Morgunblaðið - 11.10.2001, Qupperneq 28
Á ÞRIÐJA þúsund manns unnu við lokafrá-
gang Smáralindar síðastu klukkustundirnar
fyrir opnun. Kjartan Þorbjörnsson ljósmynd-
ari stóð vaktina með hundruðum iðn-
aðarmanna og verslunarfólks síðasta sólar-
hringinn og fylgdist með því hvernig
verslunarmiðstöðin breytti hratt og örugglega
um svip frá einum klukkutímanum til annars.
Síðasti sólarhringurinn
S
MÁRALIND, ný og
glæsileg verslunarmið-
stöð í Kópavogi, var
opnuð formlega í gær-
morgun þegar Smári
Páll Svavarsson, 11 ára úr Smára-
hverfi, og Linda Margrét Gunn-
arsdóttir, 9 ára úr Lindahverfi,
hleyptu straumi á bygginguna, ljós
lifnuðu og rúllustigar fóru í gang,
tíu mínútur yfir tíu hinn 10.10 árið
2001. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði í ræðu sinni við opn-
unarhátíðina að Smáralind væri
glæsileg bygging sem auka myndi
fjölbreytni í stórum stíl og treysta
mætti því að með tilkomu þessara
nýju verslunarmiðstöðvar myndi
samkeppni í verslun aukast neyt-
endum í hag.
Í Smáralind eru um 70 verslanir
og þjónustufyrirtæki sem flest
voru opnuð í gær, en nokkrar
verslanir verða opnaðar síðar í
mánuðinum. Smáralind er eitt
stærsta hús á Íslandi með um 63
þúsund fermetra gólfflöt þar sem
verslunarrýmið er um 33 þúsund
fermetrar og Vetrargarðurinn um
níu þúsund fermetrar.
Fólk tók að streyma snemma
morguns að Smáralind og um átta-
leytið var orðið fjölmenni í Vetr-
argarðinum þar sem formleg
vígsluathöfn fór fram. Innan um
prúðbúna gesti mátti þó víða sjá
iðnaðarmenn og verslunarfólk
ljúka síðustu verkunum áður en
verslanirnar voru opnaðar, sópa
ganga og gólf, mála síðasta vegg-
inn og ganga frá vörum og merk-
ingum í hillur. En þrátt fyrir að
margir væru á síðasta snúningi
leyndi sér ekki að menn höfðu náð
takmarkinu; að opna á tilsettum
tíma þennan tiltekna dag.
Smáralind yfirbyggður
miðbær Íslands
Athöfnin hófst með því að Páll
Sigurjónsson, forstjóri Ístaks, skil-
aði byggingunni formlega til
Hannesar Smárasonar, stjórn-
arformanns Smáralindar, með því
að afhenda honum eftirlíkingu af
kennileiti Smáralindar, 40 metra
háum turni sem stendur við bygg-
inguna. Sagði Páll að ekki væri
hægt að afhenda hefðbundinn lykil
að Smáralind þar sem skrá fyrir
slíka lykla væri nánast ekki að
finna í þessari nýtískulegu versl-
unarmiðstöð. Hannes sagði að
verkið hefði gengið undrafljótt fyr-
ir sig og miklum áfanga væri nú
náð.
Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, sagði
nýja hugsun í íslenskri verslun fel-
ast í byggingu Smáralindar, því
einnig væri um að ræða menning-
ar- og afþreyingarmiðstöð með
fjölbreyttri þjónustu í formi kvik-
myndahúsa, ráðstefnumiðstöðvar
og barnaskemmtigarðs. Þá myndu
menningarviðburðir listamanna og
félagasamtaka í Vetrargarðinum
koma á óvart. „Frá og með þess-
um degi verður Smáralind yf-
irbyggður miðbær Íslands, spegill
þjóðarinnar þar sem hún getur
komist í snertingu við sjálfa sig,“
sagði Pálmi.
