Morgunblaðið - 19.10.2001, Page 38

Morgunblaðið - 19.10.2001, Page 38
✝ Úlfar EinarKristmundsson var fæddur í Reykja- vík 30. ágúst 1929. Hann lést á Landspít- ala í Fossvogi 11. október síðastliðinn. Móðir hans var Hall- dóra Björnsdóttir iðnrekandi og hús- móðir, f. 10.12. 1905, d. 22.1. 1951. Faðir hans var Kristmund- ur Guðmundsson prentari, f. 18.2. 1903, d. 5.1. 1961. Bróðir Úlfars er Björn Kristmundsson, f. 8.12. 1937. Hans kona er Sigríður Kjartansdóttir, f. 21.3. 1939. Þeirra börn eru Kjartan Halldór, f. 28.3. 1957, d. 10.10. 1974, Hall- dóra, f. 12.4. 1961, og Kristín, f. 13.8. 1974. Hinn 24. mars 1951 kvæntist Úlfar Þóru Viktorsdóttur hús- móður, f. 30.4. 1929. Hennar for- eldrar voru Viktor Björnsson, f. 4.11. 1901, d. 4.10. 1997, og Frið- mey Jónsdóttir, f. 14.9. 1904, d. 15.5. 1986. Börn Úlfars og Þóru eru: 1) Halldór, starfsmaður Toyota, f. 13.4. 1952. Eigin- kona hans er Inga Jóhanna Birgisdótt- ir tannfræðingur, f. 17.6. 1957. Þeirra börn eru Ásdís, f. 5.11. 1979, og Úlfar Þór, f. 29.3. 1987. 2) Þóra, skrifstofu- stúlka, f. 22.6. 1960. Eiginmaður hennar Ásgeir Magnússon, deildarstjóri hjá Danól. Þeirra börn eru Magnús, f. 22.12. 1985, Þóra Björg, f. 30.6. 1988, og Erla, f. 27.1. 1994. Úlfar tók stúdentspróf frá M.R. 1951 og guðfræðipróf frá H.Í. 1956. Hann vann almenn verzlun- arstörf 1956-1962, var kennari við Vogaskóla 1962-1963 og við Verzlunarskóla Íslands 1963- 2001. Einnig rak hann heildverzl- unina Satúrnus hf. ásamt eigin- konu sinni 1962-1989. Útför Úlfars fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Tengdafaðir minn Úlfar Krist- mundsson var hjartahlýr maður. Hann var hreinskiptinn og kom alltaf til dyranna eins og hann var klæddur. Hann var gæddur mikilli frásagnar- gleði sem ég fékk að njóta í gegnum árin og sögurnar hans, sem voru hver annarri skemmtilegri, munu seint gleymast. Ég veit að tengdafaðir minn var vinsæll stærðfræðikennari í Verslunarskóla Íslands. Hann var áreiðanlega strangur kennari en ég veit að það var hann vegna þess að hann vildi nemendum sínum það allra besta í faginu. Það var gott að geta leitað til afa með aðstoð við stærð- fræðina, það fékk Ásdís dóttir mín að reyna í gegnum menntaskólaárin. Eftir rúmlega tuttugu og fimm ára samfylgd er margs að minnast og fyr- ir margt að þakka. Blessuð sé minn- ing hans. Inga Jóhanna Birgisdóttir. Ekkert líf án dauða, enginn dauði án lífs. Þessi orð komu mér í huga þegar ég sat hjá bróður mínum sem barðist fyrir lífi sínu á Landspítala í Fossvogi. Skákinni lauk með sigri dauðans að þessu sinni og sitjum við ættingjarnir eftir harmi slegnir. Ég á margar minningar um góðan dreng og ætla ég að rifja nokkrar þeirra upp hér. Úlfar er mér mikill harmdauði, ekki bara sem bróðir heldur einnig sem vinur og jafnvel föðurímynd. Á unglingsárunum reyndist hann mér sem annar faðir og ávallt síðan. Úlfar var átta árum eldri en ég og var góð- ur eldri bróðir sem gott var að eiga að ef á móti blés. Þegar ég var á fermingaraldri kom fyrsta ógæfan yfir fjölskylduna, en þá dó móðir okkar skyndilega. Úlfar var þá búinn að finna konuefni sitt, hana Þóru Viktorsdóttur, og fljótlega giftu þau sig og stofnuðu sitt eigið heimili. Umhyggja Úlfars fyrir mér og pabba var það mikil að hann lagði það á sig og sína ungu konu að taka okkur feðga inn á heimili þeirra. Þegar ég lít til baka sé ég hvað það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir ungu hjónin að hafa okkur pabba yfir sér öllum stundum. Þetta verður seint fullþakkað ef það verður þá nokkurn tíma hægt og kemur þar til manngæska og sam- heldni þeirra hjóna. Úlfar var mikill keppnismaður og var í boltaíþróttum