Morgunblaðið - 17.05.2001, Side 64
DAGBÓK
64 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Goða-
foss kemur og fer í dag.
Kodima og Mánafoss
koma í dag, Arnarfell fer
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: Nik-
olay Afanasyeu kom í
gær. Ostroe kemur í
dag.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl 2,
opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14–17.
Félag frímerkjasafnara.
Opið hús laugardaga kl.
13.30–17.
Mannamót
Árskógar 4. Föstudag-
inn 18. og laugardaginn
19. maí, verður hin ár-
lega handverkssýning
í félagsmiðstöðinni. Und-
irbúningur fyrir sýn-
inguna verður alla þessa
viku og mun því hin
venjulega dagskrá í
handavinnustofunum
vera í lámarki af þessum
sökum. Margt muna
verður á sýningunni,
skemmtiatriði verða
báða dagana og mun
Gerðubergskórinn koma
og syngja fyrir gesti á
föstudag kl. 14.30 og á
laugardaginn mun Hall-
dóra Björnsdóttir leik-
kona flytja vorljóð kl.
14.30.
Kaffi og meðlæti verður
selt á meðan sýningin er.
Sýningin verður opin
milli kl. 13 og 17 báða
dagana.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16 handa-
vinna og fótaaðgerðir, kl.
14–17 glerskurður.
Dalbraut 18-20. Handa-
vinnusýning föstudag og
laugardag frá kl. 13-17,
kaffiveitingar.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og í
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mos., á Hlaðhömrum á
fimmtud. kl. 17–19.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslustofan
og handavinnustofan
opnar, kl. 9.30 dans-
kennsla, gler- og postu-
línsmálun, kl. 13 opin
handavinnustofan og
klippimyndir, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun,
kl. 9.fótaaðgerð, kl. 10
hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15 bingó.
Félagsst., Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður,
glerskurðarnámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Austur-
ver, kl. 13.30 boccia.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfingar í Bæjar-
útgerð falla niður og
verður púttað á morgun
föstudag á vellinum við
Hrafnistu kl. 14–16.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Söngfélag FEB
ásamt þremur öðrum
kórum syngja í Breið-
holtskirkju nk. laug-
ardag 19. maí kl. 15.
Dagana 6.-8. júní verður
ferð til Vestmannaeyja.
Nokkur sæti laus. Ath.
lækkað verð. Ath. þeir
sem pantað hafa pláss í
Vestfjarðaferð 2.-7. júlí
vinsamlegast staðfestið
sem fyrst, vegna fjölda
þátttakenda. Skrifstofa
FEB er opin frá kl. 10–
16. Upplýsingar í síma
588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17 hár-
greiðsla og böðun, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bóka-
bíll, kl. 15.15 dans.
Félagsstarfið, Sléttu-
vegi 11-13. Handa-
vinnusýningin verður
föstudaginn 18. maí kl.
13.30-18. Allir velkomn-
ir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug falla
niður um tíma. Kl. 10.30
helgistund, umsjón Lilja
G. Hallgrímsdóttir
djákni, frá hádegi spila-
salur og vinnustofur
opnar. Myndlistasýning
Gunnþórs Guðmunds-
sonar. Allar veitingar í
kaffihúsi Gerðubergs.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9–15, gler og
postulín kl. 9.30, leikfimi
kl. 9.05, kl. 9.50 og kl.
10.45, kl. 13 taumálun og
klippimyndir, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans, Sigvaldi kenn-
ir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, perlu-
saumur og kortagerð, kl.
9 fótaaðgerðir, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
opin handavinnustofa,
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið. Sýn-
ing á handavinnu og list-
munum aldraðra verður
sunnudaginn 20. maí og
mánudaginn 21. maí frá
kl. 13.30-17 í matsal
félagsstarfsins, hátíð-
arkaffi. Á mánudaginn
kemur kór frá Vitatorgi
og syngur í kaffitím-
anum. Á sunnudaginn
verður Guðný við píanóið
í kaffitímanum.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leikfimi,
kl. 13–16 kóræfing.
Mánudaginn 21. maí
verður farið á hand-
verkssýningar að
Hvassaleiti og Norð-
urbrún. Lagt af stað kl.
