Morgunblaðið - 04.01.2002, Síða 27

Morgunblaðið - 04.01.2002, Síða 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 27 Útsala á Löngum Laugaveginum Langur laugardagur: - Frábær tilboð í verslunum - Opið til kl. 17.00 - Frítt í bílastæðahúsin á verslunartíma - Frítt í öll bílastæði eftir kl. 13.00 Á Laugaveginum eru yfir 160 verslanir og þjónustuaðilar Námskeið sem hefjast í janúar 7. janúar - Raja jóga hugleiðsla fyrir byrjendur 8. janúar - Al-Einingaröndun (hátt Kriya jóga)f. byrjendur 9. janúar - Sálarhugleiðsla - Miðlun 10. janúar - Uppstigningar (Kristsvitunar) vinnunámskeið Geymið auglýsinguna Upplýsingar á veffangi: www.vitund.is/andlegiskolinn Skráning í síma 553 6537 Andlegi skólinn NEFND öldungadeildarþing- manna í Bandaríkjunum mun leggja fram stefnu á hendur fram- kvæmdastjórum, endurskoðendum og helstu framkvæmdastjórum fyr- irtækisins Enron og krefjast þess að þeir láti nefndinni í té öll skjöl er varða rannsókn hennar á skyndilegu gjaldþroti fyrirtækisins og skorti á opinberri vernd fyrir fjárfesta. Þingmaðurinn Joseph Lieberm- an tilkynnti um fyrirhugaða rann- sókn á miðvikudaginn, og lofaði því að hún yrði „sannleiksleit, ekki nornaveiðar“. Hann útilokaði ekki að tengsl Enron við George W. Bush forseta. „Við munum fara þangað sem rannsóknin leiðir okk- ur,“ sagði Lieberman, sem er demókrati, og nefndi að forstjóri Enron, Kenneth Lay, hefði átt þátt í að móta stefnu stjórnar Bush í orkumálum. „Við verðum að spyrja þeirrar spurningar hvort þau ráð [sem Lay gaf] hafi öll verið í eig- inhagsmunaskyni.“ Lieberman er formaður nefndar er fylgist með málefnum ríkis- stjórnarinnar, og er ætlunin að yf- irheyrslur á vegum nefndarinnar hefjist 24. janúar nk. Fyrst verður sjónum beint að því, hvers vegna opinberir eftirlitsmenn, þ.á m. verðbréfa- og viðskiptaráðið og Orkumálaeftirlit alríkisstjórnar- innar, sendu ekki út aðvaranir vegna Enron. Undirnefnd, undir forystu demó- krataþingmannsins Carls Levins, mun hefja sérstaka rannsókn á því, hversu vel framkvæmdastjórum og endurskoðendum Enron var kunn- ugt um viðskiptahætti fyrirtækis- ins, sem í sumum tilfellum fóru mjög lágt, þ.á m. stofnun vafa- samra sameignarfélaga og útibú í skattaparadísum, sem drógu fjöður yfir raunverulega skuldastöðu fyr- irtækisins. 500 milljóna skuldir faldar Blaðið Wall Street Journal greindi frá því á miðvikudaginn að skjöl fyrirtækisins sýndu fram á að æðstu yfirmenn þess hefðu haft hönd í bagga með stofnun og um- sjón sameignarfélaganna og að þeir hafi litið á þau sem lykilatriði í vexti fyrirtækisins. Hafi málum verið þannig fyrir komið að fyrr- verandi aðalframkvæmdastjóri og forstjóri Enron, Jeff Skilling, og tveir aðrir háttsettir menn í fyr- irtækinu, hafi þurft að veita sam- þykki fyrir öllum viðskiptum við sameignarfélögin, að sögn blaðs- ins. Sameignarfélögin gerðu Enron kleift að halda um það bil 500 milljóna dollara skuldum fyrir utan reikningshald sitt. Levin sagði að sér ofbyði „það sem virðist vera umfangsmikill skollaleikur, og hver hagsmuna- áreksturinn ofan á annan,“ er leitt hafi til þess að Enron fór á höfuðið þegar flestir fjárfestar töldu það standa í blóma. Æðstu menn fyr- irtækisins „virðast hafa rakað sam- an hátt í milljarði dollara með hlutabréfasölu á árunum 2000 og 2001,“ sagði Levin, en mörg hundruð starfsmönnum Enron var meinað að selja hlutabréf í fyr- irtækinu, er voru í eftirlaunasjóð- um þeirra, þegar fyrirtækið var að hrynja. Repúblíkanaþingmaðurinn Sus- an Collins, sem á sæti í undir- nefndinni, sagði í yfirlýsingu að hún vildi komast að því hvort framkvæmdastjórar og stjórnar- menn í Enron hefðu vitað um yf- irvofandi fjárhagskröggur fyrir- tækisins þegar þeir seldu hlutabréf sín. Bréfin í fyrirtækinu voru met- in á um 90 dollara stykkið fyrir ári, en verðmæti þeirra var komið nið- ur í tæpan einn dollara í byrjun desember sl., þegar fyrirtækið – sem einu sinni var sjöunda tekju- hæsta fyrirtæki í Bandaríkjunum – fór fram á greiðslustöðvun. Levin sagði að nefnd sín vildi komast að því hvers vegna stofnun sérstakra sameignarfyrirtækja og útibúa í skattaparadísum, til þess að fela hluta skuldanna, vöktu ekki grunsemdir meðal stjórnarmanna þess og hjá endurskoðanda þess, fyrirtækinu Arthur Andersen LLP. Í síðasta mánuði sögðu fulltrúar Andersen, við yfirheyrslu hjá full- trúadeildarþingnefnd, að störf fyr- irtækisins fyrir Enron hefðu verið í alla staði eðlileg, en aðalfram- kvæmdastjóri Andersen, Joseph Berardino, viðurkenndi að ann- markar væru á störfum endur- skoðenda. „Það þarf að gera end- urbætur á eftirlits- og agareglum í faginu,“ sagði Berardino. Ander- sen greindi frá því á miðvikudag- inn, að endurskoðun annars, við- urkennds endurskoðunar- fyrirtækis, Deloitte & Touche, hefði leitt í ljós að endurskoðunar- vinna Andersens hefði gefið „við- unandi tryggingu fyrir því, að farið væri eftir faglegum viðmiðunum.“ Tengsl Enron og Bush ef til vill rannsökuð Washington. AP. AP Joseph Lieberman, t.v., og Carl Levin ræða við fréttamenn í Washington á miðvikudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.