Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 4

Morgunblaðið - 11.10.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR sem eru á ferli í nágrenni Neskirkju á miðvikudagseft- irmiðdögum mega eiga von á að heyra himneska söngtóna berast þaðan. Þó að margir gætu haldið að sjálft almættið hafi sent engla- flokk til starfa í kirkjunni er sú ekki raunin, nema þá í frekar víðri merkingu þess orðs, því barkarnir sem raddirnar koma úr tilheyra 35 strákum á aldrinum 7– 14 ára. Drengjakór í Neskirkju er ný- mæli en kórinn sjálfur er þó ekki nýr af nálinni því um er að ræða sama kór og hefur starfað í Laug- arneskirkju um ellefu ára skeið. Nýlega brá hins vegar svo til að kórinn flutti sig í heilu lagi um set yfir í vesturbæinn. „Við vildum breyta til og stækka við okkur og fá betri húsnæðisaðstöðu,“ segir Friðrik Kristinsson, stjórnandi kórsins, en hann var einnig með kórinn þegar hann starfaði í Laugarneskirkju. „Þetta var allt í góðu milli allra – barnið var ein- faldlega orðið stórt.“ Hann segir drengjunum líka breytingin vel. „Það hefur mikil endurnýjun átt sér stað út af þess- ari breytingu. Það kom fullt af nýjum strákum úr vesturbænum hingað í kórinn til okkar og aðrir hafa hætt.“ Hann bætir því við að ekki hafi allir þeir sem hættu far- ið vegna breytinganna. Það hafi einfaldlega verið kominn tími fyr- ir marga drengjanna að yfirgefa hópinn enda alkunna að þegar vissum aldri er náð missa piltarnir drengjaraddirnar svo um munar. Keila, bíó og æfingabúðir Að sögn Friðriks er það oft svo- lítið erfitt fyrir þá að yfirgefa hópinn en þó geta þeir tekið upp þráðinn aftur síðar sé viljinn fyrir hendi því eldri deild er starfandi við kórinn sem strákarnir geta gengið til liðs við eftir múturnar. Margir hverjir hafi gert það og þá syngja þeir tenór og bassa í stað sóprans og alts eins og raddirnar eru kallaðar hjá yngri kyn- bræðrum þeirra. Friðrik segir mikla aðsókn í kórinn en reynt sé að halda stærðinni nokkurn veginn óbreyttri. Hann segir þó ekki um ströng inntökupróf að ræða. En hvað fær kröftuga smástráka til að flykkjast í kór þar sem krafan er að standa stilltir eins og englar og syngja við raust? „Þetta er búið að vara í 11 ár og gengið bara vel þannig að það er eitthvað sem togar í þá,“ segir Friðrik. „Þeir lenda stundum í skólakór eða kirkjukór þar sem kannski eru örfáir strákar. Sumir gefast þá upp og vilja frekar koma og vera með strákum. Ann- ars er þetta bara venjulegur kór sem æfir tvisvar í viku en hann er óvenjulegur að því leyti að þetta eru bara strákar.“ Það kemur líka á daginn að það er regluleg strákastemmning sem fylgir því að vera í drengjakór. „Við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt og förum þá saman í keilu eða bíó og svo eru kór- ferðalög og æfingabúðir. Þannig að það er heilmikið í kringum þetta,“ segir Friðrik. Vínarsnitsel með vínardrengjum Það næsta á döfinni hjá Drengjakór Neskirkju, eins og hann heitir núna, er að sögn Frið- riks að hitta sjálfan Vínardrengja- kórinn sem staddur er hér á landi í tilefni af 25 ára afmæli Garða- bæjar. Kórarnir munu hittast í húsakynnum Íslandsbanka á Kirkjusandi þar sem ungir söng- fuglar, íslenskir og þýskir, munu snæða saman hádegisverð og að sjálfsögðu verður vínarsnitsel á boðstólum. Þetta gerist á morgun en á laugardag munu íslensku dreng- irnir fara á tónleika með þessari fyrirmynd allra drengjakóra. Á sunnudag munu svo strákarnir sjálfir hefja upp raustina. „Við ætlum að kveðja Laugarneskirkju formlega við messu á laugardag- inn klukkan ellefu,“ segir Friðrik og bætir því við að lokum að kór- inn væri alltaf opinn fyrir því að fá nýja stráka með góðar raddir í hópinn. Morgunblaðið/Kristinn Strákarnir í Neskirkju eru ósköp venjulegir strákar sem spila bæði keilu og fara í bíó eins og jafnaldrar þeirra, þótt þeir helgi sönggyðjunni drjúgan hluta af tíma sínum. Þó var hlé tekið á æfingu í gær á meðan söngmennirnir og stjórnandi þeirra stilltu sér upp fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins. Strákasöngur í Neskirkju SJÚKRALIÐAR ákváðu ein- róma á fjölmennum fundi í Rúgbrauðsgerðinni í gær að boða til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um frekari verk- fallsboðun, að sögn Kristínar Á. Guðmundsdóttur, formanns Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir að stefnt sé að því að boða þrjú þriggja daga verkföll til viðbótar við þau verkföll sem þegar hefur verið boðað til. Vinnustöðvunin verði skipulögð þannig að fyrsta verkfallið í síð- ari lotunni hefst tólf dögum eft- ir að síðasta verkfallinu í fyrri lotunni lýkur, en tólf dagar eru milli verkfallanna. Þannig verði verkföll með tólf daga millibili fram í miðjan desembermánuð, verði síðari verkfallslotan sam- þykkt og náist samningar ekki fyrir þann tíma. Fjögur hundr- uð sjúkraliðar víðs vegar að af landinu sóttu fundinn í gær, að sögn Kristínar. Annað þriggja daga verkfall sjúkraliða af þremur sem þegar hefur verið boðað til hefst á mánudag en sjúkraliðar á Grund og Ási í Hveragerði leggja niður störf næstu helgi, frá föstudegi til sunnudags. