Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.11.2001, Blaðsíða 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 23 KOSTNAÐUR við raflýst leiði hefur hækkað um 20% hjá Raf- þjónustunni Ljósum frá því í fyrra, eða úr 5.500 krónum í 6.600 krón- ur. Rafþjónustan Ljós sér um að raflýsa leiði í Gufuneskirkjugarði og segir Sigríður Sigurjónsdóttir, einn eigenda fyrirtækisins, að skýringin sé sú að gjald fyrir um- rædda þjónustu hafi ekki hækkað síðastliðin átta ár. „Meginástæðan er hærri launa- og efniskostnaður, auk þess sem við þurfum að greiða virðisaukaskatt, sem og aðstöðu- gjald til kirkjugarðanna. Við hefð- um þurft að hækka fyrr en reynd- um að sitja á okkur. Þegar upp er staðið hefðum við þurft að hækka minna og oftar á þessu tímabili,“ segir hún. Um er að ræða raflýsta krossa og er gjaldið fyrir uppsetningu og viðhald í fimm vikur, það er frá fyrsta sunnudegi í aðventu til 6. janúar. Starfsmenn Rafþjónust- unnar sjá um viðhald leiðisins á hverjum degi á umræddu tímabili, segir Sigríður, og skipta jafnframt um perur ef með þarf. Mistök gerð við vinnslu gíróseðla Starfsmenn hjá Rafþjónustunni eru fjórir upp í 18 þegar mest er að gera, segir Sigríður ennfremur, og telur hún að fyrirtækið hafi sett upp og annast hátt í 1.800 krossa í kirkjugarðinum í Gufunesi í fyrra. Sigríður segir að endingu að mistök hafi orðið við gerð gíró- seðla fyrirtækisins í ár og að þeir sem greiða fyrir lýsingu hjá ást- vinum með sameiginlegan legstein hafi af þeim sökum fengið fleiri en einn gíróseðil sendan. „Á seðlinum átti jafnframt að standa: „Sért þú leyfishafi fyrir tvö samliggjandi leiði og greiðir þennan gíróseðil munum við setja einn ljósakross milli leiðanna.“ Þetta gleymdist að taka fram núna en verður leiðrétt á næsta ári og biðjumst við vel- virðingar á þessu,“ segir hún. Sigríður vill einnig benda þeim sem fengið hafa fleiri en einn gíró- seðil sendan að hafa samband við Rafþjónustuna Ljós til þess að koma í veg fyrir misskilning. Símanúmer símaversins sem ann- ast svörun fyrir fyrirtækið fylgir gíróseðlinum. 20% hækkun á raflýsingu leiða Margir vitja leiða ástvina sinna í desember. ÁKVEÐIÐ hefur verið að næsta kortatímabil hefjist 8. desember næstkomandi að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu frá Sam- tökum verslunar og þjónustu. Gildir þetta um þær verslanir sem gert hafa samninga um þetta við Visa og Eurocard. Samtök verslunar og þjónustu, Þróun- arfélag miðborgarinnar, Kringlan og Smáralind óskuðu sameig- inlega eftir því við kortafyr- irtækin að kortatímabilið yrði lengt með þessum hætti. Með þessu fyrirkomulagi nást þrjár verslunarhelgar fyrir jólin, sem dreifir álaginu á kaupendur og verslunarfólk. Nýtt korta- tímabil 8. desember Nýtt kortatímabil hefur verið fært framar í desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.