Morgunblaðið - 22.11.2001, Síða 51
ÁSDÍS Kristinsdóttir, Elín Hanna
Jónsdóttir og Hildur Inga Þor-
steinsdóttir hlutu námsstyrki
Orkuveitu Reykjavíkur til kvenna
er stunda verkfræði- eða tækni-
nám.
Styrkur er nú veittur í fimmta
sinn og er liður í jafnréttisáætlun
Orkuveitunnar og er stofnað til
hans í þeim tilgangi að stuðla að
því að störf flokkist ekki í sérstök
kvenna- eða karlastörf. Þá kveður
jafnréttisáætlun Reykjavíkurborg-
ar á um að fjölga beri konum í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
hjá Reykjavíkurborg. Með því að
veita konum sem stunda nám í
raungreinum sérstaka námsstyrki
leggur Orkuveitan sín lóð á vog-
arskálarnar til þess að svo megi
verða, segir í fréttatilkynningu.
Dómnefnd, skipuð Jónu Gróu
Sigurðardóttur, Helga Hjörvar og
Hildi Jónsdóttur, valdi þrjár stúlk-
ur, en 45 sóttu um. Hver fékk 150
þúsund krónur.
Styrkumsóknirnar bera með sér
að þær stúlkur sem velja þessar
námsbrautir eru nær undantekn-
ingarlaust framúrskarandi náms-
menn sem eiga einkar glæsilegan
námsferil að baki. Sérstaka athygli
vekur að auk góðs námsárangurs
sýna margar þeirra frábæra
frammistöðu í öðrum greinum, svo
sem í listum, íþróttum eða á fé-
lagssviði.
Styrkveitingin fór fram í Tjarn-
arbúð í Ráðhúsi Reykjavíkur
föstudaginn 16. nóvember.
Hlutu námsstyrk
Orkuveitunnar
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 51
Lögmenn — lögfræðingar
Laust húsnæði
Með samstarf í huga leitum við að ungum og
dugmiklum lögmanni sem vill gerast leigutaki
að einu herbergi í húsnæði skrifstofunnar í
Húsi verslunarinnar á 2. hæð.
Um er að ræða vandað húsnæði með afnotum
af kaffistofu og fundarherbergi auk móttöku
með símaþjónustu.
Lögfræðiþjónustan, sími 520 5588,
Ingólfur Hjartarson, hrl.,
Kristján Ólafsson, hrl.,
Sigurður Sigurjónsson, hrl.
Umhverfis- og tæknisvið
Byggingadeild
Útboð
Bókasafn Hafnarfjarðar á Strandgötu 1
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í bóka-
safnsbúnað fyrir starfsemi Bókasafns Hafnar-
fjarðar í nýinnréttuðu húsnæði á Strandgötu
1, Hafnarfirði.
Verkið miðast við fullfrágenginn og uppsettan
búnað og felur m.a. í sér að útvega og setja
upp t.d. hillubúnað/hillustæður, gryfjur, skrif-
plötur, bókavagna, afgreiðsluborð og fleira.
Húsnæðið fyrir bókasafnsbúnaðinn er á fjórum
hæðum og er alls brúttó um 1.519 m².
Verkinu skal vera að fullu lokið 18. febrúar
2002.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu umhverfis-
og tæknisviðs, Strandgötu 8—10, Hafnarfirði,
frá og með fimmtudeginum 22. nóvember.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
4. desember 2001, kl. 11:00.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði.
TIL SÖLU SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 18211228 Br.
Landsst. 6001112219 VIII
I.O.O.F. 11 18211228½ Et. 2 -
Fr.
Í kvöld kl. 20 Lofgjörðarsam-
koma, Turid og Knut stjórna.
Kristilegt hjálparstarf
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Ræðumaður Arnór Már Másson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is .
Fimir fætur, félag foreldra
barna með klumbufætur
stendur fyrir jólabingói sunnu-
daginn 25. nóvember kl. 14.00 í
sal Grensáskirkju, Háaleitisbraut
66, Reykjavík. Boðið verður upp
á heitt kakó og piparkökur.
Fjölmennum nú og höldum fé-
laginu lifandi. Nýir félagsmenn
sem og aðrir stuðningsaðilar
sérstaklega velkomnir.
Stjórnin.
Aðaldeild KFUM, Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Kristin trúarleg mótun.
Efni: Guðmundur Einarsson
kennari. Upphafsorð: Sigurjón
Heiðarsson. Hugleiðing: Guð-
mundur Ingi Leifsson skólastjóri.
Allir karlmenn velkomnir.
Sunnudagur 25. nóvember
Gönguferð út í buskann.
Fararstjóri: Gunnar Hólm Hjálm-
arsson. Brottför: BSÍ kl. 13:00.
Helgin 30. nóv.—2. des.
Aðventuferð í Bása. Farar-
stjórar: Anna Soffía Óskarsdóttir
og Lovísa Christiansen.
Helgin 8.—9. desember
Aðventuferð jeppadeildar í
Bása. Fararstjórar: Guðmundur
Eiríksson og Guðrún Inga.
Áramót 30. des.—1. jan.
Fögnum nýju ári í Básum Farar-
stjóri: Vignir Jónsson.
www.utivist.is
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Krakkaklúbbur kl. 17.00.
Fjölskyldubænastund kl. 18.30.
Hlaðborð og samfélag kl. 19.00.
