Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 63
Sýnd kl. 10. Vit 319
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8. Vit 299
Sýnd kl. 6 og 8. Vit 328
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 6.
Ísl talVit 320Sýnd kl. 5. Vit 307Sýnd kl. 6. Vit 320
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 319
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
strik.is MBL
Kvikmyndir.com
BREYTTU SJÁLFUM ÞÉR OG LÍTTU
HEIMINN ÖÐRUM AUGUM.
Tvöfaldur Óskarsverðlaunahafi, Kevin Spacey (“American
Beauty”, “The Usual Suspects”) leikur hér af hreinni og
ógleymanlegri snilld. Og svo má ekki gleyma hinum frábæra
Jeff Bridges (“The Fisher King”) en hann hefur hlotið ófáar
tilnefningar til Óskarsverðlauna og Golden Globe verðlauna.
Hreint út sagt, tveir magnaðir leikarar í kvikmynd sem þú
verður hreinlega að sjá og munt tala um.
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 327
FRUMSÝNING
betra en nýtt
Sýnd kl. 9 og 11.Frumsýnd kl. 6.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 11.20.
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
Ævintýrið lifnar við
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
Nýr og glæsilegur salur
MAGNAÐ
BÍÓ
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Yndisleg rómantísk gamanmynd í anda Sleepless in Seattle. John Cusack
(Americas Sweetheart´s) og Kate Beckinsale (Pearl Harbor)
hafa aldrei verið betri.
Örlög með kímnigáfu...
Getur einu sinni á ævinni gerst tvisvar?
l ...
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.laugarasbio.is
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV
HJ. MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
. J.
Sýnd kl. 2.20, 3.20, 5.45, 6.45, 9,10 og 12.15 eftir miðnætti. B.i 12 ára
Powersýning
kl. 12.15
eftir mið
nætti.
Á stærsta
THX
tjaldi lan
dsins
BÓKABRENNA var haldin í Alamogordo í
Nýju-Mexikó í Bandaríkjunum í fyrradag eft-
ir stólræðu séra Jacks Brocks, en hann hvatti
til þess að bækur um galdrastrákinn Harry
Potter yrðu brenndar þar sem þær væru Guði
ekki þóknanlegar. Boðaði presturinn að hann
myndi kveikja heilagan eld utan við kirkju
sína til að brenna bækurnar. Ýmislegt fleira
lenti á eldinum, svo sem plötur þungarokks-
hljómsveitarinnar AC/DC og verk enska leik-
skáldsins Williams Shakespeares.
Athæfi prestsins féll mönnum misjafnlega í
geð og stóð hópur fólks fyrir mótmælum gegn
kirkju hans og hélt þar á hakakrossfánum
skiltum með vísunum til Hitlers til að sýna
vanþóknun sína á bókabrennu Brocks.
Brock fullyrðir að bækurnar um Harry
Potter hvetji börn og unglinga til að fræðast
um nornir og seiðkarla og slíkt sé hvorki hon-
um né Guði þóknanlegt. „Bækurnar um
Harry Potter munu leggja líf fjölda ungs fólks
í rúst,“ sagði hann við Reuters-fréttastofuna.
Brock flutti prédikun á jóladag undir yfir-
skriftinni: Jesúbarnið eða Harry Potter. Hann
sagði að bókabrennan væri tilraun til að
hvetja kristið fólk til að fjarlægja af heimilum
sínum allt sem truflaði það við að tengjast
Guði.
Meðal þess sem notað var í áramótabrennu
séra Brocks voru AC/DC-plötur, verk Shake-
speares og Harry Potter-bækur.
AP
Séra Jack Brock og eiginkona hans,
Sharon, fleygja nokkrum Harry Potter-
bókum á hinn „heilaga eld“.
Brenndi Harry Potter á báli
Ofstækisfullur prestur í Nýju-Mexíkó
SÖNGDÍVAN Mariah Carey fagnar því væntanlega inni-
legast allra að árið sé senn á enda því vart verður annað
séð en að hún muni líta á það er fram líða stundir sem eitt
af sínum verstu. Ekki nóg með að hafa átt við geðræn
vandamál að stríða heldur hefur frami dívunnar tekið all-
laglega dýfu eftir að bæði plata hennar og bíómynd sem
bera hið fullkomna rangnefni Glitter, eða „Glói“ kolféllu,
bæði í sölu og að mati gagnrýnenda sem rifu hana í sig með
kjafti og klóm og smjöttuðu hærra en dæmi eru um.
Nú hefur frami einnar sigursælustu söngdívu samtím-
ans tekið enn eina dýfuna því hljómplötufyrirtæki hennar
Virgin hefur í hyggju að rifta svo til nýundirrituðum fimm
platna samningi við hana sem átti að færa henni hærri
upphæðir en dæmi eru um í tónlistarheiminum eða í
kringum 100 milljón dali, 10 milljarða króna.
Carey rifti samningum sínum við Sony er hún skildi við
eiginmann sinn Tommy Mottola, sem er yfirmaður þar á bæ. Hún var brött er hún gekk til liðs við
Virgin en tímasetningin var erfið. Britney Spears og Christina Aguilera að stela frá henni yngstu
áheyrendunum og Janet Jackson, stallkona hennar hjá Virgin, með þá eldri í vasanum.
Glitter var fyrsta platan sem Carey gaf út undir merkjum Virgin og þegar í upphafi varð ljóst
að áhuginn á söluhæstu söngkonu 10. áratugarins hafði dvínað hreint ótrúlega mikið. Nú er svo
komið að platan hefur ekki selst „nema“ í 2 milljónum eintaka sem er sáralítið t.a.m. í samanburði
við Music Box frá 1993 sem rifin hefur verið út í 20 milljónum eintaka. Yfirmenn Virgin eru vit-
anlega uggandi yfir þessum sláandi tölum og íhuga því alvarlega að rifta samningnum stóra en í
honum er undankomuleið sem segir svo að nóg sé að greiða söngkonunni 20 milljón dali fyrir
hverja útgefna plötu. Vissulega stórtap það fyrir útgefandann en ekki nærri því eins stórt og það
kann að verða, metur hann, ef gefnar verði út fleiri plötur með hinni fallandi stjörnu.
Frami Carey tek-
ur enn eina dýfu
Hvað er til bragðs að taka –
ganga í herinn? Carey glennir
sig í félagsskap bandarískra
friðargæsluliða í Kosovo sem
hún heimsótti fyrr í þessum
mánuði.