Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 26
RÁÐIST GEGN HRYÐJUVERKAMÖNNUM/ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMTÖK afganskra kvenna, sem
hafa um árabil barist fyrir réttind-
um kynsystra sinna og þurft að
starfa í leynum á síðustu árum, hafa
notað tækifærið þegar athygli
heimsbyggðarinnar beinist að landi
þeirra til að afla málstað sínum
stuðnings á Vesturlöndum.
Hreyfingin nefnist Byltingarsam-
tök afganskra kvenna, skammstafað
RAWA. Samtökin voru sett á fót
fyrir tveimur áratugum, en þá var
staða afganskra kvenna þó mun
betri en nú. Virkir meðlimir eru um
2.000, bæði í Afganistan og Pakist-
an.
Fulltrúi RAWA, sem kallar sig
Tahmeena Faryal, hélt nýlega til
Washington til að vekja athygli á
baráttu samtakanna. Hún kom til
Bandaríkjanna í gegnum Pakistan,
en neyðist til að ferðast undir dul-
nefni og hylja andlit sitt vegna ótta
við talibanastjórnina. Hún þorir
ekki að gefa neitt upp um sjálfa sig
annað en að hún sé á þrítugsaldri og
frá Kabúl.
„Afganskar konur eru mjög, mjög
reiðar,“ sagði Faryal í viðtali við
dagblaðið The Washington Post, til
að útskýra hvers vegna meðlimir
samtakanna leggi sjálfa sig í mikla
hættu til að berjast fyrir rétti kyn-
systra sinna. „Þær eru vonlausar,
hjálparlausar, en jafnframt mjög
reiðar.“
Taka áhættu með
leynilegu starfi
Í byrjun síðasta áratugar gengu
afganskar konur í vestrænum klæð-
um, sýndu andlit sitt á almannafæri,
sóttu háskóla og gegndu störfum ut-
an heimilis. Til dæmis var nær
helmingur allra lækna í landinu
kvenkyns, sem og meirihluti kenn-
ara.
En sem kunnugt er hafa konur í
Afganistan mátt sæta hræðilegri
kúgun síðan talibanar komust þar til
valda árið 1996. Þær verða nú að
klæðast svokölluðum burqa á al-
mannafæri, en það er eins konar
skikkja sem hylur allan líkamann
frá toppi til táar og er aðeins með
lítilli grisju fyrir vitunum. Stúlkum
er meinað að sækja skóla, konur
mega ekki stunda vinnu og þær geta
ekki farið út fyrir heimili sitt nema
vera í fylgd karlkyns ættingja. Mála
verður fyrir glugga svo enginn geti
séð konur óhuldar innandyra.
RAWA-samtökin hafa á laun
reynt að koma konum í landinu til
hjálpar. Þau reka meðal annars
leynilega skóla og vinnustaði og
veita aðstoð þeim þúsundum kvenna
og barna, sem hafa flúið undan talib-
önum og hafast við í flóttamanna-
búðum innan landamæra Pakistans.
Leggja sig í mikla hættu
með því að taka myndir
Samtökin hafa einnig tekið mikla
áhættu með því að taka myndir af
hörmungarástandinu í landinu og
birta á vefsíðu sinni, www.rawa.org,
en myndatökur eru bannaðar á þeim
svæðum sem eru undir yfirráðum
talibana. Meðlimir hafa lagt sig í
mikla hættu með því að taka myndir
á laun með myndavélum sem smygl-
að hefur verið inn í landið, meðal
annars af aftöku konu á íþróttaleik-
vangi í Kabúl.
Tahmeena Faryal segir að
RAWA-samtökin vilji koma þeim
skilaboðum á framfæri á Vestur-
löndum að almenningur í Afganist-
an sé enginn óvinur; óbreyttir borg-
arar séu sjálfir fórnarlömb
grimmdarverka eigin stjórnvalda.
Hún varar einnig við því að Banda-
ríkjastjórn styðji Norðurbandalag-
ið, hersveitir andstæðinga talibana,
til valda í landinu, því liðsmenn þess
hafi ekki síður gerst sekir um of-
beldisverk og lögbrot en talibanar.
„Það er mikilvægt að Norður-
bandalaginu verði ekki færð stjórn
landsins. Við viljum ríkisstjórn sem
byggir á lýðræðislegum gildum. Það
er ekki mögulegt þegar bókstafs-
trúarmenn eru við völd,“ segir Far-
yal í viðtali við The Washington
Post.
Afganskar konur leita
stuðnings við málstað
sinn á Vesturlöndum
The Washington Post.
AP
Konur klæddar í „burqa“ í flóttamannabúðum í Norður-Afganistan.
MYNDIRNAR sýna Garmabak
Ghar-búðirnar í Afganistan en í
þeim hafa hryðjuverkamenn
Osama bin Ladens fengið þjálfun.
Efri myndin sýnir búðirnar fyrir
árásir bandarískra herflugvéla fyr-
ir nokkrum dögum en sú neðri sýn-
ir þær eftir árásirnar.
