Morgunblaðið - 11.10.2001, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 35
HVERNIG lítur drauma-hverfið þitt út? er lykil-spurning í störfumbandaríska arkitektsins
Antons C. Nelessen. Það eru hins
vegar hvorki skipulagsfræðingar né
arkitektar sem eiga að svara þessari
spurningu að mati Nelessen, heldur
tilvonandi íbúar hverfisins, þ.e. al-
menningur. Í heimsókn sinni hér á
landi í boði sendiráðs Bandaríkj-
anna ræddi hann við ýmsa aðila sem
koma að skipulagsmálum, m.a. um
þann lærdóm sem Íslendingar geta
dregið af Bandaríkjamönnum hvað
varðar skipulagsmál, hvernig gera
má almenningssamgöngur sveigjan-
legri og um kosti þess að leita hjálp-
ar almennings við gerð skipulags.
Nelessen hefur á undanförnum
árum ferðast víða um heim ásamt
samstarfsmönnum í ráðgjafarfyrir-
tækinu A. Nelessen Associates, og
kynnt hugmyndir fyrirtækisins um
það sem þeir kalla „nýja borgarlík-
anið“. Líkanið byggist á áralangri
reynslu þeirra í skipulagsmálum þar
sem þátttaka almennings er lykilat-
riði. Það merkilega er, að það er
sama hvar Nelessen hefur stigið
niður fæti, hvort sem það er í Suður-
Afríku, Hollandi eða hér á Íslandi,
alls staðar fá hugmyndir hans, um
lítil, þéttbyggð hverfi, þar sem
verslun, þjónusta, léttiðnaður og
íbúabyggð fléttast saman, góðan
hljómgrunn. Jarðarbúar virðast vel-
flestir hafa sömu skoðun á því hvað
einkenna skuli það hverfi sem þeir
kjósa að búa í. En nýju hugmynd-
irnar eru þó í raun byggðar á göml-
um og vel heppnuðum skipulags-
hugmyndum og áralangri reynslu
Nelessen og samstarfi við fólk um
allan heim.
„Hugmyndir okkar felast í
stórum dráttum í því að byggðin sé
þétt og í miðju hennar sé kjarni þar
sem ýmsa þjónustu á borð við skóla,
íþróttahús og verslun er að finna,“
útskýrir Nelessen. „Í kjarnanum
eru hæstu byggingarnar en þær
lækka út til jaðranna og sömuleiðis
minnkar þéttleiki byggðarinnar út
frá miðjunni. Nálægð við græn
svæði eða ósnortna náttúru er líka
lykilatriði.“
Einföld en árangursrík aðferð
Nelessen á gríðarstórt safn ljós-
mynda af ólíkum byggingum og um-
hverfi þeirra sem hann notar við
störf sín. Myndirnar sýnir hann
fólki og spyr einfaldlega: Kanntu við
þessa byggingu eða þetta umhverfi?
Fólki er svo gert að gefa myndefn-
inu einkunn. Með þessari aðferð er
fundið út hvað það er sem fólk vill
hafa í sínu nánasta umhverfi til þess
að því líði vel.
Nelessen kallar aðferðina „Visual
preference Survey“ og er henni ætl-
að það hlutverk að fá almenning til
að taka þátt í skipulagsferlinu frá
upphafi. Unnið er í fámennum hóp-
um, 5–12 manns, og felst fyrsta
skrefið í því að sýna þeim fjölmargar
myndir úr safni Nelessens af hús-
um, görðum, skrifstofubyggingum,
verslunarhúsum og
þar fram eftir götun-
um og þeir beðnir að
segja af eða á um fyr-
irhugað hverfi. Einnig
eru lagðir fyrir hópinn
spurningalistar og
þegar allar upplýsing-
ar eru komnar er unn-
ið úr gögnunum. „Nær
undantekningarlaust
er niðurstaðan sú
sama, fólk vill lítil
hverfi, þétta byggð og
kjarna í miðjunni þar
sem þjónustu er að
finna,“ segir Nelessen.
