Morgunblaðið - 04.01.2002, Side 45

Morgunblaðið - 04.01.2002, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 45 ✝ Hjálmar Pálssonvar fæddur á Blönduósi 26. júlí 1929. Hann lést í Landspítalanum – há- skólasjúkrahúsi, 28. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru: Páll Geir- mundsson gestgjafi, f. 19.10. 1895, d. 28.1. 1975, og Hjálmfríður Anna Kristófersdótt- ir, Blönduósi, f. 26.7. 1901, d. 26.11. 1981. Systir Hjálmars er Guðný, f. 30.3. 1927, maki Kristinn Pálsson, f. 22.12. 1927. Börn þeirra: Páll og Hjálm- fríður. Hjálmar kvæntist 15.5. 1952 Sig- ríði Þórdísi Sigurðardóttur, f. 15.5. 1931. Hún er dóttir Sigurðar J. Jónassonar pípulagningameistara, f. 10.9. 1896, d. 28.3. 1987, og konu hans, Rannveigar Eyjólfsdóttur, f. 21.9. 1908, d. 16.7. 1995, Reykjavík. Hjálmar og Sigríður eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Sigurður Jónas, verktaki og bílstjóri á Blönduósi, f. 23.8. 1950. Kona hans er Margrét G. Skúladóttir, f. 20.1. 1947. Dætur þeirra eru: Kristbjörg Björnsdóttir, Magdalena Berglind Björnsdóttir, Sigríður Þórdís og Anna Margrét. Dætur Krist- bjargar eru Stefanie og Katrin. Maki Magdalenu Berglindar er Auðunn Steinn Sigurðsson. Börn þeirra eru Kristófer Skúli og Mar- grét Rún. Unnusti Sigríðar er Þröstur Hringsson. Dætur hans eru Heiðrún, Arna og Rebekka. 2) Páll, kjötiðnaðarmaður á Akureyri, f. 8.5. 1953. Synir hans eru Hjálmar og Njáll Óm- ar. Unnusta Hjálm- ars er Svala Aðal- björnsdóttir. 3) Anna, meinatæknir í Mosfellsbæ, f. 30.6. 1956. Hún er gift Ólafi Baldri Reynis- syni, f. 8.12. 1961. Þeirra börn eru Arn- dís Ólöf Víkingsdótt- ir, Sigurbjörg og María. Sonur Ólafs Baldurs er Kristinn. 4) Þórdís, aðalbókari á Blönduósi, f. 13.11. 1960, gift Þór- ólfi Óla Aadnegaard, f. 13.2. 1961. Börn þeirra eru Óli, Hjálmar Þór, Ingibjörg Signý og Sigurður Bjarni. Unnusta Óla er Gunnhildur Erla Þórmundsdóttir. Að loknu skyldunámi vann Hjálmar almenn landbúnaðar- og verkamannastörf en bifreiðaakst- ur var hans ævistarf. Hann tók snemma meirapróf, eignaðist vörubíl og ók honum í vegavinnu og annarri vinnu, eftir því sem til féll. Hann ók einnig flutningabílum milli Reykjavíkur og Blönduóss um árabil. Hann átti einnig gröfu, sem var ein af þeim fyrstu hér um slóð- ir og hann vann mikið með. Hjálm- ar átti alla sína ævi heima á Blönduósi. Útför Hjálmars fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku pabbi minn, þegar ég lít til baka kemur í hugann þakklæti og hlýja. Þú varst einstakur maður. Hjálpsemi þín var mikil. Þú vildir allt fyrir aðra gera en ætlaðist aldrei til neins þér til handa. Ef allir væru eins og þú væri ver- öldin betri og fegurri. Það var alveg sama hvað ég bað þig um, þú varst alltaf til staðar þeg- ar á þurfti að halda. Þegar verið var að byggja varst þú alltaf fyrstur manna til að koma. Þegar börnin mín voru veik og ég þurfti að komast til vinnu þá var það sjálfsagt að þú bjargaðir því. Þegar þú fótbrotnaðir í fótbolta og gast ekki stundað vinnu þá tókst þú að þér að passa sex mán- aða gamla dóttur mína og lékst þér að því á hækjunum, þá 57 ára gamall. Ég gæti endalaust haldið áfram en ætla að láta hér staðar numið og bið góðan Guð að styrkja mömmu því mestur er hennar missir. Ég kveð þig, elsku pabbi minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þín Anna. Elsku afi, nú er baráttu þinni lokið og þú kominn á góðan stað sem bíður okkar allra. Þegar ég hugsa til baka minnist ég þeirra skipta þegar ég fór með þér yfir götuna til hans Kristófers og þú keyptir handa mér happaþrennu, stundum fleiri en eina, og síðan biðuð þið karlarnir í ofvæni eftir að ég lyki við að skafa og hvort þar leyndist nokkur vinningur. Einnig minnist ég þess þegar hald- in var veisla, ein af mörgum heima hjá ykkur ömmu, og þú fórst út í fót- bolta með barnabörnunum en þú ætl- aðir að sýna okkur alvöru takta en því miður gerðist það að þú fótbrotn- aðir. Það var hlaupið til og hringt á sjúkrabíl í einum grænum hvelli og við krakkarnir hlupum út á götu til að sjá þegar sjúkrabíllinn kæmi en hann fór fram hjá húsinu og út á bryggju en sneri síðan við þegar þeir sáu allan krakkahópinn sem stóð og baðaði út bæði höndum og fótum til að láta vita að þeir hefðu farið húsavillt. Alltaf þótti þér gaman að hafa barnabörnin í kringum þig og í öllum veislunum hjá ykkur ömmu var þetta oft eins og fuglabjarg, börnin grétu og hlógu til skiptis, fullorðna fólkið spilaði á spil, og þeir sem töldust til beggja hópa horfðu á myndbands- upptökur úr veislum áranna áður. Elsku afi, ég er mjög þakklát fyrir að hafa haft tækifæri á að hitta þig á sjúkrahúsinu þar sem þú dvaldist síðustu vikurnar þínar, og haft tæki- færi til að kveðja þig áður en ég fór norður um jólin en þá sagðirðu nokk- uð sem ég mun geyma og muna alla tíð. Ég veit að við í fjölskyldunni mun- um hugsa vel um ömmu fyrir þig. Minningin um góðan mann lifir. Kveðja. Sigríður Þ. Hjálmar frændi minn er dáinn. Hann var bróðir hennar mömmu og jafnframt hennar eina systkini. Það hefur alla tíð verið mikill og góður samgangur á milli heimila þeirra. Ógleymanleg voru aðfangadags- kvöldin og jólaboðin hjá þeim hjónum Hjálmari og Sídý. Þau höfðu gaman af að taka á móti fólki og gerðu það vel og af gestrisni. Í jólaboðunum var iðulega spilað, m.a. bridge, og vissi maður greinilega ef Hjálmari gekk vel því þá hló hann mikið og hafði gaman af. Hjálmar var bílstjóri að atvinnu og voru þeir ófáir sem leituðu til hans og hafði hann iðulega nóg að gera. Hann átti ekki gott með að innheimta fyrir vinnu sína og þeir nutu þess sem minni auraráð höfðu. Hjálmar var dýravinur og hér áður fyrr aðstoðaði hann föður sinn við fjárbúskap en seinni ár var hann með hesta. Hjálm- ar var mikill fjölskyldumaður og fylgdist alla tíð vel með sínum börn- um og síðar barnabörnum. Sídý hef- ur ávallt staðið þétt við hlið Hjálmars og var aðdáunarvert að fylgjast með því síðustu vikurnar. Missir hennar er mikill. Elsku Sídý, Siggi, Palli, Anna, Þórdís og fjölskyldur, ég bið góðan guð að styrkja ykkur í sorginni. Með virðingu, vinsemd kveð ég nú þig, vinur og frændi gleðja þau mig árin sem eigum að baki. Lagður í hvíluna hinstu nú ert hvíldinni feginn trúi þú sért. Guð allsherjar yfir þér vaki. (Ó.S.) Hjálmfríður. Nú við fráfall Hjálmars, móður- bróður og uppáhaldsfrænda míns, langar mig að þakka honum fyrir samfylgdina og þau áhrif sem hann hafði á mig á uppvaxtarárum mínum á Blönduósi. Ég leit alltaf upp til frænda míns og ætlaði mér að