Morgunblaðið - 12.07.2001, Side 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 13
herra
GARÐURINN
KRINGLUNNI
UTSALAN
er hafin
sumarbarða 4%. Svipuð nið-
urstaða fékkst við talningu
fjórum vikum seinna, en við
þriðju talninguna var hlutfall
negldra vetrarbarða komið
niður í 44% og hlutfall sum-
arbarða komið upp í 23%. Í
síðustu talningunni hinn 17.
maí, var hlutfall sumarbarða
komið upp í 65% og hlutfall
negldra vetrarbarða komið
niður í 2%. Í könnuninni var
hlutfall harðkornahjólbarða
vart mælanlegt, en komst
hæst í 1%, í þriðju talning-
unni.
Haraldur Sigþórsson og
Sigríður Ragna Jónsdóttir hjá
verkfræðistofunni Línuhönn-
un unnu könnunina.
NOTKUN harðkornahjól-
barða var áberandi lítil í
Reykjavík í vetur og vor, og
náði vart 1% allra hjólbarða
undir bifreiðum, samkvæmt
könnun, sem unnin var fyrir
gatnamálastjórann í Reykja-
vík. Könnunin leiddi ennfrem-
ur í ljós að hlutfall negldra
vetrarhjólbarða hrapaði úr
45% í 2% á fjórum vikum, á
tímabilinu 20. apríl til 17. maí
en á árunum 1983-1997 var
notkun negldra vetrarbarða
um 10% þegar komið var fram
í maí.
Athugað var á hvernig hjól-
börðum bifreiðir höfuðborg-
arbúa voru, og voru alls gerð-
ar fjórar viðamiklar talningar
á fjögurra vikna fresti frá
febrúar til maí, auk þriggja
einfaldra talninga. Talið var á
fjórum svæðum í Reykjavík, á
bílastæðum Mjóddar, Kringl-
unnar, Háskólabíós og á bíla-
stæðum í miðborg Reykjavík-
ur.
64% á negldum
hjólbörðum
Í fyrstu talningunni voru
skoðaðir hjólbarðar á 1.024
bifreiðum og reyndust þá
negldir vetrarbarðar vera
64% allra hjólbarða, 32% hjól-
barðanna voru ónegldir vetr-
arbarðar og þá var hlutfall
Lítil notkun
harðkorna-
hjólbarða
Reykjavík
Morgunblaðið/Kristinn
Hlutfall negldra vetrar-
hjólbarða hrapaði úr 45%
í 2% á tímabilinu 20. apríl
til 17. maí.
VINNUFLOKKUR, sem
hefur verið að malbika
Hringbrautina að undan-
förnu, neyddist til að fara frá
hálfkláruðu verki í gær
vegna bilunar í malbikunar-
stöð á staðnum. Þörf er á
mikilli malbikunarframleiðslu
við Hringbrautina og var
ekki unnt að halda áfram
vinnu þar þegar stöðin bilaði.
Vinnuflokkurinn hefur
tvær malbikunarstöðvar og
brá á það ráð að nota þá sem
í lagi er fyrir malbikun í
Borgartúni og Höfðatúni
þangað til hægt verður að
hefja malbikunarframleiðslu
af fullum krafti við Hring-
braut á nýjan leik.
Malbikunarvinna í Reykja-
vík hefur að öðru leyti gengið
vel í sumar ef frá eru taldar
tafir vegna nýafstaðinna
rigningarkafla að sögn Guð-
bjarts Sigfússonar hjá gatna-
málastjóra. Þrír verktakar
annast malbikun fyrir gatna-
málastjóra í sumar en alls
eiga 26 þúsund tonn af slit-
lagi að fara á götur borg-
arinnar samkvæmt verkút-
boðum. Umfang malbikunar-
framkvæmdanna er álíka
mikið og í fyrra.
Götur borgarinnar teljast
ekki vera illa farnar eftir til-
tölulega hagstæðan vetur og
því lítið um skemmdir um-
fram eðlilegt slit. Ástand
gatnanna er því lítt sambæri-
legt við ástandið í fyrravor,
en þá hafði einn versti vetur í
áratug farið óblíðum höndum
um göturnar, ökumönnum til
mikillar armæðu.
Morgunblaðið/Þorkell
Borgartúnið malbikað en Hringbrautin bíður betri tíma.
Hlé á malbikun
vegna bilunar
Vesturbær
FJÖGUR sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu hafa sam-
þykkt að stofnað verði einka-
hlutafélag um rekstur
fasteigna Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins og að
byggðasamlaginu eða einka-
hlutafélaginu verði veitt
heimild til lántöku allt að 190
milljónir króna vegna fram-
kvæmda að Skútahrauni 6,
þar sem verið er að byggja
nýja slökkvistöð SHS. Borg-
arráð, Hreppsráð Bessastaða-
hrepps, bæjarráð Garðabæjar
og bæjarráð Mosfellsbæjar
hafa þegar samþykkt stofnun
einkahlutafélagsins og verður
málið afgreitt í Hafnarfirði,
Kópavogi og Seltjarnarnesi á
næstunni.
Í stjórn SHS, sem í eiga
sæti borgarstjórinn í Reykja-
vík og bæjarstjórar sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu,
var samþykkt á sínum tíma að
stofna einkahlutafélag um
rekstur fasteigna slökkviliðs-
ins, annars vegar til rekstrar-
hagræðis og hins vegar til
samræmis við fyrirséðar
breytingar á reikningsskila-
venjum sveitarfélaga vegna
fasteigna í þeirra eigu.
Í kjölfarið var leitað sam-
þykkis þeirra sjö sveitar-
félaga sem standa að rekstri
SHS og standa. Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins hefur
yfir að ráða þremur slökkvi-
stöðvum á höfuðborgarsvæð-
inu, að Tunguhálsi og Skóg-
arhlíð í Reykjavík auk hinnar
nýju stöðvar sem verið er að
byggja við Skútahraun 6 í
Hafnarfirði. Leggja á þessar
eignir inn sem hlutafé í vænt-
anlegt einkahlutafélag en
verðmæti þeirra nemur um
469 milljónum króna.
Samþykkt að stofna einkahluta-
félag um rekstur fasteigna SHS
Höfuðborgarsvæðið