Morgunblaðið - 27.01.2002, Side 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Gestum mbl.is býðst að senda
kveðjur af mbl.is. Skemmtilegar
myndir fylgja kveðjunum og passa
þær við flest tilefni; afmæli,
giftingar, útskrift, fermingu eða
bara góða kveðju.
Smelltu þér á mbl.is
og sendu kveðju!
FYLGSTU MEÐ ÞVÍ NÝJASTA
sendu kveðju
DAGSKRÁ með ljóðum og tón-
list frá Frakklandi verður í
Listaklúbbi Leikhúskjallarans
nk. mánudagskvöld kl. 20.30.
Guðrún S. Birgisdóttir
flautuleikari og Elísabet
Waage hörpuleikari flytja tón-
list eftir Georges Bizet, Marcel
Tournier, Maurice Ravel,
Claude Debussy, Gabriel
Fauré og Jacques Ibert. Jó-
hann Sigurðarson leikari les við
undirleik Guðrúnar og Elísa-
betar, íslenskar þýðingar á
frönskum ljóðum sem skáldið
Sigurður Pálsson hefur valið.
Ljóðin eru eftir þrjá af helstu
skáldrisum Frakka, nítjándu
aldar skáldin Charles Baudel-
aire og Paul Verlaine og tutt-
ugustu aldar skáldið Jaques
Prévert. Þýðendur ljóðanna
eru Helgi Hálfdanarson, Jón
Óskar, Sigurður Pálsson og
Þorsteinn Gylfason.
Franskt
kvöld
í Lista-
klúbbnum
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Sýningu á pastelverkum Hrings
Jóhannessonar í Rauðu stofunni og
kynningu á ljósmyndum Magnúsar
Óskars Magnússonar í Ljósfold lýk-
ur í dag, sunnudag.
Gallerí Fold er opið daglega frá kl.
10–18, laugardaga til kl. 17 og sunnu-
daga kl. 14–17.
Sýningum lýkur
EINAR Falur
Ingólfsson ljós-
myndari heldur
fyrirlestur í LHÍ,
Laugarnesi, á
mánudag kl.
12.30. Fyrirlest-
urinn nefnist:
Henri Cartier
Bresson: Ljós-
myndari tuttug-
ustu aldar.
Fjallað verður um megineinkenni
hins merka franska ljósmyndara
sem hafði meiri áhrif á þróun ljós-
myndunar og birtingarmyndir henn-
ar en flestir aðrir á öldinni sem leið.
Sýndar verða myndir og fjallað um
það sem eftir Cartier liggur.
Einar Falur er með próf í bók-
menntafræði frá HÍ og MFA-gráðu í
ljósmyndun frá School of Visual Arts
í New York. Hann er myndstjóri
Morgunblaðsins.
Inga Ragnarsdóttir myndlistar-
maður flytur fyrirlestur í LHÍ, Skip-
holti 1, á miðvikudag, kl. 12.30. Fyr-
irlesturinn fjallar um þróun, út-
færslu og uppsetningu á verkinu
Brunnur sem nýverið var sett upp í
Kempten í Suður-Þýskalandi. Verk-
ið er „vatnsverk“ og nýtist einnig
sem leiktæki fyrir börn.
Inga útskrifaðist úr keramikdeild
MHÍ og lauk mastersgráðu í skúlpt-
úr frá Akademíunni í München. Hún
býr og starfar í Þýskalandi.
Námskeiðið Myndvinnsla II
Photoshop hefst 11. febrúar. Kenn-
ari er Höskuldur Harri Gylfason
grafískur hönnuður.
Fyrirlestrar
og námskeið
í LHÍ
Einar Falur
Ingólfsson
GAMALL draugur verður dreginn
inn á gafl í Hallgrímskirkju í dag, á
nýstárlegum tónleikum, þar sem
sönghópurinn Voces Thules, Matth-
ías Hemstock slagverksleikari og
Hörður Áskelsson orgelleikari flytja
íslenska tónlist frá miðöldum, spuna
með uppmögnuðum slagverkshljóð-
um og nýtt tónverk eftir Huga Guð-
mundsson.
Yfirskrift tónleikanna er fengin úr
þjóðsögunni um óvættinn Nadda
sem hélt til í Njarðvíkurskriðum við
Borgarfjörð eystri á 13. öld. Naddi
varð valdur að mörgum dauðsföllum
á þessum slóðum og forðuðust menn
að fara skriðurnar einir eftir að tók
að rökkva. Það var svo árið 1306 að
Jón nokkur Björnsson fór skriðurnar
einn að næturlagi og lenti í bardaga
við Nadda. Jóni tókst að verjast all-
lengi enda mikið hreystimenni. Leik-
urinn barst að meljaðri austar í
skriðunum og varð svo harður að Jón
sá tvísýnu á lífi sínu. Gerði hann þá
heit að ef hann sigraði skyldi hann
reisa minnismerki um Guðs vernd.
