Morgunblaðið - 09.09.2001, Síða 18
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Opið
hús
í dag kl. 11-16
Við erum á horni
Brautarholts og Mjölnisholts,
rétt fyrir ofan Hlemm.
- persónulega eldhúsið
Eldaskálinn
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
S: 562 1420, www.invita.com
Invita á Íslandi í 20 ár
20 ára ábyrgð
Djúpt í ölduna
R
R
Alain Allard, sem kemur
frá Bretlandi, hefur mikla
reynslu sem 5 Rhythms
kennari og er í stöðugu
læri hjá The Moving
Centre. Þetta er fjórða
námskeiðið hans
hér á landi.
5 Rhythms dans 5.-7. okt.
með Alain Allard
Þetta er námskeið fyrir þá dansara
sem vilja tapa sjálfum sér og finna
sig aftur - aftur og aftur
Danshöllin, Drafnarfelli 2, Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning:
Sigurborg Kr. Hannesdóttir í heimasíma 553 6353.
Netfang skrh@islandia.is
Vefsíður www.mcauk.com
www.ravenrecording.com
LISTASAFNIÐ á Akureyri efndi í
sumar til nýstárlegrar skoðana-
könnunar á listasmekk sýningar-
gesta undir yfirskriftinni „Smekkur
2001“. Gestir safnsins voru beðnir
að svara spurningum um sýninguna
„Akureyri í myndlist“, samsýningu
16 myndlistarmanna frá Akureyri
sem leituðust við að túlka bæinn út
frá eigin reynslu og listrænu for-
sendum. Við úrvinnslu á þemanu
notuðust listamennirnir við ólíka
miðla, stíla og efnivið en markmið
sýningarinnr var að gefa nokkurs
konar þverskurð af myndlistarlífi
Akureyrarbæjar.
Fólst könnun í því að gestir
völdu „besta verkið“ og lýstu í
stuttu máli hvað það væri við þetta
sama verk sem hrifi þá mest. Auk
þess voru þátttakendur beðnir um
að lýsa „hrifningu“ sinni á sextán
völdum verkum, einu eftir hvern
listamann sýningarinnar. Var hrifn-
ingin mæld á fjögurra punkta
skala, frá „ekki hrifin(n)“, „hlut-
laus/óviss“, „frekar hrifin(n)“, til
„mjög hrifin(n)“.
Listasafnið á Akureyri skuldbatt
sig til þess að festa kaup á því verki
sem hlyti flest atkvæði í vali gesta á
„besta verkinu“, en það reyndist
vera verkið „Minningar“ eftir Amí.
Auk þess að gefa almenningi kost
á að kveða upp opinberan listdóm
og taka þátt í vali á nýju verki í
safneign listasafnsins, var könnunin
að sögn Hannesar Sigurðssonar,
forstöðumanns safnsins, mótuð með
það í huga að afla upplýsinga um
myndlistarsmekk almennings, en
þar er um að ræða viðfangsefni sem
lítið hefur verið rannsakað hér á
landi. Þannig var leitað upplýsinga
um kyn, aldur, búsetu, pólitískar
skoðanir, almenna menntun, mynd-
listarmenntun og mánaðartekjur
þátttakenda og athugað hvort
fylgni væri milli þessara breyta og
vals sýningargesta á besta verkinu
og hrifningarstuðli á öðrum verk-
um.
Amí með besta verkið
Þátttaka var góð að mati að-
standenda könnunarinnar, en við
sýningarlok höfðu alls 1.842 gestir
af þeim 2.700 sem sóttu sýninguna
skilað spurningarlistum, en 88%
þeirra tóku þátt í að velja „besta
verkið“. Ragnar Friðrik Ólafsson,
deildarsérfræðingur hjá námsmats-
stofnun, vann úr niðurstöðum könn-
unarinnar.
Besta verkið að mati sýningar-
gesta var sem fyrr segir Minning-
ar, akrýlverk á striga, eftir Amí.
Alls greiddi 231 gestur þeirri mynd
atkvæði sitt eða 14,3%. Næstflest
atkvæði komu í hlut Gunnars Kr.
