Morgunblaðið - 12.07.2001, Side 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 21
Í DÖLUM er mikið um að vera þessa
dagana. Daladagar verða haldnir
allar helgar í júlí og er margt
skemmtilegt í boði. Daladagar byrja
um kl. 17 á föstudögum og þá verða
ávallt óvæntar uppákomur. Þeim
lýkur seinnipart sunnudags. Á laug-
ardag og sunnudag verður Leifshá-
tíð á Eiríksstöðum. Hún var fyrst
haldin í fyrrasumar og tókst mjög
vel. Hátíðin verður sett kl. 13 á
laugardag og á sunnudag heldur
hún áfram. Þá verður hátíð-
arsvæðið opnað kl. 12 og verður op-
ið til kl. 17 með ýmsum uppá-
komum. Á laugardag og sunnudag
verður frítt í veiði í Haukadalsvatni.
Laugardaginn 21. júlí verður opið
hús hjá bændum á Sauðafelli. Þar er
hægt að sjá m.a. hunda, ketti, kálfa
og íslenskar hænur. Frítt verður í
veiði í Ólafsdalsá þá helgi.
Laugardaginn 28. júlí verður
söguganga á Laugum undir leið-
sögn Birnu Lárusdóttur. Á milli kl.
15 og 20 verða bændur á Erps-
stöðum með opið fjós hjá sér. Kýr
verða sóttar kl. 17:30 og mjólkaðar
kl. 18.
Ferðamenn hafa verið áhuga-
samir um þann merka sögustað sem
Eiríksstaðir eru. Hópar komu í all-
an vetur og vildi fólk bregða sér aft-
ur í aldir á bæ Eiríks rauða og Leifs
heppna. Margt verður hægt að gera
sér til gamans á Leifshátíðinni um
helgina.
Á svæðinu verða um 30 innlendir
og erlendir víkingar að störfum við
handverk eins og vefnað, myntslátt,
járnsmíði, útskurð o.m.fl. Einnig
verða þeir með forna leiki, spil og
þrautir, lesa í rúnir og starfa við
eldunarstörf. Rimmugígur sýnir
vopnfimi og handverk. Einnig verð-
ur sala á handunnum vörum. Sagna-
göngur verða farnar um söguslóðir
í Haukadal með staðkunnugum leið-
sögumönnum.
Víkingamarkaður verður starf-
ræktur báða dagana og þar verður
hægt að sjá víkinga að störfum.
Fjölskylduatleikir verða iðkaðir,
glíma sýnd og sagt frá víkinga- og
íþróttaleikjum, meðal annars verða
sýnd fangbrögð, riðið til orrustu,
ýmiss konar reipdráttur og krafta-
sýning með fornu ívafi.Gamlir tafl-
leikir verða kenndir og áhorfendum
boðið að taka þátt í leikjum.
Á laugardagskvöldið verður
kvöldvaka með varðeldi og Nikkó-
lína spilar undir sléttusöng. Halli
Reynis spilar svo og syngur.
Leifshátíð á Eiríks-
stöðum um helgina
Merkingarnar eru góðar og
áberandi. Þetta skilti stendur
við Haukadalsá, þar sem beygt
er inn í Haukadalinn þar sem
Eiríksstaðir eru.
Morgunblaðið/GuðrúnEiríksstaðir, fæðingarstaður Leifs heppna.
Búðardalur
FRÁ og með næsta hausti verður
vegurinn milli Hafnar í Hornafirði
og Reykjavíkur bundinn slitlagi alla
leið. Síðar í þessum mánuði hefjast
framkvæmdir við um fjögurra kíló-
metra kafla við Smyrlabjörg í Suð-
ursveit, sem er síðasti kaflinn á þess-
ari leið sem ekki er bundinn slitlagi.
Sjö tilboð bárust í framkvæmdina
og voru opnuð á mánudag. Það
lægsta, frá SG vélum ehf. á Djúpa-
vogi, hljóðaði upp á 35,5 milljónir og
það hæsta, frá Jarðverki á Horna-
firði, upp á tæpar 52 milljónir.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar
var 41,7 milljónir. Skv. upplýsingum
frá Vegagerðinni verður í næstu viku
tekin ákvörðun um að hvaða tilboði
verður gengið. Framkvæmdinni á að
vera lokið í október. Vegarstæðið
verður næstum því óbreytt og verð-
ur hægt að aka um veginn meðan á
framkvæmdum stendur.
Vegaframkvæmdir
í Suðursveit
Lægsta
tilboð 35,5
milljónir
Suðurland
VEGAGERÐIN hefur opnað tilboð í
endurbyggingu brúar á Ströngukvísl
á Vesturheiðarvegi í Austur-Húna-
vatnssýslu. Brúin, sem fyrir var, var
byggð 1983 og tók yfirbyggingu
hennar af síðla vetrar árið 2000. Ný
endurbætt brú verður jafn löng
gömlu brúnni eða 25 m en stöplarnir
verða 1,8 til 2,3 metrum hærri en áð-
ur. Heildarbreidd brúarinnar verður
fjórir metrar. Brúin verður með nýj-
um stálbitum og timburgólfi.
Lægsta tilboðið af sex, frá Guð-
laugi Einarssyni á Sauðárkróki,
hljóðaði upp á rúmar 19,8 milljónir
og það hæsta, frá Sólfelli ehf. í Borg-
arnesi, upp á 25,9 milljónir. Kostn-
aðaráætlun Vegagerðarinnar var
16,5 milljónir.
Brúarsmíðinni skal vera lokið 30.
september nk.
Tilboð opnuð í brúar-
gerð yfir Ströngukvísl
Lægsta tilboð
19,8 milljónir
Húnavatnssýsla
♦ ♦ ♦