Morgunblaðið - 11.10.2001, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2001 63
Miðbærinn undirlagður
Airwaves-hátíðin fer fram á nokkrum tón-
leika- og skemmtistöðum í miðborginni, auk
þess sem tónleikar verða í Listasafni Reykjavík-
ur. Tónleikar verða á Gauki á Stöng, í Leik-
húskjallararanum, Spotlight, Thomsen, Hverf-
isbarnum, Kaffibarnum, Prikinu, Club 22,
Vegamótum, Sirkus og Bar 101.
Hljómsveitirnar íslensku leika margar gerðir
tónlistar, allt frá hardcore í sveimkennda dans-
tónlist. Sumar hafa þær áður leikið á Airwaves-
hátíðinni en aðrar eru að taka þátt fyrsta sinni.
Hátíðin hefur annars reynst hljómsveitum vel til
að koma sér á framfæri og þannig bauðst Sigur
Rós samningur eftir að útgefandi sá hljómsveit-
ina spila á fyrstu Airwaves-hátíðinni. Quarashi
komst einnig í samband við útgáfu vestan hafs í
framhaldi af Airwaves.
Sigur Rós og fleiri
Að þessi sinni leika íslensku hljómsveitirnar
og tónlistarmennirnir Sigur Rós, Singapore
Sling, Trabant, Emilíana Torrini, sem kemur
með hljómsveit sína, Svanur Kristbergsson, At-
ingere, Apparat Organ Quartet, Sólstafir, Fídel,
200.000 naglbitar, Jakob Frímann Magnússon,
Vígspá, Klink, Elíza Geirsdóttir forðum liðskona
Bellatrix sem kemur fram með nýrri hljómsveit
sinni, Dr. Spock, Snafu, Strigaskór #42, Fune-
rals, Stjörnukisi, I Adapt, Botnleðja, Ensími,
Andlát, Mínus, Lace, Ný dönsk, Sóldögg, Kuai,
Jagúar, Óskar Guðjónsson, Sofandi, Nattfari,
Lúna, Magga Stína og Hringir, Fúga, Afkvæmi
guðanna, Leafes, Bris, Kritikal Mazz, Þórunn
Antonía, Stolið, Battery, Dead Sea Apple, Út-
ópía, Anthony & Maximum, Cybjorn, Suð, XXX
Rottweiler hundar, Maus, Tommi White, Gus Gus
dj set, Páll Óskar, The Worme Is Green, Krilli,
Prins Valíum, Ampop, Einoma, Skurken, Plastik,
Biogen og Ilo og plötusnúðarnir Balli, Ingvi, Hab-
it, Margeir, Kári, Árni E, Sóley, Mr. Brown,
Tommi White, Sammi, Rampage, Ingó, Mad Erb,
Bjossi, Petur, Cory Love og Pétur Sturla.
Nýtt efni kynnt
Sumar hljómsveitanna eru að kynna nýjar plöt-
ur og væntanlegar; Apparat Organ Quartet, Fíd-
el, Jakob Frímann Magnússon, Klink, Strigaskór
#42, Stjörnukisi, Botnleðja, Ný dönsk, Kuai,
Jagúar, Sofandi, Lúna, Hringir, Þórunn Antonía,
XXX Rottweiler hundar, Páll Óskar, Prins Valí-
um, Skurken, Plastik og Ilo Þess má geta að Sig-
ur Rós verður rétt komin úr tónleikaferð til Japan
þegar hún treður upp í Listasafni Reykjavíkur
fimmtudaginn 18. október nk. og Cybjörn er
hljómsveit Björns „Basta“ Baldvinssonar sem
ekki hefur áður leikið hér á landi.
Erlendir gestir
Átta hljómsveitir koma að utan, þar af sex frá
Bandaríkjunum; Big in Japan, Citizen Cope, The
Apes, Sparta og Lake Trout, en þess má geta að
Sparta er skipuð nokkrum fyrrum meðlimum At
The Drive-In sem vakti mikla athygli á síðasta
ári. Frá Norgi kemur hljómsveitin Twee-
terfriendly Music og kvennasveitin Chicks on
Speed frá Þýskalandi, sem leikur rafnagnað
poppað pönk. Plötusnúðar koma einnig að utan,
Ryan frá Þýskalandi og frá Bretlandi þeir Doc
Scott, Jamie & Alex, Paul Hunter, Murray
McKee og Andy Weatherall, en Doc Scott er einn
helsti drum ’n bass plötusnúður Breta, þeir Jamie
& Alex reka Fat Cat útgáfuna sem gefur meðal
annars út Múm og Sigur Rós, og Andy Weather-
all er einn áhrifamesti plötusnúður Bretlands til
margra ára, en undanfarið hefur hann meðal ann-
ars rekið hljómsveit sína Two Lone Swordsmen.
Upphafstónleikar hátíðarinnar verða í Lista-
safni Reykjavíkur miðvikudaginn 17. október og
þá koma fram Citizen Cope og Emilíana Torrini
með hljómsveit sinni, en síðar um kvöldið verða
harðkjarnatónleikar á Gauknum. Hátíðinni lýkur
síðan með tónleikum á Club 22 og í Thomsen.
Emilíana Torrini hefur leikið vítt og breitt um
heiminn undanfarið og verður fróðlegt að sjá
það sem hún hefur haft fram að færa.
Páll Óskar
mun örugglega
flytja lög af
væntanlegri
plötu sem kem-
ur út fyrir jól-
in.
Villi og félagar, 200.000 naglbítar, eru
komnir á stjá á nýjan leik og kynna til
sögunnar nýjan trommara.
Chicks on
Speed heim-
sækir landann
og leikur á
Airwaves.
Á sjöunda tug hljómsveita
Icelandic Airwaves-tónlistarhátíðin
17. OKTÓBER næstkomandi hefst árleg tónlistarhátíð í Reykja-
vík sem hlotið hefur nafnið Icelandic Airwaves. helsti tilgangur
hátíðarinnar er að gefa íslenskum hljómsveitum kost á að kynna
það sem þær hafa fram að færa, en jafnan er mikill fjöldi útsend-
ara erlendra útgáfufyrirtækja og blaðamanna gestkomandi á há-
tíðinni. Einnig hafa erlendar hljómsveitir troðið upp á Airwaves,
sumar býsna vinsælar, en þær eru færri að þessu sinni. Hátíðin
stendur fram á sunnudag 21. október.
FÓLK Í FRÉTTUM
betra en nýtt
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 8
og 10.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
FRUMSÝNING FRUMSÝNING
Með sama genginu
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 269Sýnd kl. 8 og 10.
FRUMSÝNING
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 10.10.
Kvikmyndir.com RadioX
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 6. Ísl tal.
Stór fengur
Tveir þjófar
Hverjum er
hægt að
treysta
FRUMSÝNING
Kvikmyndir.com HK. DV
Sýnd kl. 10. Vit270
Sýnd kl. 6.
Ísl tal. Vit 245Sýnd kl. 8.
X-ið
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 269
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Hrikalega flott ævintýramynd með hinum sjóðheita og sexý
Heath Ledger (Patriot). Hugrakkar hetjur, fallegar meyjar,
brjálaðar bardagasenur og geggjað grín. Búðu þig undir
pottþétta skemmtun! Cool Movie of the Summer! Rolling
Stone Magazine Hann Rokkar feitt!
Sýnd. 5.30, 8 og 10.30.
Frá leikstjóra
Romeo &
Juliet.
Stórkostleg
mynd með
mögnuðum
leikurum og
frábærum
lögum
Moulin Rouge er án efa besta mynd
ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
Empire
FRUMSÝNING