Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 59
Lið Árskóga
vann bæði gull
og silfur
FÉLAGS- og þjónustumiðstöðin í Ár-
skógum hefur á að skipa harðsnúinni
sveit karla og kvenna sem stunda
boccia. Þann 17. apríl var haldin bocc-
iakeppni í Laugardalshöll á vegum
áhugafólks um íþróttir aldraðra.
Mörg lið af höfuðborgarsvæðinu og
frá Suðunesjum tóku þátt í keppninni.
Liðssveit Árskóga sigraði og hlaut
þar með gullverðlaun. Um er að ræða
veglegan farandbikar sem nú er hýst-
ur í Árskógum fram að næstu keppni
að ári.
Viku fyrir þessa keppni var haldið
hið árlega Bocciamót Félagsmið-
stöðva Reykjavíkurborgar í Íþrótta-
húsi fatlaðra við Hátún. Þar hlaut
sveit Árskóga silfurverðlaun.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 59
STÉTTARFÉLAG íslenskra félags-
ráðgjafa heldur ráðstefnu um börn,
áföll og missi föstudaginn 18. maí á
Grand hóteli frá kl. 9.00–16.15.
Aðalfyrirlesari er Dr. Phyllis R.
Silverman félagsráðgjafi en hún hef-
ur áratuga reynslu af rannsóknum,
kennslu og meðferðarvinnu varðandi
sorg og sorgarviðbrögð. Hún hefur
hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem
sérfræðingur á sínu sviði og er eft-
irsóttur fyrirlesari víða um lönd og
hefur hlotið fjölmargar viðurkenn-
ingar fyrir störf sín. Um þessar
mundir stýrir Dr. Silverman rann-
sókn á viðbrögðum barna og ung-
linga við dauða foreldra.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra setur ráðstefnuna. Nanna
Sigurðardóttir félagsráðgjafi fjallar
um börn, áföll og missi. Stúlknakór
Reykjavíkur syngur nokkur lög og
Ingveldur M. Hannesdóttir 14 ára
segir frá reynslu sinni sem langveikt
barn.
Eftir hádegi verða 6 málstofur. Að
loknum málstofum verða pallborðs-
umræður undir stjórn Láru Björns-
dóttur félagsmálastjóra og félags-
ráðgjafa. Þórhildur Líndal
umboðsmaður barna slítur ráðstefn-
unni.
Styrktaraðilar ráðstefnunnar eru
Félagsþjónustan í Reykjavík, um-
boðsmaður barna og dóms- og
kirkjumálaráðuneytið.
Ráðstefna um
börn, áföll
og missi
HALDIÐ verður upp á 20 ára út-
skriftarafmæli nemenda sem útskrif-
uðust úr Réttarholtsskóla árið 1981
þann 19. maí nk., en í þeim árgangi
eru nemendur sem fæddir eru 1965.
Fagnaðurinn er haldinn í Versölum í
Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg
1. Allir þeir sem ætla að mæta eru
beðnir um að leggja 3.600 kr. inn á
reikning nr. 0111-05-268272, kt.
080165 4989 fyrir 19. maí. Nemendur
eru hvattir til þess að mæta snemma,
eða í síðasta lagi um kl. 20:30, segir í
fréttatilkyningu. Léttur matur verð-
ur á boðstólnum og diskótónlist.
Fagnaður hjá
’65 árgang-
inum í Réttó
EINAR Sigurðsson landsbóka-
vörður undirritaði 9. apríl sl., fyrir
hönd menntamálaráðuneytisins,
samning við Data Downlink Corp-
oration um aðgang Íslendinga að
gagnasöfnunum Portal B* og .xls.
Þetta er þriðji samningurinn
sem verkefnisstjórn um aðgang að
gagnasöfnum, sem menntamála-
ráðherra skipaði á síðastliðnu ári,
gerir við eigendur erlendra gagna-
safna um aðgang á landsvísu. Aðrir
samningar sem gerðir hafa verið
eru við Bell & Howell og Institute
for Scientific Information.
Samningurinn við Data Down-
link Corporation felur í sér aðgang
að tveimur gagnasöfnum: Portal
B* er vefgátt fyrir fyrirtæki sem
eru stórnotendur upplýsinga, s.s.
bankar, ráðgjafarfyrirtæki, lög-
fræðistofur, og fjármálafyrirtæki
sem og önnur fyrirtæki. Styrkur
Portal B* liggur í gagnasafni meira
en 8.500 vefja á sviði viðskipta sem
eru valdir, flokkaðir og skráðir af
viðskipta- og upplýsingafræðing-
um. Slóðin að Portal B * er: http://
www.portalb.com/ - Smellt á „Log
in“.
Samningurinn gildir frá 30. apríl
2001 til 30. maí 2002. Greiðsla fyrir
aðganginn er tæpar 4 milljónir kr.
og er miðað við að að háskólar og
bókasöfn greiði sem svarar 75%
þess kostnaðar og atvinnulífið 25%
kostnaðarins.
Allar upplýsingar um aðgang og
notkunarskilmála gagnasafnanna
verður að finna á vef hvar.is sem er
heimasíða rafrænu gagnasafnanna.
Slóðin er: http://www.hvar.is/.
Verkefnisstjórn um aðgang að gagnasöfnum
Samningur um aðgang
Íslands að gagnasöfnum
♦ ♦ ♦
Bátasýning
á Dalbraut
DIÐRIK Jónsson, Dalbraut 27,
fæddur 1914, sýnir bátasmíði sína frá
undanförnum árum á Dalbraut 27.
Sýningin verður opnuð föstudag-
inn 18. maí nk. og verður opin virka
daga frá kl.13-16.
Þroskahjálp vill félagsþjónustu
til sveitarfélaga
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp
harma þá niðurstöðu að lagafrum-
varp um félagsþjónustu sveitar-
félaga og fylgifrumvörp hafi verið
dregin til baka á Alþingi, segir í
ályktun frá samtökunum.
„Samtökin ítreka þá skoðun að
sveitarfélög eigi að sinna félagsþjón-
ustu við alla þegna sína. Frá því 1996
hefur verið stefnt að tilflutningi á
félagsþjónustu við fólk með fötlun
frá ríki til sveitarfélaga og mikil
vinna verið unnin við undirbúning
nauðsynlegra frumvarpa. Lands-
samtökin Þroskahjálp skora á sveit-
arfélög og ríki að leggja ekki árar í
bát og leita allra leiða til að ná sam-
stöðu um málið svo af tilflutningi geti
orðið 1. janúar 2003 eins og ráð hafði
verið fyrir gert.“
♦ ♦ ♦
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
Síðumúla 34, Fellsmúlamegin
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
H
ö
n
n
u
n
&
u
m
b
ro
t
e
h
f.
©
2
0
0
1
D
V
R
0
6
7
Sænsk úrvalsfura á
hagstæðu verði
- trygging fyrir l
águ verði!
InnréttingarFuru í sumarhúsið