Morgunblaðið - 19.10.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.10.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ TEKJUR af hraðlest á milli Reykja- víkur og Keflavíkur myndu standa undir rekstrarkostnaði lestarinnar en eftir stæði framkvæmdakostnaður sem yrði á bilinu 24,1–29,5 milljarðar króna. Þetta er meðal niðurstaðna áfangaskýrslu vegna hagkvæmniat- hugunar á lestarsamgöngum milli staðanna sem kynnt var á blaða- mannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Það voru breska ráðgjafafyrirtæk- ið AEA Technology Rail og Ístak hf. sem unnu skýrsluna fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og Borgarverkfræðing- inn í Reykjavík. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra var hvatinn að því að gera þessa hag- kvæmnikönnun umræðan um flutn- ing innanlandsflugsins úr Vatnsmýr- inni á nýjan flugvöll annaðhvort í nágrenni Reykjavíkur eða til Kefla- víkur. „Það kom strax fram í þeirri umræðu að ein af forsendum þess að flytja þessa flugstarfsemi væri að komið væri á samgöngumáta milli væntanlegs flugvallar og borgarinn- ar sem gæti verið það skilvirkur að hægt væri að flytja þessa flugstarf- semi úr Vatnsmýrinni,“ sagði hún á fundinum í gær. Gert er ráð fyrir þremur lestar- stöðvum á leiðinni og yrði endastöðin Reykjavíkurmegin annaðhvort í Mjódd eða í nágrenni Vatnsmýrar- innar sem skýrir mun á kostnaðarút- reikningum, en endastöð nálægt mið- borginni yrði mun dýrari og myndi kosta nálægt 30 milljörðum. Ferðir yrðu að jafnaði á 30 mínútna fresti meðan Keflavíkurflugvöllur er opinn en sennilega yrði lengra á milli ferða utan annatíma, en færi niður í 15 mín- útur á mesta annatíma. Verði Mjóddarkosturinn fyrir val- inu er gert ráð fyrir einfaldri braut- arstöð í Garðabæ og endastöð nálægt verslunarmiðstöðinni í Mjódd. Gerð járnbrautar með endastöð við Reykjavíkurflugvöll er öllu flóknari þar sem hún klofnar frá Reykjanes- braut nálægt Arnarnesvogi og liggur í göngum undir Kópavog og undir Öskjuhlíðina að endastöð. Þá yrði neðanjarðarstöð gerð við Smáralind. Brautarstöðin í Keflavík yrði við flugstöðina en við afleggjarann til Grindavíkur yrði sett brautarstöð við Bláa lónið, sýni frekari athugun að það sé arðbært. Í Hafnarfirði yrði brautarstöðin sennilega í syðri hluta bæjarins. Í skýrslunni kemur fram að járn- brautin yrði lögð austan Reykjanes- brautar mestan hluta leiðarinnar. Í byggð yrði brautin víðast tvíspora en á óbyggðum svæðum einspora en tví- spor þar sem lestirnar mætast. Kannaðir voru fjórir kostir varðandi hvers kyns lest væri hentugust fyrir umrædda leið, hefðbundin járnbraut, sporvagnar, tvíhátta járnbraut, sem sameinar kosti járnbrautar og spor- vagna og svokölluð sjálfrennireið, þar sem akstur lestarinnar er sjálf- virkur og án lestarstjóra sem æki með. Niðurstöðurnar voru þær að hefðbundin hraðlest yrði heppilegasti kosturinn á leiðinni. Býður hún upp á mestan hraða, eða um 160 kílómetra á klukkustund, og þannig yrði ferða- tíminn milli Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar 30 mínútur. Þetta er jafnframt dýrasti kosturinn. Flutningur innanlandsflugsins skiptir ekki sköpum Á kynningarfundinum kom fram að gangi spár um fjölgun ferðamanna eftir er talið að tekjur vegna lestar- innar myndu standa undir rekstrar- kostnaði hennar. Sagði Ingibjörg Sólrún að þá væri ekki talið skipta sköpum hvort Reykjavíkurflugvöllur flytji úr Vatnsmýrinni eða ekki þó að vissulega yrðu tekjur meiri ef flugið flyttist. Sagði Edwin Marks, fulltrúi AEA Technology og verkefnisstjóri könnunarinnar, hins vegar ólíklegt að tekjurnar myndu borga niður kostnað við að koma upp kerfinu. „Þetta er mjög algengt í lestarsam- göngum í Evrópu að lestirnar standa undir eigin rekstrarkostnaði en það er mjög sjaldan að þær standa undir fjárfestingarkostnaðinum. Miðað við þetta virðist það vera þess virði fyrir samfélagið að íhuga hvort ávinning- urinn fyrir samfélagið og ferðaþjón- ustuna sé kostnaðarins virði,“ sagði hann. Kom fram á fundinum að næsta skref væri að meta slíka þjóðhags- lega hagkvæmni og segir í skýrslunni að hugsanlegur ávinningur fyrir járnbrautartengingu á umræddri leið sé styttri ferðatími fyrir flugfarþega, minni þörf á innfluttum orkugjöfum þar sem um væri að ræða rafmagns- lestir auk þess sem draga myndi úr bílaumferð og þar með slysum. Undirbúningur tæki 8–10 ár Í máli Ólafs Bjarnasonar, yfirverk- fræðings hjá Borgarverkfræðingi, kom fram að töluvert langt er þangað til lestin gæti orðið að veruleika því undirbúningur slíkrar framkvæmdar einn og sér gæti tekið 8 –10 ár. „Við- horfið núna er kannski ekki síst að horfa til þess að taka frá land og hvernig þetta getur fallið inn í fram- tíðarskipulag,“ sagði hann. Kom fram á fundinum að þannig væri horft til þeirrar vinnu sem nú stendur yfir varðandi svæðisskipulag höfuð- borgarsvæðisins og aðalskipulag Reykjavíkur en hvort tveggja gildir til ársins 2024. Sagði Ingibjörg mik- ilvægt að þar yrðu ekki teknar þær ákvarðanir sem kæmu í veg fyrir að lestin gæti orðið að veruleika. Að sögn Ingibjargar yrði fjár- mögnun lestarinnar sameiginlegt verkefni ríkis og þeirra sveitarfélaga sem að henni kæmu og er ákvörðun þar um háð samþykki þessara aðila. Hún sagðist þó sannfærð um að í framtíðinni yrði í ríkari mæli horft til lestarsamgangna sem fýsilegs sam- göngukosts. „Ég er sannfærð um að tíminn mun vinna með okkur í þessu efni. Víða erlendis í borgum af ann- arri stærðargráðu en Reykjavík sér maður að grunngerð þessara borga er hrunin vegna umferðar,“ sagði hún og nefndi borgir eins og London og Moskvu sem dæmi. „Menn komast ekki leiðar sinnar heldur sitja fastir í umferðinni þannig að það verður að taka á þessum málum og þróa aðra samgöngumiðla en verið hafa hingað til ef þessar borgir eiga að virka. Ég held líka að ef eitthvað er muni þetta verða ódýrara þegar fram líður.“ Fyrsta áfanga hagkvæmniathugunar á lestarsamgöng- um milli Keflavíkur og höfuðborgarinnar lokið Þetta er samskonar lest og rætt er um. Gert er ráð fyrir að hún fari á 160 km hraða á klst. þannig að ferðatím- inn milli Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar yrði um 30 mínútur. Tekjur stæðu undir rekstrarkostnaði Reykjavík Morgunblaðið/RAX Edwin Marks verkefnisstjóri, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, voru meðal þeirra sem kynntu niðurstöður hagkvæmniskýrslunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.