Morgunblaðið - 17.05.2001, Qupperneq 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 63
TÖLUVERT hefur verið rætt um
skriður á suðurfjörðum Austfjarða
vegna vegaframkvæmda sem nú
standa yfir á þjóðvegi 96 milli Breið-
dalsvíkur og Stöðvarfjarðar, og fyr-
irhugaðra jarðganga milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar. Einn stór
galli hefur verið á þeirri umfjöllun,
talsvert hefur vantað á að rétt væri
farið með örnefni.
Skriðurnar á milli Breiðdalsvíkur
og Stöðvarfjarðar heita ekki Kamba-
nesskriður, þ.a.l. er það örnefni ekki
til. Hér er um þrjár skriður að ræða
sem heita (talið frá Breiðdalsvík og
austur úr), Færivallaskriður, Hval-
nesskriður og Kambaskriður.
Milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar-
fjarðar tala menn yfirleitt um Vatt-
arnesskriður, en það segir ekki
nema hluta af sannleiknum. Þar er
einnig um þrjár skriður að ræða sem
heita (talið frá Fáskrúðsfirði) Stað-
arskriður, Kyrruvíkurskriður og
Vattarnesskriður.
Berum virðingu fyrir þeirri arf-
leifð sem örnefnin eru og förum rétt
með staðreyndir.
PÁLL BALDURSSON
Ásvegi 15, 760 Breiðdalsvík.
Varðandi skriður
á suðurfjörðum
Austfjarða
Frá Páli Baldurssyni:
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
Gangið inn í sumarið
í nýjum skóm!
Lilla, ljósgrænt,
svart og grænbrúnt.
St. 36—41.
Verð 4.990
Drappað, lilla
og bleikt.
St. 36—40.
Verð 2.990
Hvítt, blátt og appelsínugult.
St. 36—42.
Verð 2.990
Svart.
St. 36—46.
Verð 2.990
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin, Bæjarhrauni 16, Hf., sími 555 4420
Brúnt.
St. 36—41.
Verð 2.990
Ljósbrúnt og drapp.
St. 36—40.
Verð 5.490
Ath. nýtt korta
tímabil