Morgunblaðið - 19.10.2001, Blaðsíða 26
LISTIR/KVIKMYNDIR
26 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Moulin Rouge
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz
Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ew-
an McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð
himnasending í skammdeginu. Stórfengleg
afþreying sem er allt í senn: söngva- og
dansamynd, poppópera, gleðileikur, harm-
leikur, nefndu það. Baz Luhrman er einn at-
hyglisverðasti kvikmyndagerðarmaður sam-
tímans sem sættir sig ekki við neinar
málamiðlanir og uppsker einsog hann sáir;
fullt hús stiga. Smárabíó, Stjörnubíó og Borgarbíó Akur-
eyri.
AI
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Spiel-
berg. Handrit: Spielberg o.fl. Aðalleikendur:
Haley Joel Osment, Jude Law, Frances
O’Connor, William Hurt. Mjög spennandi og
áhrifarík kvikmynd með sterkri ádeilu. End-
inum er þó algerlega ofaukið. Bíóborgin, Háskólabíó, Nýja bíó Akureyri.
Jay and Silent Bob Strike
Back
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Kev-
in Smith. Aðalleikendur: Jason Mewes, Kevin
Smith. Járnbentur steypuhúmor frá einum
frumlegasta kvikmyndagerðarmanni samtíð-
arinnar sem skopast einkum að samkyn-
hneigð, bölbænum og ragni. Tvíeykið á frá-
bæra spretti í vegamynd þvert yfir
Bandaríkin. Smárabíó, Regnboginn.
American Pie 2
Bandarísk. 2001. Leikstjóri J.B. Rodgers.
Handrit: Adam Herz. Aðalleikendur: Jason
Biggs, Shannon Elizabeth, Chris Klein. Bein
framhaldslýsing á kynórum menntaskóla-
nema er fyrri myndinni sleppir. Græskulaus
aula- og neðanmittisfyndni flutt af sama
góða ungleikaragenginu. Háskólabíó, Sambíóin, Borgarbíó Akureyri,
Nýja bíó Keflavík, Nýja bíó Akureyri.
Bridget Jones’ Diary
Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharon Maguire.
Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée
Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth og Jim
Broadbent. Sagan um ástamál Bridget verð-
ur að hæfilega fyndinni, rómantískri gam-
anmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlut-
verkinu. Háskólabíó.
Pétur og kötturinn Brandur
Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam-
insky. Handrit: Torbjörn Janson. Teiknimynd.
Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunnur
Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún
Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun
fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru við-
kunnanlegir og uppátektarsamir. Smárabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó Akur-
eyri.
Planet of the Apes
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Tim Burton.
Handrit: William Broyles o.fl. Aðalleikendur:
Mark Wahlberg, Tim Roth, Helena Bonham
Carter. „Endursköpun“ Burtons tekst ágæt-
lega að fráslepptum endinum en hefur ekki
sömu vigt og fyrri myndin. Wahlberg ágætur í
Heston-rullunni en bestur er þó Tim Roth
sem sérstaklega úrillur api. Regnboginn.
Rugrats in Paris
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Stig Bergquist,
Paul Demyer. Handrit: J. David Stem o.fl. Ísl.
leikraddir: Edda Heiðrún Backman, Inga
María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdótt-
ir, Dofri Hermannsson o.fl. Skemmtileg en
fullfyrirsjáanleg mynd um káta krakkaorma í
leit að mömmu handa vini sínum. Bíóhöllin, Háskólabíó.
Small Time Crooks
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit:
Woody Allen. Aðalleikendur: Allen, Tracey
Ullman, Elaine May. Þetta er bráðfyndin
mynd meistara Allen. Grínið ræður ríkjum, en
sagan hefði mátt vera skemmtilegri og
kannski aðeins dýpri. Frábærir leikarar.
Bíóborgin.
Cats & Dogs
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Lawrence Gu-
terman. Handrit: John Rena. Aðalraddir: Alec
Baldwin, Sean Hayes, Susan Sarandon. Ein-
föld saga og spennandi fyrir krakka. Annars
ósköp klisjukennd og illa leikstýrt. Bíóhöllin, Kringlubíó.
Final Fantasy
Japönsk. 2001. Leikstjórn: Hironobu Saka-
guchi. Handrit: Al Reinert. Aðalraddir: Alec
Baldwin, Ming Na, Donald Sutherland,
James Woods. Frábærlega unnin tölvugraf-
íkmynd um framtíðarátök á Móður Jörð.
