Morgunblaðið - 11.10.2001, Síða 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 49
Nýlátinn er í
Reykjavík dr. Friðrik
Einarsson, fyrrverandi
yfirlæknir við skurð-
lækningadeild Borgar-
spítalans. Er þar genginn einn af
merkari mönnum íslenskrar lækna-
stéttar á síðari hluta tuttugustu ald-
ar. Að loknu kandidatsprófi í lækn-
isfræði vorið 1937 fór hann utan til
Kaupmannahafnar til sérfræðináms
í skurð- og þvagfæralækningum og
fékk sérfræðiviðurkenningu í þeim
greinum skurðlæknisfræðinnar
stuttu eftir heimkomu sína til lands-
ins, en í Danmörku dvaldist hann öll
stríðsárin. Doktorsritgerð sína, sem
fjallaði um upphandleggsbrot, varði
hann við læknadeild Háskóla Ís-
lands árið 1958 og hlaut lof inn-
lendra og erlendra starfsbræðra
fyrir. Strax eftir heimkomu hóf
Friðrik störf í sérgreinum sínum af
fullum krafti, enda harðduglegur,
ósérhlífinn og vel kunnandi. Fór
brátt orð af hæfni hans. Fyrstu ára-
tugina starfaði hann sem sérfræð-
FRIÐRIK
EINARSSON
✝ Friðrik Einars-son fæddist á
Hafranesi við Reyð-
arfjörð 9. maí 1909.
Hann lést á Land-
spítala á Landakoti
27. september síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Foss-
vogskirkju 5. októ-
ber.
ingur við handlækn-
ingadeild Landspítal-
ans en er Borgar-
spítalinn tók til starfa
1963 var hann ráðinn
yfirlæknir skurðlækn-
ingadeildar þessa nýja
spítala og gegndi hann
því starfi næstu 15 ár-
in. Hann kenndi og í
áratugi sérgreinar sín-
ar sem dósent við
læknadeild Háskóla Ís-
lands og þótti afbragðs
kennari.
Það var einmitt á
þessum starfsvettvangi
á Borgarspítalanum sem kynni okk-
ar dr. Friðriks hófust fyrir rúmum
40 árum. Misserin áður höfðu bæði
leikir og lærðir unnið kappsamlega
að því að koma upp fyrstu háls-, nef-
og eyrnadeild landsins og voru þar
margar góðar hendur að verki.
Lausn virtist í sjónmáli og var und-
irritaður, sem þá starfaði við sjúkra-
hús erlendis, kallaður heim til skrafs
og ráðagerða með þessu ágæta fólki.
Því miður reyndist sú aðstaða sem
boðin var ekki fýsileg og kvöddust
menn daprir í bragði enda málið í
óleysanlegum hnút og fórnfúst starf
margra áhugamanna að engu orðið
að því er virtist. Var nú brottför
ákveðin næsta dag. En örlagadísirn-
ar spinna sinn vef, iðulega á ólýs-
anlegan máta. Hringt var í undirrit-
aðan síðla það kvöld og í símanum
var dr. Friðrik Einarsson. Þekkti ég
hann af góðu orðspori einu, en við
höfðum aldrei átt tal saman. Hann
þéraði mig og sagði þessu eftir-
minnilegu orð: „Þér farið hvergi, nýr
liðsmaður úr læknastétt hefur í
kvöld rætt ítarlega við mig um þessi
mál. Þennan hnút leysum við. Ég
hringi til yðar á morgun.“ Daginn
eftir hringdi dr. Friðrik: „Þið fáið tíu
legurúm af skurðdeildinni fyrir ykk-
ar sérgrein. Það ætti að nægja
tveimur sérfræðingum. Einn aðstoð-
arlækna minna mun sinna ykkar
deild eftir þörfum.“ Þar með leystist
hnúturinn og deildin var stofnuð.
Þessi viðbrögð dr. Friðriks lýsa
einkar vel forystuhæfileikum hans
og framsýni í sjúkrahúsrekstri.
