Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 2

Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isGunnlaugur Jónsson stigahæstur í einkunnagjöf Morgunblaðsins / B3 Ríkharður Daðason þarf að fara í uppskurð á nýjan leik / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í BJÖRN Bjarnason (D), mennta- málaráðherra, lýsti því yfir í um- ræðum um fjárhagsvanda Ríkisút- varpsins á Alþingi í gær, að í ljósi þeirrar þróunar sem er í byggða- málum eigi að athuga hvort ekki sé unnt að nýta krafta og húsrými RÚV á Akureyri með skipulagðari hætti á þann veg að Rás 2 verði breytt í miðstöð svæðisútvarpa með aðsetur á Akureyri. „Ég mun beina því til útvarpsráðs og útvarpsstjóra að þessi kostur verði skoðaður til hlítar um leið og lögð eru almennt á ráðin um framtíð svæðisútvarpanna,“ sagði hann. Menntamálaráðherra lét þessi orð falla við umræðu utan dagskrár um fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins. Málshefjandi í umræðunni var Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. Steingrímur sagði RÚV hafa búið með margvíslegum hætti við þrengdan hag á undanförnum árum. Afnotagjaldi hefði verið haldið lítt breyttu og það engan veginn fylgt kosnaðarhækkunum í rekstri stofn- unarinnar eða almennri verð- lagsþróun. Þar með hafi RÚV verið þvingað til að keppa með ítrasta hætti á auglýsingamarkaði. Ríkisútvarpið rekið á yfirdráttarheimild Þá sagði hann að uppsafnaðar líf- eyrisskuldbindingar og flutningur Sjónvarpsins í Efstaleiti hafi reynst Ríkisútvarpinu dýrar og ekki hafi sérstaklega verið brugðist við því af hálfu ríkisstjórnarinnar. „Það er svo komið að Ríkisútvarp- ið er rekið á yfirdráttarheimild,“ sagði Steingrímur. Sagði hann að- gerðir til niðurskurðar valda óánægju meðal starfsmanna. „Mér finnst það ótrúlegt metn- aðarleysi, aumingjadómur að standa þannig að rekstri Ríkisútvarpsins á þessum tímum að það uppbygging- arstarf sem þar hefur verið unnið, t.d. á svæðisstöðvunum, skuli nú vera að koðna niður,“ sagði Stein- grímur. Menntamálaráðherra sagði það sína skoðun að ekki eigi að draga úr þessari þjónustu á landsbyggðinni, nema unnt sé að sýna fram á veru- legan fjárhagslegan sparnað í ljósi þess, að Ríkisútvarpið hafi mikla fjármuni til ráðstöfunar þótt auglýs- ingatekjur hafi dregist saman um 90 til 100 milljónir kr. í ár. Þeir þingmenn sem tóku til máls í umræðunni fögnuðu nær allir hug- myndum menntamálaráðherra um flutning Rásar 2 og að Akureyri yrði miðstöð svæðisútvarpa. Sigríður Anna Þórðardóttir (D), formaður menntamálanefndar, sagði rétt að hafa í huga að heimild hafi fengist til hækkunar afnota- gjalda RÚV um 7% um síðustu ára- mót. Sú breyting hafi tekið gildi 1. janúar sl. Sú hækkun skili um 280 milljónum kr. í viðbótartekjum á ári. Sagði hún því ekki rétt að sífellt væri verið að þrengja að hag stofn- unarinnar. „Hins vegar er ljóst að það hefur þrengt að á auglýsingamarkaði. Það kemur að sjálfsögðu niður á Rík- isútvarpinu eins og öðrum fjölmiðl- um. Á þá að rjúka til og heimila meiri hækkun á afnotagjöldum? Ég segi nei,“ sagði hún. Sigríður Anna sagði RÚV verða að mæta tekjuskerðingunni með aukinni hagræðingu í rekstri, rétt eins og öll önnur fyrirtæki. Umræður utan dagskrár á Alþingi í gær um fjárhagsvanda Ríkisútvarpsins Ráðherra vill flytja Rás 2 til Akureyrar ENGAR ákvarðanir hafa verið tekn- ar um hvort íslensk stjórnvöld veiti Flugleiðum beinan stuðning vegna erfiðleika í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum en í gær ákvað framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins að víkja frá samkeppnis- reglum sambandsins og veita ríkis- stjórnum aðildarlanda ESB heimild til að aðstoða flugfélög sem orðið hafa fyrir miklu tjóni. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa þegar veitt þarlendum flugfélögum 15 milljarða dollara aðstoð í kjölfar árásanna. Flugleiðir eru aðili að Evrópusam- bandi flugfélaga (AEA ) sem fór fram á heimild ESB og er starfsemi Flugleiða einnig háð samkeppnis- reglum ESB vegna aðildar Íslands að EES. ,,Við væntum þess að íslensk stjórnvöld muni fara yfir þá stöðu sem upp er komin, líkt og stjórnvöld Evrópulanda gera nú með helstu flugfélögum í Evrópu. Ef evrópskar ríkisstjórnir fara að dæmi ríkis- stjórnar Bandaríkjanna og nýta al- mannafé til að renna stoðum undir flug og ferðaþjónustu hvers lands eftir þetta áfall, þá hefur það aug- ljóslega mikil áhrif á samkeppnis- stöðu Íslands sem ferðamannalands og Flugleiða, sem heldur uppi flug- samgöngum til og frá landinu árið um kring,“ sagði Guðjón Arngríms- son, upplýsingafulltrúi Flugleiða, í gær. Ríkisstjórnum aðildarlanda ESB verður m.a. heimilað skv. ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar í gær að bæta flugfélögum upp það tap sem þau urðu fyrir þá fjóra daga sem flug lá niðri í Bandaríkjunum og að fram- lengja ríkisábyrgð vegna hækkaðra tryggingaiðgjalda. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra vildi í gær ekki tjá sig um þetta mál að svo stöddu. Stjórnvöld fari yfir þá stöðu sem upp er komin Talsmaður Flugleiða um ákvörðun ESB að heimila ríkisstuðning við flugfélög AÐ MINNSTA kosti tíu Íslend- ingar eru búsett- ir í bænum Boca Raton í Flórída- ríki í Bandaríkj- unum, þar sem tvö tilfelli milt- isbrands hafa komið upp síð- ustu daga. Helgi Hrannarr Jónsson stundar nám í al- þjóðasviðskiptum í Florida Atlantic University í bænum og segir hann að mikil hræðsla hafi gripið um sig meðal bæjarbúa, margir hafi birgt sig upp af mat, mikil spurn hafi ver- ið eftir gasgrímum og fólk reyni að halda sig sem mest heima fyrir. Helgi Hrannarr segir að um 60 þúsund manns búi í bænum en með úthverfum séu íbúarnir um 200 þús- und. Hann segir að Boca Raton sé mjög rólegur bær, þar búi mikið af eldra fólki og svo nemendum við há- skólann. Sex Íslendingar stunda þar nám og segist Helgi vita um a.m.k. fjóra eldri Íslendinga til viðbótar sem eru búsettir í bænum hluta úr árinu. Hann segir að svæðissjónvarps- stöðvar hafi hvatt fólk til að birgja sig upp af vatni, mat og öðrum nauðsynjavörum. „Fólk heldur sig mikið meira heima við, meira að segja við gerum það ósjálfrátt. Sitj- um inni, horfum á CNN og förum t.d. ekki í golf eins og flesta daga,“ segir Helgi. Hann segir að færri hafi mætt í tíma í skólanum síðustu daga en venjulega. Hann segist þó ekki telja að fólk hafi lokað sig inni, það gerist ekki nema stjórnvöld gefi eitthvað slíkt út. „Þótt þeir segi að þetta sé ekki smitandi er fólk ansi hrætt um það og trúir því ekki,“ segir Helgi og bendir á að einhvern veginn hafi sjúkdómurinn borist milli þessara tveggja manna sem hafa smitast. Helgi segir að Banda- ríkjamenn séu mun órólegri yfir þessu en þeir útlendingar sem búa í bænum. Hann segist þó vita um Norðurlandabúa sem hafa flýtt heimför vegna ástandsins. Eins og í kvikmynd Helgi segir að margir sem hann þekkir hafi reynt að útvega sér mót- efni við miltisbrandi en þau hafi ver- ið kölluð inn á spítalana. Þannig sé fólk með einkenni lokkað á sjúkra- húsin þannig að hægt verði að loka það inni, reynist það veikt. Helgi býr með frænda sínum, Sigurði Elí Har- aldssyni sem er í námi við sama skóla, og segir hann þá frændur hafa orðið smeyka í upphafi þar sem þeir hafi verið hálfslappir dagana á undan en fyrstu einkennin eru svip- uð kvefi. Í gær kom fram á sjónvarpsstöð- inni CNN að talið er að bakterían sem olli sjúkdómnum hafi verið búin til í Bandaríkjunum fyrir 50 árum. „Þetta er nákvæmlega eins og í bíó- myndunum, þetta er allt mjög fjar- stæðukennt,“ segir Helgi. Hann seg- ir að t.d. sé skrýtið að sjá sex bíla merkta FBI keyra í bílalest um þennan rólega bæ. Hann segir að bæjarbúar hafi ekki fengið neinar upplýsingar um hvernig þeir eigi að haga sér en fólk hafi sjálft reynt að bera sig eftir upplýsingum í fréttum og dagblöðum. „Það eru allir að tala um þetta. Ég fór í tíma í morgun og ég held ég hafi heyrt þrjár mismun- andi sögur. Aðalsagan núna er að það ætlar enginn að fara í versl- unarmiðstöðvar og svo er verið að tala um að það verði sprengjur á hrekkjavökuhátíðinni, sem er 31. október.“ Helgi segir að þeir frændur séu órólegir vegna þessa ástands og að hann væri að ljúga ef hann segðist ekki vera smeykur. Helgi Hrannarr, íbúi í Boca Raton, þar sem miltisbrandur kom upp Mikil hræðsla meðal bæjarbúa HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 18 ára pilt til greiðslu 15 þúsund króna sektar fyrir að slá lögreglumann í andlitið við skyldu- störf í miðbæ Reykjavíkur síðastlið- inn febrúar. Lögreglumaðurinn hlaut hruflsár og bólgu á vinstri augabrún og var pilturinn ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni fyrir verknaðinn. Atvikið átti sér stað við skemmti- stað þegar lögreglan færði félaga ákærða í lögreglubifreið til viðtals. Ákærði krafðist skýringa á því og leiddu afskipti hans af lögreglunni til átaka og var hann handtekinn. Ákærði sagði verknaðinn hafa verið óviljaverk en dómara þótti sannað með framburði vitna að ákærði hefði slegið lögreglumann- inn. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar. Dæmdur í sekt fyrir að slá lögreglumann ÞEGAR haustið læðist að og sól- argeislarnir hverfa hraðar með degi hverjum í hafdjúpið fjölgar stundunum sem menn og dýr dvelja innandyra. Þó er rétt af og til að gá til veðurs og kanna mannlífið úti í haustinu, eins og þessi seppi gerði í vesturbænum. Af svipnum má þó ráða að tilveran sé hálfgert hunda- líf þessa dagana. Morgunblaðið/Ásdís Hundalíf í vesturbænum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.