Morgunblaðið - 22.11.2001, Side 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 17
ÞESSIR tveir herramenn ræddu
heimsins gagn og nauðsynjar í Aust-
urstræti á dögunum á meðan um-
ferðin og mannlífið í miðbæ borg-
arinnar gekk sinn vanagang. Hvort
það hefur verið hraði nútímans sem
var umræðuefnið skal ósagt látið.
Hvað sem því líður má búast við að
miðborgin og aðrir verslunarstaðir
borgarinnar séu óðum að fyllast af
fólki sem hefur í nógu að snúast við
að afla fanga fyrir jólin.
Rabbað
í innkaupa-
ösinni
Miðborg
Morgunblaðið/Ásdís
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
úthluta Fasteignafélaginu Stoðum
byggingarrétti fyrir verslunar- og
þjónustuhús á lóð nr. 121 við
Hraunbæ. Áætlað er að reisa um
1500 fermetra byggingu á lóðinni.
Að sögn Þórhildar Lilju Ólafs-
dóttur, skrifstofustjóra hjá borg-
arverkfræðingi, er úthlutunin í
samræmi við deiliskipulag sem ný-
lega var samþykkt í Skipulags- og
bygginganefnd. Um sé að ræða
rúmlega 4200 fermetra lóð við hlið-
ina á útibúi Íslandspósts og sé hún
merkt C á deiliskipulagskorti. Til
hafi staðið að reisa heilsugæslustöð
á lóðinni en nú sé áætlað að hún
rísi hinum megin við götuna.
Jónas Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Fasteignafélagsins
Stoða, segir að áætlað sé að byggja
um 1500 fermetra húsnæði á lóð-
inni sem yrði á einni hæð. Það
muni rúma 4 – 5 einingar fyrir
verslun eða þjónustu og þar af yrði
ein stór verslun, líklega matvöru-
verslun. Hann segir ýmsa aðila
hafa lýst áhuga á húsnæðinu en
enn hafi ekkert verið ákveðið í
þeim efnum.
Að sögn Jónasar er ekkert
ákveðið um hvenær ráðist verði í
framkvæmdir, fyrsta skrefið hafi
verið að fá lóðinni úthlutað og næst
sé að fá bygginganefndarteikning-
ar samþykktar. Að því loknu sé
hægt að byrja framkvæmdir.
Nýtt verslunar- og
þjónustuhúsnæði
Árbær
fiú safnar hjá okkur...
Nánari uppl‡singar áwww.frikort.is
Utanlandsfer› fyrir
a› safna punktum.
Eitthva› fyrir mig.
FORELDRAFÉLAG Víðistaða-
skóla krefst úrbóta á lóð og hús-
næði skólans í ályktun sem sam-
þykkt var á aðalfundi félagins.
Ályktunin var lögð fram á bæj-
arráðsfundi í Hafnarfirði í síðustu
viku.
Í ályktuninni er þeim tilmælum
beint til bæjaryfirvalda að huga nú
þegar að úrbótum skólalóða og
skólahúsnæði Víðistaðaskóla og
eru fyrri beiðnir þar að lútandi
ítrekaðar. „Foreldrafélaginu er
fullkunnugt um að áætlað er að
hefjast handa árið 2004 við stækk-
un og endurbætur á skólanum, en
telur að nauðsynlegar úrbætur
verði að gera á skólalóð og hús-
næði fram að þeim tíma,“ segir í
ályktuninni.
Úrbóta
krafist við
skóla
Hafnarfjörður
♦ ♦ ♦