Morgunblaðið - 17.05.2001, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
Þú getur tilkynnt aðsetursskipti á
www.postur.is
Veit Pósturinn hvar þú býrð
RÚMLEGA sex vikna löngu verk-
falli sjómanna lauk í gærkvöldi er Al-
þingi samþykkti lög er banna verk-
fall sjómannafélaga og verkbann
útvegsmanna. Fyrstu bátarnir héldu
á sjó strax um tíu leytið í gærkveldi
og undir miðnættið voru nokkrir
tugir lagðir úr höfn samkvæmt upp-
lýsingum Tilkynningaskyldunnar og
var búist við að þeir myndu halda
áfram að tínast úr höfn í nótt. Ekki
er gert ráð fyrir því að hjól fisk-
vinnslunnar verði komin í fullan
gang fyrr en um miðja næstu viku.
Lögin ná til verkfalls Sjómanna-
félags Eyjafjarðar og aðildarfélaga
Farmanna- og fiskimannasambands
Íslands, auk verkbanns aðildar-
félaga Landssambands íslenskra út-
vegsmanna gagnvart aðildarfélögum
Alþýðusambands Vestfjarða og Sjó-
mannasambandsins. Gert er ráð fyr-
ir að gerðardómur fjalli um kjaramál
sjómanna í þessum samtökum og eru
verkföll og verkbönn og aðrar gerð-
ir, sem ætlað er að knýja fram aðra
skipan kjaramála en lögin ákveða,
óheimil á gildistíma ákvarðana gerð-
ardómsins. Þó er aðilum heimilt að
semja um slíkar breytingar.
Gert eftir pöntun
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands Íslands, segir að
þessi niðurstaða Alþingis sé mikil
vonbrigði. Það sé alveg ljóst að eftir
þessu hafi útgerðarmenn beðið og
þetta hafi verið gert eftir pöntun frá
þeim.„Þeir hafa getað treyst því all-
an tímann að svona myndi þessu
ljúka fyrr eða seinna,“ sagði Sævar.
Hann sagði að allt yrði gert til
þess að fá stjórnvöld dæmd frá þessu
gerræði sínu, en margt bendi til þess
að um brot á stjórnarskrá, lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur, sam-
þykktum Alþjóðavinnumálastofnun-
arinnar og mannréttindaákvæðum
sé að ræða.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir það von-
brigði og sorglega niðurstöðu að ná
ekki samningum við fleiri félög sjó-
manna en Vélstjórafélagið. Hann
segir þó möguleikann ennþá vera
fyrir hendi að semja og útgerðar-
menn vonist til þess, þó að yfirlýs-
ingar sjómanna gefi ekki tilefni til
bjartsýni í þeim viðræðum.
Grétar Mar Jónsson, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands Ís-
lands, segir sorglegt að sjómenn
skuli ekki fá að semja um kaup sitt
og kjör, án þess að til lagasetninga
þurfi að koma á deilur við útgerðar-
menn.
Frumvarpið var samþykkt á sjö-
unda tímanum í gærkveldi að
viðhöfðu nafnakalli með 33 atkvæð-
um gegn 20. Þingmenn Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks
greiddu atkvæði með frumvarpinu
en þingmenn Frjálslynda flokksins,
Samfylkingarinnar og Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs auk
Guðmundar Hallvarðssonar, Sjálf-
stæðisflokki, greiddu atkvæði gegn
því.
Til að verja þjóðarheill
Fjöldi þingmanna gerði grein fyr-
ir atkvæði sínu. Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra sagði að ef
lögin hefðu ekki verið með þessum
hætti hefði skapast alger ringulreið í
kjaramálum sjómanna og fiskverðs-
málum. „Það vita allir að sjómanna-
verkfall á Íslandi getur ekki staðið
óendanlega. Þegar sjómannaverkfall
hefur staðið tvöfalt lengur en það
hefur lengst staðið síðustu tuttugu
ár er nauðsyn á því að Alþingi grípi
inn í til þess að verja þjóðarheill,“
sagði Árni.
Stjórnarandstæðingar gagnrýndu
hins vegar lagasetninguna harðlega.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagðist ekki
geta stutt að LÍÚ nyti sjálfsaf-
greiðslu í sjávarútvegsráðuneytinu
og ekki heldur að rétti heillar starfs-
stéttar til að grípa til vinnustöðvunar
væri mokað burtu.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
ekki um að ræða lög heldur ólög.
Sagði hann að um væri að ræða
mannréttindabrot og valdníðslu og
sérstaklega væri gagnrýnivert að
þeir sem ekki væru aðilar að deilunni
skuli samt sviptir grundvallarmann-
réttindum og stjórnarskrárbundn-
um réttindum. Slíkt væri mikil
óhæfa.
Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls-
lynda flokknum, sagði að um vald-
níðslu og óréttlæti væri að ræða af
hálfu stjórnvalda.
Flotinn til veiða í kjölfar
lagasetningar Alþingis
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrstu skipin héldu á sjó strax í gærkveldi eftir að lög frá Alþingi bundu endi á sex vikna langt verkfall sjó-
manna og verkbann útvegsmanna.
Hjólin snúast/38
Sjávarútvegsráðherra/12
SNJÓSÖFNUN á Mýrdalsjökli í
vetur var sem nemur 11 metrum
og er þetta meira en jarðvísinda-
menn höfðu átt von á.
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur var á jöklinum
um síðustu helgi ásamt fleiri vís-
indamönnum og öðrum jöklaför-
um. Hann segir að ákoma jökuls-
ins hafi verið mæld og ljóst sé að
mikill snjór hafi sest á jökulinn í
vetur. Í framhaldinu verði fylgst
með leysingum og settar niður
stikur til þess að mæla skriðhraða
jökulsins.
Nauðsynlegt til að skilja
betur áhrif jarðhitans
Magnús Tumi segir að upplýs-
ingar sem með þessu fást séu
nauðsynlegar til þess að skilja bet-
ur hvaða áhrif jarðhiti hefur á lög-
un jökulsins og hve hratt hann
svarar breytingum í jarðhita.
„Við mældum snjósöfnunina síð-
an í september og reyndist hún
vera 11 metrar. Miðað við hve vet-
urinn var hlýr og miklar rigningar
hefði ég búist við að sjá minni
snjó,“ segir Magnús Tumi.
Óvenju-
mikil
snjósöfn-
un á Mýr-
dalsjökli
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Jarðvísindamenn að störfum á Mýrdalsjökli síðustu helgi.
GERT verður ráð fyrir sjö lóðum
fyrir skóla í nýrri byggð undir
hlíðum Úlfarsfells í Halla- og
Hamrahlíðarlöndum. Þá er stefnt
að byggingu nýs skóla fyrir yngstu
nemendurna í grennd við
Rimaskóla þar sem ljóst er að
skólinn rúmar ekki fleiri nemend-
ur á næstu árum, að því er fram
kemur í bókun fræðsluráðs
Reykjavíkur.
Gerður G. Óskarsdóttir,
fræðslustjóri í Reykjavík, segir að
borgarskipulag hafi óskað eftir til-
lögum um stærð og fjölda skóla-
hverfa í framtíðarbyggð undir Úlf-
arsfelli þar sem efna eigi til
samkeppni um skipulag á svæðinu.
Búið sé að velja þær teiknistofur
sem munu taka þátt í samkeppn-
inni og nú þurfi þær að fá forsögn
þar sem fram kemur hvað eigi að
verða á svæðinu en um er að ræða
um það bil 350 hektara landsvæði
þar sem gætu orðið á að giska 6–
7.000 íbúðir. Sé gert ráð fyrir
þremur íbúum í hverri íbúð verður
um að ræða 18–21 þúsund manna
byggð á svæðinu.
Sjö skól-
ar undir
Úlfars-
felli
Sjö nýir/15
NÍU ára gamall drengur höfuð-
kúpubrotnaði þegar jeppa var ekið
á hann á gangbraut á Háaleitis-
braut í Reykjavík í gærkvöld.
Hann var fluttur á Landspítalann í
Fossvogi og lagður inn á gjör-
gæsludeild.
Að sögn vakthafandi læknis
komst drengurinn til meðvitundar
af sjálfsdáðum og var líðan hans
þokkaleg í gærkvöld. Slysið varð á
gangbrautarljósum við Háaleitis-
braut 32 um klukkan 19 en ekki
var ljóst með stöðu ljósanna. Lög-
reglan vinnur að rannsókn á til-
drögum slyssins.
Ökumaður bifreiðarinnar var
fluttur á slysadeild í áfallahjálp
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar.
Ekið á níu ára
dreng á gangbraut
LANDHELGISGÆSLUNNI var í
gærkvöld tilkynnt um mikinn olíu-
flekk í sjónum, sem náði óslitið frá
Keflavík að Garðskaga. Sögðu til-
kynnendur, áhöfn skips, að jafnvel
þar sæi ekki fyrir endann á flekkn-
um. Landhelgisgæslan gerði Holl-
ustuvernd ríkisins viðvart, sem ætl-
ar að kanna aðstæður strax í birt-
ingu í dag.
Olíuflekkur
við Keflavík
♦ ♦ ♦