Morgunblaðið - 02.03.2002, Side 38

Morgunblaðið - 02.03.2002, Side 38
UMRÆÐAN 38 LAUGARDAGUR 2. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ S extíu til sjötíu þúsund Íslendingar, þ.e. um fjórðungur þjóð- arinnar, þjást af geð- sjúkdómum einhvern tímann á lífsleiðinni. Þetta er sláandi hátt hlutfall, og það að þetta kemur manni á óvart er merki þess að þrátt fyrir frá- bært og ötult starf félagsins Geðhjálpar og samstarfsverk- efnisins Geðræktar, eru augu okkar ekki alveg opin fyrir því hversu stórt vandamál geð- sjúkdómar eru. Alþjóða heil- brigðisstofnunin WHO spáir því enda að geðraskanir verði al- gengasti sjúkdómurinn sem þjóðir heims standi frammi fyr- ir á 21. öld- inni. Samstarfs- verkefninu Geðrækt var formlega hleypt af stokkunum 10. október á síðasta ári, á alþjóða geðheil- brigðisdaginn. Að verkefninu standa einkaaðilar auk op- inberra aðila. Verkefnið hefur vakið athygli, enda mikilvægt málefni á ferð; geðsjúkdómar sem eru svo miklu algengari í heiminum en marga grunar. Geðræktarverkefnið hefur varp- að ljósi á þennan málaflokk og vakið margan til umhugsunar um eigin og annarra fordóma og ranghugmyndir. Í verkefninu er lögð áhersla á forvarnir og heilsueflingu, þ.e. geðrækt. Við virðumst nefnilega gleyma því að geðrækt er nauð- synleg eins og líkamsrækt. Með geðrækt er lögð áhersla á að hlúa að því sem heilt er og fyr- irbyggja með því geðraskanir á borð við kvíða og þunglyndi, eins og kemur fram á góðum vef Geðræktar, www.ged.is. Með líkamsrækt er á sama hátt lögð áhersla á að fyr- irbyggja líkamlega kvilla og styrkja líkamann. Vonandi á geðræktin eftir að verða jafn- stór hluti af lífsstíl Íslendinga og líkamsræktin er orðin, jafn- mikla rækt þarf að leggja við líkama og geð. Geðrækt- arstöðvar væru ekki svo vitlaus hugmynd, eða hvað? Margir hafa eflaust veitt at- hygli litlum bæklingum og póst- kortum sem dreift hefur verið á vegum Geðræktar. Bækling- urinn passar vel í veski og inni- heldur þarfar ábendingar til allra. M.a. um að tala um hlut- ina, hreyfa okkur og slaka á. Kortið hentar vel til að hengja í vinnubásinn sinn eða á ísskápinn og hefur að geyma geðorðin tíu sem eiga ekki síður erindi til okkar en jafnmörg vel þekkt boðorð. 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara. 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um. 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir. 4. Lærðu af mistökum þín- um. 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina. 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu. 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig. 8. Gefstu ekki upp, vel- gengni í lífinu er langhlaup. 9. Finndu og ræktaðu hæfi- leika þína. 10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast. Þetta eru svo þarfar ábend- ingar. Ég var á námskeiði í vik- unni þar sem kennarinn sagði okkur að setja okkur fimm svona persónuleg markmið eða geðorð, skrifa þau niður, plasta og geyma í veskinu okkar. Skoða þau reglulega og sér- staklega þegar á móti blæs. Ég er ekki ennþá búin að því en ætla mér það, alveg eins og ég ætla að halda dagbók yfir allar truflanirnar sem ég verð fyrir yfir daginn, setja mér yfirstíg- anleg markmið, vera ákveðin, færa verkefni yfir á aðra o.s.frv. (Þetta var sko tímastjórn- unarnámskeið, eitthvað sem ætti að vera hluti af skyldu- námi.) Mig langar að gera síðasta geðorðið að umtalsefni. Á áð- urnefndu afbragðs tímastjórn- unarnámskeiði hófst uppgötvun