Morgunblaðið - 18.01.2002, Qupperneq 4
Morgunblaðið/RAX
TÍÐARFAR og sjósókn hafa án efa
verið meðal umræðuefna þessara
tveggja manna sem sátu yfir kaffi-
spjalli í Kaffivagninum á Granda-
garði einn morguninn. Úti fyrir
lamdi rigningin á rúðunum og þeg-
ar svo háttar getur verið gott að
ylja sér með heitum sopanum.
Tveggja
manna tal
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall-
ist á lagningu Snæfellsnesvegar um
Kolgrafafjörð í Eyrarsveit og Helga-
fellssveit milli Berserkseyrar og
Vindáss í Eyrarsveit með því skilyrði
að tryggt verði að því sem næst
óbreytt vatnsskipti verði í Kolgrafa-
firði að loknum framkvæmdum.
Um er að ræða þrjár hugsanlegar
leiðir og fellst Skipulagsstofnun á
þær allar. Leið 1, sem er valkostur
Vegagerðarinnar, þverar Kolgrafa-
fjörð á uppfyllingum og 230 m langri
brú með fullum vatnsskiptum þar
sem styst er milli Hjarðarbólsodda
og Kolgrafaodda og liggur síðan inn
með firðinum að vestanverðu. Veg-
urinn er 7,3 km langur og er nær ein-
göngu nýbygging og styttir leiðina
milli Stykkishólms og Grundarfjarð-
ar um 6,2 km miðað við núverandi
veg. Áætlaður kostnaður við leið 1 er
um 850 milljónir króna.
Áætlaður kostnaður
um 440 milljónir
Leið 2 fylgir núverandi vegi að
stærstum hluta inn Kolgrafafjörð en
liggur utar og fer m.a. yfir leirur í
botni fjarðarins. Leiðin er 12 km
löng og 1,5 km styttri en núverandi
vegur. Um 3 km eru nýbygging, fyr-
ir botni Kolgrafafjarðar og við
Hrafnkelsstaðabotn. Innst í Kol-
grafafirði er vegurinn fluttur út í sjó
með byggingu brúar og fyllingu og
einnig þarf að byggja brú yfir
Hrafná. Áætlaður kostnaður er um
440 milljónir.
Leið 3 fylgir núverandi vegi að
mestu en töluverðar breytingar eru
á hæð vegarins. Leiðin er jafnlöng
núverandi vegi eða 13,5 km. Um 2,2
km eru nýbygging, fyrir botni Kolg-
rafafjarðar þar sem vegurinn liggur
rétt ofan við fjöruna og við Hrafn-
kelsstaðabotn. Byggja þarf brýr yfir
Hrafná og Slýá. Áætlaður kostnaður
er um 355 milljónir.
Gert er ráð fyrir því að fram-
kvæmdir hefjist árið 2002 og verði
lokið árið 2004.
Fallist á lagningu veg-
ar um Kolgrafafjörð
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrrum
forseti Íslands, fékk í gærkvöldi
heiðursverðlaun Franska land-
fræðifélagsins fyrir framlag sitt til
Íslandskynningar í Frakklandi á
liðnum árum. Verðlaunaafhend-
ingin fór fram við hátíðlega athöfn
í öldungadeild franska þjóðþings-
ins en félagið nýtur verndar öld-
ungadeildarinnar.
Franska landfræðifélagið var
stofnað árið 1821 og hefur starfað
óslitið síðan. Það er í hópi elstu vís-
indafélaga í Frakkland og er Vig-
dís ein fárra útlendinga sem hlotið
hefur verðlaunin. Meðal heið-
ursfélaga landfræðifélagsins, má
nefna bandaríska heimskauta-
farann Robert E. Peary, Henry
Morton Stanley, David Livingstone
og fyrstu tunglfarana, Neil Arm-
strong, Edwin Aldrin og Michael
Collins, svo fáeinir séu nefndir.
Heiðursverðlaun Franska land-
fræðifélagsins eru veitt einu sinni
á ári og tók Vígdís Finnbogadóttir
við verðlaununum úr hendi forseta
öldungadeildarinnar, Christian
Poncelet.
„Ég er djúpt snortin og hreykin
af þessari upphefð,“ sagði Vigdís í
gær við Morgunblaðið og sagði
Frakka hafa þá ímynd af Íslend-
ingum að þeir væru mikil menning-
arþjóð. Þar ytra sagði hún áhuga
Frakka á Íslandi m.a. endurspegl-
ast í því að Íslendingasögurnar
hefðu verið þýddar auk samtíma-
bókmennta, m.a. eftir Halldór Lax-
ness og Steinunni Sigurðardóttur.
Fær frönsk
heiðursverðlaun
Vigdís Finnbogadóttir
Sam-
þykkti að
framselja
Íslending
ÆÐSTI dómstóll í Hollandi
hefur fallist á að framselja Ís-
lending á fertugsaldri sem nú
afplánar dóm í Hollandi
vegna smygls á 16 kílóum af
kókaíni inn í landið.
