Morgunblaðið - 22.11.2001, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 27
„ÁHRIF KOLLAGENS
ÁN SPRAUTUNNAR“
COLLAGENIST
DREGUR ÚR HRUKKUM - STYRKIR
Nýtt krem og serum með efnum sem örva
myndun kollagens og húðin veður
sjáanlega unglegri.
Göngugötunni Mjódd,
sími 587 0203.
Spönginni,
sími 577 1577.
Kynnum m.a. nýtt Collagenist krem, Power A dagkrem, nýja glæsilega
varaliti í 18 litum og margt fleira. Komdu við og fáður prufur og ráðleggingar.
Góðir kaupaukar. Kynning fimmtud. og föstud.Kynning fimmtud., föstud.
og laugard.
Nýjar
haus
tsend
ingar
af hö
nskum
.
Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814
Stærsta töskuverslun landsins
Samkvæmisveski í miklu úrvali
Verð kr: 2.900.-
Verð kr: 3.600.-
Verð kr: 3.200.-
Verð kr: 3.600.-
Verð kr: 3.200.-
Verð kr: 3.900.- Verð kr: 2.900.-
Verð kr: 2.900.-
Verð kr: 2.900.-
Verð kr: 4.400.-
Verð kr: 11.900.- Verð kr: 4.400.-
Þjónusta í 40 ár!
...fyrir jólabaksturinn!
Spennandi
UMBOÐSMENN
REYKJAVÍK OG NÁGRENNI: Byggt og búið, Kringlunni og Smáralind. Bræðurnir Ormsson, Lágmúla 5. Heimilistæki, Sætúni. Hagkaup,
Kringlunni, Skeifunni og Smáralind. Pfaff, Grensásvegi 13. Húsasmiðjan, Reykjavík. Rafbúðin, Álfaskeiði 31, Hafnarfirði. VESTURLAND:
Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi. Skagaver, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Glitnir, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Versl. Hamar,
Grundarfirði. Versl. Skipavík, Stykkishólmi. Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi. Skandi hf. Tálknafirði.
Pokahornið, Tálknafirði Versl. Gunnars Sigurðssonar, Þingeyri. Laufið, Bolungarvík. Straumur hf. Ísafirði. Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri. Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki.
Ljósgjafinn, Akureyri. AUSTURLAND: KÁ, verslanir um allt Austurland. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Héraðsbúa,
Egilsstöðum. Rafalda, Neskaupstað Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði. Kf. Fáskrúðsfjarðar. Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi. Kf. A-Skaftfellinga, Höfn.
SUÐURLAND: KÁ verslanir um allt Suðurland. Versl. Mosfell, Hellu. Brimnes, Vestmannaeyjum. Húsasmiðjan, Selfossi. Árvirkinn, Selfossi.
SUÐURNES: Húsasmiðjan. Samkaup. Stapafell. Fríhöfnin, Keflavíkurflugvelli.
KitchenAid KSM 90 Ultra Power hrærivél (hvít), ásamt
hakkavél og smákökumótum á hreint frábæru tilboðsverði.
KitchenAid – Kóróna eldhússins!
• 60 blaðsíðna leiðbeininga- og uppskriftabók
á íslensku fylgir.
• Fjöldi aukahluta fáanlegir, svo sem: Pasta
gerðartæki, grænmetiskvarnir, hveitibrautir, dósa-
opnarar, kornmyllur, ávaxtapressur og fleira.
• 9 litir fáanlegir
• Aðrar gerðir KitchenAid kosta frá kr. 35.910,stgr.
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is
KitchenAid einkaumboð á Íslandi
41.290,-stgr.
5.200,-
Þú sparar
Léttu þér baksturinn og
sparaðu kr. 5.200,-
FÆREYINGAR kusu að venju tvo
fulltrúa sína á danska þingið og voru
það Þjóðveldisflokksmaðurinn
Høgni Hoydal, ráðherra sjálfstæðis-
mála, og Lisbeth L. Petersen úr
Sambandsflokknum sem náðu kjöri.
Þótt jafnaðarmaðurinn Jóannes Ei-
desgaard fengi flest persónuleg at-
kvæði, 3.676, nægði það honum ekki
vegna kosningareglnanna og hann
féll af þingi.
Óli Breckmann, sem er í Þjóðar-
flokknum eins og Anfinn Kallsberg,
lögmaður Færeyja, féll í kosningun-
um og þykja úrslitin benda til þess
að margir hafi notað kosningarnar til
að lýsa óánægju sinni með stefnu
stjórnarinnar og stöðuna í sjálfstæð-
ismálunum. Breckmann hefur setið á
þjóðþinginu í 16 ár.
Sambandsflokkurinn styður sam-
bandið við Dani og bætti miklu við
sig, Petersen hlaut 27,2% sem er
5,4% meira en síðast. Kjörsókn var
meiri en nokkru sinni fyrr.
Þjóðarflokkurinn fékk 20,6% og er
það rúmum sex af hundraði minna en
í síðustu þjóðþingskosningum 1998.