Næsta skref er að
leggja hugmyndir hópsins saman til
að sjá með lýðræðislegum hætti
hvaða áherslur koma oftast fyrir.
Síðan er gengið skrefinu lengra og
smáatriði úthugsuð. Að því loknu
taka skipulagsfræðingarnir við og
kanna raunsæi hugmyndarinnar. Ef
þær eru samþykktar verða þær
mögulega að veruleika og hafa ein-
faldað yfirvöldum vinnu sína til
muna. Ef ekki eru þær aftur settar á
teikniborð hópsins til frekari athug-
unar. Að lokum fær hópurinn í
hendur skipulagsuppdrætti, byggða
á þeirra hugmyndum.
„Hugmyndin er einföld og hún
virkar,“ segir Nelessen. „Allir hafa
skoðun, allir hafa tillögur um hvern-
ig draumahverfið lítur út. Almenn-
ingur á að fá tækifæri til að segja
sína skoðun og þá með öðrum hætti
en eingöngu að skoða skipulagsupp-
drætti.“
Nelessen segir að því miður
strandi góðar hugmyndir oft á úrelt-
um reglugerðum innan skipulags-
geirans og úr því þurfi að bæta.
Út frá þessari vinnu kom það sem
Nelessen kallar DNA-skipulag, því
sömu áherslurnar koma endurtekið
fram. Í nýja borgarlíkaninu er geng-
ið út frá því að hverfin, sem eru ekki
stór en byggðin þétt, hafi hvert og
eitt sína sérstöðu. Sum geti verið
þekkingarhverfi, þar sem háskóli
eða aðrar stofnanir eru með öfluga
starfsemi, áherslan í öðrum getur
verið á fjármál, léttan iðnað og svo
mætti áfram telja.
Sömu mistökin endurtekin
Meðan á heimsókn Nelessen stóð
skoðaði hann sig um á höfuðborg-
arsvæðinu og varð að orði að Íslend-
ingar væru að gera sömu mistök í
skipulagsmálum og gerð hafa verið í
Bandaríkjunum undanfarna ára-
tugi. Og þessi mistök eru stór. Telur
hann þau helst felast í of dreifðri
byggð, mikilli bílamenningu og því
hversu rík áhersla er lögð á stóra
verslunarkjarna.
„Mér finnst miðbærinn ykkar
yndislegur og aðalverslunargatan
heillandi og ég tel hana bjóða upp á
marga möguleika. En ekkert annað
sem ég hef séð hérna hefur haft
svipuð áhrif á mig.“
Úthverfastefna hefur um langt
skeið verið við völd í Bandaríkjun-
um og segir Nelessen að undanfarin
ár hafi gallar hennar komið berlega í
ljós. Nú sé hins vegar þróunin að
snúast við og smærri hverfi, þar sem
byggð er þétt og stutt í atvinnulíf og
alla þjónustu, að fá uppreisn æru.
Þetta eru oft hverfi sem byggð voru
á fyrstu áratugum síðustu aldar.
„Víða í Bandaríkjunum má sjá þessi
gömlu hverfi þar sem íbúðarhús-
næði er mjög eftirsótt. Við viljum
sjá fleiri hverfi sem byggð eru á
svipaðan hátt og við hönnun og
skipulag slíkra hverfa er þátttaka
almennings grundvallaratriði. Burt
með stór skrifstofuhverfi og stóra
verslunarkjarna og burt með svefn-
bæina.“
Að mati Nelessen falla hlutar
miðborgar Reykjavíkur vel að nýja
líkaninu en víðast annars staðar í
borginni og í nágrannasveitarfélög-
um hennar eru út-
hverfi sem eru byggð
eftir skipulagshug-
myndum sem Neles-
sen er lítið hrifinn af.
„Í þessu er lítið að
gera héðan af. En ný
hverfi ættu alls ekki að
vera skipulögð á sama
hátt. Frá þessari
stundu ætti að leggja
slíkar hugmyndir á
hilluna. Á höfuðborg-
arsvæðið mun flytja
mikill fjöldi fólks
næstu árin og nýrra
hverfa er þörf og góðs
skipulags.“
Nelessen hefur sterkar skoðanir
á stórum verslunarmiðstöðvum og
-kjörnum og segir að reynslan í
Bandaríkjunum sýni að tugþúsundir
slíkra bygginga standi auðar og
stefnan sé nú tekin á að efla smærri
kjarna og verslunargötur.
