Morgunblaðið - 27.01.2002, Blaðsíða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 2002 31
✝ Skúli Guð-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 25.
mars 1924. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 22. jan-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Ágústs-
son frá Birtinga-
holti, vélstjóri, f. 2.
maí 1897, d. 23. júlí
1976, og fyrri kona
hans, Ragnheiður
Sigfúsdóttir Thor-
arensen húsfreyja, f.
25. júní 1897, d. 29.
ágúst 1942. Bræður Skúla voru: a)
Sigfús Haukur, flugumferðar-
stjóri, f. 27. júní 1920, d. 22. maí
1962, maki Sigrún Björgúlfsdóttir
og eiga þau þrjú börn, Skúla,
Ragnheiði og Þórunni. b) Magnús
Ágúst, fyrrv. skrifstofustjóri, f. 30.
ágúst 1926, maki Erna Sigurðar-
dóttir og eiga þau tvö börn, Sigríði
Hrefnu og Skúla. Skúli átti tvo
hálfbræður, Kára Guðmundsson,
flugumferðastjóra, f. 1. desember
1945, d. 18. júlí 1970, og Ágúst
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra, f. 11. mars 1950.
Hinn 6. ágúst 1949 kvæntist
Skúli Aðalbjörgu Björnsdóttur,
M.A. í dönsku, framhaldsskóla-
kennara, f. 14. febrúar 1926 í
Reykjavík. Dætur þeirra eru: a)
Kaupmannahöfn 1950. Árið 1950–
1951 starfaði Skúli hjá Frederiks-
berg Kommune í Kaupmannahöfn,
1951–1956 í gatna- og holræsa-
deild borgarverkfræðings í
Reykjavík og deildarverkfræðing-
ur þar frá 1956–1960. Skúli rak
eigin verkfræðistofu 1960–1961.
Var verkfræðingur hjá danska
verktakafyrirtækinu E. Phil og
Sön og starfaði á Borgundarhólmi
1961–1964, og deildarstjóri hjá
sama fyrirtæki í Færeyjum 1964–
1965. Hann var framkvæmdastjóri
Efrafalls sf. 1965–1970, og síðan
forstöðumaður framkvæmdadeild-
ar Innkaupastofnunar ríkisins frá
1970–1993. Skúli var stundakenn-
ari við Tækniskóla Íslands frá
1972 og einnig hjá verkfræðideild
HÍ frá 1974. Hann sat í stjórn Stúd-
entaráðs HÍ 1946–1947, Verkfræð-
ingafélags Íslands á árunum 1954–
1956, einnig í stjórn Lífeyrissjóðs
Verkfræðingafélagsins1954–1961
og Stéttarfélags verkfræðinga
1959–1960. Hann var í samstarfs-
nefnd um opinberar framkvæmdir
frá 1970–1993. Skúli var fulltrúi
Íslands í stjórn NKS, norrænu
samstarfi um ríkisbyggingar.
Skúli var landsþekktur íþrótta-
maður og margfaldur Íslands-
meistari í hástökki. Á námsárum
sínum í Kaupmannahöfn tók hann
virkan þátt í íþróttamótum þar.
Skúli var einnig fyrirliði íslenska
frjálsíþróttalandsliðsins sem sigr-
aði Dani og Norðmenn í Ósló 1951.
Útför Skúla fer fram frá Dóm-
kirkjunni á morgun, mánudaginn
28. janúar, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Ragnheiður, læknir í
Reykjavík, f. 21. mars
1951, d. 27. október
1981, maki Jón Barða-
son, framhaldsskóla-
kennari, f. 28. júlí
1949. Synir þeirra eru
Skúli Björn, f. 13.
febrúar 1978, sam-
býliskona Ágústa Sig-
urjónsdóttir, f. 30.
október 1981, og
Barði Már, f. 12. maí
1980. Seinni kona
Jóns er Sigríður Ein-
arsdóttir sérkennari,
f. 18. október 1951,
dóttir þeirra er Lára Jóhanna, f.