Þá brá svo við að eldingu sló niður á
milli þeirra. Við þetta féll Naddi í
ómegin, hrökk niður úr götunni og
ofan í sjó. Jón lét síðar reisa kross
þann er Naddakross er kallaður með
þeirri áskorun að hver sem færi þar
um skyldi krjúpandi fara með bæn.
Saga þessi
er framvinda
tónleikanna. Í
tveimur hlut-
um spinna
Matthías og
Hörður í kring-
um stemmn-
ingar í sögunni,
Hörður á orgel
kirkjunnar en
Matthías á
uppmagnað slagverk sem sent verð-
ur út í gegnum hljóðkerfi sem sett
verður upp bæði fyrir framan og aft-
an áheyrendur. Undir lokin, í verki
Huga, er flutt bæn líkt og áskorun
krossins kveður á um. Á milli þessara
þátta syngja svo Voces Thules trúar-
lega tónlist frá miðöldum sem fundist
hefur í íslenskum handritum.
Maríubæn sungin yfir Nadda
Hugi Guðmundsson tónskáld, seg-
ir að hugmyndin að tónleikunum hafi
orðið til fyrir um ári síðan. „Mig lang-
aði til að skapa heilsteypt prógramm,
þar sem tónlistin væri annars vegar
mjög gömul og hins vegar ný. Hug-
myndin var strax að fá þessa tónlist-
armenn, Hörð, Matthías og Voces
Thules til að vera með í þessu, í ljósi
þess sem þeir hafa verið að gera á
síðustu árum í tónlistinni. Mig lang-
aði að blanda saman þessum ólíku
þáttum, og við notum til þess þjóð-
söguna um Nadda, sem spinnst eins
og rauður þráður í gegnum tón-
leikana. Matthías og Hörður túlka
átök Nadda og Jóns í sínum spuna og
söngur Voces Thules fléttast inn í. Í
lokin kemur svo verk mitt, þar sem
þessir straumar mætast allir.“
Hugi segir að spuni þeirra Harðar
og Matthíasar sé mismikið undirbú-
inn. „Spunakaflarnir eru þó nokkuð
formaðir. Hluti Matthíasar í mínu
verki er nokkuð opinn, og ekki al-
gjörlega útskrifaður í nótur. Við höf-
um talað mikið um það hvernig þetta
á að vera og prófað okkur áfram.
Hann nýtir þær hugmyndir svo í sinn
hluta spunans. Hörður spinnur aftur
á móti meira úr þeim mótívum sem
Voces Thules syngja.“
Verk Huga er byggt á texta sem
sr. Geir Waage fann fyrir hann í
handritsbroti sem varðveitt er í
Reykholti. Textinn er Maríubæn og
segir Hugi að það megi líta á verkið
sem bæn fyrir vegfarendur við
Naddakross. Tónlistin er samin út
frá textanum; kórþátturinn er ein-
faldur í anda miðaldatónlistar, en
hvað hljóðfærin varðar segir Hugi að
hann nýti sér sérstaklega nýstárleg
hljóð slagverksins, meðal annars frá
hljóðfærum sem Matthías Hemstock
hefur sjálfur smíðað.
„Trúarleg tónlist er mín bæn“
Hugi Guðmundsson er við tón-
smíðanám í Danmörku, en hefur þeg-
ar vakið athygli fyrir verk sín, og í
haust hreppti hann verðlaun fyrir
kórverk í tónsmíðasamkeppni Karla-
kórs Reykjavíkur. Hann segir að það
hafi gert gæfumuninn fyrir sköpun
þessa verks að Menningarborgar-
sjóður veitti honum styrk til þess.
„Ég held að í tónsmíðum mínum sé
ég furðuleg blanda af einhverju mjög
hefðbundnu og nýju. Það er nýtt fyr-
ir mig í þessu verki að nota hljóð og
hljóðfæri sem eru ekki inn í klass-
ískum tónlistarheimi. Mér finnst það
mjög spennandi að víkka út þessa
möguleika; það hafa varla verið búin
til ný hljóðfæri í hundrað ár ef tölvan
er undanskilin. Trúarleg tónlist hef-
ur annars verið mitt svið, og að því
leyti er þetta hefðbundna hinn
strengurinn í mér. Trúarlega tónlist-
in er mín bæn, ef svo má segja, og því
leita ég oft í kirkjuna. Þar er viss
tónn sem ég sækist eftir í verkum
mínum, kyrrlátur og hljóður, og auð-
vitað mikið af sunginni tónlist. Það er
sterkt í mér að reyna að blanda sam-
an hefðbundnu og nýju. Þessu er
haldið allt of mikið aðskildu; mig
langar að koma þessu saman og þetta
er tilraun til þess.“
Tónleikarnir í Hallgrímskirkju í
dag hefjast kl. 17.00.
Nýtt og gamalt mætast á nýstárlegum tónleikum sem haldnir verða í Hallgrímskirkju
Naddi draugur
kveðinn niður
Morgunblaðið/Sverrir
Við æfingar: Hörður Áskelsson, hluti sönghópsins Voces Thules og Hugi Guðmundsson.
Hugi Guðmunds-
son tónskáld.