eiga vörubíla eins og hann þegar ég yrði stór. Ávallt var mikill og hlýlegur sam- gangur milli fjölskyldna systkinanna Hjálmars og Guðnýjar móður minn- ar og nutum við krakkarnir góðs af því, enda sýndi Hjálmar okkur krökkunum mikinn áhuga. Ekki síst á jólum stundaði fjölskyldan spila- mennsku af miklu kappi og þar var Hjálmar virkur þátttakandi og skemmtilegur spilafélagi. Frændi minn hafði ríkt skopskyn, sá spaugilegar hliðar á tilverunni og var skemmtilegur í tilsvörum. Hann var mikill dýravinur, hafði einstakt lag á að umgangast dýr og sýndi þeim virðingu. Mér leið ávallt vel í návist hans og kveð hann nú með söknuði. Hafðu þökk fyrir allt. Páll Kristinsson. Eg kveð æskuvin minn, Hjálmar, í lok jóla. Báðir lifðum við ár nýrrar aldar og ótrúlegar breytingar, drengir fæddir í kreppu og fátækt norður á hjara veraldar, þar sem kaldir vindar Íshafsins minna sí og æ á sig. Þarna stemmir Blanda á sinni að ósi og rennur í Húnafjörðinn, sem er stundum spegilsléttur og fagur eða yggldur og úfinn, ógnandi brim. En frá stöndinni teygir byggðin sig langt inní landið, sem er skorið breiðum eða mjóum grösugum döl- um en til vesturs eru ásar og mýr- arbreiður með ám og vötnum, engi böðuð grasi á góðu sumri. Bernskuslóðin bar í sér kenjar hins kalda og heita, líf og dauða. Þeir sem þarna uxu úr grasi voru fæstir fæddir með silfurskeið í munni. En þeim leið þó ekki endilega illa vegna þess. Eg hygg bærilega. Við sem fædd erum á árunum kringum nítjánhundruð og þrjátíu, þegar þjóðin fagnaði myndun þjóð- ríkis fyrir eitt þúsund árum, erum kynslóðin, sem lýkur verki sínu við aldahvörf. Við erum nógu gömul til þess að muna heimsstyrjöldina og ógnir hennar en um leið lífsbaráttu fólksins á árunum á undan.Við vitum um hvað sú barátta snerist. Þær minningar voru okkar veganesti og vissan um, að hver væri sinnar gæfu smiður. Enn rennur Blanda leið sína til sjávar, þótt lykkja hafi verið lögð á og lætur eins og ekkert sé. Hún veit ekki betur. Hjálmar Pálsson er nú allur, ekur ekki bíl sínum inn til dala eða út á Skaga. Þeim fækkar nú óðum vinnufélög- unum. Sumrin urðu nokkur sem við tíu– tuttugu menn slógum tjöldum vítt og breitt um alla Húnavatnssýslu, bæði eystri og vestri. Kynnin urðu því ná- in. Eg varð ungur flokksstjóri þeirrar sveitar. Á ýmsu gekk. Hjálmar var mér alúðlegur og ein- lægur. Eg bregð upp þessum óskýru myndum um æskuslóð og uppruna okkar til þess að geta þakkað góð kynni. Við sendum hvor öðrum jóla- kveðju í mörg ár. Um þessi jól kom ekkert kort. Eg sendi Sigríði og börnum kveðju mína. Brynleifur H. Steingrímsson, Selfossi. HJÁLMAR PÁLSSON munt verða ánægð með þá hluti sem ég er að fást við í mínu lífi í augnablik- inu. Ég hef það gott og ég vona svo sannarlega að þú hafir það gott þar sem þú ert. Guð blessi fagra minningu þína. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Hilmar, Kiddi, Gestrún, Eiki, Otti, Guð gefi ykkur og fjölskyldum ykkar styrk í ykkar miklu sorg. Frændi ykkar í Danmörku, Hermann Ármannsson. Mér er þakklæti í huga þegar ég kveð vinkonu mína eftir meira en 50 ára vináttu. Sem unglingar vorum við í sama skóla, gamla Stýrimannaskólanum í Öldugötu sem hét þá Gagnfræðaskóli vesturbæjar. Við vorum báðar fædd- ar og uppaldar í vesturbænum í Reykjavík. Þegar við vorum ungar stúlkur skemmtum við okkur saman en Hanna var hugmyndarík og skemmti- leg og alltaf gaman að vera í kringum hana. Ég hugsa oft til þeirra tíma í Reykjavík í kringum 1950. Þá var ekki mikið til í verslunum, sem freist- að gat unga fólksins enda úrval ekki mikið. Hvar fengum við nælonsokk- ana og támjóu skóna? Ekki var slíkur varningur seldur í verslunum þannig að hann var fenginn með öðrum hætti. Draktirnar okkar voru saum- aðar hjá klæðskerum. Þegar Granaskjól 14 er nýbyggt eigum við Hanna báðar von á okkar fyrsta barni. Hanna og Hilmar byggja það hús með foreldrum Hönnu, Guðlaugu og Kristni. Það var ekki slæmt að hafa Laugu til hjálpar þegar litlu barnafötin voru útbúin enda listakona í öllu sem hún tók sér í hendi. Þær mæðgur bjuggu alla tíð í nábýli við hvor aðra. Árin, sem ég er fjarri landi og þjóð, hafði Hanna alltaf samband við okkur og alltaf kom eitthvað fallegt frá þeim í Granaskjóli 14. Árin líða, við komum heim, fjölskyldan hefur stækkað. Þá var notalegt að koma til Hönnu, og fá að taka þátt í stórviðburðum í fjöl- skyldu hennar. Hanna var alla tíð heimavinnandi húsmóðir og sjó- mannskona og fór henni það vel. Þessi síðustu ár hafa verið erfið fyrir Hönnu og fjölskyldu hennar. Hanna út og inn af spítölum og hefur Hilmar staðið eins og klettur við hlið Hönnu sinnar á þessum tíma. Hilmar minn, ég votta þér og fjöl- skyldu þinni mína dýpstu samúð. Sigríður Jóna Árnadóttir. Lífið er margslungið. Það er ekki alltaf sjálfsagt að það gangi þann veg er við helst vildum. Þess vegna er það svo afarmikilvægt að varðveita góðar stundir með góðum vinum. Vinir hverfa, við sitjum eftir með sorg í hjarta. Reynum eftir mætti að hugga okkur við allar góðu stundirnar sem við áttum saman, vinirnir og við. Nú er horfin á braut góð vinkona okkar, Hanna, sem var ein af „Perl- unum okkar“. Við vorum nokkrar „Vesturbæjar- dömur“, ungar, glaðar og bjartsýnar á lífið. Stofnaður var svokallaður „saumaklúbbur“. Frumkvöðull að þeirri stofnun var Íris Ingibergsdótt- ir, flott „Vesturbæjardama“ sem látin er fyrir örfáum vikum í Kaupmanna- höfn, þar sem hún bjó í hartnær tvo áratugi. Nú hefur enn á ný verið hoggið stórt skarð í vinkvennahóp okkar þegar Hanna hefur kvatt okkur, kona á besta aldri. Mikil og góð kona, eig- inkona, móðir og amma, er horfin á braut. Við getum huggað okkur við það að hún var ekki lengi veik eða rúmliggjandi. Sennilega hefur hún verið veikari en við gerðum okkur grein fyrir. Góði hópurinn okkar var í upphafi ekki ýkja stór, við vorum fjórar ungar konur, sem fundum okkur góðar sam- verustundir saman. Smátt og smátt urðum við fleiri. Níu urðum við flest- ar. Alltaf eins og einn maður, alltaf gaman, mikið gaman. Saman áttum við góðar stundir ásamt eiginmönn- um okkar, farið í sumarhús, sem sum- ar áttu. Farið var í góðar veiðiferðir, tjaldað í útilegum og yfirleitt gert allt mögulegt sem góðir vinir gera saman. Góðir vinir gera lífið ríkulegra. Það er ómetanlegt að eiga góða vini. Enn þá ómetanlegra er það þegar eigin- menn í vinkvennahópnum ná svo vel saman, sem hér varð raunin á. Þetta er sá sjóður sem við leitum í á sorg- arstundum. Einungis að horfa á það jákvæða og góða. Alltaf að leita að