Morgunblaðið - 19.10.2001, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÓTASKIPIÐ Súlan EA hélt til
loðnuleitar um hádegisbil í gær og
að sögn Bjarna Bjarnasonar skip-
stjóra var stefnan sett norður í haf.
Frekar lítið hefur frést af loðnunni
ennþá og Bjarna var ekki kunnugt
um að skip hafi verið að leita. „Það
er með þennan uppsjávarfisk að
hann getur sést annan daginn en
ekki hinn, ef ég man rétt,“ sagði
Bjarni og bætti við að hann væri
farinn að ryðga í þessu, þar sem
hann hefði ekki farið á sjó frá því í
júlí í sumar.
Bjarni sagði til þess vinnandi að
reyna að finna loðnuna þar sem
markaðurinn fyrir þessa afurð væri
mjög góður. „Það er alveg nauðsyn-
legt að geta fiskað eitthvað fyrir jól
en annars gengur þetta misjafnlega
milli ára og í fyrra var liðin vika af
nóvember áður en eitthvað fór að
gerast.“
Morgunblaðið/Kristján
Skipverjar á Súlunni EA taka nótina um borð áður en haldið var á miðin.
Haldið
norður í haf
í loðnuleit
KARLAKÓR Akureyr-
ar-Geysir sýnir revíuna
Allra meina bót eftir þá
Jón Múla og Jónas
Árnasyni í Lóni við
Hrísalund í kvöld,
föstudagskvöld, og ann-
aðkvöld, laugardags-
kvöld. Revían var frum-
sýnd um liðna helgi við
góðar viðtökur áheyr-
enda. Kórinn hefur
fengið til liðs við sig
vaska sveit ungra leik-
listar- og söngáhuga-
manna sem fram koma
ásamt félögum úr
karlakórnum. Söng-
stjóri er Erla Þórólfs-
dóttir.
Revían Allra meina
bót sýnd í Lóni
Karlakór Akureyrar-Geysir sýnir revíuna
Allra meina bót í Lóni um helgina.
ÖKUMAÐUR fólksbif-
reiðar var fluttur með
sjúkabifreið á slysadeild
FSA eftir umferðarslys
við brúna yfir Fnjóská í
S-Þingeyjarsýslu í gær-
morgun. Betur fór en á
horfðist, því bíllinn fór
fram af háum kanti,
stakkst í barð 25-30
metrum neðar og endaði
á hliðinni ofan í skurði.
Ökumaðurinn var að
koma að austan og er
talið að hann hafi lent á
hálkubletti á brúnni og við það misst
stjórn á bílnum, sem fór út í kant
hægra megin áður en hann hafnaði
utan vegar vinstra megin. Meiðsli
ökumannsins eru ekki talin alvarleg,
hann kvartaði undan eymslum í baki
og hálsi en bíllinn er talinn gjörónýt-
ur. Samkvæmt tilkynningu um slys-
ið, sem barst til Slökkviliðs Akureyr-
ar, var sagt að ökumaðurinn væri
fastur í bílnum og auk sjúkrabíla var
því tækjabíll einnig sendur á staðinn.
Ökumaðurinn komst hins vegar út
úr bílnum af sjálfsdáðum og var
kominn upp á veg þegar sjúkrabíll-
inn kom á staðinn.
Umferðarslys
við Fnjóskárbrú
Morgunblaðið/Kristján
Bifreiðin hafnaði á hliðinni ofan í skurði.
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri tekur skóflu-
stungu að nýju fjölnota íþróttahúsi
á félagssvæði Þórs við Skarðshlíð
laugardaginn 20. október kl. 14.00.
Fjölnota íþróttahúsið mun rúma
knattspyrnuvöll í fullri stærð lagðan
gervigrasi, auk 110 metra hlaupa-
brautar og atrennubrauta fyrir
stangarstökk og langstökk. Gengið
hefur verið frá samningi við Ís-
lenska aðalverktaka hf. um bygg-
ingu hússins og er stefnt að því að
húsið verði tilbúið til notkunar í des-
ember á næsta ári. Heildarkostn-
aður við þessa framkvæmd er áætl-
aður um hálfur milljarður króna
Akureyrarbær býður öllum Ak-
ureyringum að vera viðstaddir at-
höfnina sem hefst stundvíslega kl.
14:00.
Að athöfn lokinni verður boðið
upp á veitingar í Hamri, félagsheim-
ili Íþróttafélagsins Þórs.
Skóflustunga að
fjölnota íþróttahúsi
SKIPT verður um sýningu á Kaffi
Karólínu á morgun, laugardaginn
20. október. Þá munu nokkrir
samferðamenn Jóns Laxdal birtast á
veggjum kaffihússins, dvelja, hverfa
og aðrir koma í staðinn eftir því sem
dagarnir líða. Jón gerir grein fyrir
sýningunni kl. 14 stundvíslega á
opnunardaginn. Sem kunnugt er
hefur Jón stundað niðurrif á þekkt-
um bókmenntatímaritum áratugum
saman og ítrekað sætt lögbannshót-
unum fyrir verk sitt. Að þessu sinni
má þó ólíklegt telja að lögmenn
landsins sjái sér nokkurn hag í rifr-
ildunum en þau kosta 15 þúsund
krónur.
Jón Laxdal og
samferðamenn
á Karólínu
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Svalbarðskirkju kl. 1l á morg-
un, laugardag. Kirkjuskóli í Greni-
víkurkirkju kl. 13.30 á morgun.
Guðsþjónusta í Grenilundi kl. 16 á
sunnudag. Kyrrðarstund í Sval-
barðskirkju kl. 21 á sunnudagskvöld.
Kirkjustarf
ÍSLANDSFUGL hefur gert tilboð í
eignarhlut Dalvíkurbyggðar í hús-
eigninni Hafnarbraut 7 á Dalvík. Þá
eru hafnar framkvæmdir við bygg-
ingu nýs varphúss fyrirtækisins á Ár-
skógsströnd, við hlið varphússins sem
hefur verið í notkun frá síðasta vetri.
Húsnæðið við Hafnarbraut á Dal-
vík er um 600 fermetrar að stærð, um
500 fermetrar á jarðhæð og um 100
fermetrar á efri hæð sem snýr út að
Hafnarbraut. Ef gengið verður að til-
boði Íslandsfugls er m.a. horft til þess
að nýta neðri hæð hússins fyrir full-
vinnslu kjúklingaafurða og er þar ver-
ið að horfa til framtíðaruppbyggingar
fyrirtækisins.
Á Árskógsströnd er jarðvegsskipt-
um í grunni nýs varphúss lokið og fyr-
ir liggur að steypa undirstöður húss-
ins. Stefnt er að því að hraða
framkvæmdum og koma nýjum
varpstofni inn í húsið fyrir áramót.
Flatarmál hússins er um 640 fermetr-
ar og þar verður rými fyrir um 3 þús-
und varphænur, líkt og í hinu varp-
húsinu. Þetta kemur fram á heimasíðu
fyrirtækisins.
Íslandsfugl gerir
kauptilboð í hús-
eign á Dalvík
Fram-
kvæmdir
við nýtt
varphús
hafnar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