Mikil umræða hefur verið hér á
landi undanfarið um framtíð mið-
borgarinnar sem að margra áliti
virðist hafa hnignað. Að mati Neles-
sen er þörf á nýrri framtíðarsýn
miðborgarinnar, þar sem áherslur
eru endurmetnar svo og hlutverk
hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Reynslan í Bandaríkjunum sýni að
þeir miðbæir sem hafa staðist sam-
keppni við stórar verslunarmið-
stöðvar hafi þróast í þá átt að verða
miðstöðvar skemmtanalífs, menn-
ingar og afþreyingar. Þá er vænlegt
að flétta saman íbúabyggð og þjón-
ustu- og verslunarbyggð, í takt við
hið nýja borgarlíkan. „Það virðist
ríkja mikil samkeppni milli bæjar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu og það
er miður. Allir ættu að vinna saman
að uppbyggingu þessa þéttbýlis.
Bæjarfélögin eru einfaldlega ekki
nógu stór til að samkeppni sé mögu-
leg, eða yfir höfuð þörf.“
Sveigjanlegar samgöngur
Íslendingar eru mikil bílaþjóð og
komst Nelessen ekki hjá því að sjá
það. En hann er með nýstárlegar
hugmyndir í sambandi við samgöng-
ur í borgum sem hann telur að geti
vel gengið á Íslandi. Í hugmyndun-
um er notast við staðsetningartækni
í gegnum gervihnött og Svíar hafa
þegar komið svipuðum hugmyndum
í framkvæmd og Þjóðverjar bætast
innan skamms í hópinn. Kerfið kall-
ast „samgöngur á stundinni“ og
byggist á því að stórum svæðum er
skipt upp í minni einingar og í hverri
þeirra er ein eða fleiri númeraðar
biðstöðvar. Notendur kerfisins eiga
aldrei að þurfa að ganga meira en
fimm mínútur að næstu stöð. Þegar
að biðstöðinni er komið er farsíminn
dreginn upp, hringt í þjónustu-
númer og þar skilin eftir skilaboð
um hvar viðkomandi er staddur og
hvert ferðinni er heitið. Til baka fær
viðkomandi á augabragði skilaboð
um hversu langur biðtími er eftir bíl
en hentugast gæti verið að notast
við smáar rútur eða strætisvagna í
þessum tilgangi. Upplýsingarnar
fara samstundis inn í gagnagrunn
staðsetningarkerfisins og bíll sem
staddur er í næsta nágrenni fær
skilaboðin. „Þetta er nokkurs konar
blanda af leigubíla- og strætis-
vagnakerfi,“ segir Nelessen. „Með
þessu móti þarf ekki að bíða á
ákveðnum tímum eftir fari, leiðir
bílanna er síbreytilegar, allt eftir
þörfum farþeganna.“
Nelessen segir að með því að nota
vetnisdrifna bíla gæti Ísland orðið
öðrum löndum til fyrirmyndar hvað
varðar sveigjanlegar almennings-
samgöngur og að því ætti tvímæla-
laust að stefna. „Kjarni málsins er
þessi: Lærið af mistökum Banda-
ríkjamanna, ekki endurtaka þau.
Fáið almenning ykkur til hjálpar.“
Höfuðborgarsvæðið þolir ekki samkeppni í skipulagsmálum
Þátttaka almenn-
ings lykilatriði
Bandaríski arkitektinn
Anton C. Nelessen var
staddur hér á landi ný-
verið og ræddi Sunna
Ósk Logadóttir við
hann um skipulagsmál
á höfuðborgarsvæðinu
og hugmyndir hans um
þéttingu byggðar og
lausnir í samgöngu-
málum.
