Morgunblaðið - 09.09.2001, Qupperneq 56
BRIAN Sweeney hefur verið bú-
settur á Íslandi undanfarin ár og
fengist við ljósmyndun fyrir blöð
eins og Iceland Review og Atlantica.
Hann er fæddur í Skotlandi og
starfaði áður fyrr m.a. fyrir tónlist-
arblöð eins og Melody Maker og
NME. Ljósmyndasýning hans, sem
opnuð var á fimmtudaginn á veit-
ingastaðnum Atlantic, hefur hins
vegar nokkuð óvenjulegt inntak.
Myndirnar, 22 talsins, eru nefnilega
allar af mannlausum íþróttaleik-
vöngum.
„Ég kannaðist við lið eins og ÍA, á
meðan ég bjó enn í Skotlandi,“ segir
Brian og útskýrir þennan áhuga
sinn á íslenskri knattspyrnu. „Svo
þegar ég var að ferðast hér um
landið rambaði ég inn á heimavöll
Vals og trúði vart eigin augum þeg-
ar ég sá völlinn þeirra. Þótti hann
afar fornfálegur miðað við hversu
stórt liðið væri. En það var mjög at-
hyglisvert að mynda hann. Þetta
vatt svo upp á sig og ég ætla að
halda þessu áfram.“
Hann segist ekkert sérstaklega
vera að þessu til að ná fram ein-
hverri listrænni sýn á vellina, meg-
ináhuginn liggi í því að hann sé mik-
ill áhugamaður um knattspyrnu.
Rokkið
Um starfa sinn fyrir stóru,
bresku tónlistarvikublöðin segir
hann að það hafi að mörgu leyti ver-
ið tilviljunum háð. „Það varð svo
smátt og smátt að fullri vinnu. Það
kitlaði að sjálfsögðu að lifa og hrær-
ast í þessum lífsstíl sem fylgir rokk-
inu í smátíma. Þar var maður t.d. að
mynda fyrir 2–3 plötuumslög á dag.
En hér á Íslandi er maður heppinn
ef það eru 2–3 á ári!“
Brian er ánægður með að búa á
Íslandi, segir það vera land sem
hann hafi tengst vel er hann var að
ferðast á árum áður. Og næsta
verkefni tengist enn knattspyrn-
unni. Nú eru það íslenskir knatt-
spyrnudómarar sem eru viðfangið.
„Ég á í hálfgerðu ástarsambandi við
íslenska knattspyrnu,“ viðurkennir
Sweeney.
„Það eru ekki margir sem hafa
sýnt þessu áhuga en það er að
aukast mikið þar sem svo margir ís-
lenskir leikmenn eru að spila í Bret-
landi núna. Lítil lönd eins og And-
orra og San Marino hafa ávallt
heillað mig.“
Fótboltavellirnir eru þó enn á
dagskrá og Sweeney vonast til að
komast til Vestfjarða á næstunni og
ná þar dramatískum myndum af al-
íslenskum knattspyrnuvöllum.
Brian Sweeney heldur ljósmyndasýningu
Ljósmynd/Brian Sweeney
Ljósmynd/Brian Sweeney
Spark-
vallalist
Morgunblaðið/Golli
Brian Sweeney ásamt konu sinni
á opnun sýningarinnar.
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÁ ER lokadagur Jazzhátíðar
Reykjavíkur runninn upp og ekki
úr vegi að bregða sér í kirkju svona
til að byrja sunnudaginn vel.
Guðspjallasöngur
með sveiflu
Í Fríkirkjunni hefjast tónleikar
kl. 14 með Gospelkompaníinu sem
mun flytja kirkjugestum guð-
spjallasöng með sveiflu. Þennan
eldfjöruga hóp skipa Edgar Smári,
Fanny Kristín Tryggvadóttir,
Helga Vilborg Sigurjónsdóttir,
Hrönn Svansdóttir, Jóhannes Ingi-
marsson, Þóra Gréta Þórisdóttir,
Óskar Einarsson sem leikur á píanó
og sér um tónlistarstjórn, Jóhann
Ásmundsson bassaleikari og Hall-
dór Gunnlaugur Hauksson trymbill.
David O’Higgins tenórsaxófónleik-
ari og Agnar Már Magnússon sem
leikur á orgel eru gestaleikarar
hópsins að þessu sinni.
Sagt er að blúsinn sé faðir djass-
ins en gospeltónlistin móðir. Margir
af helstu djassleikurum veraldar
hófu feril sinn með því að syngja
gospel í kirkjukórum og syngur
Gospelkompaníið allt frá klass-
ískum negrasálmum og trú-
arópusum Dukes Ellingtons til
rokkaðs gospels nútímans. Gospel-
kompaníið hefur starfað í rúmt ár
þótt hluti hópsins hafi sungið sam-
an í fjölda ára. Gospelkompaníið
hefur haldið eigin tónleika víðs-
vegar um landið og tekið þátt í ýms-
um verkefnum, m.a. kristnitökuhá-
tíðinni á Þingvöllum, Landslagi
Bylgjunnar og Kirkjudögum í Hall-
grímskirkju.
Ef Gospelkompaníið verður í sín-
um vanalega ham í dag má búast
við að sveiflan verði heit og villt í
Fríkirkjunni.
Eistneskar pönnukökur
Pönnukökukaffi verður haldið kl.
