Morgunblaðið - 12.07.2001, Síða 55
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2001 55
VARAFORMAÐUR Sjómanna-
sambands Íslands, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, ber sig
illa í fjölmiðlum og krefst þess að
við hjá Sjómannafélagi Reykjavík-
ur biðjum hann afsökunar vegna
ásakana okkar á hendur þeim Ey-
firðingum um að hafa rofið sam-
stöðu sjómanna í verkfallinu.
Staðreyndir málsins eru þær að
þegar lagasetningin var yfirvof-
andi varð samstaða um það innan
samninganefndar Sjómannasam-
bandsins að grípa til þess ráðs að
aflýsa verkfallinu til að ónýta fyr-
irætlanir ríkisstjórnarinnar um að
setja lög á kjarabaráttuna eina
ferðina enn.
Konráð Alfreðsson tók ekki illa í
þær hugmyndir í fyrstu. Degi síð-
ar lét hann þau orð falla að Hall-
dór Ásgrímsson hefði hringt í sig
og virtist upp með sér af. Í beinu
framhaldi af því varð það ákvörð-
un Eyfirðinganna að standa ekki
að aflýsingu verkfallsins til að
ónýta ekki fyrirætlanir Halldórs
og þeirra félaga í ríkisstjórninni
um að setja lög á deiluna. Samn-
inganefnd SSÍ gaf Konráði alla
möguleika á að standa með félög-
um sínum að aflýsingu verkfalls-
ins. Samninganefnd Sjómannasam-
bandsins beið í heilan sólarhring
eftir ákvörðun Eyfirðinga – en allt
kom fyrir ekki, samstaðan skyldi
rofin til að lögin yrðu sett á alla
línuna, nema flokksfélaga Kon-
ráðs, Helga Laxdal, og Vélstjóra-
félag Íslands.
Að biðja Konráð Alfreðsson og
þá félaga afsökunar nú jafngildir
því að við ættum líka að biðja
Helga Laxdal afsökunar á gagn-
rýni SSÍ og FFSÍ á hendur Vél-
stjórafélaginu fyrir að rjúfa sam-
stöðu sjómanna með því að
undirrita samning sem reyndist
jafnvel lakari en sjálf lagasetning-
in þegar til kom. Slík afsökunar-
beiðni mun ekki koma frá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur. Þeir
flokksfélagarnir Konráð og Helgi
geta bara grátið saman, atvinnu-
rekendum til skemmtunar, í öllum
fjölmiðlum landsins ef þeim þykir
það við hæfi. Væntanlega er allur
landslýður fyrir löngu orðinn leið-
ur á þessum kveinstöfum þeirra
framsóknarmanna, enda skiljan-
legt.
Við hjá Sjómannafélagi Reykja-
víkur höfum leitast við að standa
eftir mætti á rétti félagsmanna
okkar,hvort sem í hlut hafa átt
stórir atvinnurekendur eða stjórn-
málaflokkar. Ástæðan fyrir tor-
tryggni okkar í garð Konráðs þeg-
ar Samherji er annars vegar er
einfaldlega sú að Konráð og félag-
ar hans hafa látið undir höfuð
leggjast að láta þetta stórfyrirtæki
sitt fyrir norðan sæta sektum fyrir
að brjóta gerða kjarasamninga á
félögum sínum. Af eðlilegum
ástæðum kvarta síðan aðrir út-
gerðarmenn í öðrum landshlutum
undan sektargreiðslum til annarra
sjómannafélaga vegna slíkra brota.
Og nú leggur Konráð það til í fjöl-
miðlum að sjómannadagurinn
verði fluttur til haustsins. Hvar
ætli sú hugmynd eigi upptök sín?
Spyr sá sem ekki veit – en grunar
um græsku sem endranær.
Til að kóróna svo málið er staðið
að kosningu Konráðs Alfreðssonar
í miðstjórn ASÍ skömmu eftir
lagasetningu ríkisstjórnarinnar.
Hver ætli hafi átt hugmyndina að
því framboði? Ætli Halldór Ás-
grímsson hafi hringt?
JÓNAS GARÐARSSON,
formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur.
Afsökun-
arbeiðni!
Ekki að
ræða það
Frá Jónasi Garðarssyni:
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
Kringlunni 8-12,
sími 568 6688
Elégance
boutique
Laugavegur 25, sími 533 5500
Ú
T
S
A
L
A
Ú
T
S
A
L
A
ÚTSALAN ER HAFIN
Skólavörðustíg 10, sími 551 1222
I
Rússlandsferð 12. september
Ferð verður til Moskvu og Pétursborgar 12.–26. september (15 dagar/14 nætur) og sem fyrr
er Haukur Hauksson aðalfararstjóri en hann skipuleggur ferðirnar í samstarfi við rússneska
ferðaskrifstofu. Flogið er til Moskvu frá Stokkhólmi og þaðan farið í næturlest á fyrsta
farrými til Pétursborgar við Finnskaflóa. Ferðin endar í hinni gömlu höfuðborg
keisaraveldisins – Pétursborg en þaðan verður flogið gegnum Kaupmannahöfn á
heimleiðinni. Vandað er til dagskrár og menn kynnast hinni merkilegu sögu Rússaveldis. Í
Rússlandi er meginlandsloftslag og sumarið nær út septembermánuð.
Allar nánari upplýsingar eru á www.austur.com
Sendið fyrirspurnir á bjarmaland@strik.is eða hringið í Hauk Hauksson á Íslandi í
s. 848 44 29 eða 554 06 66.
Ferðaskrifstofan Bjarmaland, Garðaríki ehf., O.O.O Tri kita – turagenstvo.
Kringlunni, sími 553 2888
Útsalan byrjuð
Mikil verðlækkun
Dömu-, herra-
og barnaskór