Anton C. Nelessen
sunna@mbl.is
ig voru frumuboðefnin og náttúru-
legur frumudauði kannaður hjá
sjúklingum og einkennalausum
mökum þeirra og reyndist hvort
tveggja vera til staðar sem Gerður
segir benda til samverkandi þátta
umhverfis og erfða.
Helga Kristjánsdóttir líffræðing-
ur hefur einnig ásamt Kristjáni og
Gerði unnið að erfðarannsókninni á
rauðum úlfum. Í rannsóknum sín-
um hefur Helga sýnt fram á að
breytileiki í ónæmiskerfinu, nánar
tiltekið skortur á svonefndum
komplementþáttum sem gegna
mikilvægu hlutverki í hreinsun á
mótefnum og mótefnafléttum, er af-
gerandi áhættuþáttur í sjúkdómn-
um. Vísbendingar eru um það að
þessar niðurstöður, þ.e. annars veg-
ar aukið magn Il-10 og hins vegar
skortur á komplementþætti í rauð-
um úlfum, geti leitt af sér nýja með-
ferð sem dragi á sértækan hátt úr
einkennum sjúkdómsins. Helga
segir að á næstunni verði áfram
unnið með litningasvæðin tvö tján-
ing hugsanlegra áhættugena rann-
sökuð.
Rannsaka lítt þekktan
Sjögrens-sjúkdóm
Björn Guðbjörnsson hóf nýlega
starf á rannsóknastofunni við
kennslu og rannsóknir. „Ég hef
einkum sinnt rannsóknum á svo-
nefndum Sjögrens-sjúkdómi, sem
kenndur er við sænska augnlækn-
inn Henrik Sjögren, en þessi sjúk-
dómur lýsir sér með bólgum í slím-
húðarkirtlum og leiðir til þurrks í
munni, augum og loftvegum,“ segir
Björn og getur þess að sjúkdómur-
inn sé ekki mjög þekktur og því
stundum vangreindur auk þess sem
hann komi fram hægt og rólega,
valdi fyrst þurrki sem áður er
nefndur og síðar geti komið fram
vandi í stoðkerfi með lið- og vöðva-
verkjum ásamt þreytu.
„Þetta er fjölkerfasjúkdómur af
völdum truflana í ónæmiskerfinu
eins og í svo mörgum gigtarsjúk-
dómum og ekki vitað náið um orsak-
ir hans frekar en annarra sjúkdóma
í þessum flokki,“ segir Björn og
nefnir að Sjögrens-heilkennið virð-
ist ekki eins algengt hérlendis og á
hinum Norðurlöndunum. Segir
hann enga augljósa skýringu á því
en algengi hans hérlendis er um það
bil 0,5%. Hann segir rannsóknir á
Sjögrens-sjúkdómnum snúast um
að kanna eðli og meingerð en auk
þurrkeinkenna sem áður eru nefnd
nefnir Björn einnig að sjúkdómur-
inn geti valdið einkennum frá innri
líffærum, t.d. í lungum og melting-
arfærum en þessi fjölbreytta mynd
sjúkdómsins gerir hann áhugaverð-
an til rannsókna að sínu mati. Auk
rannsóknanna verður fylgst með
sjúklingnum sem greinst hafa hér
og þeim veitt þjónusta á göngu-
deildgigtarskorar.
Liðagigt og iktsýki
Af öðrum rannsóknum sem nú
standa yfir á Rannsóknastofu í gigt-
arsjúkdómum má nefna rannsóknir
á hryggikt og bólguþáttum í liða-
gigt. Þá er unnið að rannsóknum á
faraldsfræði, ónæmisfræði og
erfðafræði iktsýki sem er eitt al-
gengasta og alvarlegasta form liða-
gigtar. Er erfðafræðiþátturinn unn-
inn í samvinnu við Íslenska
erfðagreiningu en sjö gigtarlæknar
hafa unnið að rannsókninni sem
tekur til um þrjú þúsund þátttak-
enda. Skráð hafa verið einkenni,
ættarsaga, blóðsýnum safnað til
mælingar á gigtarþætti og ónæm-
isfræðilegum þáttum, m.a. frumu-
boðefnum svo og erfðaþáttum.
