Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 12

Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MATTHÍAS Ólafsson er orðinn 86 ára gamall, en hann hefur síðast- liðin 20 ár hjólað sér til heilsubótar. Ekki hefur fallið úr dagur nema í verstu veðrum. Fyrsta hjólið sitt fékk hann við fermingu fyrir meira en 70 árum. Myndin var tekin af Matthíasi fyrir austan við Kirkju- bæjarklaustur í gær þar sem hann var í sínum daglega hjólatúr. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Í daglegum hjólatúr SKIPULAG ferðamála hjá Reykja- víkurborg komu nokkuð til umræðu á borgarstjórnarfundi í gær. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn, hóf umræðuna og taldi að aðgerðir meirihlutans í ferðamálum væru til- viljanakenndar. Helgi Pétursson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, kvað hafa náðst árangur í því að laða fleiri ferðamenn til borgarinn- ar. Hann sagði byggingu ráðstefnu- og tónlistarhúss eitt þýðingarmesta verkefnið í ferðaþjónustu á næst- unni. Inga Jóna ræddi um tillögu borg- arstjóra sem samþykkt var á fundi borgarráðs 28. desember þar sem lagt er til að Reykjavíkurborg taki að sér að stofna og reka upplýs- ingamiðstöð höfuðborgarinnar. Á hún að annast upplýsingagjöf til ferðamanna, hafa umsjón með sam- þættingu, skipulagi og kynningu á viðburðum í borginni. Telur heildarsýn vanta Inga Jóna var þeirrar skoðunar að ferðamál, skipan þeirra og stjórn væri langt frá því að vera í nógu góðu horfi af hálfu meirihlutans. Tillagan varði fyrst og fremst ákveðið fyrirkomulag um upplýs- ingamiðstöð ferðamála en í hana vantaði alla stefnumörkun um hvernig stýra ætti ferðamálum. Hún sagði ferðamál hafa verið í reiðileysi frá því að embætti ferða- málafulltrúa borgarinnar hefði ver- ið lagt niður fyrir nokkrum árum. Aðgerðir væru tilviljanakenndar og ekki til þess fallnar að ná raunveru- legum árangri. Víða væri ýmislegt gott gert í borgarkerfinu en sam- ræmingu vantaði og samstillt átak til að ná árangri. Inga Jóna kvað það í sjálfu sér ágætt mál að upplýsingamiðstöð höfuðborgarinnar yrði sett á lagg- irnar og það hefðu sjálfstæðismenn samþykkt. Samt sem áður vantaði heildarsýn og samstillt vinnubrögð til að koma málunum á nægilega hreyfingu. Hún taldi umræður um ferðamál eiga að fara fram hjá sam- göngunefnd og sagði tillögur um rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar aðallega snúast um upplýsingagjöf til ferðamanna en minna væri um markaðsmál. Helgi Pétursson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, minnti að rætt hefði verið um ferðamál á síðasta borgarstjórnarfundi og þar hefðu komið fram ýmis sjónarmið. Hann sagði meginmálið þann árangur sem náðst hefði í að fjölga ferða- mönnum í borginni og lægju til þess margar ástæður. Kvaðst hann því furða sig á að kallað væri eftir frekari tillögum, ljóst væri að sam- ræma ætti aðgerðir, ekki síst nú er menningarborgarverkefninu væri lokið, og væri slík samræming lögð til í tillögunni. Sagði hann málin einnig verða rædd í samgöngunefnd á næstunni. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi að samráð hefði ekki verið haft við ferðamálaráð um væntanlegar breytingar og spurði hvort einhver samningur væri í bí- gerð um samstarf upplýsingamið- stöðvarinnar og ferðamálaráðs. Spurði hann einnig hver yrðu form- leg samskipti samgöngunefndar borgarinnar og þess hóps sem stjórna ætti nýju upplýsingamið- stöðinni. Hópnum virtist ætlað að samræma markaðs- og kynningar- starf en slíkt væri einnig verkefni samgöngunefndar. Einnig spurði hann hvernig fjármagna ætti rekst- ur miðstöðvarinnar sem kosta myndi 10-15 milljónir króna á ári. