skamma. Hjalti minn, ég á þér
svo mikið að þakka, þú hjálpaðir mér
að feta fyrstu skrefin í nýju lífi og
bentir mér á Jesú og hvað hann gæti
gert fyrir mig. Þetta leiddi mig á end-
anum til Hans og það mun ég æv-
inlega verða þakklát fyrir.
Við vitum að þú glímdir oft og tíð-
um við erfiðleika og varst bundinn í
fjötra sem að lokum buguðu þig. Við
erum þakklát fyrir að hafa fengið að
vera þátttakendur í lífi þínu, bæði í
erfileikum og gleði. Hugur okkar
reikar til þeirra tímabila í lífi þínu
þegar allt lék í lyndi og þér leið svo
ofsalega vel. Til dæmis þegar þú
komst úr kotinu sá ég að þú varst svo
breyttur. Þú ljómaðir af gleði og það
var friður í augunum á þér og alveg
eins og það væri geislabaugur yfir
þér. Nokkrum mánuðum síðar fór að
halla undan fæti hjá þér og erfiðleik-
arnir að gera vart við sig aftur en allt-
af stóðstu upp á ný. Við eigum svo
góðar minningar frá tímabilinu þegar
við bjuggum öll í Grafarvogi og þú
komst oft við hjá okkur á leiðinni úr
vinnunni, stundum á hlaupum undan
vondu veðri, oft rennandi blautur.
Við dáðumst að baráttuvilja þínum til
þess að ná fótfestu í lífinu en að lok-
um náðu erfiðleikarnir yfirhöndinni.
Okkur fannst sárt og erfitt að hafa
ekkert heyrt í þér undanfarið en við
vissum að þér leið ekki vel. Drottinn
veit hversu mikið við gæfum fyrir að
fá að kveðja þig og sýna þér litla sól-
argeislann okkar sem við eignuðumst
fyrir 6 vikum en þú sérð hann von-
andi þaðan sem þú ert núna. Takk,
elsku Hjalti, fyrir að vera alltaf vinur
okkar.
Foreldrum, systkinum og öðrum
ástvinum sendum við okkar dýpstu
samúðarkveður með ritningarstað úr
biblíunni sem Hjalta þótti svo vænt
um.
Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og
þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.
(Matt 11:28)
Elfa og Daníel.
Eitt bros – getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem
brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
(Einar Benediktsson.)
Elsku Hjalti minn.
Mig langar að skrifa nokkur orð
um þig og hjartagæsku þína, hversu
hrein hún var og hversu heppin ég
var að fá að njóta hennar. Ég dáðist
að þrautseigju þinni við baráttuna við
sjúkdóm þinn. Að lokum bugaði hann
þig elsku vinur minn. Þú verður alltaf
engill í mínum huga og átt alltaf sér-
stakan stað í hjarta mínu.
Ástin heilög heillar mig,
hún er drottins líki;
meðan einhver elskar þig,
áttu himnaríki.
Elsku Svavar minn, megi Drottinn
styrkja þig í sorgum þínum. Einnig
votta ég öðrum ástvinum Hjalta mína
dýpstu samúð.
Þín vinkona,
Eva Lind Björnsdóttir.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur minn
er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm,
hjá undri því, að líta lítinn fót
í litlum skóm, og vita’ að heimsins grjót
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir menn,
já vita eitthvað anda hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó, alheimsljós, ó, mynd sem hverfur skjótt.
(Halldór Kiljan Laxness.)
Ragna Jóna.
Við Hjalti kynntumst fyrir ekki
svo ýkja löngu síðan og hefðum lík-
lega aldrei kynnst ef ekki hefði verið
fyrir það að ég fór að vinna á café 22
niðri í bæ. Þar vann nefnilega líka
Míó. Þetta var upphafið að yndislegri
vináttu. Það voru Hjalti, Bjöggi,
Kiddi, Míó, Guðni, Árni, Stjáni, Ásta
systir, Lilja kærasta Míó og ég. Það
var pínulítið erfitt að kynnast honum
Hjalta, hann passaði að hleypa ekki
hverjum sem var að sér, en þeir sem
hlutu þann heiður áttu vin, eins góð-
an vin og hugsast gat, vin sem pass-
aði vel upp á sína og vildi allt fyrir
vini sína gera. Ég og Hjalti urðum
seinna kærustupar, það er ekki langt
síðan, við erum nýhætt saman. Ég
elskaði hann mjög mikið en ég gat
ekki samþykkt allt sem hann tók sér
fyrir hendur og því hættum við sam-
an, en ég veit að hann elskaði mig
samt, hann gat bara ekki trúað því
jafn vel og ég að hann væri ekki vond-
ur maður, heldur yndislega góður.
Ein fallegasta sál sem ég hef kynnst,
það sást í augunum, sem voru eins og
í saklausu barni, skærblá og sindr-
andi. Þeir sem ekki þekktu Hjalta
dæmdu hann oft, gáfu honum ekki
tækifæri heldur dæmdu hann fyrir-
fram. Það þótti honum mjög leitt. Þó
hann segði það ekki við aðra þá sagði
hann það oft við mig. Hann langaði
svo mikið til að breyta lífi sínu og ég
reyndi að segja honum að hann ætti
sanna vini og við og fjölskyldan hans
myndum hjálpa honum hvernig sem
við gætum. En hann vildi ekki leggja
meira á okkur en honum fannst hann
þegar hafa gert... Ég á ekkert nema
góðar minningar um Hjalta eða
Skagfjörð eins og ég kallaði hann oft,
og ég mun geyma þær allar hjá mér.
Hvernig hann brosti, hvað hann söng
vel, hvað það var gott að faðma hann,
hvernig hann vissi alltaf hvað hann
átti að segja og gera ef ég var leið,
hvernig hann dansaði, hvernig hann
stríddi mér alltaf, hvernig hann
horfði stundum með aðdáun í augun á
mér og ég gæti haldið endalaust
áfram. En vænst þótti mér um að
hann tók sér tíma til að kynnast mér
eins og ég er og sagði mér svo hreint
út eitt kvöldið, þar sem ég sat grun-
laus, að hann vildi vera með mér því
hann væri búinn að fylgjast með mér
og ég væri ekki bara sæt heldur svo
góð manneskja.
Elsku Sigurjóna, Óli, Svana, Krist-
ín, Óli litli, Grettir og aðrir ástvinir!
Við vitum að Hjalti er glaður núna og
við skulum reyna að leyfa honum að
njóta þess. Látum hann ekki þurfa að
hafa áhyggjur af okkur, höldum
minningu hans lifandi með bros á vör
þó að söknuðurinn sé oft óbærilegur,
þá eigum við hvert annað og minn-
inguna um góðan dreng hvers ljós
slokknaði jafn skjótt og það kviknaði
en lýsir samt skært í hjörtum okkar
allra sem hlutum þau forréttindi að
þekkja hann.
Ragnhildur Ísleifsdóttir.
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
við Nýbýlaveg, Kópavogi
/
0
/44,
:*#! &;
#$
" -
1 "
-
2
3435
1 ## &'(&#$ $%
&'(&#$&/%# )# . $ ")! $%
% (! /%# )# ! .&'&/%# $%
'&/%# )# ! !( &'(&#$ $%
(</%# )# !'&,)5 $%
" !/%# )# 5 $%
# #)! # # #+
!
%
,.-, 4:: &(=2
6
#&/* & )#
> "+.# )# #! ! $%
/* & + # )# & $ &## $%
! + # $% #&#! )#
# #)! # # #+
/
0
$ %
-
."
) ( =
"
-
1 "
-
2
335
% !+.#!( $%
1 ## - $%
. ##- )#
"!" # )# !'& # $%
,% "# "! $% ? & )
.#!(&+&'%# )# 1 ## /%# $%+
.,.
5<- 5'
7 5 3% &(@
-
7
8
3 !&%# $%
&##3 $& & $% !1+.# )#
$ & $% ' "+&#% 5 )#
# 4 & $% .#%/%# # )#
&& & )# ! A! $%
# #)! # # #+
/
0
/4- ,.
"
#$&3 BB
" #3# <#
)! ' ' #$ #$&+