á sínum yngri ár- um og þótti vel liðtækur. Hann var einnig góður skákmaður og hafðir gaman af bridge. Úlfar var fé- lagslyndur með afbrigðum. Kom hann oft með hóp skólabræðra sinna heim til að tefla og spila. Þar sem mikill aldursmunur var á okkur var ég sendur út og sagt að leika mér annars staðar þannig að þeir gætu teflt eða spilað í ró og næði. Sennilega er það ástæðan fyrir því að ég hef haft lítinn áhuga á tafli og bridge um ævina. Umhyggja Úlfars fyrir mér var mikil. Hann gerði allt sem hann gat til þess að ég fengi að njóta þeirra gæða í lífinu sem hann fékk. Þegar hann eignaðist sinn fyrsta bíl fannst honum til dæmis sjálfsagt að lána mér bílinn sinn ef ég þurfti á að halda. Úlfar og Þóra voru einstaklega samrýnd hjón sem sinntu áhugamál- um sínum í sameiningu. Úlfar átti sér mörg áhugamál um ævina en yfirleitt bara eitt í einu. Ég minnist þess þeg- ar hann fékk hestabakteríuna og þau hjónin keyptu sér gæðinga og riðu út um land allt. Oft sagði hann mér sög- ur af hestaferðum og reyndi að smita mig um leið. Eitt skiptið bað hann mig um að aka birgðabílnum þegar hann fór með Þóru og öðru fólki í nokkurra daga hestaferð. Ég tók konuna mína með í ferðina og þegar við komum upp í Borgarfjörð kom Úlfar til okkar og sagði okkur að taka þarna sinn hestinn hvort. Úlfar keyrði þá bílinn en við riðum inn Hvítársíðuna. Þetta var virkilega skemmtileg og eftirminnileg ferð enda eini reiðtúrinn sem ég hef farið í. Næst tóku skíðin við og þá gekk honum betur að smita mig og áttum við saman margar gleðistundir í Kerlingarfjöllum. En síðasta áhuga- málið var golfið. Á árum áður hafði Úlfar sagt að golfið væri bara íþrótt fyrir ellilífeyrisþega. Og þegar hann náði þeim aldri hellti hann sér út í golfið og hafði mikla unun af. Að hann skyldi ekki hafa byrjað fyrr í golfi er synd því svo mikinn áhuga sýndi hann íþróttinni og var öllum stundum á vellinum ef til þess viðraði. Úlfar rak heildverzlun ásamt konu sinni og vann ég hjá þeim til margra ára. Þá gaf hann mér það ráð að reið- ast aldrei það mikið að ég tapaði á því sjálfur. Ég hef ætíð reynt að fara eftir því og ráðlagt dætrum mínum að gera það einnig. Nú þegar Úlfar bróðir er horfinn yfir móðuna miklu munu minning- arnar um góðan dreng ávallt halda nafni hans á loft. Ég bið hinn Hæsta Höfuðsmið himins og jarðar að varð- veita Úlfar að eilífu. Og um leið og ég kveð minn kæra bróður vil ég biðja góðan Guð um að styrkja Þóru, Hall- dór og Þóru yngri og fjölskyldur þeirra. Björn Kristmundsson. Mig langar að kveðja föðurbróður minn með fáeinum orðum. Hann fór fyrr en okkur óraði fyrir, enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Úlfar var mikill uppáhaldsfrændi, og hafði sterk áhrif á mig í uppvext- inum. Á yngri árum var ég tíður gest- ur á Víðimelnum og síðar í Huldu- landinu. Það er aðeins tæpt ár á milli okkar Þóru frænku, dóttur Úlfars, og samskiptin því mikil. Úlfar fylgdist alltaf með því sem ég var að gera og var áhugasamur, þegar ég var að segja honum frá námi og síðar störf- um. Oft á tíðum spunnust heitar um- ræður. Úlfari var margt til lista lagt; hann tefldi og spilaði bridge, var vel lið- tækur í badminton, og var á yngri ár- um í handbolta með Val. Hann var mikill ljóðaunnandi og þær voru ófáar vísurnar sem hann kunni. Mest gam- an hafði hann af hnyttnum vísum og húmorískum og hafði oft á orði að miklu auðveldara væri að læra þær sem hann átti ekki að læra en hinar! Þegar Úlfar varð fertugur ákvað hann að læra á skíðum og skellti sér með fjölskylduna á skíðanámskeið í Kerlingarfjöll. Það var upphafið að mikilli skíðaiðkun því segja má að þarna hafi Úlfar fengið skíðadellu. Hann