Morgunblaðið - 02.03.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMikilvægur sigur Stoke City á
heimavelli gegn Brighton / B1
Jón Arnar er þriðji á EM
en Vala er úr leik / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r2.
m a r s ˜ 2 0 0 2
Vegna gruns um illa meðferð á bú-
fénaði fékkst dómsúrskurður til að-
gerða á bænum á fimmtudag og
fóru á annan tug manna á staðinn
frá lögreglunni í Borgarnesi og
embætti yfirdýralæknis auk sýslu-
manns og héraðsdýralæknis. Að
sögn Stefáns Skarphéðinssonar
sýslumanns var um 1.600 fjár skoð-
að á bænum og tuttugu af um 120
hrossum.
Stefán sagði að lengi hefði verið
grunur uppi um að lög um dýra-
vernd og búfjárhald væru brotin á
bænum en eftirlitsaðilar átt erfitt
með að sinna skyldum sínum á
staðnum vegna mótmæla húsráð-
enda. Því hefði verið gripið til þess
ráðs að fá heimild Héraðsdóms
Vesturlands til aðgerða, sem byggði
úrskurð sinn á 18. gr. dýravernd-
arlaga. Þrjú systkini búa félagsbúi
á Höfða en annar bróðirinn hefur
verið með sitt sauðfé sér og án at-
hugasemda yfirvalda.
Auk þess að skoða búfénað, skrá
og vigta var húsakostur tekinn út
og kannað hvort þartilgerðum
reglugerðum væri fylgt. Áður hafði
heyforðinn á bænum verið mældur.
Stefán sagði að skýrsla yrði gefin út
í kjölfar frekari rannsókna og þá
tekin ákvörðun um hvort Höfða-
bændur yrðu kærðir fyrir brot á
lögum um dýravernd.
Gunnar Gauti Gunnarsson hér-
aðsdýralæknir sagði við Morgun-
blaðið að aðkoman á Höfða hefði
ekki verið glæsileg og strax orðið
ljóst að féð væri langtum fleira en
húsakostur leyfði.
„Ástandið á bænum var heldur
verra en maður bjóst við og ég
reiknaði ekki með að farið yrði með
hátt á fjórða hundrað fjár í burtu.
Þetta fé er að stofni til grófgert, er
meira í ætt við geitfé og safnar á
sig litlum holdum. Bændurnir segja
að þetta sé þeirra ræktunarstefna.
Nánari skoðun verður að leiða í ljós
hvort sauðféð hafi verið vannært,“
sagði Gunnar Gauti og taldi að eftir
helgi ættu að liggja fyrir einhverjar
niðurstöður rannsókna.
Róttækar aðgerðir
Héraðsdýralæknir sagði að í
gegnum tíðina hefði lítið gengið að
leiðbeina bændunum á Höfða um
fjölda fjárins og húsakost. Því hefði
orðið að grípa til róttækra aðgerða.
Spurður um ástand þeirra tuttugu
hrossa sem skoðuð voru á Höfða
sagði Gunnar Gauti að þau hefðu
virst vera í lagi. Tími hefði ekki
unnist til að skoða fleiri hross en
þessi tuttugu hefðu verið innan um
sauðféð.
Gunnar Örn Guðmundsson, dýra-
læknir á Hvanneyri og fulltrúi yf-
irdýralæknis, stjórnaði aðgerðum á
vettvangi. Hann sagði við Morg-
unblaðið að ástand búfjárins hefði í
sumum tilvikum verið mjög slæmt.
Ekki væri deilt um það að bænd-
urnir gæfu fénu heldur væri fjöldi
sauðfjár alls ekki í samræmi við
húsakostinn.
Lögregla og dýralæknar í nítján tíma að skoða 1.600 kindur á bæ í Borgarfirði
Hátt í 200 fjár varð
að flytja til slátrunar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær Sigurð Guðmundsson í
þriggja ára fangelsi fyrir að valda af
gáleysi dauða níu mánaða gamals
drengs með því að hrista hann harka-
lega þannig að hann lést af völdum
áverka sem höfðu öll einkenni þess
sem nefnt hefur verið „shaken-baby
syndrome“.
Sigurður hefur ávallt neitað sök en
dómurinn taldi að lögfull sönnun væri
fyrir því að hann einn hefði haft tæki-
færi til að hrista drenginn með þess-
um hætti. Dómnum verður áfrýjað til
Hæstaréttar en þetta er í fyrsta skipti
sem ákært og sakfellt er fyrir brot af
þessu tagi hér á landi. Sigurður var
auk þess dæmdur til að greiða for-
eldrum drengsins þrjár milljónir í
miskabætur og útfararkostnað
drengsins.
