Morgunblaðið - 18.01.2002, Síða 45
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2002 45
S M Á R A L I N D
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingi um kynningarátak á íslenska
hestinum í Dillsburg í Pennsylv-
aníu í Bandaríkjunum í maí í vor.
Það er hópurinn sem stendur að
The Great Icelandic Horse Fair
sem sér um kynninguna en þessi
hópur hélt ámóta kynningu og
reiðnámskeið í Nýju-Mexíkó síð-
astliðið haust.
Þá var þegar áhugi á að standa
að öðru slíku verkefni í austur-
hluta Bandaríkjanna. Í frétta-
tilkynningu frá Birni Ólafssyni á
Þúfu í Kjós sem er markaðs- og
kynningarfulltrúi hópsins ásamt
konu sinni, Guðríði Gunn-
arsdóttur, kemur fram að hóp-
urinn og samstarfsaðilar í Banda-
ríkjunum hafi þegar unnið mikla
undirbúningsvinnu fyrir þetta
verkefni. Markmið hópsins sé að
kynna á faglegan hátt íslenska
hestinn og íslenska reiðmennsku
auk landsins sjálfs. Hann hvetur
þá sem áhuga hafa á samstarfi að
hafa samband við sig.
Aðrir sem ákveðið er að taki
þátt í verkefninu eru tamn-
ingameistararnir Eyjólfur Ísólfs-
son og Reynir Aðalsteinsson og
hestavöruverslunin Ástund auk
járningameistaranna Sigurðar
Torfa Sigurðssonar og Stefáns
Steinþórssonar og aðstoðarmann-
anna Idu Thellufsen og Soffíu
Reynisdóttur, Einars Reynissonar
og Hauks Þorvaldssonar.
Nýtt
kynn-
ingarátak
TGIHF
í Banda-
ríkjunum
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Guðríður Gunnarsdóttir t.v. og Björn Ólafsson t.h. ásamt bandarískum
skipuleggjendum kynningarátaks TGIHF í Nýju Mexíkó sl. haust.
INNLENT
RÚMLEGA þriðjungur grunn-
skólanemenda hér á landi tók þátt
í norræna skólahlaupinu í sept.-
des. sl. og var það í 17. sinn sem
skólahlaup þetta fór fram.
Alls hlupu 14.436 nemendur úr
70 grunnskólum og 4 framhalds-
skólum og lögðu samtals að baki
66.209,5 km. Til samanburðar má
geta þess að þessi vegalengd, sem
nemendurnir hlupu samtals, sam-
svarar því að hlaupið hafi verið
rúmlega 42 sinnum kringum landið
á hringveginum.
Með norræna skólahlaupinu er
leitast við að hvetja nemendur,
kennara og annað starfslið skól-
anna til þess að æfa hlaup og auka
við hreyfingu sína. Lögð er áhersla
á að kynna nauðsyn þess að hreyfa
sig og reyna á líkama sinn á ýms-
an hátt og stuðla þannig að betri
heilsu og vellíðan.
Keppt er að því að sem flestir,
helst allir, verði með í hlaupinu í
hverjum skóla og að þessu sinni
hlupu allir nemendur 17 skóla. All-
ir þátttakendur fengu sérstaka
viðurkenningu og skólarnir hver
fyrir sig viðurkenningarskjal, sem
Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins
veitti.
Umsjón með norræna skóla-
hlaupinu hefur íþrótta- og æsku-
lýðsdeild menntamálaráðuneytis-
ins í samvinnu við
Íþróttakennarafélag Íslands.
14.436
tóku þátt
í skóla-
hlaupinu