Morgunblaðið - 04.01.2002, Blaðsíða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 21
NÝTT íþróttahús var vígt við hátíð-
lega athöfn í Vestmannaeyjum
skömmu fyrir áramót. Eldri hluti
íþróttahússins var 3.300 fermetrar
en síðari hluti byggingarinnar, sem
nú hefur verið tekinn í notkun, er
3.100 fermetrar og heildarstærð
hússins því 6.400 fermetrar. Ljóst
er að öll aðstaða Vestmannaeyinga
til íþróttaiðkunar er nú orðin ein
hin besta sem þekkist í landinu, auk
þess sem gera má ráð fyrir að með
tilkomu nýja hússins verði Vest-
mannaeyjar mun eftirsóttari staður
til þess að halda íþróttamót.
Skóflustunga og jarðskjálftar
Framkvæmdir við síðari hlutann
hófust 17. júní árið 2000 en hann er
3.100 fermetrar að stærð. Bygging-
arkostnaður nam um 320 milljónum
króna. Það var verktakafyrirtækið
Steini og Olli sem sá um byggingu
hússins en byggingarkostnaður var
alfarið greiddur af bæjarsjóði Vest-
mannaeyja.
Áhorfendapallar eru báðum
megin í nýja íþróttasalnum fyrir
átta hundruð manns, þar af fyrir
þrjú hundruð í sæti.
„Það er dálítið gaman að greina
frá því,“ segir Vignir Guðnason,
forstöðumaður íþróttahússins, „að
hálftíma eftir að bæjarstjórinn
hafði tekið fyrstu skóflustunguna
að húsinu urðu jarðskjálftar hér í
Eyjum og raunar um allt Suðurland
og menn voru á því að bæjarstjór-
inn hefði grafið svo djúpt og því
hefðu skjálftarnir orðið.“
Við getum nú státað af því og ég
held að það sé staðreynd að við
séum komnir í fremstu röð aftur. Á
árunum 1976 til 1985 vorum við hér
í Eyjum í fararbroddi á landinu
með okkar íþróttamiðstöð en síðan
höfum við dregist aftur úr. En núna
erum við aftur komnir í fremstu
röð enda erum við með allt undir
sama þaki, þ.e. þrjá stóra íþrótta-
sali sem eru löglegir fyrir hvaða
keppnisgrein sem er. Við erum að
lagfæra gamla salinn þannig að
hann verður eins og nýr og síðan
erum við með glæsilega sundlaug
sem þykir besta keppnislaug á
landinu. Auk þess erum við með
stóran líkamræktarstað og útisvæði
með heitum pottum. Þannig að það
má segja að þetta sé orðin alger
íþróttaparadís hérna hjá okkur.“
Mjög góð aðstaða
til þess að halda íþróttamót
Vignir segir að Vestmanna-
eyingar séu nú komnir með mjög
góða keppnisaðstöðu, þ. á m. full-
komna fimleikagryfju með öllum
hugsanlegum tækjum. „Hér er
hægt að keppa í stangarstökki og
hvaða grein sem er inni í salnum,
það var sérstaklega tekið úr gólfinu
vegna þess. Ég held að það leiki
enginn vafi á því að við eigum að
geta fengið til okkar langtum fleiri
mót. Hér er hægt að keppa á þrem-
ur völlum í einu og það eru marka-
töflur í öllum sölunum. Það er að-
eins einn annar staður á landinu
sem getur státað af þremur íþrótta-
sölum undir einu og sama þaki.“
Vignir segir að aðstaða fyrir all-
ar deildir íþróttafélaganna í Vest-
mannaeyjum sé auk þess mjög góð.
Aðspurður segir Vignir að auk
knattspyrnu séu handbolti, fim-
leikar og sund sterkustu greinar
Eyjamanna en áhugi á frjálsum
íþróttum sé vaxandi. „Með þessum
nýja sal fá knattspyrnumennirnir
betri aðstöðu en þeir hafa áður haft
yfir vetrartímann, þeir fá nú mun
lengri tíma til æfinga en áður því að
handboltamennirnir fengu meiri-
hlutann af tímunum. Þegar leikið
er á báðum völlunum í einu eru 65
metrar horna á milli þannig að þar
er mjög góð aðstaða fyrir knatt-
spyrnuna. Hér er líka glæsilegur
keppnisgolfvöllur auk íþrótta-
aðstöðu og grasvallanna við Týs- og
Þórsheimili þannig að hér er allt til
alls.“
Vestmannaeyingar hafa tekið nýtt íþróttahús formlega í notkun
Morgunblaðið/Sigurgeir
Í Eyjum eru nú þrír löglegir keppnisvellir undir einu þaki.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra var viðstaddur vígsluna.
Íþróttaaðstaða ein
hin besta í landinu
Vestmannaeyjar
UM áramótin lét Friðjón Guðröð-
arson, sýslumaður Rangæinga, af
störfum. Sýslubúum gafst tækifæri
til að kveðja þau hjónin, hann og
Ingunni Jensdóttur, formlega í hófi
sem haldið var af héraðsnefnd
Rangæinga hinn 28. desember sl. í
félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.
Þar mættu nokkur hundruð manns
og hlýddi fólk á skemmtiatrið og
ræður og þáði veitingar. Fjölmargir
notuðu tækifærið og héldu tölu fyr-
ir þau hjónin.
Þau hjónin hafa búið í sýslunni í
16 ár og flytjast nú til Reykjavíkur.
Í ræðuhöldunum kom fram að þau
hjónin hafa á margvíslegan hátt
lagt mikið til samfélagsins. Friðjón
hefur ekki aðeins verðið traustur og
góður sýslumaður heldur hefur
hann einnig lagt fjölmörgum menn-
ingarmálum lið en þó einkanlega
Byggðasafninu á Skógum. Ingunn
hefur um árabil leikstýrt og sett
upp mörg leikrit fyrir Leikfélag
Rangæinga en einnig hefur hún
leikstýrt víðsvegar um landið á
tímabilinu svo sem hjá Menntaskól-
anum á Laugarvatni. Ingunn hefur
einnig haldið fjölmargar myndlist-
arsýningar og einnig hefur hún
haldið námskeið í keramik- og silki-
málun. Sýningar hennar í Eden um
hverja páska eru orðnar einn af
vorboðunum.
Þau hjónin eru kvödd með sökn-
uði og þakklæti en um leið vonast
Rangæingar til að sjá þau sem oft-
ast í framtíðinni í Rangárþingi.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Sýslumannshjónin í hópi Rangæinga.
Sýslumannshjónin
á Hvolsvelli kvödd
Hvolsvöllur
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni