Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 18

Morgunblaðið - 04.01.2002, Page 18
AKUREYRI 18 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær auglýsir: 3 deiliskipulagstillögur Með vísan til 25. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. auglýsir Akureyrarbær hér með deiliskipulagstillögur fyrir eftirtalin svæði: 1. Naustahverfi, 1. áfangi. Skipulagssvæðið er 23,7 ha að stærð. Það afmarkast að austan af Þórunnarstræti vestan kirkjugarðs og að norðan af fyrirhuguðum „Mjólkursamlagsvegi“ sunnan Teigahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir 327 íbúðum af fjölbreyttri gerð á svæðinu, auk grunnskóla, leikskóla og húsnæðis fyrir þjónustu. Um er að ræða fyrsta áfanga Naustahverfis, um 2.000 íbúða hverfis, sem áætlað er að teygi sig allt frá núverandi byggð sunnan VMA og suð- ur undir Kjarnaskóg. 2. Safnasvæði að Naustum. Skipulagssvæðið er lóð Minjasafnsins í Naustahverfi ásamt um- lykjandi opnu svæði, alls um 2,1 ha. Gert er ráð fyrir að helstu núverandi byggingar að Naustum III standi áfram, og að til við- bótar verði reist geymsluhús og verkstæði á lóðinni, ýmist sem aðflutt gömul hús eða nýbyggingar. 3. Íbúðarsvæði við Lindasíðu. Tillagan fjallar um reit milli Hlíðarbrautar og Lindasíðu, sem fram- lengd verði til suðurs um 80 metra. Reitnum er í meginatriðum skipt upp í tvær lóðir skv. tillögunni, samtals um 1,8 ha, þar sem annars- vegar verði 22 íbúðir í einnar hæðar raðhúsum, og hinsvegar allt að 38 íbúðir í einnar og tveggja hæða keðjuhúsum. Innan marka skipu- lagsins er einnig opið svæði meðfram Hlíðarbraut, með hljóðmön næst lóðunum. Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum og frekari skýringargögnum liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 15. febrúar 2002, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir. Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is/. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16.00 föstu- daginn 15. febrúar 2002 og skal athugasemdum skilað til Umhverfisdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd- ir við auglýsta tillögu innan þessa frests telst vera henni samþykkur. Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar. ÁHÖFN Kaldbaks EA, ísfisktogara Útgerðarfélags Akureyringa hf., fékk afhenta viðurkenningu frá fé- laginu í gærmorgun, til minningar um frækilegt björgunarafrek 11. desember sl., er Jón Björnsson skipverja tók útbyrðis á Eyjafirði. Kaldbakur var á siglingu út fjörð- inn þegar Jón féll útbyrðis, í svarta- myrkri og suðvestanþræsingi. Fé- lagar hans þóttu hafa sýnt mikið snarræði er þeim tókst að bjarga Jóni, sem hafði verið í 5 gráðu heit- um sjónum í 10–20 mínútur. Sæmundur Friðriksson, útgerð- arstjóri ÚA, afhenti Víði Beneditks- syni afleysingaskipstjóra sérstakan grip eftir Hallgrím Ingólfsson, sem ber heitið Traustir hlekkir. „Við er- um stoltir af því að skipverjar Kald- baks eru traustir hlekkir í keðju fyrirtækisins,“ sagði Sæmundur við þetta tækifæri, skömmu fyrir brott- för Kaldbaks frá Akureyri í gær- morgun. Jón Björnsson var nýkominn á vakt ásamt fimm félögum sínum og voru þeir að vinna við að skipta um grandaravíra aftur á dekki þegar óhappið varð. Nýi vírinn var í rúll- um og var verið að slaka honum aft- ur með skipinu þegar sláttur kom á hann með þeim afleiðingum að hann lenti á Jóni, sem stóð aftur við skutrennu. Við það kastaðist Jón yfir skutrennulokann niður í sku- trennu og í sjóinn. Vissi að þeir myndu bjarga mér Í samtali við Morgunblaðið eftir atburðinn sagðist Jón hafa horft á eftir skipinu fjarlægjast og félaga sína á dekkinu horfa á eftir sér. „Ég var alltaf viss um það þeir myndu bjarga mér,“ sagði Jón og kvaðst ekki hafa verið hræddur. Hann þótti einnig hafa sýnt hárrétt við- brögð í sjónum, létti af sér þung- anum, eyddi ekki kröftunum í að synda heldur tróð marvaðann og beið þess sem verða vildi. Félagar Jóns settu út björgunarbát og tókst þeim að finna hann í myrkrinu og bjarga um borð á síðustu stundu. „Við erum afar lánsamir að hafa náð honum um borð, hér hafa orðið hörmuleg sjóslys undanfarna daga, þannig að við getum ekki hugsað okkur betri jólagjöf en þessa,“ sagði Víðir skipstjóri eftir hina giftusamlegu björgun. Mesta aflaverðmæti ísfisktogara Áhöfn Kaldbaks EA hélt í sína fyrstu veiðiferð á nýju ári í gær- morgun og ekki var annað að heyra á mönnum en að þeir hafi verið nokkuð ánægðir með síðasta ár. Afli togarans á síðasta ári var um 4.600 tonn og aflaverðmætið ná- lægt 400 milljónum króna. Það er trúlega mesta aflaverðmæti sem ís- lenskur ísfisktogari kom með að landi á árinu, þrátt fyrir að skipið hafi verið frá veiðum í um þrjá mánuði. Skipstjóri á Kaldbak er Sveinn Hjálmarsson. Frækilegt björgunarafrek skipverja á Kaldbak EA Áhöfn færð viður- kenning frá ÚA Morgunblaðið/Kristján Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri ÚA, t.v., og Víðir Benediktsson, afleysingaskipstjóri á Kaldbak EA, með viðurkenninguna frá félaginu. UNNIÐ er að undirbúningi vegna stofnunar vetraríþróttabrautar við Verkmenntaskólann á Akureyri. Stefnt er að því að starfsemi þess- arar nýju brautar hefjist næsta haust, 2002, að því er fram kom í máli Hjalta Jóns Sveinssonar skólameistara við brautskráningu frá skólanum skömmu fyrir jól. Hann sagði að fram til þessa hefði verið lögð áhersla á að braut- in verði sniðin að þörfum afreks- fólks á skíðum, sem þá gæti stund- að fullt nám í skólanum auk þess að eiga þess kost að þjálfa íþrótt sína við þær góðu aðstæður sem byðust á Akureyri. Ráð er fyrir því gert að nemendur verði af landinu öllu og því nauðsynlegt að geta boðið upp á dvöl í heimavist, en nú hefur verið skrifað undir samning um byggingu nýrra nem- endagarða. Þeir verða við heima- vist Menntaskólans á Akureyri en nemendum framhaldsskólanna beggja mun standa vist þar til boða. Skólameistari gat þess að skautafólk hefði einnig sýnt áhuga á að stunda nám við vetraríþrótta- brautina og eins hefði formaður Sundsambands Íslands sett sig í samband við skólann í því skyni að kanna hvort unnt yrði að bjóða af- reksfólki í sundi af öllu landinu að stunda þar nám. Skíða-, skauta- og sundfólk sýnir áhuga Undirbúningur að stofnun vetrar- íþróttabrautar við VMA ÞEIR voru kampakátir félagarnir Jóhannes Gísli Pálmason og Logi Óttarsson þar sem þeir léku golf á iðjagrænum golfvellinum á Þverá í gær. Það bjarmaði af ný- arssólinni sem á þessum slóðum hverfur alveg í um þrjár vikur. Á myndinni er einnig sonur Jóhann- esar, Sindri Snær, sem fylgist spenntur með. Morgunblaðið/Benjamín Kampakátir í golfi Eyjafjarðarsveit HIN árlega þrettándagleði Íþrótta- félagsins Þórs fer fram á fé- lagssvæðinu við Hamar sunnudag- inn 6. janúar kl. 17.00. Þórsarar hafa staðið fyrir þrettándagleði á Akur- eyri í tæp 60 ár og er þetta uppá- koma sem jafnan nýtur mikilla vin- sælda. Þrettándagleðin að þessu sinni verður haldin við heldur erfiðari að- stæður en undanfarin ár, þar sem miklar jarðvegsframkvæmdir hafa staðið yfir á félagssvæðinu í tengslum við byggingu fjölnota íþróttahúsið. Þórsarar ætla ekki að láta það á sig fá og munu bjóða upp á dagskrá með hefðbundnu sniði. Álfa- kóngur og álfadrottning mæta á svæðið og púkar, tröll og ljósálfar verða í fylgdarliði þeirra. Þá munu jólasveinar kveðja viðstadda með söng og gleði áður en þeir halda til síns heima. Árleg þrettánda- gleði Þórs NORÐLENSKA gámafélagið hef- ur tekið við sorphirðu í Eyjafjarð- arsveit. Sveitarfélagið hefur verið í forystu í þessum málaflokki og eru nú komnir jarðgerðartankar á mörg heimili og drykkjarfernur og pappír ýmiskonar er flokkaður og sendur í endurvinnslu. Búið er að dreifa sorpílátum sem sturtað er beint á sérútbúinn sorpbíl. Ílátin eru frá 240 lítrum upp í 1.000 lítra og er sorpgjald 8.700 til 38 þúsund krónur á ári eftir stærð. Sorpið verður tekið á tveggja vikna fresti ef veður leyfir. Ingólfur Gestsson í Ytra-Dals- gerði er eigandi Norðlenska gáma- félagsins og meðeigandi er Jón Fransson á Selfossi, sem einnig er eigandi Íslenska gámafélagsins. Að sögn Ingólfs stefna þeir að því að útvíkka starfsemina á næstu ár- um með alla almenna sorphirðu á Akureyri og einnig utar með firð- inum. Norðlenska gámafélag- ið sér um sorphirðuna Eyjafjarðarsveit HIÐ árlega Bautamót í innanhúss- knattspyrnu fer fram í KA-heimilinu um helgina. Keppni hefst kl. 9.00 laugardaginn 5. janúar og verður fram haldið á sunnudag. Alls taka 17 lið frá 8 félögum á Norðurlandi þátt í mótinu, þar af er Þór með fjögur lið og KA þrjú. Ráð- gert er að úrslitaleikur mótsins fari fram kl. 13.30 á sunnudag. Bautamótið í innanhúss- knattspyrnu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.