mín á mikilvægi þess að setja sér markmið. Hversu mikilvægt það er að skrifa niður, bæði markmið og verkefni sem liggja fyrir, hvort sem það er í starfi eða einkalífi. Við verðum að vita hvert við stefnum, fyrir lífstíð, til nokkurra ára, mánaða, vikna, daga og innan dagsins. Mark- miðin verða nefnilega að vera yfirstíganleg. Í dag efnir Geðhjálp til lands- söfnunar. Félagið Geðhjálp hef- ur barist fyrir réttindum geð- sjúkra og geðfatlaðra og staðið fyrir fræðslu um geðsjúkdóma um meira en tveggja áratuga skeið. Það er skylda okkar að leggja málefninu lið, taka við fræðslu með opnum huga, horf- ast í augu við fordóma og út- rýma þeim, og leggja okkar af mörkum til að bæta meðferð- arúrræði fyrir geðsjúka. Til að hrinda af stað brýnustu verkefnunum eru 70–80 millj- ónir króna nauðsynlegar, að sögn forsvarsmanna Geðhjálpar. Eftirmeðferð fyrir geðsjúka, helst þá sem þjást af þunglyndi, er það sem helst skortir, en tal- ið er að a.m.k. 800 manns á Ís- landi þurfi á slíkri eftirmeðferð að halda. Það er þannig að þeir sem þekkja einhvern sem á við geð- sjúkdóm eða geðröskun að stríða, vita hversu mikilvægt það er að augu almennings opn- ist fyrir því hversu alvarlegt vandamálið er. Við hin sömu virðumst kannski gleyma að geðrækt er allt eins mikilvæg, þ.e. að fyrirbyggja og hlúa að því sem er heilbrigt ennþá. Með Geðrækt og landssöfnun Geð- hjálpar eru skref stigin, bæði til að fyrirbyggja geðsjúkdóma og til að hjálpa þeim sem þegar eiga í stríði. Hvort tveggja er mikilvægt. Markmið og geðorð Vonandi á geðræktin eftir að verða jafnstór hluti af lífsstíl Íslendinga og líkamsræktin er orðin. Geðrækt- arstöðvar væru ekki svo vitlaus hugmynd, eða hvað? VIÐHORF Eftir Steingerði Ólafsdóttur steingerdur- @mbl.is GEÐHJÁLP, sem er félag sjúklinga, að- standenda og annarra sem láta sér annt um geðheilsu, leitar þessa dagana til þjóðarinnar um stuðing við brýn viðfangsefni – að koma á laggirnar nýrri með- ferð og skapa ný störf fyrir geðsjúka. Hugmyndin sem ver- ið hefur til umræðu hjá félaginu, meðal fagfólks á geðheilbrigðissviði og annars áhugafólks, gengur í stórum drátt- um út á að virkja reynslu þeirra sem sjálfir hafa átt við geðsjúkdóma að stríða og náð bata, um leið og nýtt er allt það besta sem fyrir hendi er í geð- heilbrigðisþjónustunni. Hjálp til sjálfshjálpar, virkni sjúk- lingsins og virðing fyrir honum eru lykilorð í nýrri meðferð, þar sem sjúklingurinn vinnur að sínum bata jafnfætis félagsráðgjafa, geðhjúkr- unarfólki, geðlækni, iðjuþjálfa, list- þjálfa og sálfræðingi, svo að helstu hópar fagfólks séu nefndir. En nýj- ungin í starfsliðinu verða ráðgjafar sem eru hverjum og einum sjúklingi til fulltingis í daglegu meðferðar- starfi. Í þeim hópi er gert ráð fyrir fólki sem sjálft hefur reynslu af geð- sjúkdómum. Er þá meðal annars stuðst við þá jákvæðu reynslu sem fengist hefur í áfengismeðferð hjá SÁÁ, þar sem ráðgjafar þekkja yf- irleitt sjúkdóminn af eigin raun. Það auðveldar þeim að ávinna sér traust sem er forsenda árangurs í einstak- lings- og hópmeðferð. Þjóðin lyfti á sínum tíma grettistaki við stofnun SÁÁ og upp- byggingu meðferðar- stofnana sem opnað hafa hverjum og einum Íslendingi, án tillits til þjóðfélagsstöðu, mögu- leika á að vinna bug á áfengis- og vímuefna- efnavanda. Fæstir gera sér grein fyrir því, að þetta aðgengi að áfeng- ismeðferð er einsdæmi í heiminum. Í engu öðru landi hafa jafnmargir hlutfallslega notið slíkr- ar meðferðar. Um leið