Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 57
ÁRLEG móttaka Fulbright-stofnunarinnar í Iðnó 23.
maí sl. var haldin til heiðurs þeim íslensku styrkþegum
er hlutu Fulbright-styrk í ár til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum. Þetta árið hlutu alls 15 nemendur
styrk og var þeim veitt viðurkenning. Á myndinni er
Lára Jónsdóttir framkvæmdastjóri Fulbright-
stofnunarinnar ásamt styrkþegunum, en nokkrir styrk-
þegar voru erlendis.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hlutu styrk frá
Fulbright-stofnuninni
ÞJÓÐHÁTTADEILD Þjóðminja-
safns Íslands hefur nýlega gefið út
og sent til heimildarmanna sinna
spurningaskrá 101 um útileiki
ásamt aukaspurningu um öskudag
og hrekkjavöku
Skrá 101 er samstarfsverkefni
safnfræðslu og þjóðháttadeildar í
Þjóðminjasafni. Þar er spurt um
útileiki af ýmsu tagi á 20. öld, m.a.
gullabú, eltingaleiki, feluleiki,
farartæki, útileiktæki, vetrarleiki,
úrtöluþulur, prakkarastrik og
margt fleira. Efni sem safnast
verður skráð á þjóðháttadeild og
notað í safnkennslu Þjóðminja-
safnsins. Mikilvægt er, að heimild-
armenn úr sem flestum héruðum
svari skránni og er hún ætluð fólki
á öllum aldri.
Sama er að segja um aukaspurn-
ingu um öskudag og hrekkjavöku,
en þar er meðal annars spurt um
þróun öskudagstilhalds undanfarin
ár/áratugi svo og dæmi um hrekk-
javökusiði á Íslandi og notkun á
grímum og grímubúningum við
ýmis tækifæri.
Spurningar um útileiki, öskudag
og hrekkjavöku eru aðgengilegar á
heimasíðu Þjóðminjasafnsins:
www.natmus.is. Þörf er fyrir fólk á
öllum aldri sem er reiðubúið að
vera á skrá hjá þjóðháttadeild og
svara reglulega spurningaskrám,
hvort heldur er með penna eða á
netinu. Sjálfboðaliðar geta hringt í
síma 5302226 eða sent tölvupóst í
netfangið halla@natmus.is.
Spurninga-
skrá um
eltingaleiki
og öskudag
ÁRLEG vorferð Foreldrafélags
misþroska barna verður farin
sunnudaginn 10. júní næstkomandi í
sumarbústað Normannslaget í
Heiðmörk.
Stefnt er að því að hittast þar um
tvöleytið síðdegis, fara í leiki og
gönguferðir og snæða saman nesti.
Á staðnum er útigrill ef fólk kýs að
grilla sér í matinn.
Best er að finna bústaðinn með
því að aka Suðurlandsveg og beygja
til hægri við vegarskilti sem vísar
inn í Heiðmörk nokkru áður en
komið er að Lögbergsbrekkunni.
Svo er ekið inn áfram uns bústað-
urinn sést á vinstri hönd, svo er
beygt til vinstri og stansað á bíla-
stæði þar.
Upplýsingar um ferðina má einn-
ig fá á heimasíðu félagsins á
www.obi.is/ADHD.htm
Vorferð for-
eldrafélags
misþroska
barna
♦ ♦ ♦
DAGSKRÁ verður í Skálholti í til-
efni „Bjartra daga“ í Biskupstung-
um nk. laugardag og sunnudag.
Laugardaginn 9. júní verður há-
degisverður, gönguferð á söguslóðir,
staðarskoðun og kaffihlaðborð. Kl.
16.00 heldur Árni Þ. Árnason fyrr-
verandi skrifstofustjóri erindi um
veraldarvafstur Skálholtsbiskupa.
Tónleikar verða í kirkjunni kl.17 og
tíðagjörð að fornum sið kl.18.00 og
miðaldakvöldverður með dagskrá
undir borðum. Sunnudaginn 10. júní
verður messa kl. 11 f.h. Eftir hádeg-
isverð verður gönguferð á söguslóðir
og tónleikar verða í kirkjunni kl.
17.00. Um kvöldið verður á boðstól-
um 17. aldar kvöldverður með við-
eigandi dagskrá undir borðum.
Dagskrá
í Skálholti
ÁRLEG veiði- og skemmtiferð
barnahóps Gigtarfélags Íslands
verður haldin að Reynisvatni laug-
ardaginn 9. maí nk. Mæting við
Reynisvatn kl. 10:30. Grillað verður
kl. 11:30 og við áætlum að vera á
staðnum til kl. 14:00. Allir eru vel-
komnir og það er ekki skilyrði að
vera félagi í barnahóp Gigtarfélags-
ins. Nauðsynlegt er að hafa með sér
veiðistöng. Verð kr. 750 á mann.
Pylsa, gos og veiðileyfi innifalið.
Barnaferð
Gigtarfélagsins
♦ ♦ ♦