Morgunblaðið - 19.10.2001, Blaðsíða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 43
Fiskvinnslutæki til sölu
Kínverskur plötufrystir
Árg. ´97, 1000 kw. Verð 2.000.000.
Baader 198-V flökunarvél
Verð 2.200.000 kr.
Baader 410 bolfiskhausari
Verð 150.000 kr.
10 manna flæðilína
Verð 200.000 kr.
10 manna vinnsluborð
Verð 200.000 kr.
Viktarbúnaður frá Eltak
Verð 240.000 kr.
Brontec ísþykknivél
Árg. ´99. Verð 1.500.000.
Snjóhorn
Verð 300.000 kr.
Ross S 3180 pökkunarvél
Verð 1.250.000 kr.
Kracher háþrýstidæla HD 895S
Verð 50.000 kr.
Soco System færibönd
Verð 50.000 kr/stk.
Soco System snúningsborð
Verð 70.000 kr.
Atlas Copco loftpressa
Verð 260.000 kr.
Steinhöj loftpressa
Verð 220.000 kr.
TMC rafmagnslyftari
Árg. ´97 m/snúningi. Verð 1.100.000 kr.
Toyota rafmagnslyftari
Árg. ´98, með snúningi. Verð 1.250.000 kr.
Yale disellyftari
Árg. ´98, með snúningi. Verð 1.600.000 kr.
Upplýsingar gefur Birgir í síma 560 8834
eða gsm 861 6919.
TILKYNNINGAR
Auglýsing, um tillögur til breytinga á aðalskipulagi
Reykjavíkur og Kjalarness, breytinga á deiliskipulags-
áætlunum og tillögur að deiliáætlunum í Reykjavík.
Í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi tillögur að breytingum á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, Aðalskipulagi Kjalarness 1990-2010, tillögur að
deiliskipulagáætlunum og breytingum á deilskipulagsáætlum í Reykjavík.
Miklabraut milli Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar, breyting á aðalskipulagi og
deiliskipulagi.
Tillögurnar gera ráð fyrir að heimilt verði að byggja göngubrú yfir Miklubraut, austan
Kringlunnar og íþróttasvæðis Fram. Deiliskipulagstillagan gerir jafnframt ráð fyrir nokkrum
breytingum á legu göngustíga vegna brúarinnar.
Hólmsheiði/Nesjavallavegur, deiliskipulag lóðar fyrir móttöku- og gæsluvarðhalds-
fangelsi.
Um er að ræða u.þ.b. 35.000 fm lóð á Hólmsheiði norðan Nesjavallavegar, skammt
suðvestan við spennuvirkið að Geithálsi.Tillagan gerir ráð fyrir að á lóðinni verði heimilt að
reisa móttöku- og gæsluvarðhaldsfangelsi á allt að tveimur hæðum ásamt tengdum
byggingum og mannvirkjum. Nýtingarhlutfall lóðarinnar verður allt að 0,2.
Efstaland 26 (Grímsbær), svæði gæsluvallar sunnan Grímsbæjar og bílastæðalóðir að
Efstalandi 2-24 og Gautlandi 1-21, deiliskipulag.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að byggja eina hæð ofan á verslunarmiðstöðina
Grímsbæ að Efstalandi 26, í stað gæsluvallar sunnan Grímsbæjar verði afmörkuð um 2000
fm lóð og heimilt verði að byggja á henni tveggja deilda, um 350 fm, leikskóla. Tillagan gerir
jafnframt ráð fyrir breytingum á bílastæðalóðum Efstalands 2-24 og Gautlands 1-21.
Skálafell, skíðasvæði, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi Kjalarness.
Um er að ræða deiliskipulagsáætlun fyrir skíðasvæðið í Skálafelli, þar sem gerð er grein fyrir
framtíðarskipulagi svæðisins, afmörkun lóða, byggingaráformum og mannvirkjum tengdum
skíðaiðkun. Jafnframt er auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kjalarness
1990-2010 sem gerir ráð fyrir stækkun skíðasvæðisins. Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð
fyrir að heimilt verði að byggja um 2000 fm þjónustumiðstöð, þjónustuhús að grunnfleti 80
fm og 10 smáhýsi að grunnfleti um 30 fm.