ljósinu, alltaf að leita að því góða sem lífið hefur fært okkur. Vinkona okkar Hanna var kröftug kona, sem oft á tíðum þurfti að treysta á sjálfa sig þar sem eiginmað- ur hennar var langdvölum í milli- landasiglingum. Þá var það einsog með flestar sjómannskonur, á þeim hvílir öll ábyrgðin sem lýtur að forsjá heimilis og uppeldi barna. Vinkona okkar átti afar góðan og traustan eig- inmann, Hilmar, yfirvélstjóra á milli- landaskipum. Þau áttu miklu barna- láni að fagna þar sem börnin þeirra þrjú voru. Hanna og Hilmar eigin- maður hennar ferðuðust talsvert er hún fór með honum í siglingar. Það voru góðir tímar sem þau áttu saman. Öllu starfsfólki á líknardeild Land- spítalans er þökkuð ómetanlega alúð, hlýja og afar góð umönnun. Þetta á við allt starfsfólk hvert sem starfs- heitið er. Síðustu orð Hönnu við mig voru: „Unna mín, ég er á leið til blómanna.“ Vinátta í marga áratugi er þökkuð. Guð blessi minninguna um góða vin- konu. Eftirlifandi eiginmanni og fjöl- skyldunni allri eru sendar hugheilar samúðarkveðjur. Sunneva og Guðmundur Snæhólm. Mig langar til að minnast Hönnu vinkonu minnar með örfáum orðum hér, nú þegar komið er að kveðju- stund. Hanna var mér mikil vinkona og leitaði ég oft til hennar þegar eitt- hvað kom upp á og ekki síst þegar Ingimundur veiktist og lá sína bana- legu. Þá eins og svo oft áður var Hanna boðin og búin og alltaf til stað- ar ef á þurfti að halda. Hún bjó yfir mikilli visku og það var ósjaldan sem orð hennar vörpuðu skýrara ljósi á aðstæður sem við stóðum frammi fyr- ir. Eins og gengur er misjafnt hversu samstiga maður er öðrum í lífinu en við Hanna urðum báðar þeirrar ham- ingju aðnjótandi að verða ömmur á svipuðum tíma og þau voru ófá sam- tölin sem fóru í að dásama þessi litlu kríli. Hún var mikil amma og notaði hvert tækifæri til að vera með barna- börnum sínum og þykist ég vita að oft var kátt í höllinni hjá Hilmari og Hönnu. Þegar við Dóra heimsóttum hana á líknardeildina viku áður en hún dó óraði mig þó ekki fyrir því að ég væri að kveðja hana í hinsta sinn. Það er margs að minnast um fallega manneskju og minningin um hana lif- ir. Elsku Hilmar, Kiddi, Gestrún, Eiki og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur og guð blessi ykkur öll. Sjöfn K. Smith. Elsku Hanna mín. Það er ekki svo langt síðan við hitt- umst hjá Gestrúnu – þú varst hin hressasta og leist svo vel út. Það var bara sl. sumar og ótrúlegt að núna sé komið að kveðjustund. Þegar ég hugsa til baka þá rifjast upp frábærir tímar á heimili ykkar Hilmars – þegar við Gestrún vorum unglingar og á tímabili varð heimili ykkar mitt annað heimili. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar og tala við þig um alla heima og geima – og þú vildir alltaf vera inní öllu og vita um allt sem við stelpurnar vorum að fara og gera. Varðst bara hluti af okkur og það fannst okkur svo gott og töluðum oft um það. Síðustu ár sá ég þig sjaldnar en þegar við hittumst var alltaf eins og tíminn hefði staðið í stað – við byrj- uðum bara þar sem frá var horfið. Takk fyrir þetta allt, Hanna mín. Elsku Gesta mín og fjölskylda – Guð blessi ykkur og styrki í ykkar miklu sorg og söknuði. Ykkar vinkona, Gróa. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.