Morgunblaðið - 04.01.2002, Side 59

Morgunblaðið - 04.01.2002, Side 59
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2002 59 ÚTSALA HEFST Í FYRRAMÁLIÐ KL. 10 Vönduð og falleg föt á börnin frá þekktum framleiðendum á verulega lækkuðu verði. Laugavegi 56, sími 552 2201 TEENO Laugavegi 56, sími 552 2201 KNICKERBOX Laugavegi 62, sími 551 5444 KNICKERBOX Kringlunni, sími 533 4555 K N I C K E R B O X ÚTSALAN hefst í dag Allt að 70% afsláttur ÞAÐ vakti furðu manna hversu „tilbúin“ sveitin væri, þ.e. það var líkast því að hún ætti fimm ára feril að baki og þrjár plötur, svo þétt var Leaves á Airwaves-hátíðinni. Þó voru þetta fyrstu tónleikar sveitar- innar. Þetta þarf svo sem ekki að vekja furðu þar sem að sveitin er leidd af Arnari nokkrum Guðjóns- syni sem að á að baki um áratug í „bransanum“ þótt ungur sé. Hann var áður í hljómsveitinni Výnil en á rætur sínar í íslensku dauðarokks- bylgjunni, spilaði þar með sveitum eins og Condemned og Sororicide við upphaf síðasta áratugar. Sambönd í útlöndum Leaves eru þegar komnir í sam- bönd við aðila erlendis og það vekur athygli blaðamanns hversu lágt það hefur allt saman farið. Líkt og menn séu að halda að sér höndum í fjöl- miðlalegu tilliti þangað til að hlut- irnir verði almennilega niðurnegld- ir. „Jú, jú, það er alveg rétt,“ segir Arnar. „Við ákváðum að vera ekkert að blaðra þessu á meðan þetta væri í lausu lofti. En nú er búið að ganga frá samningi úti í Englandi við fyr- irtækið B-Unique. Og við erum byrjaðir að taka upp plötu, komum heim frá upptökum á henni rétt fyr- ir jól.“ B-Unique er lítið merki sem er m.a. með sveitirnar Gay Dad og Rocket from the Crypt á sínum snærum. Upptökurnar fara fram í Courtyard-hljóðverinu í Oxford, en það er í eigu umboðsskrifstofu „neð- anjarðar“-risanna í Radiohead. Tón- list Leaves hefur einmitt verið líkt við þá mætu sveit; melódískt seið- rokk af bestu gerð. „Við bjuggum í hljóðverinu á meðan upptökur fóru fram,“ segir Arnar. „Þeir sem unnu með okkur heita Andy (Votel) og Ian (Smith) en þeir hafa áður unnið með Badly Drawn Boy. Fínir gaurar og við ætl- um að halda áfram að vinna með þeim. Það er þó óráðið hvar restin af vinnunni mun fara fram.“ Leaves var stofnuð fyrir fimm mánuðum. „Þetta byrjaði með því að ég var fikta með að gera prufuuptökur í tölvunni minni. Síðan var ég að vinna með Halli bassaleikara en við búum sem stendur saman í mið- bænum. Síðan þegar við vorum komnir með ellefu lög settum við okkur í samband við vini okkar. Allt gamlir vinir og við bara prófuðum að setja upp band.“ Téður Hallur er óskrifað blað (eins og er) í rokksögu Íslands en af öðrum meðlimum má nefna Arnar Ólafsson, sem var með nafna sínum í Výnil og trommuleikarinn Bjarni Gríms var með Arnari í „einhverj- um dauðarokksböndum í gamla daga“ eins og hann orðar það. Andri Ásgrímsson leikur svo á hljómborð en hann fyllir einnig raðir hinnar efnilegu sveitar Náttfara. Niðri á jörðinni Umboðsmaður Leaves er Árni Benediktsson, búfræðingur með meiru sem hefur t.a.m. unnið með Emilíönu Torrini undanfarin ár. „Upphaflega var það hún Emil- íana sem fór út með kynningarupp- töku frá mér. Þá var ég enn að starfa einn en viðbrögðin við upp- tökunum voru góð. Í kjölfarið ákvað ég því að demba mér í þetta.“ Arnar segist aðspurður vera al- veg niðri á jörðinni með þetta allt saman. „Já, já,“ segir hann og brosir. „Þetta er bara tækifæri til að gefa út tónlist um allan heim...vonandi. Maður er auðvitað spenntur samt, það er ekki hægt að neita því. En þetta hefur allt komið upp í hend- urnar á okkur til þessa. Maður bíð- ur bara eftir áfallinu...til þessa hefur allt gengið eins og í sögu.“ Arnar á erfitt með að lýsa tónlist Leaves...og þó. „Ég veit það ekki...þetta eru að- allega bara góð lög. Þetta er bara rokk. Að mínu viti er þetta frekar einfalt. Ég ákvað að mig langaði til að gera „lifandi“ tónlist sem auðvelt væri að leika á tónleikum. Bara gít- ar, bassi, hljómborð og trommur og reyna að ná einhverri flottri stemn- ingu út úr því.“ Næstu tónleikar Leaves verða í Hollandi hinn 10. janúar, hvar þeir munu spila á hátíð ríkisrekinna út- varpsstöðva í Evrópu. Útgáfa í föstu formi mun svo líta dagsins ljós hinn 21. janúar er lagið „Breath“ verður gefið út á tólf tommum. „Það lag er bara í því uppruna- lega formi sem ég gerði á sínum tíma í tölvu foreldra minna,“ segir Arnar. „Það lag kemur út hjá fyr- irtæki sem heitir 71–76 en það gefur bara út smáskífur. Næsta plata kemur svo út í febrúar, mars á B- unique.“ Nýliðarnir í Leaves gera það gott Þegar laufin anda Hljómsveitin Leaves stendur í stórræðum þessa dagana. Á umliðinni Airwaves- hátíð vakti ný íslensk sveit mikla athygli. Heitir hún Leaves og forvitnaðist Arnar Egg- ert Thoroddsen um hennar mál hjá nafna sínum Guðjónssyni. arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.