Tillögurnar verða til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 19. október til 16. nóvember 2001. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 7. desember 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 19. október 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL SÖLU
NÝ stjórn ITC-samtakanna á Ís-
landi hefur hafið störf, en hafin
er starfsemi samtakanna í tíu
deildum víðs vegar um landið.
Október er kynningarmánuður
ITC og eru þá haldnir sérstakir
kynningarfundir í flestum deild-
um en allir deildarfundir eru
opnir og gestir ávallt velkomnir á
fundi án skuldbindinga.
Útbreiðslustjóri Landssamtaka
ITC á Íslandi er Guðrún S.
Viggósdóttir ITC Fífu (netfang
itc@simnet.is), en nánari upplýs-
ingar um ITC og fundartíma
deilda má sjá á heimasíðu ITC á
Íslandi, www.simnet.is/itc.
Í nýrri stjórn Landssamtaka
ITC á Íslandi eru Magnea G.
Gunnarsdóttir (ITC Írisi) gjald-
keri, Arnþrúður Halldórsdóttir
(ITC Hörpu) ritari, Ingibjörg Vig-
fúsdóttir (ITC Hörpu) varaforseti,
Fanney Úlfljótsdóttir (ITC Mel-
korku) kjörforseti og Edda M.
Halldórsdóttir (ITC Írisi) forseti.
Ný stjórn
ITC-sam-
takanna á
Íslandi
Ný stjórn ITC á Íslandi. Frá vinstri: Magnea G. Gunnarsdóttir (ITC Írisi)
gjaldkeri, Arnþrúður Halldórsdóttir (ITC Hörpu) ritari, Ingibjörg Vig-
fúsdóttir (ITC Hörpu) varaforseti, Fanney Úlfljótsdóttir (ITC Melkorku)
kjörforseti og Edda M. Halldórsdóttir (ITC Írisi) forseti.
DEILDIR Rauða kross Íslands á
höfuðborgarsvæðinu æfa og kynna
viðbrögð sín á neyðar- og hættutím-
um laugardaginn 20. október kl. 11–
14 með því að opna sjö fjöldahjálpar-
stöðvar á svæðinu. Almenningi er
boðið að koma í fjöldahjálparstöðv-
arnar til þess að kynna sér viðbrögð
deildanna, þiggja veitingar og fylgj-
ast með margvíslegri dagskrá.
Deildir Rauða kross Íslands á
höfuðborgarsvæðinu eru sex talsins.
Hundruð virkra sjálfboðaliða taka
þátt í verkefnum deildanna og þær
hafa innan sinna raða um 11.500 fé-
lagsmenn.
Rauðakrossdeildirnar opna fjölda-
hjálparstöðvar sínar laugardaginn
20. október kl. 11–14 sem hér segir:
Bessastaðahreppsdeild: Fjölda-
hjálparstöðin í íþróttahúsi Bessa-
staðahrepps. Garðabæjardeild:
Fjöldahjálparstöðin í Garðaskóla.
Hafnarfjarðardeild: Fjöldahjálpar-
stöðin í Lækjarskóla. Kjósarsýslu-
deild: Fjöldahjálparstöðin í Varm-
árskóla. Kópavogsdeild: Fjölda-
hjálparstöðin í Digranesskóla.
Reykjavíkurdeild: Fjöldahjálpar-
stöðvarnar í Langholtsskóla og
Fellaskóla.
Neyðarvarna-
dagur Rauða-
krossdeilda
GIGTARFÉLAG Íslands er með
þriggja kvölda námskeið um vefja-
gigt sem byrja bæði sama kvöld,
miðvikudaginn 24. október, kl. 19.30.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði
Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, 2.
hæð.
Áhersla verður lögð á fræðslu um
sjúkdóminn, einkenni hans og áhrif á
daglegt líf. Fjallað verður um mik-
ilvægi þjálfunar, slökun, aðlögun að
breyttum aðstæðum, tilfinningalega
og samfélagslega þætti. Leiðbein-
endur á námskeiðunum verða Arnór
Víkingsson og Árni Jón Geirsson
gigtarsérfræðingar, Sólveig Hlöð-
versdóttir sjúkraþjálfari, Unnur
Stefanía Alfreðsdóttir iðjuþjálfi,
Jónína Björg Guðmundsdóttir og
Svala Björgvinsdóttir félagsráðgjaf-
ar. Gigtarfélags Íslands veitir frek-
ari upplýsingar.
Að lifa með
vefjagigt