hafa fordómar látið undan síga. Lykillinn að árangri í áfengismeð- ferð er tenging hennar við sjálfs- hjálparhópa og er þá ekki síst átt við AA-samtökin. Það er ævarandi verk- efni að viðhalda bata sínum og það gefst mörgum vel að gera það í hóp- starfi og á fundum þar sem fólk deilir reynslu sinni hvert með öðru og öðl- ast þannig styrk og von, vináttu og fé- lagsskap. Góð geðheilsa fæst ekki með ein- földum lausnum. Sá sem misst hefur geðheilsuna á oft erfitt að vinna bug á afneituninni, að viðurkenna að hjálp- ar sé þörf og að leita sér aðstoðar. Þá þurfa viðeigandi meðferðarúrræði að vera fyrir hendi og að vera aðgengi- leg. Síðast en ekki síst þarf stuðn- ingur að vera til staðar þegar með- ferð er lokið, þannig að ekki sæki aftur í sama farið. Þar vill Geðhjálp vera til staðar. Í félagsmiðstöðinni að Túngötu 7 er vaxandi starf, þar sem leitast er við að mæta þessum þörfum. Þar njóta einnig sjálfshjálparhópar aðstöðu fyrir vikulega fundi og er þar um að ræða ólíka sjúklingahópa sem starfa sjálfstætt. Nýja meðferðin fyrir geðsjúka sem Geðhjálp leitar nú stuðnings við hjá þjóðinni mun sameina það besta sem geðlækningar hafa upp á að bjóða og nálgun vandans á jafningjagrund- velli. Sú nýjung mun hjálpa einstak- lingnum til að horfast í augu við sinn vanda, að takast á við hann í meðferð- inni og að viðhalda batanum eftir að meðferð lýkur. Hjálp til sjálfshjálpar þarf að vera áþreifanleg. Geðsjúkir hafa löngum mátt líða fyrir grimma fordóma og verið út- skúfað í samfélagi okkar. Félagsleg einangrun, atvinnuleysi og fátækt ör- yrkjans hefur iðulega orðið þeirra hlutskipti. Mikið hefur áunnist í mál- efnum okkar á liðnum árum. En enn meira er þó óunnið. Átaks er þörf og Geðhjálp heitir á þjóðina að koma til liðs við okkur. Ný meðferð og ný störf munu leggja grunn að lífshamingju einstaklinga. Slíkt skilar sér. Ný meðferð fyrir geðsjúka Sveinn Rúnar Hauksson Geðhjálp Átaks er þörf, segir Sveinn Rúnar Hauks- son, og Geðhjálp heitir á þjóðina að koma til liðs við okkur. Höfundur er varaformaður Geðhjálpar. HVERNIG skyldi það vera að leggjast inn á geðdeild í dag? Nú þegar plássum hef- ur verið fækkað, hlýtur það að vera enn meira álag en ella. Færri pláss þýðir að meðal- legutími styttist og sjúklingar útskrifast fyrr. Ótímabærar út- skriftir hljóta að vera tíðari en áður. Hvar er metnaðurinn í geðheil- brigðismálum? Helst verður vart við metnað hjá Geðhjálp. Þar er uppbygging og þar hef- ur þjónustu, sem skort hefur, einfaldlega verið komið á fót. Úr öllum öðrum áttum heyrast nið- urskurðarraddir, við „étum“ of mikið af „gleðipillum“, er vælt (ég veit dæmi þess að sjúklingar hafi hætt lyfjatöku eða minnkað skammta sína í kjölfar slíks opinbers væls), og tals- menn Landspítala – háskólasjúkra- húss kveinka sér vegna „félagsþjón- ustu“ sem spítalinn veitir (þar er m.a. átt við geðdeildina að Arnar- holti, en aðbúnaður þar er slíkur að fjárveitendur mættu sjá sóma sinn í að bæta úr í stað þess að hóta lok- unum). Hvernig stendur á því að aldrei eru sett fram metnaðarfull áform af hálfu stjórnvalda um úrbætur í þess- um stóra og kostnaðarsama mála- flokki, sem snertir svo marga? Nú höfum við heilbrigðisáætlun, sem lít- ur vel út, en enn sem komið er höfum við ekki séð aðgerðir. Í Danmörku er pólitisk samstaða um að sjá til þess að allir sjúklingar á geðdeildum skuli vera á einbýlum. Í Noregi eru áætl- anir um að bjóða geðklofasjúkling- um aðstoð strax á fyrstu