Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 14
K
R
in
g
ar
-
04
01
02
Hermann Hermannson
Málarameistari
Sími 588 1213
Sóltún, nýja hjúkrunarheimilið á horni Sóltúns og Nóatúns í Reykjavík, verður vígt í dag. Á fyrri hluta ársins 2000 var
undirritaður samningur til 27 ára milli Öldungs hf. og Heilbrigðis- og Tryggingamálaráðuneytisins um byggingu og
rekstur nýs hjúkrunarheimilis við Sóltún.
Heimilið er byggt fyrir 92 aldraða íbúa sem allir munu hafa 30 fermetra einkaherbergi með baði. Byggingunni er skipt
upp í 12 lítil sambýli þar sem hvert sambýli hefur sameiginlega setustofu og aðgang að íbúaeldhúsi.
Í Sóltúni verður starfrækt íbúa- og vinafélag sem lætur sig varða alla þætti í heimilishaldinu. Meginstarf starfsfólks er
að annast íbúa, vaka yfir velferð þeirra og líðan. Á heimilinu veður læknis- og tannlæknisþjónusta, sjúkra- og
iðjuþjálfun, nudd, slökun og heitur pottur. Einnig verður veitt hárgreiðslu- og fótaaðgerðarþjónusta. Í hverri íbúð er
möguleiki á síma-, sjónvarps og tölvutengingu.
Íslenskir aðalverktakar hf. sáu um byggingarframkvæmdir.
Öldungur hf. sá um innkaup tækja og búnaðar.
VA arkitektar sáu um arkitektahönnun.
Ljósmynd Knútur
Um leið og við óskum Öldungi til hamingju með Sóltún
óskum við viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári!
www.iav.is
Ýtarlegar upplýsingar eru
á www.soltun.is