fór í margar skíðaferðir bæði innanlands og utan og hafði bæði gott og gaman af. Ég á þeim hjónum Úlf- ari og Þóru það að þakka að ég lærði á skíðum. Þær voru ófáar ferðirnar upp í Bláfjöll, Hveradali, Skálafell og Kerlingarfjöll sem ég fór með þeim, já og jafnvel til Noregs. Það kom sér vel þegar ég var í Versló, og hann kennari þar, þegar ég þurfti að fá frí vegna skíðaferða og keppni, Úlfar bjargaði því. Hann bar jú að vissu leyti ábyrgðina því hann kom mér á skíðin í upphafi! Einnig var gott að eiga Úlfar að á námsárunum, hann var alltaf boðinn og búinn að aðstoða frænku sína fyrir próf. Hann var klókur í stærðfræðinni, sinni kennslugrein, og sagði oft við mig hughreystandi, þegar ég var að bug- ast á talnafléttunum, að við í þessari ætt værum „svo sem engir stærð- fræðingar en talnaglögg“ og gætum vel reiknað! Fyrir nokkrum árum fékk Úlfar aðra dellu, að spila golf. Það fór vel saman að spila golf á sumrin og renna sér á skíðum á veturna. Hann þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Á bak við oft hrjúft yfirborð var viðkvæmur og tilfinningaríkur mað- ur, sem mátti ekkert aumt sjá; það vita allir sem þekktu hann vel. Hann bar hag fjölskyldu sinnar ávallt fyrir brjósti og einnig allra nemenda sinna. Úlfar var ekki alltaf tilbúinn að tala um persónuleg mál og hafði ég oft hugboð um það að hann hræddist sín- ar miklu tilfinningar. Úlfar, frændi minn, ég á þér margt að þakka og alltaf var ég stolt af því að vera frænka þín. Ég þakka þér fyrir að hafa verið föður mínum góð- ur bróðir. Þú og Þóra tókuð við upp- eldinu á honum þegar hann var rétt 13 ára eftir að móðir ykkar féll frá snögglega. Þið voruð rétt um tvítugt og að hefja ykkar búskap. Ég held að enginn hafi áttað sig á því hvað þetta var í raun vandasamt verk og mikil ábyrgð. Ég þakka þér fyrir að hafa reynst okkur pabba og mömmu vel í veikindum Kjartans bróður og ég þakka þér fyrir að hafa reynst Krist- ínu systur vel. Eftir að hún fór að kenna var það henni ómetanlegur styrkur að geta leitað til þín. Hún fékk ávallt góð ráð, sem undantekn- ingarlaust reyndust vel. Far þú í guðs friði, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Þóra stóra, Halldór, Þóra litla og fjölskyldur. Megi góður guð vera ykkur styrkur. Halldóra N. Björnsdóttir. Fyrir nokkrum vikum síðan var fjölskyldan öll saman komin í brúð- kaupinu mínu. Þetta var fallegur dag- ur, sólin skein og laufin farin að roðna. Það var langt síðan við höfðum öll komið saman síðast og ekki óraði mig fyrir því að við ættum eftir að sameinast aftur svona fljótt. Samein- ast til að kveðja föðurbróður minn hann Úlfar Kristmundsson. Ég var að blaða í stærðfræðibók- unum mínum eftir að pabbi hafði fært mér þær fréttir að Úlfar frændi væri dáinn. Í miðri bókinni fann ég rúðu- strikaða örk með skriftinni hans frænda. Örkin var útkrotuð í ein- hverjum útreikningum og ennþá var sterk tóbakslykt af henni. Ég hugsaði þá til baka til þeirra ótal stunda sem ég átti með Úlfari við eldhúsborðið í Huldulandinu. Hann hafði mikil áhrif á mig og mína framtíð. Ég bar mikla virðingu fyrir honum, hræddist hann ofurlítið en þótti alveg óskaplega vænt um hann. Þegar ég hafði lokið við þriðja bekk Verzlunarskólans átti ég að velja mér námsbraut. Úlfar sagði mér að ég væri enginn stærð- fræðingur, í besta falli töluglögg og ætti því alls ekki að velja stærðfræði- brautina. En auðvitað þurfti ég að sanna það fyrir honum frænda mín- um að ég gæti vel útskrifast af stærð- fræðibraut. Það vita það sennilega allir að ég hefði aldrei útskrifast ef Úlfar hefði ekki setið með mér löngum stundum yfir lexíunum. Það var virkilega gott að eiga