Hann hafði einsett sér í upphafi að
gera Borgarspítalann að sérhæfðum
spítala í nútímaskurðlækningum,
m.a. með stofnun nýrra deilda svo
sem heila- og taugaskurðlækninga-
deildar ásamt þeirri sem áður er
getið, sem og gjörgæsludeildar og
bráðamóttöku og stuðlaði mjög að
sérhæfingu í skurðlækningum á
sinni eigin deild, svo eitthvað sé
nefnt. Má því með sanni segja að
hann sé faðir þessara sérdeilda öðr-
um fremur.
Dr. Friðrik var agaður persónu-
leiki sem gerði kröfur til samstarfs-
manna sinna en ekki síst til sjálfs
sín. Ég kveð hann með virðingu og
þökk fyrir mína hönd og samstarfs-
manna minna fyrir forystuhlutverk-
ið og samstarfið. Genginn er einn af
brautryðjendum nútímaskurðlækn-
inga á Íslandi meir að starfa Guðs
um geim.
Eftirlifandi eiginkonu, frú Inge-
borgu, og fjölskyldu sendi ég ein-
lægar samúðarkveðjur.
Stefán Skaftason.
✝ Anna StefaníaJóhannsdóttir
fæddist á Hrana-
stöðum í Svarfaðar-
dal 30. mars 1915.
Hún lést 31. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Anna Pálsdóttir og
Jóhann Jónsson og
var hún eitt af
þremur börnum
þeirra hjóna.
Hinn 8. nóvember
1930 giftist Stefanía
Skarphéðni Jóns-
syni frá Dalvík, d. 2.
júní 1996. Dætur Stefaníu og
Skarphéðins eru: 1) Inga Krist-
ín, maður hennar Jón Tryggva-
son, dætur þeirra eru Björk og
Ingibjörg Hanna, 2) Anna Vil-
fríður, maður henn-
ar Hallgrímur Þór-
hallsson, látinn,
börn þeirra eru
Leifur, Ólöf Þórelf-
ur, Dagný og Þur-
íður Anna, og 3)
Lilja Jónheiður,
ógift og barnlaus.
Stefanía fluttist
með foreldrum sín-
um til Akureyrar
1915, gekk þar í
barnaskóla og vann
síðar ýmis störf.
Lengst af bjó hún í
Ægisgötu 12, flutt-
ist á dvalarheimilið Skjaldarvík
1988 og að dvalarheimilinu
Kjarnalundi 1998.
Útför Stefaníu fór fram mánu-
daginn 10. september.
Elsku amma, þú kvaddir þennan
heim 31. ágúst sl. Þú varst orðin
gömul kona og búin að sinna þínu
hlutverki vel. Þú náðir háum aldri,
96 árum, þú lifðir í næstum heila
öld. Tíu ára fluttist þú til Akureyr-
ar með foreldrum þínum eftir að
hafa verið með þeim í húsmennsku
í Svarfaðardal. Þú hlaust hefð-
bundið barnaskólanám á þeim tíma
og vannst síðan að því loknu hin
ýmsu störf. Á Siglufirði kynntist
þú afa og þið hófuð búskap á Ak-
ureyri. Þið eignuðust þrjár dætur,
Ingu, Villu og Lilju. Þið bjugguð
lengst af í Ægisgötunni ásamt
Palla bróður þínum. Þar bjó líka
pabbi þinn, hann Jóhann langafi,
en hann lést 1961. Eftir að yngsta
dóttirin fæddist vannstu eingöngu
inni á heimilinu.
Þú varst nokkuð hress líkam-
lega, þar til þú dast nú í haust og
lærbrotnaðir, þá var eins og allt
gæfi sig og nú væri komið að því,
þú varst farin að huga að brottför
úr þessum jarðneska heimi. Heimi
þar sem svo margir eru í stöðugu
lífsgæðakapphlaupi, keppast við að
eiga allt það nýjasta og dýrasta.