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tjáði sig einnig um þessi mál og ítrekaði orð sín frá síðasta borgarstjórn- arfundi að brýnt væri að borgin missti ekki niður góðan árangur í ferðaþjónustu. Hann sagði nauðsyn- legt að íhuga aðgerðir og möguleg sóknarfæri eftir atburðina í Banda- ríkjunum 11. september. Samstarf við ferða- málaráð kannað Helgi Pétursson sagði hafa verið samþykkt hjá ferðamálaráði að halda áfram rekstri upplýsingamið- stöðvar ferðamála í tvo mánuði á hinu nýja ári meðan hugað væri að hugsanlegu samstarfi við Reykja- víkurborg. Ekki væri óeðlilegt að slíkur samningur yrði gerður við borgina þar sem ferðamálaráð væri víða í slíku samstarfi við stærri bæjarfélög úti á landi. Þá upplýsti Helgi að samþykkt hefði verið í samgöngunefnd að hefja umræður um stefnumótun í ferðamálum. Vilhjálmur Þ. sagði það nýjar fréttir og undarlegar að ferðamála- ráð skyldi samþykkja að reka upp- lýsingamiðstöðina áfram í tvo mán- uði. Sagði hann það sýna að undirbúningur málsins væri ónógur og ágreiningur um það. Væri því ekki ljóst hvenær upplýsingamið- stöð höfuðborgarinnar myndi taka til starfa og nær hefði verið að hafa skipan mála óbreytta út þetta ár meðan óvissa ríkti um framvindu þess. Inga Jóna Þórðardóttir benti einnig á að ráða ætti forstöðumann upplýsingamiðstöðvar höfuðborgar- innar frá 15. janúar en samt væri samþykkt að framlengja rekstur upplýsingamiðstöðvar ferðamála um tvo mánuði. Telur umræðuna benda til leiðtogaslags Helgi Hjörvar, forseti borgar- stjórnar, sagði umræðurnar um ferðamálin einkennast af því sem hann nefndi leiðtogaslag innan borgarfulltrúahóps sjálfstæðis- manna. Þrír borgarfulltrúar hefðu talað, Inga Jóna Þórðardóttir, Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Júlíus Vífill Ingvarson og hvert þeirra um sig keppst um að vera hástemmdari en hitt í umræðunni. Helgi sagði það rangt að skipulagsleysi ríkti í ferðaþjónustu eins og sjálfstæðis- menn hefðu haldið fram, hún hefði notið almennt góðra skilyrða af hálfu hins opinbera og spjarað sig vel. Hann sagði það hins vegar rétt hjá Júlíusi Vífli að hafa áhyggjur af þróun í ferðaþjónustu eftir at- burðina 11. september og það yrði að skoða sérstaklega. Þá minnti borgarfulltrúinn á að sjálfstæðis- menn ættu tvo fulltrúa í samgöngu- nefnd þar sem þeir gætu rætt þessi mál. Sjálfstæðismenn gagnrýna skipulag ferðamála hjá Reykjavíkurborg Telja aðgerðir í ferðamálum tilvilj- anakenndar MATVÖRUVERSLUNUM í Reykjavík hefur fækkað um þriðj- ung síðastliðin 20 ár, úr 127 í 85 og lengra er á milli þeirra, þrátt fyrir öra fjölgun íbúa og útþenslu byggð- ar. Þetta kemur fram í skýrslu um verslun á höfuðborgarsvæðinu sem þróunarsvið í Ráðhúsi lét gera. Markmið skýrslunnar er að draga saman upplýsingar um þróun smá- söluverslunar á höfuðborgarsvæð- inu síðustu árin með áherslu á þróun verslunar eftir hverfum. Tilgangurinn var að fá heildstætt yfirlit yfir veltu smásöluverslunar á svæðinu áður en áhrifa nýjustu við- bótarinnar í verslunarflóru svæðis- ins, Smáralindar, færi að gæta. Við gerð skýrslunnar var aðallega stuðst við gögn frá ríkisskattstjóra um veltu smásöluverslunar. Jákvætt viðhorf til miðborgar Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að 71% af veltu smásöluversl- unar fer fram á höfuðborgarsvæðinu og rúmur helmingur hennar í Reykjavík. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði og einn- ig eru birtar í skýrslunni, hefur mið- borgin afgerandi forystu gagnvart Kringlu og Smáralind hvað varðar tíðni heimsókna, fjölbreytileika er- inda og jákvætt viðhorf. Þá kemur fram að verslun á höf- uðborgarsvæðinu er stöðugt að dreifast meira í takt við útþenslu byggðarinnar og hlutur miðborgar og eldri verslunarkjarna að minnka og hlutur miðborgar og Kringlunnar í heildarveltu verslunar á höfuð- borgarsvæðinu hefur lækkað síð- ustu 12 árin. Hverfin miðsvæðis í Reykjavík, 104, 105 og 108 eru öfl- ugustu verslunarhverfin á höfuð- borgarsvæðinu með helming af allri smásöluveltu á höfuðborgarsvæð- inu. Velta í smásölu- verslun 161 milljarður Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun var velta í smá- söluverslun árið 2000 161 milljarður króna og hafði vaxið um 1,7% frá árinu 1999, en það ár jókst hún um 7% milli ára. Á fyrri helmingi þessa árs var veltan í smásöluverslun orð- in 78,6 milljarðar sem er 4,1% aukn- ing frá fyrri hluta síðasta árs. Dæmi um flokka verslunar þar sem orðið hefur umtalsverð aukning á veltu frá 1998 eru lyfsala, bygging- arvörur, fataverslun og póstverslun. Þá segir í lokaorðum skýrslunnar að almenningur hafi nýtt aukinn kaup- mátt síðustu ára til að kaupa heim- ilistæki, tölvur og ýmiss konar rým- isfrekan varning. Hlutur miðborgar og eldri verslunarkjarna að minnka HEILDSÖLUVERÐ á mjólk og mjólkurvörum hækkaði um 6,5% að meðaltali um áramótin vegna hækk- unar á verði mjólkur til bænda og vegna hækkunar á vinnslu- og dreif- ingarkostnaði mjólkur. Þessi hækkun var ákveðin sl. haust. Verð á nýmjólk og léttmjólk hækk- ar þannig um 6,27% og verður al- mennt verð í smásölu 85 kr. lítrinn. Undanrenna hækkar ívið meira eða um 6,53% og kostar eftir hækkun 83 kr. lítrinn miðað við óbreytta smá- söluálagningu. Sýrðar mjólkurafurðir, jógúrt og slíkar vörur, hækka nokkru meira en mjólkin sjálf eða um tæplega 8,3%. Gengisáhrif vega þyngra í þessum vöruflokkum vegna íblöndunarefna og umbúða, samkvæmt upplýsingum Mjólkursamsölunnar. Þannig hækkar Óskajógúrt um 8,26% og kostar 180 g dós eftir hækkun 63–64 kr. og hreint skyr hækkar um 8,13% og kostar 500 g dós eftir hækkun 119 kr. Rjómi hækkar minna eða um 3,4% og kostar peli af rjóma eftir hækkun 168 kr. Þá hækkar 26% ostur um 6,48%. Mjólk hækk- ar um 6,5% að meðaltali TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hefur gert samkomulag við Boga Jónsson bæklunarlækni um gerð krossbandaaðgerða á hné. Samn- ingurinn tók gildi um áramót. „Þetta gerir sjúklingum kleift að fara í þessa aðgerð með kostn- aðarþátttöku Tryggingastofnunar en þessar aðgerðir hafa ekki verið greiddar af Tryggingastofnun fram til þessa,“ sagði Sæmundur Stefánsson, upplýsingafulltrúi Tryggingastofnunar ríkisins. Sæmundur sagði að Bogi hafi reynslu af lokuðum krossbandaað- gerðum á hné bæði frá Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi og Sjúkra- húsinu á Akranesi. Gerðar verða á milli 30 og 40 að- gerðir á næsta ári og verður hluti sjúklings í aðgerð af þessu tagi 18.000 krónur eins og þegar um annan sérfræðikostnað er að ræða og hluti lífeyrisþega með afslátt- arkort 9.000 krónur. Krossbandaaðgerðir Trygg- ingastofn- un semur við lækni LÍÐAN 17 ára pilts, sem slasaðist al- varlega á nýársdag þegar bifreið sem hann var farþegi í lenti í árekstri við strætisvagn, er óbreytt. Hann liggur á gjörgæsludeild Land- spítalans í Fossvogi og er tengdur við öndunarvél. Hinn slasaði var í bifreið með jafnaldra sínum á mótum Stórhöfða og Höfðabakka þegar slysið varð og var fluttur meðvitund- arlaus á sjúkrahús. Pilturinn sem var við stýrið fékk að fara heim að lokinni læknisskoðun. Vagnstjórinn var einn í strætisvagninum og slapp ómeiddur. Óbreytt líð- an á gjör- gæsludeild ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.