Jónassonar fyrir stálskúlptúrinn
„Stálblóm“, (12,5%) og í þriðja sæti
var verk Margrétar Jónsdóttur
„Súlur í brúðarskarti“, sem unnið
er með blandaða tækni, (9,8% at-
kvæða). Það var því nokkuð mjótt á
mununum í efstu sætum og á heild-
ina dreifðust atkvæðin á mörg verk.
Nokkur munur var á smekk Ís-
lendinga og þeirra um 350 erlendu
gesta sem sóttu sýninguna. Þeir
völdu Stálblóm Gunnars sem besta
verkið (15,4% atkvæða), en Amí
naut aðeins tæplega þriðjung þess
fylgis sem hún hlaut meðal Íslend-
inga.
Mæling á hrifningu gesta leiddi í
ljós mesta meðalhrifningu á Stál-
blómum Gunnars.
Hvers vegna besta verkið?
Niðurstöður könnunarinnar
vörpuðu ljósi á ýmsa áhrifaþætti í
afstöðu gesta til verka sýningarinn-
ar. Við skoðun á innbyrðis
tengslum milli hrifningar á verkum
listamannanna sextán kom í ljós að
flokka mátti verkin í þrjá flokka. Í
fyrsta lagi hefðbundin, fígúratív
málverk, í öðru lagi afstrakt verk;
og í þriðja lagi nýlist, s.s. innsetn-
ingar og hugmyndaverk með bland-
aðri tækni. Skýringar gesta á vali
sínu á besta verkinu, einkenndust
af nokkuð ólíkum áherslum eftir
flokkum.
Umsögn gesta um verk í hefð-
bundna flokknum fólu einkum í sér
hrós fyrir tækni, fegurð og að-
gengileika verkanna. Í þeim flokki
eru verkin „Súlur við Akureyri“,
vatnslitir á pappír eftir Einar Helg-
son; „Málverk um Brekkugötu og
Ráðhústorg“, olía á striga, eftir
Kristin G. Jóhannsson; og „Rósir“,
olía á bólstraðan striga eftir Lauf-
eyju Margréti Pálsdóttur; „Á ösku-
daginn“, handþrykkt trérista eftir
Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur; og
Minningar Amíar. Nefndu gestir
fallega litameðferð, samsömun og
skilning á þeim tilfinningum sem
listamaðurinn miðlar og að verkið
vekti ljúfar og friðsælar tilfinnn-
inar, sem skýringu á því að þeir
völdu Minningar besta verkið.
Verkunum sem tilheyrðu flokki
afstrakt listar var mest hrósað fyrir
form, byggingu og litameðferð en
einnig þær tilfinningar sem þau
vöktu. Í þeim flokki voru verkin
„Lóðrétt birta“, olía á striga, eftir
Guðmund Ármann Sigurjónsson;
„Án titils“, olía á striga, eftir Guð-
nýju Þórunni Kristmannsdóttur; og
„Golunnar hálfa hending“, akrýl á
striga eftir Óla G. Jóhannsson.
Verk Gunnars var skilgreint á
mörkum fígúratívrar og afstrakt-
listar í könnuninni. Þótti mörgum
kraftur og fegurð, harka og hlýja
renna þar saman í eina heild.
Þeir, sem völdu verk úr flokki
nýlistaverka sem besta verkið,
mátu þau út frá dálítið öðrum mæli-
kvörðum en komu fram varðandi
tvo fyrrnefndu flokkana. Verkunum
„Blíða“, vínyltexti á glugga og ljós-
myndir eftir Aðalstein Svan Sigfús-
son; „Líf í línum“, hjartalínurit á
pappír eftir Ella; „Afurðir, ljós-
myndir og líkan úr KEA osti“ eftir
Örnu Valsdóttur; og „Akureyrar-
kirkja“, „OB tíðatappar“, eftir
Jonnu var m.a. hrósað fyrir góðar
hugmyndir, húmor, frumleika og
hugmyndafræðilega vísun. Þá þótti
úrvinnsla á hefðinni áhugaverð í
verkinu „Akureyri í myndlist V“,
tölvuprent á pappír eftir Stefán
Jónsson og Súlur í brúðarskarti eft-
ir Margréti.
Áhrif ólíkra breytna
Könnun á áhrifum mismunandi
breytna á hrifningu sýningargesta
leiddi margt í ljós.
Stálblóm Gunnars nutu mestrar
meðalhrifningar meðal bæði karla
og kvenna, en almennt gáfu konur
verkunum hærri hrifningarstuðul.
Mestur kynjamunur var þó á verki
Margrétar. Könnun á hrifningu eft-
ir aldursflokkum leiddi í grófum
dráttum í ljós að nýstárlegri verkin
höfðuðu meira til yngri kynslóð-
arinnar, en hefðbundin fígúratív
málverk til eldri aldurshópa. Eng-
inn aldursmunur var þó á hrifningu
á verkum Aðalsteins, Guðmundar,
Guðnýjar, Gunnars, Laufeyjar,
Margrétar, Óla G. eða Stefáns.
Hrifning eftir búsetu var ekki
marktæk í öllum tilfellum. Þó virð-
ast Akureyringar hrifnari af verk-
um Einars og Kristins en fólk frá
höfuðborgarsvæðinu. Amí naut
mestrar hylli meðal þeirra sem
bjuggu norðan heiða en Gunnar
hlaut hæsta meðalhrifningu fólks
frá öllum búsetusvæðum, þ.e. Ak-
ureyri, annars staðar í Eyjafirði, á
höfuðborgarsvæðinu og annars
staðar á landinu.
Ekkert áberandi samband var
milli listasmekks og pólitískra skoð-
ana. Amý og Laufey nutu mestrar
meðalhrifningar meðal þeirra sem
staðsetja sig hvergi í pólitík. Einar
og Óli G. nutu marktækt mestrar
fylgni meðal hægri sinnaðra, Arna,
Guðný og Jonna meðal þeirra sem
staðsetja sig í miðju og nutu Að-
alsteinn og Guðmundur marktækt
mestrar hylli meðal vinstri sinn-
aðra.
Við könnun á meðalhrifningu á
einstökum verkum eftir almennri
menntun kom í ljós að þeir sem eru
með grunnskólapróf eru marktækt
hrifnastir af verkum Amíar, Einars,
Kristins, Laufeyjar, Nóa og Jonnu.
Óli G. höfðar mest til þeirra sem
lokið hafa iðnskólaprófi eða annarri
fagmenntun en verk Guðmundar
höfðar mest til þeirra sem eru með
háskólapróf. Ekki reyndist mark-
tækur munur eftir menntun á
hrifningu á öðrum verkum sýning-
arinnar.
Könnun á fylgni milli hrifningar
og myndlistarmenntunar leiddi í
ljós jákvætt samband milli aukinn-
ar myndlistarmenntunar og hrifn-
ingar á verkum Ella, Guðmundar,
Guðnýjar, Margrétar og Stefáns.
Neikvætt samband var hins vegar
milli myndlistarmenntunar og
hrifningar á verkum Amíar, Einars
og Kristins.
Fylgnistuðlar milli mánaðartekna
og hrifningu verkanna voru allir
mjög lágir. Þó kom fram að hrifn-
ing á verki Amíar og Margrétar
hækkaði með lægri tekjum á meðan
hærri tekjur tengdust meiri hrifn-
ingu á verkum Óla G. Jóhannsson-
ar.
Könnunin í heild gaf einnig for-
vitnilega innsýn í þann hóp sem
sótti Listasafn Akureyrar þetta
sumar. Hægri sinnaðir í pólitík
voru í áberandi minnihluta meðal
svarenda, konur voru fleiri en karl-
ar, rúmlega helmingur þeirra sem
svöruðu spurningu um menntun var
háskólamenntaður.
Samband við hinar mismunandi
breytur er hins vegar framsett með
þeim fyrirvara að margir þátttak-
endur kusu að svara ekki tilteknum
spurningum.
Myndlist frá sjónar-
hóli sýningargesta
„Minningar“ eftir Amí var besta verk sýningarinnar að mati gesta Listasafnsins á Akureyri.
TENGLAR
.....................................................
Hægt er að skoða niðurstöður könn-
unarinnar í heild á vefsíðu safnsins:
www.artak.strik.is.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is