Fyrstu niðurstöður rannsóknanna
munu birtast á næstunni í alþjóð-
legu gigtartímariti.
Önnur umfangsmikil verkefni á
sviði gigtarrannsókna hér á landi
sem unnið er að og kynnt verða á
málþingi Gigtarfélagsins eru á sviði
slitgigtar og beinþynningar.
Kristján Steinsson segir að á
næstunni verði á Rannsóknastofu í
gigtarsjúkdómum áfram unnið að
þeim rannsóknum sem þegar eru í
gangi og ný verkefni undirbúin eftir
því sem fjármagn fæst.
að samspil erfða og umhverfisþátta
ráði mestu um tilurð hans. Rauðir
úlfar eru margþátta sjálfsofnæmis-
sjúkdómur sem þýðir að brenglun
verður í ónæmiskerfinu og hún get-
ur haft áhrif á mörg líffærakerfi,
ekki síst liði og stoðkerfi. Þar sem
orsökin er óljós beinist meðferðin
enn sem komið er fyrst og fremst að
einkennunum en ekki orsökinni.
Aukin þekking á meingerð sjúk-
dómsins ætti að stuðla að bættri
meðferð í framtíðinni.“
Ættlægur sjúkdómur
„Hérlendis hefur verið safnað
miklum efniviði og eru yfir 14 fjöl-
skyldur með ættlægan sjúkdóm,
þ.e. hann kemur fram í fleiri en ein-
um einstaklingi í hverri fjölskyldu.
Þessar fjölskyldur hafa verið skoð-
aðar mjög ítarlega. Rannsóknirnar
snúast um leit að erfðaþáttum sem
ráða sjúkdómsmyndinni og hefur
skimun á erfðamengi íslenskra og
sænskra fjölskyldna sem unnin var í
samvinnu við erfðafræðideild Upp-
salaháskóla leitt til þess að áhættu-
svæði fundust á tveimur mismun-
andi litningum, tvö og fjögur, og á
litningi tvö hefur í framhaldinu ver-
ið skilgreint sérstakt áhættugen,
PD-1.“
Gerður segir að athugað hafi ver-
ið frumuboðefni í fjölskyldum með
ættlæga rauða úlfa sem talið er
mikilvægt í meingerð sjúkdómsins.
Frumuboðefnið Il-10 hefur fundist í
auknum mæli í blóði sjúklinga og
ættingja þeirra sem hún segir
benda til áhrifa erfðaþátta á ákvörð-
un um þetta ákveðna boðefni. Einn-
um sem
fræði og
annsókn-
ikilvæga
nnsókna-
lóðbank-
r Gerður
torsprófi
í Stokk-
nnar um
f galla í
ns sem
bólgum í
num. Til
gja rann-
lenskum
m fengið
erður ís-
á Rann-
um.
mikið um
ð er talið
m sinna margháttuðum grunnrannsóknum
r hafa
ra ferli
Morgunblaðið/Jim Smart
rnir Björn Guðbjörnsson og Gerður Gröndal.
joto@mbl.is
m, þær
eru árlega í iðjuþjálfun og sjúkra-
þjálfun. Markmið félagsins er að
auka lífsgæði fólks með gigt-
arsjúkdóma og þeirra sem eiga á
hættu að fá þá. Félagið berst
gegn gigtarsjúkdómum með því
að stuðla að almennri umræðu,
efla meðferð og endurhæfingu,
forvarnir, fræðslu og rannsóknir
og gæta hagsmuna gigt-
arsjúklinga.
Deildir félagsins starfa á Norð-
urlandi eystra, Suðurlandi og
Austurlandi og nokkrir áhuga-
hópar um einstaka sjúkdóma hafa
einnig verið stofnaðir og hópur
foreldra barna með gigt-
arsjúkdóma.
og
hrjáir
ð á
ega.
agna
u-
g
ður. Þá
naður
um.
tofnað
gar nú
agsins
ekin
eru
ar,
ur sér-
mur
árlega