Sams konar árásir hafa verið
gerðar á aðrar þjálfunarbúðir en
samkvæmt upplýsingum, sem Rúss-
ar létu Atlantshafsbandalaginu,
NATO, í té, voru þær yfir 50 talsins
víðs vegar um Afganistan. Í þeim
hafa þúsundir manna fengið þjálfun
í hryðjuverkum, einkum öfgamenn
frá arabaríkjum, Pakistan og víðar
að, til dæmis Tsjetsjníu.
Flestar þessara búða höfðu verið
yfirgefnar áður en loftárásir
Bandaríkjamanna og Breta hófust
en talið er, að talibanar noti einnig
jarðhýsi eða hvelfingar, sem grafn-
ar voru inn í fjöll á sovéttímanum.
Bandaríkjamenn hafa lýst yfir, að
þeir séu búnir að eyðileggja 85% af
öllum skotmörkum í landinu og því
má búast við að hernaðurinn breyt-
ist á næstu dögum.
Árás á búð-
ir hryðju-
verka-
manna
Reuters
KHALEDA Zia sór í gær emb-
ættiseið sem forsætisráðherra
Bangladesh. Zia hefur tvisvar áð-
ur gegnt embættinu. Flokka-
bandalag hennar vann mikinn sig-
ur í þingkosningum fyrir skömmu
og tókst henni því að velta úr sessi
erkióvini sínum, Sheikh Hasina
Wajed, sem einnig er kona.
Sheikh Hasina hefur hótað að
hunsa þingið ásamt stuðning-
mönnum sínum vegna meintra
kosningasvika. Í Bangladesh búa
nær 130 milljónir manna og það er
eitt af fátækustu löndum jarðar.
Zia sagði að forgangsverkefnið
yrði að bæta efnahaginn. Flestir
Bangladeshmenn eru múslímar
og í nýju stjórninni eru nokkrir
fulltrúar íslamsks heittrúarflokks.
Stjórn Zia tekur við
Dhaka. AFP.
ÞRÍR Bandaríkjamenn fá Nóbels-
verðlaunin í hagfræði í ár og tveir
Bandaríkjamenn og einn Japani
skipta með sér verðlaununum í eðl-
isfræði. Var skýrt frá því í Stokk-
hólmi í gær.
George A. Akerlof við Kaliforn-
íuháskóla í Berkeley, A. Michael
Spence við Stanford-háskóla og
Joseph E. Stiglitz við Kólumbía-há-
skóla fá verðlaunin fyrir „greiningu
á mörkuðum með tilliti til ólíkra upp-
lýsinga“ og er þá verið að vísa til
þess, að sumir búa yfir betri upplýs-
ingum um markaðinn en aðrir. Segir
í tilkynningu sænsku vísindaaka-
demíunnar, að með starfi sínu hafi
þeir lagt grunninn að „nútímaupp-
lýsingahagfræði“.
Hefur bætt lyfjaöryggi
Bandaríkjamaðurinn William S.
Knowles og Japaninn Ryoji Noyori
skipta með sér helmingi eðlisfræði-
verðlaunanna og hinn helminginn
fær Bandaríkjamaðurinn Barry
Sharpless. Verðlaunin fá þeir fyrir
að ná betri stjórn á efnahvörfum en
það hefur til dæmis rutt brautina
fyrir framförum í lyfjaframleiðslu.
Við rannsóknir sínar fengust þeir
við þann vanda, að margar sameindir
birtast í tveimur myndum, sem eru
spegilmynd hvor af annarri. Yfirleitt
bregðast frumur aðeins rétt við ann-
arri myndinni og hin getur beinlínis
verið stórhættuleg. Með aðferðum
verðlaunahafanna er nú unnt að
framleiða aðeins þá mynd eða það
efni, sem sóst er eftir.
Sem dæmi um þetta janusarhöfuð
sumra frumeinda er nefnt lyfið thali-
domide, sem ófrískum konum var
gefið á sjöunda áratugnum. Önnur
myndin vann gegn ógleði en hin olli
alvarlegum fæðingargöllum.
Skýrt frá Nóbelsverðlaununum
í hagfræði og eðlisfræði
Upplýsingahag-
fræði og nákvæm
efnahvörf
Stokkhólmi. AP.
KOMIÐ var með rússneska kjarn-
orkukafbátinn Kúrsk til hafnar í
Rosljakovo, skammt frá Múrm-
ansk, í gær en honum var lyft upp
af hafsbotni fyrr í vikunni. Verður
bátnum komið fyrir í þurrkví og
þá verður loks unnt að ná í lík
skipverjanna 118 og kanna til hlít-
ar hvað olli því, að hann sökk 12.
ágúst fyrir ári. Fylgdust tugir
bæjarbúa með er risastór pramm-
inn, sem Kúrsk hangir neðan í, var
dreginn inn í höfnina en margir
hafa áhyggjur af, að kjarnakljúfar
bátsins séu skemmdir og geti vald-
ið geislamengun. Rússnesk yf-
irvöld fullyrða, að engin hætta sé
á því.
AP
Kúrsk til hafnar