18. desember 1983. b) Margrét
Birna hjúkrunarfræðingur, f. 29.
júní 1955, maki Árni Tómasson
bankastjóri, f. 25. október 1955.
Börn þeirra eru Berglind Þóra, f.
25. júlí 1978, sambýlismaður Þor-
steinn H. Ástráðsson, f. 19. sept-
ember 1975, Björn Steinar, f. 15.
mars 1981, og Guðný Anna, f. 28.
mars 1988. c) Erla Björg kvik-
myndaleikstjóri, f. 22. apríl 1957,
maki Bradley James Boyer mark-
aðsráðgjafi, f. 20. júní 1950. Dóttir
þeirra er Savanna Eyrún, f. 21.
mars 1994.
Skúli lauk stúdentsprófi frá MR
1943, fyrrihlutaprófi í verkfræði
frá HÍ, prófi í byggingarverkfræði
frá Danmarks Tekniske Höjskole í
Tengdafaðir minn, Skúli Guð-
mundsson, er látinn. Hann lést að-
faranótt 22. janúar síðastliðinn á
hjúkrunarheimilinu Skjóli eftir
stutta sjúkralegu. Skúli hafði um
árabil barist við Alzheimer-sjúk-
dóminn og hafði hrakað mjög síð-
asta árið. Síðustu þrjú árin var hann
í dagvistun á Vitatorgi, fluttist síðan
að heiman í apríl sl. á sambýlið í
Laugaskjóli og svo yfir á Skjól í nóv-
ember. Vakti það eftirtekt mína og
annarra aðstandenda hversu vel var
um Skúla hugsað og hvílíkt úrvals-
fólk annaðist hann af mikilli nær-
gætni. Eru öllum sem önnuðust
Skúla á þessum erfiðu tímum færð-
ar alúðarþakkir. Alzheimer-sjúk-
dómurinn er aðstandendum ekki
síður en sjúklingum ákaflega erfið-
ur. Sorglegt er að horfa upp á lík-
amlega hraustan mann, sem ætti að
geta notið efri ára í faðmi fjölskyldu
sinnar, fjarlægjast ástvini sína and-
lega án þess að fá nokkru um það
ráðið, þvert gegn vilja allra. Aldrei
brast þó tengdaföður minn geðprýð-
ina og kurteisina, sem einkennt
hafði hann allt lífið, sama á hverju
gekk.
Hugurinn hvarflar aftur til átt-
unda áratugarins, er ég tók að venja
komur mínar á heimili Skúla og
Addýjar í Skeiðarvogi 43. Ég man
fyrst eftir Skúla þar sem hann stóð
með svuntuna við að elda mat ofan í
heimilisfólkið. Þessu hafði ég ekki
átt að venjast og fannst það í upp-
hafi svolítið sérstakt, en átti eftir að
venjast þessu og líka vel. Annað
vakti athygli mína, en það var hve
umræður við matarborðið voru fjör-
legar. Fannst mér nóg um hve syst-
urnar stóðu uppi í hárinu á pabba
sínum og andmæltu honum í einu og
öllu að mér fannst. Dáðist ég að þol-
inmæði Skúla og var ekki laust við
að hann hefði gaman af öllu saman,
hefur e.t.v. skynjað að þær voru að
láta til sín taka frammi fyrir gest-
inum. Enduðu þrætur nánast alltaf
með því að Skúli gekk yfir í bóka-
herbergi, tók fram eina af fjölmörg-
um alfræðibókum sínum og rak
uppivöðsluseggina á gat. Ástin og
umhyggjan fyrir dætrunum var þó
takmarkalítil og var það sannarlega
endurgoldið. Skúli var geysilega
fróður og víðlesinn, en flíkaði því
ekki frekar en öðru. Hann var betri
en enginn að hafa með sér þegar
farið var í spurningakeppni og kom
þá vel í ljós hversu fjölfróður hann