Jafnt Sambandsflokkurinn sem jafn-
aðarmenn vilja framhald sambands-
ins við Danmörku og fengu flokkarn-
ir ásamt Miðflokknum alls um 52%
atkvæða. Þjóðveldisflokkurinn sem
hefur gengið harðast fram í barátt-
unni fyrir fullu sjálfstæði bætti við
sig fjórum af hundraði, hlaut 24,9%.
Úrslitin eru að sögn stjórnmála-
skýrandans Jóannes Hansen mikið
áfall fyrir Kallsberg sem verið hefur
við völd í hálft fjórða ár. Hansen seg-
ir að Þjóðarflokkurinn sé klofinn í
sjálfstæðismálum og segja megi að
Kallsberg hafi fengið „gula kortið“
hjá kjósendum. Kosið verður til fær-
eyska Lögþingsins eftir 4 mánuði.
Jafnaðarmenn starfa með systur-
flokki sínum á danska þinginu en
Hoydal hyggst ekki taka þátt í þing-
störfunum og vera utan flokka, jafn-
vel muni hann láta varamann sinn,
hinn litríka Tórbjørn Jacobsen, taka
sætið til að byrja með.
Sjálfstæðissinnar
sigra á Grænlandi
Grænlendingar kusu einnig tvo
fulltrúa og var annar þeirra Lars
Emil Johansen úr Siumut-flokknum
en hinn Kuupik Kleist úr Inuit
Ataqatigii er vann stórsigur. Að
sögn Politiken fékk Kleist rúmlega
sjö þúsund atkvæði eða 31%; hann
hyggst vera í stjórnarandstöðu.
Ekki er ljóst hver afstaða Johansen
verður en hann fékk rúmlega 5.000
atkvæði. Báðir hétu þeir að vinna
saman að auknu sjálfstæði Græn-
lands. Atassut-flokkurinn fékk að-
eins 21,4% fylgi.
Høgni Hoydal kjör-
inn á danska þingið
Þórshöfn. Morgunblaðið.
ÁHERSLUR Danska þjóðarflokks-
ins, DF, í innflytjendamálum valda
ugg í landinu en öllu frekar utan
landsins. Menn
ræða hvort Danir
séu farnir að
taka undir svip-
uð sjónarmið og
koma fram hjá
Frelsisflokki
hægrimannsins
Jörgs Haiders í
Austurríki, and-
úð á fólki frá
framandi löndum
og þá sérstaklega múslimum virðist
skyndilega orðin útbreidd.
DF jók mjög fylgi sitt og er nú
með 22 þingsæti, hlaut um 12% at-
kvæða. Venstre reri einnig á mið
hræðslu og andúðar gegn innflytj-
endum en hagaði málflutningi af
mun meiri varfærni en DF.
Formaður DF, Pia Kjærsgaard,
þykir skeleggur stjórnmálamaður.
Hún höfðar mikið til „danskra
gilda“ og vill stöðva frekari inn-
flutning fátæks fólks frá þriðja
heiminum. Vísar hún því á bug að
DF vilji traðka á flóttamönnum er
hann vill banna þeim að fá maka og
börn til sín frá heimalandinu.
Norski Venstre-flokkurinn er
systurflokkur danska flokksins með
sama heiti og báðir eiga flokkarnir
aðild að alþjóðasambandi frjáls-
lyndra flokka. Talsmenn norska
Venstre hafa að sögn Jyllands-
posten lýst baráttuaðferðunum í
Danmörku með stórum orðum og
sagt að um „harmleik“ væri að
ræða. Spáði formaðurinn Lars
Sponheim því að málið yrði tekið
upp í samræðum „raunverulegra“
frjálslyndra flokka í hreyfingunni.
Erik Leijonborg, talsmaður
frjálslyndra í Svíþjóð, tók undir
með Sponheim og sagðist „vera
beggja blands“ yfir aðferðum
Venstre. En mestu skipti hvernig
Venstre tækist að koma í veg fyrir
að Kjærsgaard og flokkur hennar
hefði raunveruleg áhrif á stefnuna í
innflytjendamálum. Ljóst er að
ímynd Dana sem notalegrar og
skilningsríkrar smáþjóðar hefur
beðið hnekki en þess ber að geta að
þeir eru meðal stærstu gefenda til
þróunarhjálpar í heiminum og fátt
bendir til að á því verði breyting.
Ein af ásökunum sem DF og fleiri
hafa hamrað á er að margir inn-
flytjendur misnoti velferðarkerfið.
En flokkur Kjærsgaard hefur sam-
tímis lagt áherslu á að félagsleg að-
stoð verði ekki skorin niður og hef-
ur rætt um að styðja slíkar tillögur
til að þær fái þingmeirihluta jafnvel
þótt stjórn hægriflokka vilji draga
úr útgjöldunum. Þótt Venstre hafi
ekki boðað miklar breytingar í
þessum efnum er ljóst að vænt-
anlegur forsætisráðherra, Anders
Fogh Rasmussen, hefði fremur vilj-
að að aðrir borgaralegir smáflokk-
ar en DF fengju þingsætin sem
flokkur Kjærsgaard hreppti. Hún
verður ekki auðveld í samningum.
Hræðslan við útlendingana
Pia
Kjærsgaard