Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 19
Stórsýning um helgina - TILFINNINGIN ER GÓÐ
Hefur sig til flugs
5. JANÚAR
FYRSTA barn ársins 2002, sem
fæddist á kvennadeild FSA, var
myndarstúlka, sem kom í heiminn
um miðjan dag 2. janúar. Stúlkan
var 15 merkur og 52 cm við fæð-
ingu. Foreldrar hennar eru Anna
Stefánsdóttir og Hilmar Már
Baldursson á Akureyri. Þetta er
annað barn þeirra en fyrir eiga
þau Sigrúnu Ósk, sem verður
þriggja ára í næsta mánuði. Þar
sem fæðingin gekk ekki alveg
nógu vel var stúlkan tekin með
keisaraskurði en að sögn Önnu
heilsast öllum í fjölskyldunni vel.
Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær voru fæðingar á
kvennadeild FSA á síðasta ári
443, þar af þrjár tvíburafæðingar,
og börnin sem þar fæddust því
446 að tölu, 213 strákar og 233
stúlkur.
Þótt fyrsta barn ársins hafi
verið tekið með keisaraskurði,
hefur keisaraskurðum verið að
fækka töluvert á milli ára á
kvennadeild FSA, að sögn Ingi-
bjargar Jónsdóttur yfirljósmóður.
Á síðasta ári var tíðni keis-
araskurða 19%, en 22,2% árið
2000 og 24,9% árið 1999.
„Við höfum verið að ná niður
tíðni keisaraskurða og erum mjög
stolt af því, þar sem við viljum að
sem flestar konur fæði eðlilega.
Við höfum tekið upp nýtt skrán-
ingarform fyrir fæðingarnar, eins
konar gæðaeftirlit. Eftir hvern
mánuð förum yfir það sem hefur
verið að gerast og sjáum nú betur
eftir hvern mánuð hvernig hver
fæðing hefur gengið en áður var
farið yfir árið í heild. Og Alex-
ander Smárason læknir hefur
unnið mikið í þessu með okkur.“
Keisaraskurðir voru
allt of margir
Ingibjörg sagði að tíðni keis-
araskurða hefði verið allt of há
og þá ekki síst árið 1999 þegar
um fjórðungur kvenna fór í keis-
araskurð. Hún sagði að 18–19%
væri ásættanleg tala. „Aðalatriðið
er að þær konur sem eru að fæða
sitt fyrsta barn komist í gegnum
fæðinguna án þess að fara í keis-
ara, því önnur fæðing er alltaf
mun léttari en fyrsta fæðing. Þær
konur sem hafa einu sinni farið í
keisaraskurð hafa orðið val. Við
hvetjum þær til þess að fara í
fæðingu ef allt bendir til þess að
það geti gengið en þær geta samt
haft sína skoðun á því og ef þær
vilja aftur í keisaraskurð fá þær
það,“ sagði Ingibjörg.
Myndarstúlka fyrsta barn ársins á kvennadeild FSA
Keisaraskurðum
fækkar á milli ára
Morgunblaðið/Kristján
Stoltir foreldrar, Hilmar Már Baldursson og Anna Stefánsdóttir, með
nýfædda dóttur og fyrsta barn ársins á kvennadeild FSA.
FÉLAGSMÁLARÁÐ Dalvíkur-
byggðar hefur samþykkt að veita
stjórnum foreldrafélaga grunn-
skólanna þriggja í Dalvíkurbyggð
viðurkenningu og fjárstyrk að
upphæð 100 þúsund krónur.
Styrkurinn er veittur fyrir ár-
angursríkt samstarf á sviði for-
varna, útivistarmála, skipulagning-
ar á foreldrarölti og gæslu á
samkomum í félagsmiðstöðinni. Að
mati félagsmálaráðs hefur sam-
starf við stjórnir foreldrafélaganna
skilað miklum og marktækum ár-
angri í forvörnum á síðustu tveim-
ur mánuðum.
Samhæfa aðgerðir
í forvörnum
Samstarf félagsmálaráðs og for-
eldrafélaga grunnskólanna hófst
síðasta haust og miðaði að miðlun
upplýsinga og samhæfingu að-
gerða í forvörnum og útivistarmál-
um barna. Í kjölfarið tóku for-
eldrafélögin að ræða
útivistarmálefni barna á fundum
sínum og tóku að sér að skipu-
leggja foreldrarölt og aðstoð við
gæslu á samkomum í félagsmið-
stöð. Samstarfið hefur skilað góð-
um árangri og því þótti félags-
málaráði ástæða til að veita
umrædda viðurkenningu með
hvatningu um áframhald.
Styrkja for-
eldrafélög
grunnskól-
anna
Dalvíkurbyggð
Félagsmálaráð
Dalvíkurbyggðar
Vélsmiðja Ólafsfjarðar hefur
fest kaup á húsnæði Krossa-
ness í Ólafsfirði, það er þar
sem gömlu bræðslurnar voru.
Samningar um kaupin hafa
tekist og mun Vélsmiðjan
flytjast úr 400 fermetra hús-
næði í rúmlega 1.200 fer-
metra húsnæði.
Að sögn Ásgríms Pálma-
sonar munu þeir hjá Vél-
smiðjunni hefja flutning ein-
hvern næstu daga, en mikið
verk bíður þeirra við að rífa
niður ýmislegt í verksmiðj-
unni. Ráðgert er að klára
flutninginn um áramót, eða í
síðasta lagi í vor.
Einnig stendur til að fjar-
lægja alla tankana við
bræðsluna gömlu, ef þeir selj-
ast ekki í vetur.
Verkefnastaða Vélsmiðj-
unnar hefur verið upp og ofan
síðustu mánuðina. Því hafa
starfsmenn hennar verið
langdvölum á Akureyri, mest
við Slippinn.
Eigendur Vélsmiðjunnar
eru Eiríkur Sævaldsson, Ósk-
ar Gíslason, Ásgrímur Pálma-
son og Gauti M. Rúnarsson.
Vélsmiðja
Ólafsfjarðar
Kaupir
nýtt og
stærra
húsnæði
Ólafsfjörður