var. Skúli var í essinu sínu þegar
fjölskyldan kom í heimsókn. Duldist
engum hve vel honum leið þegar við
komum í ófá matarboð og hádeg-
ishlaðborð að danskri fyrirmynd, og
hann gat stjanað við okkur. Ekki
minnkaði ánægjan þegar barna-
börnin tóku að líta dagsins ljós og
var ekki óalgengt að sjá þennan
stóra mann liggja á fjórum fótum
eða á maganum að leik við smáfólk-
ið. Þegar barnabörnin uxu úr grasi
fylgdist hann af áhuga með fram-
gangi þeirra og þau löðuðust að afa
og ömmu í Skeiðarvogi. En lífið var
ekki eintóm hamingja og mikill
skuggi lagðist yfir heimilið þegar
elsta dóttirin, Ragnheiður, veiktist
af bráðahvítblæði árið 1980, þá ný-
lega útskrifuð sem læknir og ófrísk
að sínu öðru barni. Tók þetta mjög á
Skúla og þegar Ragnheiður lést var
það í eina skiptið sem ég sá tengda-
föður minn láta tilfinningar sínar
verulega í ljós. Eftir þetta fannst
mér Skúli aldrei samur, einhvern
veginn hafði slokknað á einhverjum
neista innra með honum, þó að ekki
léti hann það í ljós.
Mesta lán Skúla í lífinu var þegar
hann kynntist eiginkonu sinni, Aðal-
björgu Björnsdóttur. Skúli var þá
landsfræg íþróttahetja og einstak-
lega myndarlegur maður; óvenju
hávaxinn, 1,96 metrar á hæð, grann-
ur, tígulegur og bjartur yfirlitum.
Var eftir þessu glæsilega pari tekið
og gengu þau í hjónaband árið 1949.
Eftir að Skúli hætti í íþróttunum
1951 tóku við barneignir og venju-
bundið brauðstrit. Það var ekki í
anda Skúla að ganga að einhverju
með hangandi hendi og þegar hann
gat ekki lengur helgað sig íþrótt-
unum lagði hann þær algerlega á
hilluna en helgaði sig vinnu og fjöl-
skyldu. Engu að síður fylgdist Skúli
samt af áhuga með frjálsum íþrótt-
um allt sitt líf. Lýsir þetta nokkuð
lunderni Skúla en hann gat verið
mjög þrjóskur ef hann tók eitthvað í
sig þó alltaf færi hann fínt með
skoðanir sínar. Skúli stundaði ýmis
verkfræðistörf fram til 1961 er hann
réðst til starfa hjá danska verktaka-
fyrirtækinu E. Phil og Sön að ósk
eiganda þess Sören Langvad. Þeir
Skúli höfðu kynnst á námsárunum
úti í Kaupmannahöfn og tókst mikil
vinátta með þeim sem hélst óslitið.
Addý og dæturnar fluttu með Skúla
til Borgundarhólms og áttu þau þar
þrjú yndisleg ár og eignuðust marga
vini. Tóku þau Addý miklu ástfóstri
við danska menningu, fluttu með sér
heim marga góða siði og nutum við
þessa í hvívetna. Skúli vann að og
stjórnaði ýmsum verkefnum innan
lands og utan þar til hann réðst sem
forstöðumaður til framkvæmda-
deildar Innkaupastofnunar ríkisins
árið 1970, sem nú heitir Fram-
kvæmdasýsla ríkisins. Starfaði
Skúli þar óslitið uns hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir 1993.
Skúli var einstaklega vinnusamur
og stálheiðarlegur embættismaður.
Var ekki óalgengt að hann væri
kominn á fætur og byrjaður að
vinna heima fyrir fimm á morgnana.