Skortir meira líf og lit og þó ekki væri nema
örlítinn húmor. Smárabíó, Kringlubíó, Borgarbíó Akureyri.
A Knight’s Tale
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Bri-
an Helgeland. Aðalleikendur: Heath Ledger,
Rufus Sewell, Mark Addy. Rokkað feitt á burt-
reiðum? Undarleg samsuða af miðalda-
gamni og nútímarokki sem erfitt er að sjá að
hafi mikinn tilgang en Helgeland reynir hvað
hann getur að láta taka sig alvarlega. Stjörnubíó.
Rat Race
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Jerry Zucker.
Handrit: Andrew Breckman. Aðalleikendur:
John Cleese, Rowan Atkinson, Whoopi Gold-
berg, Cuba Gooding. Gamanmynd hlaðin
bröndurum og skondnum karakterum sem
keppa um hver er fyrstur að finna tvær millj-
ónir dollara. Dellumynd, sannarlega, en má
hlæja að henni. Laugarásbíó.
The Score
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Frank Oz. Hand-
rit: Serge Hamilton. Aðalleikendur: Robert De
Niro, Edward Norton, Angela Bassett, Marlon
Brando. Frábærir leikarar geta lítið gert fyrir
handrit sem ekki gengur upp. Sumt sniðugt
en það dugar ekki til. Laugarásbíó.
Swordfish
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Dominic Sena.
Handrit: Skip Woods. Aðalleikendur: John
Travolta, Hugh Jackman og Halle Berry. Flott
mynd með góðu gengi og fínum hasar en
gengur ekki nógu vel upp. Bíóhöllin, Nýja bíó Akureyri.
3000 Miles to Graceland
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Demian Lich-
tenstein. Handrit: Bruno Corsica. Aðalleik-
endur: Kurt Russell, Kevin Costner, Courtney
Cox. Afkáraleg, yfirmáta blóðidrifin vega-
mynd um rán í Las Vegas og undankomuna.
Lengdin drepur spennuna. Sambíóin Reykjavík, Akureyri.
The In Crowd
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Mary Lambert.
Handrit: Mark Gibson. Aðalleikendur: Susan
Ward, Lori Heuring. Tilgerðarleg, ótrúverðug
og klisjukennd morðsaga með ámóta mann-
skap í hlutverkunum. Sambíóin.
What’s The Worst Thing That
Could Happen?
Bandarísk. 2001. Aðalleikendur: Martin
Lawrence, Danny De Vito. Þjófur rænir milla
sem snýr á hann í heldur betur slappri
spennumynd.
Regnboginn.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson /Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
MAÐUR er nefndur Joe Roth, einn
af kunnari framleiðendum Holly-
wood. Hefur m.a. haldið um stjórn-
artauma stórveldanna 20th Century
Fox og Disney. Nú er hann æðsti
maður og aðaleigandi Revolution
Studios, kvikmyndaversins sem
stendur á bak við America’s
Sweethearts. Myndin er metnaðar-
fyllsta verk hins unga Revolution
Studios til þessa, en leikstjórnin er
einnig í höndum Roths. Tvímælalaust
hefur velvild, áratuga reynsla og
gjörþekking á iðnaðinum gagnast
Roth við að hóa saman leikhópi sem í
eru m.a. Julia Roberts, Billy Crystal,
Catherine Zeta Jones, John Cusack,
Stanley Tucci, Hank Azaria, Christ-
opher Walken og Alan Arkin.
America’s Sweethearts fjallar
einsog nafnið bendir til, um eftirlæti
bandarísku þjóðarinnar. Skyggnst er
inn fyrir lokaðar dyr kvikmyndaiðn-
aðarins og rammgirt einkalíf stór-
stjarnanna. Kiki Harrison (Roberts)
er fylgispakur og trygglyndur einka-
ritari Gwen Harrison (Zeta-Jones),
sjálfumglaðrar ofurstjörnu hvíta
tjaldsins. Aukinheldur eru þær syst-
ur. Sambandið hefur löngum verið
stirt og batnar ekki er Kiki á að koma
á mannsæmandi kynningarfundi með
Gwen og ofurstjörnunni Eddie
Thomas (John Cusack), manni henn-
ar, en hjónin standa í skilnaði. Lee
Philips (Billy Crystal), gamalgróinn
blaðafulltrúi, sem sjálfur er í stór-
hættu að missa starf sitt til ungs
skjólstæðings, á að fínpússa hlutina.