Þá kvaðst Pálmi vænta þess að
Smáralind myndi efla samkeppni í
verslun og þá ekki síst við útlönd.
„Smáralind er verslunarmiðstöð á
heimsmælikvarða sem eflir verslun
í landinu, bæði á þann hátt að Ís-
lendingar kaupi frekar vörur hér á
landi en erlendis og að útlendingar
kaupi meira á Íslandi en þeir
myndu ella gera. Við höfum því
kosið að kalla Smáralind nýjan
áfangastað,“ sagði Pálmi.
Ánægjuefni að verða
vitni að slíkum stórhug
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hélt ræðu við opnunina og sagði
húsið hafa risið á undraskömmum
tíma þar ekki væri verið að hrófla
upp einhverju hreysi, heldur
glæsilegu mannvirki þar sem ekk-
ert væri til sparað. „Mikill metn-
aður og mikill kraftur býr að baki
þessari framkvæmd og það er mik-
ill myndarbragur á öllu hér. Það
er sannarlega ánægjulegt fyrir
okkur öll að vera vitni að slíkum
stórhug og dug þeirra manna sem
hér hafa haldið um stjórnvölinn,“
sagði Davíð.
Þá vék forsætisráðherra að við-
horfum manna til verslunar og við-
skipta og sagði þá hugmynd sumra
fjarri veruleikanum, að viðskipti
og verslun væri „andlaust prang“
þar sem einn græddi á kostnað
annars. „Torg verslunar og við-
skipta er ekki völlur þar sem einn
fær sex og annar núll, heldur vett-
vangur þar sem einn svarar þörf-
um annars, báðum til hagsbóta og
saman auðga þeir mannlífið og
gera það margbreytilegt og blóm-
legt. Og glæsilegra markaðstorg
en þetta hefur ekki kallað fólk til
viðskipta saman á Íslandi fyrr,“
sagði forsætisráðherra.
Davíð sagði verslunarfrelsi og
lýðfrelsi hafa verið samtvinnuð
baráttumál Íslendinga og sigur í
öðru þeirra hefði verið ófullnægj-
andi ef ekki næðist sigur í hinu.
Því hafi ekki verið tilviljun að for-
ystumenn í þjóðfrelsisbaráttu Ís-
lendinga lögðu höfuðáherslu á að
þjóðin fengi notið frjálsrar versl-
unar.
Fákeppni er fjand-
maður neytandans
„Verslunarfrelsi var ekki fengið
kaupmönnum sérstaklega til
handa. Þeir sem halda það myndu
líka halda að flugvélar væru aðeins
fyrir flugmenn en ekki farþega.
Verslunarfrelsi er fyrst og fremst
og fyrst og síðast í þágu alls al-
mennings og þá dugar það frelsi
best þegar sem flestir keppast um
að fá að þjóna almenningi á sem
ódýrastan og liprastan og glæsi-
legastan hátt, eins og hér verður
gert. Smáralind eykur fjölbreytni í
stórum stíl og við getum treyst því
að hún muni einnig auka sam-
keppni en fákeppni er fjandmaður
neytandans, eins og dæmin
sanna,“ sagði Davíð.
Gunnar I. Birgisson, forseti bæj-
arstjórnar Kópavogs, sagði að
þessarar stundar hefði lengi verið
beðið í Kópavogi. Í ræðu hans kom
fram að á níunda áratug síðustu
Stærsta verslunarmiðstöð landsins, Smáralind, formlega opnuð í Kópavogi í gærmorgun
Glæsilegt markaðstorg
Morgunblaðið/Þorkell
Það voru þau Smári Páll Svavarsson, 11 ára, og Linda Margrét Gunnarsdóttir, 9 ára, sem opnuðu versl-
unarmiðstöðina Smáralind formlega tíu mínútur yfir tíu. Á milli þeirra stendur Pálmi Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, og til vinstri er Sigmundur Ernir Rúnarsson, kynnir á opnunarhátíðinni.
FRÉTTIR
28 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Kl. 10.15 Kl. 12.30