Biblíufræðslan fellur niður í
kvöld, en Benedikt Jóhannsson
heldur áfram kennslu um Heilag-
an anda næstkomandi fimmtu-
dag kl. 20.00.
Ath. Á morgun föstudag kl. 20
verður samkoma með Johnny
Foglander frá Livets Ord í Sví-
þjóð svo og á laugardags-
kvöldið, á laugardag verður
hann með frábæra kennslu frá
kl. 10.00 til 15.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILBOÐ / ÚTBOÐ
stjórn um verkfallið og áhrif þess
lögðu fulltrúar Neslistans fram eft-
irfarandi tilllögu:
„Bæjarstjórn Seltjarnarness
skorar á samningsaðila í kjaradeilu
tónlistarskólakennara að leita allra
leiða til að leysa deilu tónlistarskóla-
kennara og Launanefndar sveitarfé-
laga sem fyrst, svo tryggja megi að
starfsemi tónlistarskóla komist í
eðlilegt horf. Með samningum við
grunnskólakennara á síðasta ári
voru lagðar skýrar línur sem eðlilegt
er að kjör tónlistarskóla taki mið af.
Bæjarstjóra er falið að hafa sam-
band við Launanefnd sveitarfélaga
og koma þessum sjónarmiðum bæj-
arstjórnar Seltjarnarness á fram-
færi.“
Tillagan var samþykkt samhljóða.
FJÖLMENNI var á fundi bæjar-
stjórnar Seltjarnarness 14. nóvem-
ber sl. Á fundinn mættu tónlistar-
kennarar, foreldrar og
tónlistarnemendur sem hafa verið í
verkfalli frá 22. október.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir af-
henti bæjarstjórn Seltjarnarness
áskorun fyrir hönd verkfallsstjórnar
Félags tónlistarskólakennara og Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna.
Áskorunin var á þessa leið:
„Félag tónlistarskólakennara og
Félag hljómlistarmanna skora á
bæjarstjórn Seltjarnarness að stuðla
að því að samið verði við tónlistar-
skólakennara hið fyrsta og að þeim
verði tryggð sambærileg laun og
öðrum kennurum.“
Eftir stuttar umræður í bæjar-
Skora á samningsaðila
að leysa kjaradeilu
tónlistarskólakennara
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt
SNERRUÚTGÁFAN ehf. hefur
sent frá sér ný jólasveinaspil með
teikningum af öllum íslensku jóla-
sveinunum eftir Selmu Jóns-
dóttur.
Einnig er í hverjum pakka
söguágrip um jólasveinana á ís-
lensku, ensku og þýsku, eftir
Árna Björnsson þjóðháttafræðing.
Spilin eru fáanleg víða um
land.
Jólasveina-
spil frá
Snerru-
útgáfunni
LAGNAKERFAMIÐSTÖÐ Íslands
verður opnuð við hátíðlega athöfn,
laugardaginn 24. nóvember, kl. 14, af
ráðherrunum Birni Bjarnasyni og
Valgerði Sverrisdóttur auk Björns
Karlssonar, brunamálastjóra ríkis-
ins og Alfreðs Þorsteinssonar,
stjórnarformanns Orkuveitu
Reykjavíkur og Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar formanns Lagnakerfa-
miðstöðvar Íslands.
25. ágúst 1999 stofnuðu eftirtaldir
aðilar sjálfseignarstofnunina Lagna-
kerfamiðstöð Íslands: Lagnafélag
Íslands, Samband íslenskra sveitar-
félaga, Háskóli Íslands, Tækniskóli
Íslands, Rannsóknarstofnun bygg-
ingariðnaðarins, Iðntæknistofnun
Íslands, Samtök iðnaðarins, Sam-
band iðnmenntaskóla (Iðnmennt)
Brunamálastofnun Íslands.
Hlutverk lagnakerfamiðstöðvar-
innar er að vera starfsvettvangur
þeirra er vinna við rannsóknir og
fræðslu í lagnaiðnaði. Að leggja til
húsnæði, tæki og búnað sem notaður
er við fræðslu og rannsóknir.
Markmið lagnakerfamiðstöðvar-
innar er að stuðla að rannsóknum,
þróun, stöðlun og tæknilegum um-
bótum í lagnatækni og samhæfa
rannsóknir á lagnakerfum í landinu.
Að efla kennslu og þjálfun á sviði
lagnakerfa í skólum landsins á fram-
haldskóla- og háskólastigi og að
veita aðstöðu fyrir endurmenntun
iðnaðarmanna og hönnuða.
Til þess að uppfylla hlutverk og
markmið stöðvarinnar verður komið
upp hvers kyns lagnakerfum og hlut-
um þeirra til þess að mæta sem best
kennslu- og rannsóknarþörf allra
þátttakenda stöðvarinnar, segir í
fréttatilkynningu.
Lagnakerfamiðstöð
Íslands opnuð
FÉLAG um átjándu aldar fræði
heldur málþing laugardaginn 24.
nóvember í sal Þjóðarbókhlöðunnar
á 2. hæð, kl. 13.30.
Erindi halda: Þorsteinn Vil-
hjálmsson, Páll Halldórsson, Þór
Jakobsson, Sigurður Steinþórsson,
Fundarstjóri verður Guðrún Ing-
ólfsdóttir. Málþingið er öllum opið.
Málþing um
vísindi á 18. öld