Lífsgæðakapphlaupið snerti þig
ekki, þú varst aldrei að keppast
við lífsgæðin sem felast í dauðum
hlutum. Þú vildir umfram allt vera
þú sjálf, vera heiðarleg og reyna
að láta gott af þér leiða. Þú lifðir
fremur einföldu og fábrotnu lífi
miðað við marga í dag. Þú ferðað-
ist svo til ekkert, fórst stöku sinn-
um til Dalvíkur og austur í Mý-
vatnssveit, en það var allt og sumt.
Þið afi eignuðust aldrei bíl, þið fór-
uð allra ykkar ferða gangandi.
Lengi vel áttuð þið ekki síma,
þvottavél eða ísskáp þegar slík
tæki voru komin á svo til öll heim-
ili og þetta fannst mér afar und-
arlegt en ég held að þessir hlutir
hafi skipt þig frekar litlu máli. Þú
söngst í kirkjukór Akureyrar-
kirkju og starfaðir í kvenfélagi
kirkjunnar. Þú varst mikil hann-
yrða- og saumakona, gerðir ýmsa
fallega muni sem þú gafst á basara
bæði í kirkjunni og í KFUK. Þú
varst nýtin kona og nýttir alla
hluti til hins ýtrasta, hvort sem um
var að ræða pappír, mat eða klæði,
stundum fannst mér nýtni þín of
mikil, en þetta var þinn lífsstíll.
Hver og einn verður að hafa sinn
lífsstíl. Þú hafðir svo sannarlega
þinn stíl, hann var fábrotinn, ein-
faldur og reglulegur. Þegar árin
fóru að færast yfir og ellikerling
að setja mark sitt á líf þitt og afa
fluttuð þið á Skjaldarvík 1988. Afi
kvaddi þennan heim í júní 1996 en
þú hélst áfram og ellikerling varð
þaulsætnari í huga þér. 1998 flutt-
ir þú þig um set og fórst í Kjarna-
lund. Síðustu árin þekktir þú fáa
af þínum nánustu en þér leið vel,
þú gast gengið, þú raulaðir gamlar
vísur sem margar hverjar eru
mönnum löngu gleymdar og grafn-
ar en þú hafðir lært sem ung
stúlka. Þú spurðir um veðrið og
hvaða dagur væri í dag. Ég er viss
um að þú kvaddir þennan heim
södd lífdaga og tilbúin að hverfa á
annað tilverustig. Þú ert svo sann-
arlega búin að gegna þínu hlut-
verki á þessari jörð. Elsku amma
hafðu þökk fyrir allt. Þín
Björk.
STEFANÍA
JÓHANNSDÓTTIR
við Nýbýlaveg, Kópavogi
)$"
<
7>?6>; @-:?,A>B;
&
! " ! 1! !
4 &>2>" "
E($ '=FF?
& &2 ( )$"
,$
! ,
C ?
& &
! " ! )!
7>?6>; @-:?,A>B;
!
!2305$2B
205$2B
305$2B
1> .(05$2B(
>
/
%
%
$
& $
$
! ):
'
) 5$2
)>(
;
/
;
!"%"/
/ 9A"$
.1
&
% "
.
2$
+2"$
9>2% 4
37 "$
+2'$ 9A
2 23% "
/2 2 $
4>2&3%""
23 A$
"
/7 /""$
' ' $ ' ' ' (
>
/
%
%
$ (
$
$ ! !*
0/ -00
3"'=E
%(
;
/
-
"
0
"$
22 "
"
/&2%"
"$
""$
'
' ' $
' ' ' (
>
/
/
%
$ $
$
!:*0/
.> 22&?
/ 2 "&(
3
1 $
$ 3$
+2'$ #
& 3$
/2% '$ .>"
!"1 $
' ' $ ' ' ' (
>
/
%
%
$
(
& $
$
/)!
)1 5&&G
1%(
4%! 2
"
7 4 $
! "$
H5$3 "$
4%H52$!
*23 ! $
2 "$
!"3 3>
3> -%"2 $
- 3 2
/%"$
"
"/%$
4%/%
&>/%$
!%2"$
"2
"2 !%2$
!"'1 .1 (