Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 65
DAGBÓK
LJÓÐABROT
VONLAUST GETUR
ÞAÐ VERIÐ
Þú átt að vernda og verja,
þótt virðist það ekki fært,
allt, sem er hug þínum heilagt
og hjarta þínu kært.
Vonlaust getur það verið,
þótt vörn þín sé djörf og traust.
En afrek í ósigrum lífsins
er aldrei tilgangslaust.
Guðmundur Ingi Kristjánsson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert framtakssamur og
vandvirkur jafnvel þótt lítill
tími sé til stefnu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki hugfallast þótt
erfiðleikar komi upp því þú
hefur alla burði til þess að
sigrast á þeim ef þú bara
missir ekki trúna á sjálfan
þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ættir að taka meira tillit til
annarra því þú græðir ekkert
á því að gera hlutina upp á
þitt eindæmi. Mundu að deila
ágóðanum með öðrum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Undirbúningur er þýðingar-
mikill því hann flýtir fyrir ár-
angri og styttir leiðina að
settu marki. Skipuleggðu
tíma þinn eins vel og kostur
er.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki tilfinningarnar
ráða ferðinni því þótt þær séu
sjálfsagðar þarf skynsemin
líka að vera með í ráðum þeg-
ar þú tekur ákvörðun um að-
gerðir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gakktu úr skugga um að þú
hafir frelsi til þess sem þig
langar til að gera og finnist
þér annað þarftu að vinna taf-
arlaust að því að verða frjáls.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Krefjandi aðstæður reyna
mjög á þig en samt er engin
ástæða til þess að vorkenna
sjálfum sér því þetta eru bara
verkefni sem þarf að vinna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Haltu þig við það sem þú
kannt best og láttu aðra um
þá hluti sem eru utan verk-
sviðs þíns. Annað gæti reynst
þér skeinuhætt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Taktu það ekki óstinnt upp
þótt þú þurfir að leiðbeina
samstarfsmönnum þínum.
Það markar þér forustu með
vissum hætti og það er ein-
mitt það sem þú þráir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er viturlegt að staldra við
annað slagið og gera úttekt á
málunum. Þannig getur þú
lagfært það sem aflaga hefur
farið áður en það er um sein-
an.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt aðrir eigi erfitt með að
skilja hugmyndir þínar í
fyrsta umgangi skaltu halda
ótrauður áfram því á endan-
um vinnur þú aðra á þitt
band.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Hafðu nánar gætur á fjármál-
unum því lítið má út af bera
svo ekki skapist af meirihátt-
ar vandræði.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Stundum verða menn bara að
fleygja sér út í sundlaugina
og berjast til að ná bakkanum
af eigin rammleik. Það er þó
engin ástæða til annars en
ganga glaður til leiks.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÍSLENSKA sveitin tapaði
aðeins einum leik í Bikar-
keppni Norðurlandanna,
þeim fyrsta gegn Svíum, 14-
16. „Þeir tudduðust í lap-
þunnar slemmur og geim og
allt stóð,“ kvartaði Sverrir
Ármannsson, en hann og
Magnús Magnússon fengu
sitt versta „butler-skor“ út
úr þeim leik. „Butler“ er
samanburður para í öllum
leikjum, sem mótsstjórar
reikna út, spilurum til
skemmtunar, án þess að
skorið hafi nokkra þýðingu
fyrir keppnina sjálfa. Jón
Baldursson og Karl Sigur-
hjartarson urðu í öðru sæti í
„fjölsveitinnni“ (sem er hið
íslenska heiti á „butler“), en
hæstir urðu Svírarnir sem
„völtuðu yfir“ Sverri og
Magnús – þeir Bo-Henry Ek
og Peter Nordén. Jón og
Sverrir eru enn að ræða
þessi mál.
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 4
♥ Á832
♦ ÁDG109
♣ Á86
Vestur Austur
♠ 108 ♠ DG9653
♥ K10764 ♥ D
♦ K4 ♦ 876
♣D1072 ♣K53
Suður
♠ ÁK72
♥ G95
♦ 532
♣G94
Þetta spil kom upp þegar
Jón og Karl mættu Peter og
Bo-Henry:
Vestur Norður Austur Suður
Karl Peter Jón Bo-Henry
– – 2 tíglar * Pass
2 spaðar * Dobl Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Opnun Jóns á tveimur
tíglum er hefðbundin
„multi“ – sýnir veika tvo í
öðrum hvorum hálitnum.
Svar Karls á tveimur spöð-
um segir að hann vilji ekki
hærra á móti spaða, en sé til
í a.m.k. þrjú hjörtu ef makk-
er á hjartalit. Síðan taka
Svíanir við og renna sér í
þrjú grönd, sem er óneitan-
lega nokkuð harður samn-
ingur, en ætti þó að vinnast í
þessari legu.