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni fyrir þann tíma. Sjúkraliðar áttu fund með ríkinu á þriðjudag og segir Kristín að ríkissáttasemjari hafi þá ákveðið að boða ekki til fundar fyrr en að loknu næsta verkfalli. Frekari verk- falls- boðun? Sjúkraliðar Sérstök umræða um auðlindanýtingu LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins, sá 34. í röðinni, hefst í Laugardalshöll síðdegis í dag með setningarræðu Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra og formanns Sjálf- stæðisflokksins. Yfirskrift landsfund- arins er ,,Fleiri tækifæri-farsælla mannlíf“. Búist er við rúmlega 1.000 fulltrú- um á landsfundinn sem stendur fram á sunnudag. Fyrir hádegi á morgun föstudag munu allir ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins sitja fyrir svörum landsfundargesta í fyrirspurnartíma frá kl. 9-12. Kl. 16 á morgun fer fram sérstök umræða á landsfundinum um auðlindanýtingu. Þar munu dr. Birgir Þór Runólfsson dósent, Rannveig Rist forstjóri, dr. Hafliði Pétur Gísla- son prófessor og Tómas Ingi Olrich alþingismaður flytja framsöguræður og því næst fara fram umræður. Skipulagsmál Sjálfstæðisflokks- ins meðal helstu viðfangsefna Skipulagsmál Sjálfstæðisflokksins verða meðal helstu viðgangsefna landsfundarfulltrúa að þessu sinni en sérstök skipulagsnefnd flokksins hef- ur unnið að endurskoðun flokksstarfs og skipulags Sjálfstæðisflokksins frá seinasta landsfundi 1999. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra og vara- formaður flokksins, var formaður nefndarinnar og mun hann kynna greinargerð og niðurstöður nefndar- innar á landsfundinum eftir hádegi á morgun. Markmið endurskoðunar- innar er einkum að aðlaga flokks- starfið nýrri kjördæmaskipan og að endurskoða núgildandi skipulags- reglur, með tilliti til breyttra að- stæðna. Starfshópar landsfundarins munu starfa frá föstudegi til sunnudags en almennar umræður og afgreiðsla ályktana fer fram á laugardegi og sunnudegi. Skv. dagskrá landsfund- arins fer kosning til miðstjórnar fram fyrir hádegi á sunnudag og kosning formanns og varaformanns Sjálf- stæðisflokksins kl. 15. Formaður flokksins mun svo slíta landsfundi með ræðu kl. 16. 34. landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag MÁL norskra skipstjóra sem sak- aðir eru um brot á landhelgi Íslands var dómtekið fyrir Héraðsdómi Austurlands um kvöldmatarleytið í gærkvöld. Réttarhöldin höfðu þá staðið frá klukkan tíu um morgun- inn. Dómurinn var fjölskipaður og verður dómurinn kveðinn upp innan fjögurra vikna. Mál útgerðanna þriggja voru tek- in fyrir í einu og voru skipstjórarnir á Torson, Tromsøybuen og Inger Hildi, sem varðskipið Ægir tók í tog til Seyðisfjarðar hinn 9. júlí síðastlið- inn, allir mættir fyrir dómi. Þeir eru sakaðir um að hafa veitt loðnu innan íslenskrar landhelgi en skráð aflann innan þeirrar grænlensku. Með skipstjórunum var norskur lögmað- ur þeirra og Jónas A. Þ. Jónsson, lögmaður á Seyðisfirði, sem flutti málið fyrir hönd norsku útgerðar- innar. Helgi Jensson sýslufulltrúi, sem flutti málið fyrir hönd ákæruvalds- ins, segir að ákæruvaldið hafi krafist sakfellingar og sektar á bilinu 2–3 milljónir króna á skip, auk upptöku afla. Lögmaður norsku útgerðarinn- ar krafðist aftur á móti sýknu og til vara lágrar refsingar. Helgi segir að verði sakfellt sé hámarkssekt 4 milljónir króna lögum samkvæmt og lágmarkssekt 400 þúsund. Fjareftirlit Landhelgisgæslunnar sýndi að skipin hefðu verið innan ís- lenskrar landhelgi og segir Helgi að ekki séu fordæmi fyrir því að sjálf- virka fjareftirlitinu sé beitt sem sönnun í dómsmáli. Því sé um próf- mál að ræða. Ákæruvaldið kallaði til fjögur vitni frá Landhelgisgæslunni auk þess sem tæknimaðurinn sem setti fjareftirlitskerfið að stórum hluta upp hér á landi vitnaði um hvernig kerfið virkar. Engin vitni voru kölluð til af hálfu verjanda. Mál norsku skipstjóranna dómtekið í gær Krafist upptöku afla og sektar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.