stigum sjúkdómsins, ekki nokkrum árum seinna þegar hann leiðir til innlagnar undir venjulegum kringumstæðum. Í Englandi eru stjórnvöld með áætl- un um markvissa fækkun sjálfsvíga. Hér á landi byggast nýjungar á eld- hugum og sjálfboðavinnu þeirra sem koma á fót fyrirbyggj- andi starfi, svo sem for- varnarverkefni gegn þunglyndi í 8. bekk grunnskóla, og Nýja barnið á Akureyri. Nú eru eldhugar aft- ur farnir af stað. Í þetta sinn beinist metnaður þeirra að því að koma á fót valkostum í með- ferð. Ekki í samkeppni við geðdeildirnar, held- ur sem viðbót, sérstak- lega viðbót við eftir- meðferð og endurhæfingu, sem er af skornum skammti eins og biðlistar eru til marks um. Miklu meiri eftirspurn er eftir endurhæfingu á geðsviði Reykjalundar en hægt er að sinna. Þar er um að ræða raunverulega þörf á hjálp við alvarlegum og lang- varandi vanda. Hjá Geðhjálp stendur ekki til að draga úr faglegum kröfum, en nýj- ungin felst í því að nýta þekkingu og stuðning þeirra sem hafa sjálfir reynt sambærilegar þjáningar, og hafa unnið bug á þeim. Ráðgjafa- kerfi eins og Geðhjálp leggur til gæti verið gagnleg viðbót og stuðningur við meðferð sem er í boði. Hægt væri að ganga lengra og leggja til breyt- ingu á lögræðislögum á þá lund að öllum sem eru lagðir inn eða með- höndlaðir gegn vilja sínum yrðu skipaðir persónulegir ráðgjafar, sem hefðu það hlutverk að gæta réttar þeirra og aðstoða þá á annan hátt. Slíkt kerfi hefur reynst vel í öðrum löndum. Geðhjálp hefur einnig lagt til að komið verði á sjálfshjálparhópum í tengslum við aðra meðferð. Þeir fjöl- mörgu sem hafa á síðustu áratugum nýtt sér sjálfshjálparhópa Geðhjálp- ar gætu eflaust tekið undir tillöguna og einnig aðstandendur sem finnst þeir ekki fá nægilegan stuðning í veikindum sinna nánustu. Ég hvet fagfólk til að gera áhugamönnunum kleift að koma á fót þessum viðbót- um við núverandi þjónustu. Áhuga- vert væri að rannsaka gagnsemina, og þróa sannreynda meðferð. Hins vegar er ljóst að erfitt væri fyrir fag- fólk að koma á og viðhalda þjónustu sem Geðhjálp leggur til, nema í nánu samstarfi við áhugamannafélag. Því verður ábyrgð Geðhjálpar talsverð, ef ráðgjafakerfi og sjálfshjálparhóp- ar eiga að vera valkostir í framtíð- inni. Geðhjálp hefur undanfarin ár boð- ið þeim, sem hafa mikið skerta starfsorku, verndaða vinnu og að- stöðu á vinnustofu. Nú hefur félagið ráðið til sín iðjuþjálfa og hefur áform um að bjóða ný störf til handa þeim sem hafa minni vinnugetu en flestir aðrir. Sennilega hefur jafn hvetjandi kerfi og vinnustofa Geðhjálpar ekki staðið til boða annars staðar: Hægt var að koma og vinna þegar maður treysti sér til, e.t.v. aðeins í eina klukkustund, og fá launin greidd strax. Ég vona að þjóðin styðji eldhug- ana og áform þeirra, með fjárfram- lögum. Til að metnaðarfullar áætl- anir verði að veruleika þarf einnig framlög úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra höfðu á réttu að standa þegar þeir sögðu á þingi ný- lega að nú þyrfti að leggja grunn að aðgerðum í geðheilbrigðismálum. Hins vegar höfum við aðeins séð nið- urskurð hingað til. Á næstunni gefst ráðamönnum og landsmönnum tæki- færi til taka þátt í að byggja upp nýja meðferð og ný störf fyrir geðsjúka. Valkostir í meðferð – á forsendum sjúklinga Pétur Hauksson Geðvernd Ég vona, segir Pétur Hauksson, að þjóðin styðji eldhugana og áform þeirra, með fjár- framlögum. Höfundur er geðlæknir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.