Karl kom út með spaða-
tíu. Nú er eina raunverulega
vinningsleiðin sú að taka
báða spaðaslagina og svína
tígli í þeirri von að kóngur-
inn sé annar í vestur. Sem
hann er. En Bo-Henry hafði
ekki trú að legunni (og van-
mat andstæðingana hroða-
lega), því hann drap á spaða-
kóng og svínaði í tígli. Síðan
spilaði hann smáu hjarta úr
borði. Jón átti slaginn á
drottninguna og skipti yfir í
laufþrist, því hann sá að
sagnhafi átti níu slagi með
áframhaldandi spaðasókn.
Bo-Henry dúkkaði laufið
tvisvar, tók það þriðja á ás-
inn og spilaði aftur smáu
hjarta. Legan kom í ljós og
spilið var hrunið. Karl drap,
tók laufslaginn og sendi svo
blindan inn á tígul, en sagn-
hafi hafði geymt Á8 í hjarta.
Þrjú grönd fóru því tvo nið-
ur og Ísland vann 6 IMPa,
því á hinu borðinu spiluðu
Sverrir og Magnús þrjá
tígla og fengu tíu slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Nk.laugardag 19. maí,
verður sjötugur Einar Guð-
mundsson á Seftjörn. Eig-
inkona hans er Bríet Böð-
varsdóttir. Þau taka á móti
gestum á afmælisdaginn í
Birkimel á Barðaströnd kl.
15-19.
70 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 17.
maí verður sjötug Guðfinna
Kristjánsdóttir, kennari,
Bláskógum 3, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Ein-
ar Ólafsson. Þau verða að
heiman á afmælisdaginn.
70 ÁRA afmæli. Í dagfimmtudaginn 17.
maí verður sjötug Steinunn
Guðný Sveinsdóttir, bóndi í
Kastalabrekku, Ásahreppi.
Eiginmaður hennar er Sig-
urður Jónsson frá Norð-
urhjáleigu. Steinunn og Sig-
urður taka á móti gestum að
Laugalandi í Holtum laug-
ardaginn 19. maí kl. 15-18.
STAÐAN kom upp á milli
sigurvegaranna tveggja á
Dos Hermanas ofurmótinu
er lauk fyrir skömmu. Alex-
ey Dreev (2685)
hafði hvítt gegn Ilia
Smirin (2691) frá
Ísrael. 27.Hxc5!
bxc5 28.Rg4 Ha6
29.Rh6 Kf8 30.f4!
Sókn hvíts virðist
nú óstöðvandi en
svartur varðist af
mikilli hugvitssemi
er byggðist á þeirri
hugmynd að ridd-
arinn á h6 gæti orð-
ið strandaglópur.
Framhaldið varð:
30...Bxd5! 31.exd5
f5! 32.Hd1 Dxa4
33.Dc1 Hd6 34.h4
Db3 35.Da1 Hxd5
36.Hb1 De3 37.Kh1 Dd4
38.Dxa5 exf4 39.Hb7 Hd7
40.Hxd7 Dxd7 41.Dxc5
He7 42.Rg8! Kxg8 43.Dxe7
og svartur gafst upp enda
manni undir. Lokastaða A-
flokks varð þessi: 1.-2.
Alexey Dreev (2685) og Ilia
Smirin (2691) 5½ vinning af
9 mögulegum. 3.-6. Zoltan
Almasi (2640), Francisco
Vallejo Pons (2559), Miguel
Illescas Cordoba (2562) og
Zurab Azmaiparashvili
(2670), 5 v. 7. Mikhail Gure-
vich (2688) 4½ v. 8.-9.
Teimour Radjabov (2533)
og Ivan Sokolov (2659) 4 v.
10. Michal Krasenkow
(2655) 1½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Þú ert víst ekki héðan
úr bænum, er það?
Ný sending
af
kvartbuxum
v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680
iðunn
tískuverslun
iðunn
tískuverslun
2. hæð, Kringlunni
(á móti Habitat),
sími 588 1680
Boðið upp á
blóðsykurs-
mælingu milli
kl. 14 og 16.
Smökkun á
nýjum
heilsudrykk
frá Ribena
ásamt
heilsukexi.
GERIÐ YKKUR KLÁR FYRIR
SUMARIÐ.
HUGIÐ AÐ
UNDIRSTÖÐUNUM!
Flugsokkar og
heilsuskór.
Eigum Delilah-
Samson,
stoðsokkana í
mörgum litum og
þremur þykktum.
15% afsláttur.
Þýsku, handunnu,
opnu gæðaskórnir
nýkomnir, nokkrar
gerðir í K-breidd.
SJÚKRAVÖRUR EHF.
Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen,
sími 553 6511.
Laugavegi 54 — sími 552 5201
Hörskyrtur frá 2.990
Hörskokkar frá 2.990
Hörbuxur frá 3.990
Stærðir 36-46