13. Flóamarkaður verð-
ur á Vesturgötu 7 mið-
vikudaginn 23. og föstu-
daginn 25. maí kl.
13-16.30. Á miðvikudeg-
inum verða pönnukökur
með rjóma með kaffinu.
Á föstudeginum kl. 15
kynna Árni Sighvatsson,
baritonsöngvari og Jón
Sigurðsson, píanóleikari,
nýútkominn geisladisk
sem heitir Úr söngva-
safni Kaldalóns. Veislu-
kaffi og dansað í kaffi-
tímanum. Föstudaginn
18. maí er dansað undir
stjórn Sigvalda í kaffi-
tímanum, gott með
kaffinu. Söngfuglar: Kór
félagsstarfs aldraðra,
Söngfélag FEB, Gerðu-
bergskórinn og kór eldri
borgara í Garðabæ verða
með tónleika í Breið-
holtskirkju laugardaginn
19. maí kl. 15. Allir vel-
komnir.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia og fótaaðgerðir,
kl. 13 handmennt, körfu-
gerð og frjálst spil.
Þjónustuíbúðir aldr-
aðra, Dalbraut 27. Báta-
sýning. Diðrik Jónsson,
Dalbraut 27, fæddur
1914, sýnir bátasmíði
sína frá undanförnum
árum á Dalbraut 27.
Sýningin verður opnuð
föstudaginn 18. maí nk.
og verður opin virka
daga frá kl. 13-16. Upp-
lýsingar gefur Arndís í
síma 568-5377
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
bíður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheimilinu
að Gullsmára 13 á mánu-
dögum og fimmtudög-
um. Mæting og skráning
kl. 12,45. Spil hefst kl. 13.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11 í Digra-
neskirkju.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Fundur í dag kl.
17. Fundurinn er í umsjá
Lilju Kristjánsdóttur.
Allar konur velkomnar.
GA-fundir spilafíkla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Félag breiðfirskra
kvenna. Ferð á Njálu-
slóðir fimmtudaginn 24.
maí, uppstigningardag,
farið frá Umferðarmið-
stöðinni kl 10. Skráning
fyrir 21. maí í s. 553-
2562, Ingibjörg eða s.
568-1082, Svanhildur.
Í dag er fimmtudagur 17. maí, 137.
dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Enn sagði hann við þá: „Gætið að,
hvað þér heyrið. Með þeim mæli,
sem þér mælið, mun yður mælt
verða og við yður bætt.“
(Mark. 4, 24.)
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 allhvassan vind, 8 fal-
leg, 9 róleg, 10 elska, 11
sorp, 13 peningar, 15
tími, 18 slagi, 21 eldstæði,
22 nirfill, 23 þjálfun, 24
skrýtlur.
LÓÐRÉTT:
2 glefsa af grasi, 3 flat-
armálseiningin, 4 þekkja,
5 talar illa um, 6 krafts, 7
guð, 12 gyðja, 14 dveljast,
15 bráðum, 16 alda, 17
ílátið, 18 borða, 19 hús-
dýra, 20 kvennafn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 þerna, 4 klasi, 7 rómað, 8 ósómi, 9 afl, 11 aðan,
13 ýsan, 14 áfall, 15 garð, 17 anga, 20 æki, 22 ætlar, 23
lyfta, 24 akarn, 25 trana.
Lóðrétt: 1 þerna, 2 remma, 3 agða, 4 kjól, 5 atóms, 6 ið-
inn, 10 flakk, 12 náð, 13 ýla, 15 glæta, 16 rolla, 18 nefna,
19 apana, 20 æran, 21 illt.
K r o s s g á t a
LAUGARDAGURINN 12.
maí sl. Nokkrar trillur eru
á skaki um 6 mílur NA af
Garðskaga. Þar skammt
hjá er einnig lítill blár neta-
bátur með GK einkennis-
stöfum. Eftir að skipverjar
þar höfðu dregið net sín
taka þeir til við að skjóta
fugl og stóð sá leikur í allt
að tvo tíma. Er netabátur-
inn hélt til lands í Sand-
gerði sigldi ég að þar sem
þeir höfðu verið og blasti
þar við ófögur sjón. Fugl
um allan sjó, mávur, múkki
og rita. Flestir þó dauðir en
innan um voru lifandi fugl-
ar með sundurskotna
vængi og önnur sár.