Mest fór í taugarnar á honum ef
reynt var að þrýsta á um val á verk-
taka án þess að fagleg sjónarmið
lægju að baki eða að setja fram-
kvæmd í gang sem ekki var búið að
hanna og fjármagna. Veit ég til þess
að hann gat verið mjög þver og
ósveigjanlegur þegar aðstæður sem
þessar komu upp og féll þetta ekki
alltaf í góðan jarðveg meðal stjórn-
málamanna, sem voru undir þrýst-
ingi um að hefja framkvæmdir áður
en kjörtímabili lyki. Á síðustu ár-
unum áður en Skúli hætti, tókum við
eftir, og gerðum reyndar grín að þá,
að Skúli tók alla fundi og viðtöl
vegna starfsins upp á segulband og
vann minnisblöð og úrlausnir á
grundvelli þess. Eftir á að hyggja
hefur sjúkdómurinn sennilega verið
farinn að gera vart við sig, því fljót-
lega eftir að hann lét af störfum
ágerðist þetta. Það aftraði Skúla þó
ekki frá því að hafa, ásamt nokkrum
öðrum góðum mönnum, forgöngu
um byggingu íbúðarblokkar fyrir
eldri borgara á Þorragötu 9. Kom
Skúli mjög að öllum undirbúningi,
framkvæmd útboða, og hafði eftirlit
með byggingunni. Verður ekki ann-
að séð en að vel hafi til tekist. Fluttu
þau Addý í Þorragötuna árið 1996
og áttu þar góð ár saman þar til
sjúkdómurinn ágerðist.
Að leiðarlokum vil ég þakka
elskulegum tengdaföður fyrir sam-
fylgdina. Aldrei minnist ég þess að
styggðaryrði hafi fallið af vörum
hans í minn garð. Þegar honum
þótti ég helst til hvatvís í svörum,
brosti hann einungis og sagði sem
svo: Ja, þú kýst að orða þetta svona!
Minningin um heiðarlegan mann og
ástúðlegan afa mun fylgja fjölskyldu
okkar og sefa sorgina. Guð blessi
minningu Skúla Guðmundssonar.
Árni Tómasson.
SKÚLI
GUÐMUNDSSON
✝ Herbert PatrickWard (Herbert
Albertsson) fæddist í
bænum Navan á Ír-
landi 10. júlí 1922.
Hann lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut að morgni
sunnudagsins 20. jan-
úar síðastliðins.
Hann var sonur
hjónanna Herberts
og Brigid Ward, sem
auk Herberts áttu
sex dætur og eru
fimm þeirra enn á
lífi.
Eftirlifandi kona Herberts er
Jenný Clausen, f.
1916, en hún er dótt-
ir Axels Clausen
verslunarmanns, f.
1888, d. 1985, og
Þóru Svanfríðar
Árnadóttur, f. 1894,
d. 1950. Einkabarn
Herberts og Jennýj-
ar var sonurinn
Svanur Laurence, f.
1950, d. 1982.
Útför Herberts
verður gerð frá
Landakotskirkju á
morgun, mánudag-
inn 28. janúar, og
hefst athöfnin klukkan 14.
Ég ætla að kveðja með fáeinum
orðum Herbert Patrick Ward, en
hann kom fyrst til Íslands árið 1943
sem hermaður í breska setuliðinu.
Hér kynntist hann konu sinni og
þau giftu sig árið 1950. Hann gerðist
síðar íslenskur ríkisborgari og
þurfti þá samkvæmt lögum að taka
sér íslenskt nafn og tók sér nafnið
Herbert, en eitthvað skolaðist föð-
urnafnið til í „kerfinu“ sem skráði
hann Albertsson. Í okkar fjölskyldu
var íslenska útgáfan á nafni hans
nánast aldrei notuð. Hann var alltaf
kallaður Paddy, sem er stytting á
því rammírska nafni Patrick, en
hann var mjög stoltur af írskum
uppruna sínum.
