Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 57
hreppur). Þótt allt landið og allir
landsmenn skipuðust þannig í
hreppa, yrði eftir sem áður talað um
borgina Reykjavík, um bæina Selfoss
og Seyðisfjörð og um sveitirnar
Fljótshlíð og Bárðardal, svo að dæmi
séu tekin.
Hreppanafnaskrá: Grindavíkur-
hreppur, Keflavíkurhreppur, Sand-
gerðishreppur eða Miðneshreppur,
Hafnarfjarðarhreppur, Garðahrepp-
ur, Kópavogshreppur, Reykjavíkur-
hreppur, Seltjarnarneshreppur,
Mosfellshreppur, Akraneshreppur,
Reykholtshreppur, Borgarnes-
hreppur, Borgarhreppur eða Mýra-
hreppur, Snæfellshreppur, Eyrar-
hreppur eða Grundarfjarðar-
hreppur, Helgafellshreppur, Stykk-
ishólmshreppur, Dalahreppur eða
Búðardalshreppur, Patrekshreppur,
Ísafjarðarhreppur, Hvammstanga-
hreppur, Blönduóshreppur, Sauðár-
krókshreppur, Siglufjarðarhreppur,
Ólafsfjarðarhreppur, Dalvíkur-
hreppur, Hörgárhreppur, Akureyr-
arhreppur, Laugalandshreppur eða
Eyjafjarðarhreppur, Húsavíkur-
hreppur, Jökulsárhreppur eða
Brúaráshreppur, Egilsstaðahrepp-
ur, Seyðisfjarðarhreppur, Neshrepp-
ur, Hafnarhreppur, Vestmannaeyja-
hreppur, Selfosshreppur, Þorláks-
hafnarhreppur og Hveragerðis-
hreppur.
Þegar fjallað er um tilgreinda
staði, kallast stjórn sveitarfélags nú
ýmist hreppsnefnd, sveitarstjórn,
bæjarstjórn eða borgarstjórn.
Reyndar er algengt, þegar fjallað er
um hrepp, að segja stjórn sveitarfé-
lagsins, má vera til að forðast orðið
hreppur. Ef alls staðar héti hreppur,
mundi alls staðar heita hreppstjórn
og hreppsráð, og tilfinningamunur,
sem nú tengist ólíkum heitum, hyrfi.
BJÖRN S. STEFÁNSSON,
dr. scient.
Kleppsvegi 40, Reykjavík.
LANDSBYGGÐIN á undir högg
að sækja, það ætti ekki að dyljast
neinum manni. Það er altalað að
tilhögun fiskveiðistjórnunarmála í
landinu eigi þar stóra sök á. Það
vantar ekki hafnirnar allt í kring-
um landið, en nú eru þær að verða
víða eins og dauðs manns gröf. Þar
sem áður sló lífæð byggðarlagsins
er nú fátt um að vera. Þegar
stjórnvöld afhenda útvöldum gæð-
ingum lífsbjörg þjóðarinnar á silf-
urfati sérhagsmunastefnunnar er
ekki von á góðu. Við stöndum því í
þeim sporum að vera síst betur
sett en meðan útlendingar óðu hér
með botnvörpur sínar upp í land-
steina.
Þeir voru skilgreindir sem sjó-
ræningjar og ógn við þjóðlega
hagsmuni og allir höfðu það á
hreinu. Þeir tóku fiskinn og lífs-
björgina frá okkur og við gátum
lengi vel ekki rönd við reist. Þá
hefði sannarlega þurft að hafa
Vogavarðskip allt í kringum land-
ið. En þjóðin náði smám saman
tökum á hafrétti sínum og átti
merkilegt hlutverk í því að koma
alþjóðlegri viðurkenningu á land-
grunnsrétti þjóða í gegn. Eftir að
landhelgin varð öll í okkar höndum
töldu margir að mikil gósentíð
rynni upp á Íslandi, en reyndin
varð önnur. Sterk sérhagsmunaöfl
unnu markvisst að því að tryggja
sér umráðarétt yfir auðlind þjóð-
arinnar og með atfylgi stjórnmála-
manna tókst að koma því kerfi á
sem var og er eins og blaut tuska í
andlit þeirrar þjóðar sem barðist
fyrir landhelgishugsjóninni. Þegar
innlendir aðilar fengu leyfi til að
stimpla auðlindina sem séreign
sína mátti segja að staðan væri
komin í mjög svipað far og hún var
meðan útlendingar óðu hér uppi.
Nú eru það innlendir hákarlar sem
vaða uppi og kerfið allt þjónar
hagsmunum þeirra með dæma-
fáum vinnubrögðum. Skítt með
þjóðina og frelsi manna til lífs-
bjargar.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur
löngum talið sig halda á lofti gildi
einstaklingsfrelsisins og sagst vilja
vernda framtaksréttindi manna,
hefur brugðist algerlega varðandi
þessi grundvallaratriði stefnu
sinnar, þegar kvótakerfið hefur
verið annars vegar. Menn hafa
verið gerðir að milljarðamæring-
um á nokkrum árum með stjórn-
valdsaðgerðum, en aðrir hafa verið
sviptir því frelsi sem feður þeirra
og afar höfðu og töldu sjálfgefið að
yrði til frambúðar. Vinnubrögðin
eru svo ógeðsleg að þeim verður
ekki jafnað við annað en það sem
gerist í harðsvíruðum einræðis-
ríkjum. Og nú er almenningur far-
inn að stimpla tiltekna þingmenn
sem fulltrúa þessa og hins sæ-
greifaveldisins. Hvar er lýðræðið í
þessu landi þegar fólk er farið að
ganga út frá því sem bláköldum
veruleika, að löggjafarvaldið í
landinu sé undirgefið auðmjúkri
þjónustu við hin stjórnvaldssköp-
uðu peningaöfl kvótagreifanna? Ég
bara spyr.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
Kvótakerfið –
ljóta kerfið
Frá Rúnari Kristjánssyni:
Styrkir
og
verndar
NAGLASTYRKIR
Nýbýlavegi 12 - sími 554 4433
Fallegar úlpur
Kr. 7.900
Innilegar þakkir færum við þeim sem heiðruðu
okkur með nærveru sinni, gjöfum og hlýhug í
afmælisfagnaði okkar 7. okt. sl. Sérstakar
þakkir til hreppsnefndar Gerðahrepps og
kvennfélagsins Gefnar. Guð varðveiti ykkur.
Sólveig Sigrún Oddsdóttir
Jón Hjálmarsson