Morgunblaðið - 22.11.2001, Síða 57

Morgunblaðið - 22.11.2001, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 57 DAGBÓK Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14 Sími 567 3718 LAGERÚTSALA Buxur, pils og peysur Stendur til 5. desember Mikil verðlækkun Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518 Ný sending Ullar- og kasmírkápur Flottir aðskornir heilsársfrakkar Opið laugardaga frá kl. 10-15 Útsölumarkaður á Langholtsvegi 130 Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 12.00-18.00 Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. NÁTTFÖT Mikið úrval fyrir börn og fullorðna Barnanáttföt frá kr. 1.000 Hvernig á að teikna hefðbundnar búddamyndir? Laugardaginn 24. nóv. og sunnudaginn 25. nóv. kl. 17 til 22. Ani - la Kelsang Kunphen, ensk búddanunna, heldur námskeið um hvernig eigi að teikna hefðbundnar búddamyndir. . Skráning fram að hádegi föstudaginn 23. nóv. í síma 568 3417 og 694 9680. Gjald fyrir námskeiðið er kr. 7.000 en kr. 5.000 fyrir námsmenn og öryrkja. www.karuna.is BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT VORIÐ GÓÐA Það seytlar inn í hjarta mitt sem sólskin fagurhvítt, sem vöggukvæði erlunnar, svo undurfínt og blítt, sem blæilmur frá víðirunni, – vorið grænt og hlýtt. Ég breiði út faðminn, – heiðbjört tíbrá hnígur mér í fang. En báran kyssir unnarstein og ígulker og þang. – Nú hlæja loksins augu mín, – nú hægist mér um gang. Því fagurt er það, landið mitt, og fagur er minn sjór. Og aftur kemur yndi það, sem einu sinni fór. Og bráðum verð ég fallegur, og bráðum verð ég stór... Jóhannes úr Kötlum Árnað heilla 95 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22. nóvember, er níutíu og fimm ára Jensína Sveinsdóttir, Austurbrún 6, frá Gillastöð- um í Reykhólasveit. Hún tekur á móti vinum og vandamönnum í safnaðarsal Áskirkju v/Vesturbrún laug- ardag kl. 16.30. 80 ÁRA afmæli. Áttræðverður laugardaginn 24. nóvember Sigurlaug Magga Guðmundsdóttir, Orrahólum 7, 7d, Reykja- vík. Hún tekur á móti vinum og ættingjum á heimili sínu á afmælisdaginn frá kl. 15– 18. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Bg5 Be7 5. e3 h6 6. Bh4 O-O 7. Dc2 b6 8. cxd5 exd5 9. Bd3 c5 10. dxc5 bxc5 11. Bxf6 Bxf6. Staðan kom upp í kvennaflokki í Evrópumóti landsliða í Leon á Spáni. Pólski kvennastórmeistar- inn Monika Socko (2.375) hafði hvítt gegn albönsku stúlkunni Rozana Gjergji (2.026). 12. Rxd5! Bxb2 Riddarinn var friðhelgur vegna 12... Dxd5 13. Be4 og hvítur vinnur skiptamun. Í framhaldinu fær hvítur tvo létta menn fyrir hrók. 13. Hd1 Da5+ 14. Dd2 Dxd2+ 15. Hxd2 Be5 16. Re7+ Kh8 17. Be4 Bc3 18. Rxc8 Rc6 19. Rd6 Bxd2+ 20. Ke2 Had8 21. Rc4 Rb4 22. Rxd2 Rxa2 23. Bc2 a5 24. Rgf3 Rc3+ 25. Ke1 Hb8 26. Rc4 Hfd8 27. Rfd2 a4 28. f3 Hb4 29. Hf1 Rb5 30. Re5 Hd5 31. Rd3 Hh4 32. Rf4 He5 33. Kf2 Rc3 34. Re4 g5 35. Rxc3 gxf4 36. e4 Hxh2 37. Rd5 f5 38. Rxf4 Kg7 39. Kg3 og svartur gafst upp. Lokastaða efstu liða í kvennaflokki varð þessi: 1. Frakkland 12½ vinning af 18 mögulegum. 2.–3. Mol- dovía og England 12 v. 4.–5. Þýskaland og Pólland 11½ v. 6.–8. Júgóslavía, Rúmenía og Azerbadsjan 10½ v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Hlutavelta Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.637 kr. fyrir Rauða kross Íslands. Þær heita Védís Rúnarsdóttir og Brynhildur Sörensen. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík EKKI er alltaf einfalt að meta sök og sakleysi þegar illa fer í vörn. Sú tilhneiging er rík í spilurum að skella skuldinni á þann aðilann sem tekur síðustu ákvörðun, en oft er það mjög ósann- gjarnt. Lítum á varnarklúð- ur í AV, þar sem böndin beinast að vestri í upphafi: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♠ Á76 ♥ 10863 ♦ D1052 ♣ÁK Vestur Austur ♠ DG1083 ♠ K952 ♥ Á7 ♥ 54 ♦ Á93 ♦ K7 ♣G84 ♣109652 Suður ♠ 4 ♥ KDG92 ♦ G864 ♣D73 Vestur Norður Austur Suður -- 1 tígull Pass 1 hjarta 1 spaði 2 hjörtu 2 spaðar 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Allir pass Vestur kom út með spaða- drottningu. Sagnhafi tók með ás og spilaði hjarta á kónginn og ás vesturs. Nú þarf tígul undan ásnum til að hnekkja spilinu, en vestur reyndi spaðagosann svo sagnhafi komst að til að taka trompin og gaf aðeins tvo slagi í viðbót á tígul. „Þú verður að spila tígli undan ásnum, makker; þá fæ ég stungu,“ sagði austur upplýsandi að spilinu loknu. Vestur hafði auðvitað gert sér grein fyrir því, en sá ekki hvernig hann gæti fundið þá vörn af öryggi: „Ég var að vona að við fengj- um slag á spaða og vildi ekki hreyfa tígulinn ef þú ættir gosann,“ maldaði hann í mó- inn. Tvennt er athyglisvert við þessi orðaskipti. Í fyrsta lagi, að báðir virðast sann- færðir um að vestur eigi að taka á sig mistökin. Austur hefur mál sitt á afgerandi hátt með „ÞÚ verður…“ og vestur tekur undir með því að réttlæta gerðir sínar. Ástæðan er sú að vestur var „framkvæmdastjóri“ varn- arinnar. En „stjórnin“ var í austur. Umræðan á með réttu að snúast um fyrsta slaginn. Hvaða spil lét aust- ur þá? Í reynd kallaði austur í spaða (af gömlum vana), en það voru meginmistök varn- arinnar. Ef hann frávísar – og neitar þar með spaðaslag – sér vestur að tígulstunga er eina leiðina að fjórum slögum. Þetta er gamla lög- málið: Frávísun í einum lit ber að líta á sem kall í öðr- um. Austur veit að vörnin á engan slag á spaða og ætti að geta séð að eina von varn- arinnar liggur í tígulstungu og hjartaslag hjá makker. FRÉTTIR SAMTÖK lungnasjúklinga og SÍBS standa sameiginlega fyrir fræðslu- fundi sem haldinn verður í Safnaðar- heimili Hallgrímskirkju í Reykjavík í dag, fimmtudag, kl. 20. Gestur fundarins: Þórarinn Gíslason, yfir- læknir á lungnalækningadeild Land- spítala – Háskólasjúkrahúss. Erindi sitt nefnir hann: Framtíðarskipulag lungnalækninga. „Fundarefnið er afar mikilvægt fyrir lungnasjúklinga í ljósi þeirra miklu breytinga sem verða, þegar Vífilsstaðaspítala verður lokað í byrjun næsta árs. Lungnasjúklingar og aðstandendur eru ákaflega óör- uggir vegna ófullnægjandi upplýs- inga um það hvað tekur við. Samtök lungnasjúklinga og Reykjavíkur- deild SÍBS ætla með þessu framlagi til umræðu um framtíðarskipan lungnalækninga að leggja sín lóð á vogarskálarnar og efla umræðu og tengsl milli sjúklinga, starfsmanna sjúkrahúsa og sjúklingafélaganna. Að loknu erindi mun Þórarinn svara spurningum fundarmanna,“ segir í fréttatilkynningu. Fundurinn er öllum opinn. Framtíðarskipulag lungnalækninga STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbarn dagsins: Þú ert sjálfstæður og vilt sem minnst afskipti annarra af þínum högum. Þetta er lofsverð afstaða en getur þó stundum valdið árekstrum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það er sjálfsagt að vera for- vitinn um framandi slóðir, menningu og þjóðir því alltaf má eitthvað læra þótt margt sé síst til eftirbreytni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það getur reynst þrautin þyngri að þurfa að fást við verk annars manns sem hefur allt önnur viðhorf til hlutanna en þú. Sinntu þessu verkefni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt vinir þínir segi þér eitt og annað um sjálfan þig sem þér kann að falla mið- ur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Nú verðurðu að taka þig á og koma betra skipulagi á störf þín bæði heima fyrir og á vinnustað. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það getur alveg gengið í stuttan tíma að leggja svona mikið á sig eins og þú gerir en galdurinn er að þekkja tak- mörk sín og létta byrðina þegar nauðsyn er. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Öllum er hollt að líta um öxl og orna sér við gamlar minn- ingar um leið og þær sárs- aukafullu hafa verið afgreidd- ar og fljóta hjá. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú átt að gefa þér meiri tíma til að umgangast vini og vandamenn því þeir eru nú einu sinni kjarni lífs þíns og tímanum með þeim því vel varið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Láttu ekki undan minnstu löngun til lausungar í fjár- málum því allt slíkt hefnir sín grimmilega. Taktu þér tíma til að sinna heilsurækt og íhugun. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Láttu það ekki fara í taugarn- ar á þér þótt fólk sæki svo grimmt í félagsskap þinn að þú eigir bágt með að sinna störfum þínum þess vegna. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Láttu lítið fyrir þér fara og sinntu störfum þínum að tjaldabaki eins mikið og þér er fært. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er gott að eiga trúnaðar- vin sem að maður getur deilt draumum sínum og löngun- um með. Og ekki ætti að skaða að leggja tvö höfuð í bleyti í stað eins. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Miklir átakatímar eru fram- undan en þeir eru þó ekkert til þess að hafa áhyggjur af. Þú hefur alla burði til að standast þær kröfur sem til þín verða gerðar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.