Trillukarl.
Barnablað Moggans
JÓNÍNA hafði samband
við Velvakanda og vildi
koma á framfæri kvörtun
vegna barnablaðs Mogg-
ans. Fyrir það fyrsta finnst
henni ómögulegt að hafa
barnablaðið innan í sunnu-
dagsblaðinu og í öðru lagi
er útilokað að taka barna-
blaðið innan úr sunnudags-
blaðinu. Fyrirkomulagið
eins og það var var miklu
betra. Er ekki hægt að
breyta þessu? Börnin bíða
spennt eftir barnablaðinu.
Ég veit að ég tala fyrir
munn margra foreldra sem
lenda í vandræðum með að
afhenda börnunum sínum
barnablaðið.
Blýmengun í sjó?
OFT kemur upp umræða
um blýmengun hér og þar
og þykir hið mesta skað-
ræði. Í hafið umhverfis
landið fara árlega tugir
tonna af blýi þegar við
handfærakarlar festum
sökkur okkar. Á stöðum er
botninn þakinn blýi en
þorskinum er kannski al-
veg sama. En mér dettur
nú í hug hin vistvæna áróð-
ursmynd Landssambands
smábátaeigenda gegn LÍÚ.
Smábátasjómaður.
Barnapössun
KONA nokkur skrifaði
smápistil í Morgunblaðið
fyrir nokkru og kvartaði yf-
ir því að eldri börn væru
látin passa yngri börn.
Þetta hefur tíðkast um
áratugaskeið á Íslandi og
víðar. Það er ekki bara til
gagns fyrir mæður
barnanna sem fá þessa
pössun. Þetta er ómetanleg
þjálfun fyrir þær stúlkur
sem starfa við þetta. Þær
taka sér ábyrgð sem þær
verða að standast. Þetta
nýtist þeim því síðar í lífinu
þegar þær þurfa að annast
sín eigin börn. Að auki fá
þær peninga og læra þýð-
ingu atvinnustarfsemi.
Ef fólk á að vera ábyrgð-
arlaust allt til 18 ára aldurs
og ekki fá að stunda nein
störf utan náms í skóla er
fólk verulega illa undirbúið
fyrir lífsbaráttuna.
Faðir og afi.
Húsbóndi og þjónn
Á ÁRUM áður unnu fyrir-
tækjaeigendur hörðum
höndum frá morgni til
kvölds við að byggja upp
sitt fyrirtæki. Þeir þjónuðu
sínum kúnnum sjálfir verk-
lega. Þessi íslenski aðall er
dauður. Erfingjar tóku við,
að ég minnist nú ekki á
unga menn á uppleið. Þeir
sem sólunduðu ekki arfin-
um í vitleysu, létu þeir í
lúkur þjónustuliðs, milli-
liða. Þegar allt var komið á
hausinn las maður í Vísi og
síðar í Dagblaðinu, pen-
ingaskápur til sölu.
Það eru tilmæli mín til
eigenda stórverslana að
þeir láti sjá sig á vinnustað.
Þeir bera ábyrgð á hvort
hilluvöru, hilluverði og
kassaverði ber saman.
Guðrún Jacobsen.
Tapað/fundið
Nokia 3310
tapaðist
GRÁR og svartur Nokia
3310 GSM-sími tapaðist
mánudaginn 14. maí sl.
Gæti hafa tapast við
Breiðagerðisskóla. Skilvís
finnandi er vinsaml. beðinn
að hafa samb. í s. 553-9328.
Dýrahald
Selma er týnd
SELMA, sem er eins og
hálfs árs gömul læða, svört
og hvít, týndist frá Garða-
bæ. Selma stökk í skott á
bíl í Garðabæ og úr skott-
inu í Eskihlíð 12, 2. apríl sl.
Þeir sem hafa orðið hennar
varir hafi samb. í s. 565-
8108.
Kannast einhver
við Dísu?
DÍSA er svört og hvít loðin
læða. Hún fannst í smá-
íbúðahverfinu 11. maí sl.
Dísa er með rauða ól og
hefur einhvern tíma átt
heima í Úthlíð 16. Númer
sem sést á merkispjaldinu
er 847 262. Frekari uppl.
gefur Anna í s. 863-9336.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Ljótur
leikur
Víkverji skrifar...