Lögreglan í Reykjavík vill
hafa tal af honum í tengslum
við hvarf Valgeirs Víðissonar
en ekkert hefur spurst til
hans síðan 1994. Dómstóllinn
hefur úrskurðað að heimilt sé
að framselja manninn en hol-
lenska dómsmálaráðuneytið
mun taka ákvörðun um hvort
það verði í raun gert. Björn
Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri
í dómsmálaráðuneytinu, telur
að það ferli muni væntanlega
taka um 1–2 vikur.
Lögreglan í Reykjavík yf-
irheyrði manninn í fyrra þeg-
ar hann sat í fangelsi ytra en
fór síðan fram á það við
dómsmálaráðuneytið að fram-
sals yrði krafist. Vísbending-
ar höfðu borist um að mað-
urinn tengdist hvarfi Valgeirs
og segir Hörður Jóhannesson
yfirlögregluþjónn að allar
slíkar vísbendingar væru
kannaðar
Maðurinn sem um ræðir
hefur komið við sögu fíkni-
efnamála á Íslandi.
Enn í haldi
á Kanarí-
eyjum
ÍSLENSKUR karlmaður er
enn í haldi lögreglunnar í Las
Palmas á Kanaríeyjum vegna
dauðsfalls sambýliskonu
mannsins er hún féll fram af
svalagangi á fimmtu hæð fyrir
tæplega tveimur vikum.
Maðurinn er í gæslu á
sjúkradeild fangelsisins í Las
Palmas en hann var fluttur
þangað fyrir síðustu helgi. Að
sögn Péturs Ásgeirssonar,
rekstrarstjóra utanríkisráðu-
neytisins, virðist maðurinn,
sem er á áttræðisaldri, við
ágæta heilsu.
Ráðuneytið hefur ekki fengið
upplýsingar um hvort verjandi
mannsins hafi lagt fram beiðni
um að honum verði sleppt úr
gæsluvarðhaldi.
Fjölskylda hans hefur fengið
leyfi til að heimsækja hann og
hefur sonur hans þegar hitt
hann.
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ís-
lenska ríkið af kröfum manns, sem
sagði að hann hefði ekki verið var-
aður við afleiðingum skurðaðgerð-
ar sem hann gekkst undir.
Eftir aðgerðina þurfti hann
stómabúnað og taugar sködduðust
svo hann missti kyngetuna.
Maðurinn greindist með krabba-
meinsæxli í endaþarmi og mein-
varp í lifur. Hann gekkst undir
skurðaðgerð þar sem æxlið og
hnútur í lifur var fjarlægt.
Eftir aðgerðina kom í ljós að
taugar þær sem valda stinningu
getnaðarlimsins höfðu skaddast
og hann því misst kyngetu. Þá
þurfti hann að notast við stóma-
búnað.
Maðurinn fór fram á 2,8 millj-
ónir króna í bætur, á þeirri for-
sendu að hann hefði ekki verið
varaður við hugsanlegum afleið-
ingum skurðaðgerðarinnar.
Hæstiréttur segir eðlilegt að
samskipti læknis og mannsins
hefðu fyrst og fremst snúist um
hinn lífshættulega sjúkdóm sem
hann var haldinn, en maðurinn
hefði þó átt rétt á upplýsingum um
vel þekktar afleiðingar aðgerðar-
innar.
Skurðaðgerð eini kosturinn
til að bjarga lífi mannsins
Hins vegar hefði maðurinn við-
urkennt að hann hefði undirgeng-
ist aðgerðina þó að honum hefðu
verið afleiðingarnar ljósar, auk
þess sem skurðaðgerð hefði í raun
verið eini kosturinn til að freista
þess að bjarga lífi hans. Hæstirétt-
ur telur því skilyrði skaðabóta-
skyldu ekki fyrir hendi í málinu og
þess vegna þurfi ekki að taka af-
stöðu til þess hvort maðurinn hefði
fengið fullnægjandi upplýsingar
um afleiðingar aðgerðarinnar.
Hæstiréttur um skurðaðgerð vegna krabbameins
Engar bætur vegna
afleiðinga aðgerðar
Ók upp á
hæð
og fór út af
KONA meiddist nokkuð þegar jeppi
sem hún ók fór út af Laugarvatns-
vegi, skammt sunnan við Stangar-
læk um hádegi í gær.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var konan að aka upp á hæð þegar
hún missti stjórn á jeppanum í
hálku. Aðstæður hafi verið þannig að
vegurinn hafi að mestu verið auður
en mikil hálka þar sem vegurinn
hækkar. Jeppinn valt tvær veltur og
er talinn ónýtur. Konan var í bílbelti
og þykir ljóst að hún hefði slasast
mun meira ef hún hefði ekki verið
með beltið spennt. Henni var ekið á
Heilbrigðisstofnunina á Selfossi til
aðhlynningar en meiðsl hennar voru
talin smávægileg og var líðan hennar
nokkuð góð.
♦ ♦ ♦