Það kom mjög vel fram þegar ég
fylgdi honum í sjúkrabíl á Landspít-
alann tveimur dögum áður en hann
lést. Þá var verulega af honum dreg-
ið, hann átti bágt með að tjá sig og
hjúkrunarfólkinu sem tók á móti
honum gekk erfiðlega að skilja
hann. Ef það mætti hjálpa til, sagði
ég því að hann kæmi upphaflega frá
Englandi. En þegar ég minntist á
England lyfti minn maður upp
hendinni af veikum mætti og leið-
rétti mig. Hann sagðist vera írskur,
ekki enskur. Það skyldi vera á
hreinu. Fyrir nokkrum árum leitaði
hann uppruna síns og heimsótti Ír-
land og fæðingarstað sinn í Navan
sem fyrr er getið og var það honum
mikils virði að koma þangað aftur,
þó að allir hans ættingjar væru
löngu fluttir í burtu.
Svanur Laurence lést í hörmu-
legu bílslysi á leið sinni frá vinnu á
Keflavíkurflugvelli, en þar starfaði
hann sem matsveinn. Laurence var
kvæntur Margréti Sigurðardóttur
og saman áttu þau börnin Sigríði
Jenný sem var sjö ára og Patrick
Herbert sem var fjögurra ára þegar
faðir þeirra lést. Þau hafa haldið
góðu sambandi við afa sinn og
ömmu, sem fylgdust með öllu sem
þau tóku sér fyrir hendur og voru
mjög stolt af þeim.
Fyrir átti Laurence dótturina
Evu Lísu, sem er fædd 1969, en hún
ólst að mestu upp hjá afa sínum og
ömmu. Eva sem er gift Peter Craw-
ford hefur búið í Bristol í Englandi
síðustu árin. Hún fylgdist þó alltaf
vel með gömlu hjónunum í gegnum
síma og heimsóknir og þau fóru til
hennar þegar tækifæri gafst. Það
var alltaf sérlega kært með þeim
Evu og afa hennar og þegar að hún
fékk fréttir af því að hann væri al-
varlega veikur og kominn á spítala,
keyrði hún samstundis til London,
tók næstu flugvél til Íslands og vék
ekki frá honum fyrr en yfir lauk.
Eva á soninn Stefán Laurence sem
var síðast í heimsókn hjá langafa og
langömmu um síðustu jól. Áður en
hann fór aftur heim til Bristol lét
Paddy hann hafa hluti sem hann
hafði geymt alveg síðan hann var
hermaður Hennar Hátignar fyrir
margt löngu. Hann var að kveðja
Stefán í hinsta sinn og vissi af því.
Paddy og Jenný dvöldu í London í
tvö ár um það leyti að hann lauk
herskyldu, en sneru svo aftur til Ís-
lands og bjuggu hér alla tíð síðan.
Eftir heimkomuna starfaði Paddy
meðal annars sem bílstjóri hjá
breska sendiráðinu og bjó þá um
tíma í því sögufræga húsi Höfða í
Reykjavík. Eftir það stundaði hann
ýmis störf, lengst af viðgerðir á bíla-
rafmagni hjá Rafvélaverkstæði
Hauks og Ólafs og síðar Mögnun,
allt þar til hann hætti störfum.
Paddy og Jenný tóku mig und-
irritaðan að sér tveggja daga gaml-
an í veikindum móður minnar Krist-
rúnar Ingibjargar, sem var systir
Jennýjar og var ég hjá þeim tvö
fyrstu árin. Einnig átti ég athvarf á
heimili þeirra síðar á ævinni, sem ég
verð alltaf þakklátur fyrir.
Fyrir mína hönd og þeirra sem
næst mér standa, kveð ég vin minn
og velgjörðarmann Herbert Patrick
Ward. Hann er líklega kominn aftur
til Írlands þangað sem hugurinn
stefndi og vonandi búinn að hitta
Laurence eins og hann þráði.
Kristján Hermannsson.
HERBERT
PATRICK WARD
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
!"##
$
% &
%%
'
!"##$"%%
&# " $"%%
'# () $"%% )* $ #
&#+,- $"%% %$###
$ !"## ## ) ,"#"%%
+#+-#+#+#+-#
+#+#+#+#)