15 á Kaffi Reykjavík, þar sem Tafe-
nau & Vind-dúettinn frá Eistlandi
leikur en þeir komu einnig fram sl.
föstudagskvöld.
Það eru Raivo Tafenau saxófón-
leikari og Meelis Vind klarínettu-
leikari sem skipa dúóið. Efnisskráin
samanstendur af eigin tónverkum
og annarra, og heyrst hefur að þeir
hafi sérlega góð tök á blúsnum.
Gamaldags, flott sveifla
Lokatónleikar hefjast síðan á
Broadway kl. 20.30 og það er
sænska stórsveitin Sandviken Big
Band sem leikur undir stjórn Åke
Björänge og Kristjana Stef-
ánsdóttir mun syngja með. Miða-
verð er 2.000 krónur.
Sandviken-stórsveitin hóf starf-
semi árið 1968 og margir stofnend-
anna sem mættu á fyrstu æf-
inguna eru enn í sveitinni.
Frá upphafi hefur sveitin
kappkostað að fá til sam-
starfs bæði sænska og er-
lenda atvinnudjassleikara
sem hafa gefið henni byr
undir báða vængi. Meðal
þeirra eru Barney Kessel,
Clark Terry, Ernie Wilkins,
Thad Jones, Bob Brook-
meyer og Putte Wickman.
Tónleikaferðir hafa alltaf
verið mikilvægur þáttur í
starfsemi sveitarinnar og
hefur hún leikið víða um
heim. Frá 1972 fram til
þessa dags hafa samtals ver-
ið gefnar út 14 plötur, oft
með frægum gestasólistum.
Hljómsveitin heldur um 35–
40 tónleika á hverju ári.
Á efnisskrá sveitarinnar eru
klassískir stórsveitarópusar, gjarn-
an í anda Counts Basie og Thad
Jones/Mel Lewis-stórsveitanna.
Ýmsir frægir söngvarar hafa sung-
ið með sveitinni, s.s. Georgie Fame
og Monica Zetterlund, en á tónleik-
unum á Broadway verður það dívan
okkar frá Selfossi, Kristjana Stef-
ánsdóttir.
„Ég syng fjóra standarda með
þeim í seinna helming tónleikanna;
„The Song is You“, „Never Will I
Marry“, „Come Rain Come Shine“
og „My One and Only Love“,“ segir
Kristjana sem hlakkar mjög til tón-
leikanna.
– Hvernig líst þér á bandið?
„Þetta er alveg meiriháttar band.
Þetta er mjög flott stórsveit með
mikilli gamaldags sveiflu.“
– Er gaman að syngja með stór-
sveit?
„Já, en það er allt öðru vísi. Eins-
og fyrir einhvern í strengjakvartett
að leika með sinfóníuhljómsveit.
Það er svo mikill kraftur en um leið
er maður mun bundnari útsetn-
ingum. Þetta er alveg rosalega
spennandi og gaman að vinna með
svona stórum og skemmtilegum
hópi.“
Sandviken-stórsveitin þykir meira en
klár á sveiflunni.
Kristjana tekur nokkra góða
„standarda“ með stórsveitinni.
Gospelkompaníið ætlar að „sveifla“ í Fríkirkjunni.
Jazzhátíð Reykjavíkur
Pönnukökur,
kirkjustuð
og stórsveit
BANDARÍSKU brúðhjón-
in Donna Goodrich og Jeff
Lindholm gengu í það heil-
aga fyrir viku. Það væri
ekki frásögur færandi hér
á norðurslóðum nema fyr-
ir það að þau kusu að eyða
hveitibrauðsdögum sínum
á Jazzhátíð Reykjavíkur.
Tómas R. og Þingvellir
„Okkur hefur bæði langað í mörg
ár að koma til Íslands og þegar við
Jeff og Donna alsæl á Austurvelli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveitibrauðsdagar á Jazzhátíð
Stórt
óþekkt
ævintýri
heyrðum að Jazzhátíðin væri í
gangi létum við til skarar skríða því
við höfum bæði mikinn áhuga á
djassi,“ segir Donna sem viður-
kennir að Björk sé samt eini ís-
lenski tónlistarmaðurinn sem hún
þekkti áður en hún kom til lands-
ins.
„Við þekkjum tónlistarmennina
ekki neitt og hlökkum mjög til að
heyra í þeim,“ segir Jeff sem sjálf-
ur hefur lengi leikið á saxófón, og
m.a. í pönkhljómsveit fyrir um 20
árum.
„Öll dagskráin er því stórt
óþekkt ævintýri fyrir okkur,“ held-
ur hann áfram. „Við vitum að stór-
sveit leikur á sunnudagskvöld og að
Jazzhátíðin býður okkur á þá tón-
leika en við vitum ekkert hvernig
hinir hljóma.“
Donna og Jeff skelltu sér á tón-
leika Tómasar R. Einarssonar á
föstudagskvöld þar sem latíndjass
réð ríkjum. „Við höfum sérlegan
áhuga á á tónlist frá Kúbu sem
minnkaði ekki við að sjá kvikmynd-
ina Buena Vista Social Club,“ segir
Jeff.
Nýbökuðu hjónin dvelja á land-
inu fram á miðvikudag og ætla til
Þingvalla og í hestaferð. Þau eru
mikið útivistarfólk og segja ferðina
hingað fullkomna fyrir sig þar sem
hún sameini tvö af þeirra helstu
áhugamálum.