SONUR Víkverja skoðaði fyrirskömmu víkingasýninguna á
byggðasafninu í Hafnarfirði ásamt
skólasystkinum sínum. Þetta var
greinilega lærdómsrík ferð því að
drengurinn kom heim algerlega
heillaður af því sem hann sá. Það
voru ekki síst lýsingar á víkingum
sem fallið höfðu í bardögum sem
höfðuðu til hans. Þegar hann kom
heim skrifaði hann skemmtilega
sögu af dauðdaga „Bobba víkings“
sem hafði barist hetjulega fyrir lífi
sínu en fallið með sæmd í orustu eftir
að hafa fengið fjölmörg sár. Því er
stundum haldið fram að góð barna-
saga þurfi að hafa dálítið af hryllingi
til að fá börnin til að hlusta. Sagan af
Bobba víkingi hafði greinilega náð
eyrum drengsins, en um leið hefur
hann eflaust lært meira um lifnaðar-
hætti víkinga en hann hefði gert með
lestri námsefnisins eingöngu.
x x x
ÞAÐ var fróðlegt að skoða verð-könnun sem Neytendasamtök-
in létu gera á verði ýmissa vöruteg-
unda í lágvöruverðsverslunum í
Reykjavík og Kaupmannahöfn, en
könnunin var birt í Morgunblaðinu
sl. laugardag. Niðurstaða könnunar-
innar er að matarkarfan er 26,4%
dýrari í Reykjavík en Kaupmanna-
höfn. Þetta voru kannski ekki óvænt-
ar niðurstöður. Það er hins vegar at-
hyglisvert að skoða einstakar
vörutegundir. Algengar vörur eins
og hveiti, sykur, kaffi, te og Kelloggs
kornflögur eru ódýrari í Reykjavík
en í Kaupmannahöfn. Grænmeti og
ávextir eru hins vegar almennt dýr-
ari í Reykjavík, ef laukur og agúrka
eru undanskilin.
Víkverja fannst athyglisvert að sjá
að svínakjöt var ódýrara á Íslandi en
í Danmörku, en fáar þjóðir í heim-
inum framleiða meira af svínakjöti
en Danir og því mætti ætla að svína-
kjöt sé almennt ódýrt þar í landi.
Smjör er einnig ódýrara í Reykjavík
en Kaupmannahöfn. Það eru einkum
þrjár vörutegundir sem valda því að
matarkarfan er umtalsvert dýrari í
Reykjavík en Kaupmannahöfn.
Þetta eru kjúklingar, ostar og rjómi.
Ef þessar vörutegundir eru teknar
út úr könnuninni kostar matarkarf-
an í Reykjavík 11.879 kr., en 11.472
kr. í Kaupmannahöfn. Munurinn er
aðeins 3,5%. Því hefur löngum verið
haldið fram að landbúnaðarvörur
séu almennt dýrar á Íslandi. Könnun
Neytendasamtakanna bendir til að
svo sé, en þó er það ekki algilt. Það
er athyglisvert að svínakjöt og smjör
er ódýrara hér á landi en í Dan-
mörku. Verð á nautakjöti virðist
einnig vera mjög svipað í löndunum
tveimur. Mjólk er heldur dýrari, en
verulegur munur er á verði á jógúrt
og eggjum. Að mati Víkverja ættu
samkeppnisyfirvöld og stjórnvöld að
skoða hvort ekki séu færar leiðir til
að lækka verð á rjóma, ostum og
kjúklingum. Það hlýtur a.m.k. að
vera sérstakt rannsóknarefni hvers
vegna svínabændum tekst að fram-
leiða kjöt sem stenst samkeppni við
framleiðslu Dana en kjúklingafram-
leiðendum tekst það ekki.
Framleiðsla á svínakjöti, kjúkling-
um og eggjum hefur mikla sérstöðu
innan landbúnaðarins. Framleiðend-
ur í þessum greinum eru mjög fáir
en stórir. Aðföng fyrir framleiðsluna
eru að langstærstum hluta innflutt
og framleiðslan er ekki háð veðurfari
eins og hefðbundnar greinar land-
búnaðarins.