Með hjálp Kiki eygir hann von um að
allt muni blessast að lokum.
Því miður, það eru allt aðrar og
grimmari tilfinningar sem ráða orðið
ríkjum í samskiptum eftirlætanna
eftir 9 metaðsóknarmyndir og 18
mánaða aðskilnað eftir að Gwen
„missteig“ sig með Hector (Hank Az-
ario), spænskum meðleikara og
hjartaknúsara. Kiki og Lee bíður því
næsta vonlaust verkefni, en „sýning-
in verður að ganga“ er einu sinni
fyrsta og síðasta boðorðið í skemmt-
anabransanum.
Roth segir að myndina geri hann
til heiðurs kempum einsog Frank
Capra og Preston Sturges, sem
sendu frá sér hverja gamanmyndina
á fætur annarri á fjórða og fimmta
áratugnum. Af einhverjum ástæðum
hefur honum tekist að smala saman
hér ágætis hópi leikara þó svo hann
sjálfur sitji undir stýri. Roth hefur
ekki sest í leikstjórastólinn síðan
hann gerði Coup de Ville fyrir 11 ár-
um.
Leikarar: Julia Roberts (Sleeping With
the Enemy, Pretty Woman, Erin Brocko-
vich); Billy Crystal (Throw Momma From
the Train, City Slickers, Analyze This);
Catherine Zeta Jones (Entrapment,
Traffic), John Cusack (The Grifters, Bull-
ets over Broadway, Being John Malko-
vich, High Fidelity); Hank Azaria (The
Birdcage, Quiz Show, Grosse Point
Blank); Stanley Tucci (Big Night, Kiss of
Death, Deconstructing Henry); Christ-
opher Walken (The Deer Hunter, Pulp
Fiction, Sleepy Hollow). Leikstjóri: Joe
Roth (Coupe de Ville). Handrit: Billy
Crystal og Peter Tolan.
Eftir-
læti
þjóðar-
innar
John Cusack og Catherine Zeta Jones í America’s Sweethearts.
Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn og
Borgarbíó, Akureyri, frumsýna Am-
erica’s Sweethearts, með Juliu Roberts,
Billy Crystal, John Cusack o.fl.
AÐALPERSÓNAN í Lucky Numb-
ers, nýjustu gamanmynd Noru
Ephron, er Russ Richards (John
Travolta). Vinsæll sjónvarpsmaður í
Harrisburg, Pennsylvaníu, í vondum
málum. Er við það að tapa aleigunni
og ærunni í snjóbílabraski og veit
ekki hvernig hann á að forðast gjald-
þrotið. Þegar neyðin er stærst er
hjálpin næst. Vinur hans og vinnu-
félagi á sjónvarpsstöðinni, lottó-
stjórnandinn Crystal Latroy (Lisa
Kudrow), verður að lokum tilleiðan-
leg til að taka þátt í svindli í talna-
drættinum. Réttu tölurnar koma
vissulega upp en allt annað fer úr-
skeiðis.
Lucky Numbers er byggð á sönn-
um atburðum sem gerðust í Penn-
sylvaníu, er fjársvikamál kom upp
varðandi fylkislotteríið og vakti
feiknaathygli. Atburðurinn varð árið
1980 enda þótti upphæðin, á aðra
milljón dala, svimandi há. Svindlið
hefur jafnan verið kennt við talnaröð-
ina 666 og var mikið umræðuefni í
fjölmiðlum, ritstjórnargreinum og
núna í kvikmyndinni, sem sækir
margt til svindlmálsins.
Ephron og Travolta hafa áður unn-
ið saman að myndinni Michael, sem
naut vinsælda á sínum tíma. Travolta
er einn af hæst launuðu leikurum
heims. Hann segir um hlutverk sitt:
„Richards virðist heiðvirður en
grandvaralaus. Þau Crystal virka
fremur torgefin. Ekki beinlíns
barnaleg eða saklaus, heldur skortir
þau leikni og útsjónarsemi, sem gerir
persónurnar stórskemmtilegar.“
Tim Roth fer með hlutverk krimma
og gamals vinar Richards. Hann
kemur á svindlinu með hjálp Letroy
og Wagstaff (Michael Rapaport),
öðrum vafasömum krimma sem gerir
meira ógagn en hitt. Handritshöf-
undurinn, Adam Resnick, sem ólst
upp í Harrisburg, telur að tími hafi
verið kominn til að heimabærinn sinn
yrði settur í samband við eitthvað
viðkunnanlegra (!) en kjarnorkuslys-
ið á Three Miles Island – sem er í út-
hverfi Harrisburg.