Sigurður var ásamt eiginkonu sinni
einnig dæmdur fyrir brot á almenn-
um hegningarlögum með því að hafa
haft mun fleiri börn í daggæslu en
þeim var heimilt og var hvoru um sig
gert að greiða eina milljón í sekt til
ríkissjóðs. Í niðurstöðum héraðsdóms
segir að útilokað sé að skyndilegur og
alvarlegur c-vítamínskortur, þ.e.
skyrbjúgur, hafi getað valdið dauða
drengsins, en að því hafði verjandi
mannsins látið liggja við aðalmeðferð
málsins. Réðu þar einkum vitnisburð-
ur Þóru Steffensen réttarmeinafræð-
ings og ítarlegar rannsóknir. Dómur-
inn taldi á hinn bóginn sannað, með
hliðsjón af nær samhljóða vitnisburði
hennar og annarra lækna sem báru
vitni, að drengurinn hefði hlotið alvar-
lega áverka sökum alvarlegs hrist-
ings. Áverkarnir hlytu að hafa leitt til
þess að drengurinn hafi örfáum sek-
úndum síðar verið kominn með mjög
skerta meðvitund eða hreinlega misst
meðvitund með öllu. Var tekið undir
það með sérfræðingunum sem báru
vitni að drengurinn hlyti að hafa hlot-
ið áverkana í daggæslunni. Sigurður
og kona hans voru samhljóða í þeim
framburði sínum að hegðun drengs-
ins hefði verið eðlileg í hádeginu og að
konan hefði síðan brugðið sér af heim-
ilinu til um kl. 14.
Hafði einn afskipti af barninu
Lagði dómurinn til grundvallar að
Sigurður hefði lagt drenginn í barna-
vagn skömmu eftir að kona hans kom
heim. Enginn annar hafði afskipti af
drengnum til klukkan 16.30 en hann
var þá meðvitundarlítill og lést um 42
klukkustundum síðar. Sigurður hefði
einn haft tækifæri til að hrista dreng-
inn svo harkalega að bani hlaust af.
Hjónin voru einnig sakfelld fyrir að
hafa brotið gegn reglugerð um dag-
gæslu í heimahúsum og þar með gegn
almennum hegningarlögum. Höfðu
þau leyfi fyrir ellefu börnum en frá
janúar til apríl árið 2001 voru þau með
sjö til ellefu fleiri börn í daggæslu en
þau höfðu leyfi til. „Dómurinn telur
þetta framferði ákærðu bera vott um
ábyrgðarleysi og sinnuleysi um and-
lega og líkamlega velferð þeirra
barna sem þeim var treyst fyrir. Þau
skirrðust hvorki við að taka alltof
mörg börn í daggæslu né heldur
blekkja daggæslufulltrúa á vegum
hins opinbera og foreldra barnanna,
sem margir hverjir vissu ekki að börn
þeirra voru óskráð,“ segir í dómnum.
Ákærðu ættu sér engar málsbætur en
fram kom að þau hefðu fengið á bilinu
600–900.000 krónur í tekjur á mánuði.
Um 1,6 milljónir töldu þau ekki fram
til skatts á fyrrihluta árs 2001.
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að valda dauða níu mánaða gamals drengs
Hafði einn tækifæri til að
hrista drenginn harkalega
ÓHÆTT er að segja að gamla
Morgunblaðshúsið við Aðalstræti
hafi tekið stakkaskiptum því með
undrum tækninnar hefur tekist að
endurvarpa fossi á uppljómaða
framhlið hússins í tilefni af vetr-
arhátíðinni Ljós í myrkri sem nú
stendur yfir. Fossinn er ekki í
klakaböndum, þótt Vetur konungur
ríki og kuldaboli hafi bitið hraust-
lega frá sér að undanförnu.
„Foss
við Aðal-
stræti“
Morgunblaðið/Sverrir
HÁTT í 200 fjár af bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarfirði var flutt í slát-
urhúsið í Borgarnesi í gærmorgun til slátrunar og sýnatöku eftir ítarlega
vettvangsaðgerð á bænum nóttina og daginn áður sem alls tók nítján klukku-
stundir. Lauk aðgerð ekki fyrr en um fimmleytið í fyrrinótt. Þá var á þriðja
hundrað fjár flutt burtu af Höfða til fóðrunar á öðrum bæ í hreppnum. Síð-
degis í gær barst sýslumanni svo skrifleg kvörtun frá lögmanni ábúenda þar
sem aðgerðunum er mótmælt harðlega.
UPPSTILLINGARNEFND
þeirra þriggja stjórnmála-
flokka sem mynda Reykjavík-
urlistann hefur komið saman að
undanförnu. Nefndinni er ætl-
að að skipa, í samráði við Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra, í 7. og 12. sæti
listans, en auk þess í 16. sæti og
neðar á framboðslista R-listans
fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í vor.
Stefnt er að því að uppstill-
ingarnefndin komi saman um
helgina og að endanlegur fram-
boðslisti liggi fyrir á næstu
dögum.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru mestar lík-
ur á því að Dagur B. Eggerts-
son, læknir og rithöfundur, taki
7. sætið á listanum, en hann
nýtur stuðnings borgarstjóra í
það sæti.
7. sæti R-listans
Dagur B.
Eggertsson
líklegastur