hann Úlfar að sem frænda. Það var ósjald- an að ég hringdi í hann til að leita ráða. Hvar finn ég þessa sögu í Biblí- unni? Hvernig reikna ég þetta dæmi? Hvernig kona var hún amma mín? Hvernig er hann nú skyldur mér þessi? Þetta voru algengar spurning- ar sem Úlfar þreyttist aldrei á að svara. En á allra síðustu árum var gott að geta leitað til hans varðandi kennsluna. Hann hjálpaði mér að leysa flókin dæmi og gaf mér ómet- anleg ráð sem ég mun ætíð fylgja. Samkennarar mínir undruðust mjög að ég reiknaði hvert eitt og einasta dæmi í reikningsheftinu sem ég var að kenna. En Úlfar frændi sagði mér að kennari ætti aldrei að setja sig í þá stöðu að geta ekki reiknað dæmin fyrir framan bekkinn. Þetta voru góð ráð sem reyndust mér vel með erf- iðum unglingum. Þóra og Úlfar komu oft heim til mömmu og pabba um helgar þegar þau voru að koma heim af skíðum eða úr golfi. Þá var gaman að setjast með Úlfari frænda inn í stofu, skiptast á reynslusögum úr kennslunni og rök- ræða um gildi tölfræðinnar. Ég á eftir að sakna þessara stunda með honum frænda mínum en það er margt sem ég er honum þakklát fyr- ir. Fyrst og fremst er ég honum þakklát fyrir að hafa reynst honum pabba svona góður bróðir. Hann hef- ur alltaf staðið með honum og trúað á hann. Og sýndu Úlfar og Þóra mikinn styrk þegar þau tóku pabba og afa að sér eftir að amma dó. Hann hefur ásamt konu sinni sýnt okkur systr- unum mikla umhyggju og áhuga á okkar námi og störfum. Ég er einnig þakklát fyrir þær stundir sem ég fékk að byggja mér hús og kastala úr gömlum pappakössum á Skúlagöt- unni, samverustundirnar í fjöllunum og að hafa fengið að fara með þeim hjónum minn fyrsta hring á Kiðja- bergi. Ég vil biðja góðan Guð að varð- veita og styrkja Þóru, Halldór, Þóru frænku og fjölskyldur þeirra í sorg- inni. Kristín Björnsdóttir. Það eitt vitum við með fullri vissu að ævi okkar allra tekur einhvern tíma enda, og við ölum í hjarta okkar þá trú og von að þetta jarðneska líf sé aðeins áfangi á leið til einhverrar enn betri og varanlegri tilveru. En samt er eins og fráfall þeirra sem okkur eru kærir, og sem við höfum átt góða samleið með, sé alltaf óásættanlegt og komi á óvart. Þannig urðu við- brögð mín þegar ég frétti andlát gamla félaga míns og vinar Úlfars Kristmundssonar í morgunsárið 11. október, rétt í þann mund sem við fé- lagar hans í Oddfellowstúkunni Þor- geiri vorum að leggja af stað í hóp- ferð til útlanda. Honum var hins vegar ætluð lengri ferð, og hugur okkar allra var hjá honum þennan morgun og honum fylgdu bænir okk- ar og óskir um góða ferð um nýjar víddir og heimkomu í friðsælli heimi. Raunar er ekki liðinn nema mán- uður síðan við Úlfar og eiginkonur okkar lékum golf saman, eins og við höfðum gert um árabil, og í ár var ekki slegið slöku við frekar en endra- nær. En það var ljóst þegar líða tók á sumarið að hann gekk ekki heill til skógar, og heilsu hans hnignaði enn þegar tók að líða á haustið. Heilsufar Úlfars var hins vegar ekki mál sem hann bar á torg fyrir aðra. Við félagar hans urðum að geta okkur til um líð- an hans, því að hann kvartaði ekki og hélt sínu striki, þótt hann væri sýni- lega oft þjáður. Við Úlfar kynntumst fyrst sem unglingar í gagnfræðaskóla á önd- verðri síðustu öld, eins og við vorum farnir að vitna í það tímabil eftir að nýja öldin gekk í garð. Síðan vorum við samtíma í menntaskóla, og fyrir um aldarfjórðungi lágu svo leiðir okk- ar saman að nýju í Oddfellowreglunni sem hann gekk í árið 1975. Eftir það rofnaði samband okkar ekki fyrr en hann var kallaður brott – og hver seg- ir raunar að þráðurinn hafi slitnað nema rétt svona tímabundið, og þá miðað við okkar