Leikarar: John Travolta (Saturday Night
Fever, Pulp Fiction, Primary Colors,
Broken Arrow, Face/Off); Lisa Kudrow
(Analyze This, sjónvarpsþættirnir
Friends); Tim Roth (Rob Roy, Reservoir
Dogs, Pulp Fiction, Everyone Says I Love
You); Michael Rapaport (Men of Honor,
Cop Land, Deep Blue Sea); Bill Pullman
(The Serpent and the Rainbow, The Last
Seduction, Independence Day). Leik-
stjóri: Nora Ephron (Sleepless in
Seattle, You’ve Got Mail). Handrit:
Adam Resnick (Cabin Boy).
John Travolta í Lucky Numbers.
Happa-
tölur
Háskólabíó og Sambíóin frumsýna
Lucky Numbers með John Travolta, Lisu
Kudrow, Tim Roth o.fl.
BOBBY og Peter Farrelly eru með
þekktustu og farsælustu kvik-
myndagerðarmönnum samtímans.
Bræðurnir standa m.a. að metað-
sóknarmyndunum Dumb and Dumb-
er, Kingpin, There’s Something
About Mary og Me, Myself and
Irene. Á næstunni er von á Shallow
Hal, með nýstirninu Jack Black og
Gwyneth Paltrow. Í Osmosis Jones
reyna þeir sig á nýjum vígstöðvum,
þar sem myndin er blanda leikinnar
myndar og teiknimyndar. Gerist í
skrokkræfli rustamennisins Franks
(Bill Murray) og aðalpersónurnar,
hvíta blóðkornið Osmosis, Ossie,
Jones (rödd Chris Rock) og
kvefmeðalataflan Deix (rödd David
Hyde Pierce) eru kófsveittar að
berjast við að halda líftórunni í rudd-
anum. Aðalóvinurinn er Thrax (rödd
Laurence Fishburne), illvíg veira
sem státar af því að frænka sín,
kennd við Ebóla, sé saklausari en
flasa við hliðina á sér!
Atburðarásin utan líkama Franks
er nánast öll leikin og stjórna þá
bræðurnir gamninu. Frank mokar
flórinn í dýragarði, ásamt lúðanum
Bob (Chris Elliott), félaga sínum og
vini, Þeir una sér hið besta við skít-
moksturinn og stytta sér stundir
þess á milli á ölkrám og skyndibita-
stöðum.
Meiri hluti Osmosis Jones fer
fram í líkama durgsins og þá reynir á
teiknimyndahönnuðina Tom Sito og
Piet Kroon, sem stjórna þeirri hlið
myndarinnar. Ossie og Drix enda-
sendast um lúinn skrokkinn í eftir-
litsferðum og björgunaraðgerðum.
Ekki síst um sárþjáðan meltingar-
veginn, þar sem félagarnir eru að
kafna í eftirlætisruslfæðu Franks,
einsog hamborgurum, frönskum,
kjúklingabitum og bjór. Enda lík-
amsástandið vafasamt og slagurinn
tvísýnn.
Raddir: Chris Rock (Beverly Hills Ninja,
Dr. Dolittle); Laurence Fishburne (Matr-
ix, What’s Love Got to do with it?); Leik-
arar: Bill Murray (Caddyshack, Ghost-
busters, Kingpin, Rushmore); Chris
Elliott (There’s Something About Mary,
Kingpin). Leikstjórar: Farrelly-bræður,
Piet Kroon og Tom Sito. Handrit: Marc
Hyman.
Meltingarvega-
mynd frá Farr-
elly-bræðrum
Bill Murray og Chris Elliott taka tal saman.
Sambíóin Reykjavík og Akureyri frum-
sýna Osmosis Jones, með röddum Bills
Murray, Chris Rock, Lawrence
Fishburne, ofl.