tímaskyn. Úlfar hlaut marga góða eiginleika í vöggugjöf, andlega sem líkamlega, og mér segir svo hugur að hann hafi ávaxtað þá vel. Hann var mikill náms- maður og góður stærðfræðingur, og hann varð afburða kennari á því sviði. Á sínum yngri árum var Úlfar góður íþróttamaður því að hann hafði til brunns að bera gott líkamlegt þrek, mikið keppnisskap og metnað. Hann var skapmikill og oft ákafur í mál- flutningi og lét í ljós skoðanir sínar tæpitungulaust. Hann gat virst hrjúf- ur í viðmóti þeim sem ekki þekktu hann, en ég veit að oftar en ekki var hann með því að breiða yfir viðkvæmt hjartalag. Úlfar var drengur góður í fyllstu merkingu þess hugtaks og hans verður lengi minnst. Úlfari er þökkuð þátttaka og störf í stúkunni nr. 11 Þorgeiri í meira en aldarfjórðung. Við Inga Lára sendum Þóru og fjölskyldu þeirra Úlfars innilegustu samúðar- og vinarkveðjur. Ingvi Þorsteinsson. Foreldrar Úlfars Kristmundsson- ar og foreldrar mínir byggðu sér hús á Víðimel í Reykjavík og fluttust í það skömmu eftir 1940. Mæður okkar Úlfars voru miklar vinkonur og höfðu sett á fót iðnfyrirtæki sem þær ráku af miklum krafti. Móðir Úlfars féll frá langt fyrir aldur fram og þegar ég fyrst man eftir mér hafði Úlfar kvænst Þóru sinni og héldu þau heimili með föður hans í þessu sama húsi. Úlfar var á þessum árum að sjálfsögðu einn af „fullorðna fólkinu“ í mínum augum. Hann hafði samt ótrúlegan tíma og nennu til að sinna því sem við strákpollarnir vorum að fást við, jafnvel áður en Halldór son- ur hans var tekinn sem fullgildur meðlimur í strákagengið í húsinu. Hann tók t.d. upp á því að kenna mér mannganginn í skák þegar ég var sex ára, og gerði síðar tilraunir til að gera úr mér skákmann, sem að vísu voru dæmdar til að mistakast. Nokkrum árum eftir að Úlfar lauk háskólanámi varð hann kennari við Vogaskólann í Reykjavík. Skömmu síðar tók hann að sér stundakennslu í stærðfræði við Verzlunarskólann, og þar varð hann fastráðinn kennari sama haustið og ég hóf þar nám. Það var ótrúlegt að fylgjast með því ást- fóstri sem Úlfar tók við þetta starf. Frá fyrsta degi var áhugi hans á kennslunni, frammistöðu nemend- anna og námsframvindu þeirra hreint ótrúlegur, því að hann virtist fylgjast með þeim í öllum námsgrein- um og vita nákvæmlega hvar hver og einn stóð í sínu námi. Hann hvatti mig mjög mikið í mínu námi og stund- um fannst mér eins og hann vissi bet- ur hvernig mér gengi heldur en ég sjálfur. Gilti þá einu hvort ég var í „hans“ bekk eða einhverjum öðrum. Ég ákvað að hætta námi eftir 4. bekk í VÍ og réð mig í skrifstofu- vinnu. Úlfari mislíkaði þetta mjög. Mér fannst það fyrst í stað hrein af- skiptasemi, þegar hann var að reyna að tala um fyrir mér, og margsinnis reyndi hann að hafa áhrif á þetta með viðræðum við foreldra mína. Og hann hafði það að lokum – ég fór ári seinna í skólann aftur. Fyrir þetta stend ég í ævarandi þakkarskuld við Úlfar. Ég rifjaði þetta upp við hann fyrir fáein- um árum og þóttist hann þá ekkert muna eftir þessu. „Þú hefðir örugg- lega farið aftur,“ var það eina sem hann hafði þá til málanna að leggja um þetta. Úlfar var framúrskarandi kennari. Hann hafði afar mikinn metnað til að ná góðum árangri í starfi sínu, svo mikinn að mörgum þótti nóg um á köflum. Hann var allt að því ögrandi í framgöngu í kennslustundum og lét nemendur skilja það frá fyrsta degi, hver það var sem réð í kennslustof- unni. Mér fannst það næstum því fyndið þegar ég upplifði það í skól- anum að sumir nemendur væru allt að því hræddir við hann, enda þekkti ég hann betur. Þetta var einhvers ÚLFAR EINAR KRISTMUNDSSON MINNINGAR 38 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.